Morgunblaðið - 11.04.2019, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 11.04.2019, Qupperneq 34
Magn og verðmæti losunarheimilda frá 2013 til 2023 30 25 20 15 10 5 0 Verð á losunarheimildum á EUA* síðustu fimm ár, evrur/tonn CO2 201920182017201620152014 Losunarheimildir íslenskra flugrekenda Flugrekandi Heildarmagn losunarheim- ilda 2013-2023 (tonn CO2) Heildarverðmæti m.v. gengi EUA* í gær (kr.) Bluebird cargo** 75.816 256.015.469 WOW air** 821.814 2.775.101.515 Flugfélag Íslands 86.409 291.785.911 Icelandair 2.010.164 6.787.921.795 *EUA = sameiginlegur markaður með losunarheimildir innan Evrópska efnahagssvæðisins **Úthlutun losundarheimilda til Bluebird og WOW air hófst ekki fyrr en á árinu 2017 Heimild: businessinsider.com, European Union Transaction Log og Umhverfisstofnun gær nam gengið 25,2 evrum. Virði 186.364 eininga Icelandair árið 2013 var því aðeins 75 milljónir króna árið 2013 samanborið við 629 milljónir króna árið 2019 og hefur því rúmlega áttfaldast. 85% úthlutað endurgjaldslaust Á vef Umhverfisstofnunar kemur fram að stærstum hluta losunarheim- ilda í kerfinu sé úthlutað endurgjalds- laust til flugrekenda, eða um 85%. Af- gangurinn er seldur á uppboði. Vegna koltvísýringslosunar sinnar þurfa flug- rekendur að afla losunarheimilda í samræmi við hana. Þurfa því þeir flug- rekendur sem vilja auka umsvif sín að kaupa til sín heimildir. Að sama skapi geta þau fyrirtæki sem hyggjast draga úr umsvifum sínum átt inni heimildir sínar sem hægt er að losa um innan út- hlutunartímans. Á vef Umhverfisstofnunnar segir einnig að endurgjaldslaus úthlutun til einstakra flugrekenda ráðist „af svo- kölluðu árangursviðmiði sem tekur mið af því hversu mikið koldíoxíð flug- rekandi losar í samanburði við aðra flugrekendur í kerfinu“. Er þannig flugrekendum sem reka sparneytnar flugvélar ívilnað á kostnað þeirra sem losa hlutfallslega meira magn koltví- sýrings út í andrúmsloftið. Losunar- BAKSVIÐ Pétur Hreinsson peturh@mbl.is Flugfélagið Icelandair hefur fengið út- hlutaðar endurgjaldslausar losunar- heimildir (EUA) upp á 186.364 eining- ar á hverju ári frá árinu 2013 til ársins 2020 en lengra ná tölur frá Evrópu- sambandinu ekki. Hver eining jafn- gildir losun eins tonns af koltvísýringi (CO2) en sameiginlegur markaður um losunarmörk gildir fyrir Evrópska efnahagssvæðið (EES). Miðað við gengi gærdagsins á los- unarheimildum nemur virði losunar- heimilda Icelandair á árinu 2019 um 629,3 milljónum króna. Til samanburð- ar hafði hinu gjaldþrota WOW air ver- ið úthlutað 152.382 einingum, að and- virði 515 milljónir króna miðað við sama gengi, en líkt og fram kom í Við- skiptaMogganum í gær seldi WOW air frá sér umtalsverðan hluta þeirra los- unarheimilda sem því hafði verið út- hlutað árið 2019 til þess að bæta þrönga lausafjárstöðu félagsins. Gengi EUA-losunarheimilda hefur hækkað gríðarlega frá ársbyrjun 2018, en frá árinu 2012 til byrjun ársins 2018 hefur gengið verið 8,86 evrur einingin niður í tæpar þrjár evrur í apríl 2013. Í heimildir Icelandair dragast saman þrjú ár í röð, frá 2021 til 2023. Það er einnig tilfellið hjá öðrum flugrekend- um. Að því er fram kemur á vef Um- hverfisstofnunar nemur magn losunar- heimilda félagsins 182.264 einingum árið 2021, 174.244 árið 2022 og 162.744 árið 2023. Það má einnig rekja til inn- leiðingar línulegs lækkunarstuðuls fyr- ir heildarúthlutun losunarheimilda til EES. 6,8 milljarða virði í dag Frá árinu 2013 hefur Flugfélagi Ís- lands verið úthlutað 8.011 einingum á ári sem nemur 27 milljónum króna á gengi dagsins í dag. Frá árinu 2017 hefur fraktflugfélaginu Bluebird Cargo verið úthlutað 14.058 einingum á ári, sem nemur 47,5 milljónum króna. Samanlagðar losunarheimildir Blue- bird Cargo frá 2017 til 2023 nema 75.816 einingum eða um 256 milljónum króna. Samanlagðar losunarheimildir WOW air á sama tímabili hefðu verið 821.814 einingar, sem nemur 2,8 millj- örðum króna. Frá árinu 2013 nema samanlagðar losunarheimildir Flug- félags Íslands 86.409 einingum, eða 292 milljónum króna. Samanlagðar losun- arheimildir Icelandair nema tveimur milljónum eininga, eða um 6,8 milljörð- um króna á gengi dagsins í dag. Gengi á losunarheim- ildum hefur áttfaldast  Virði losunarheimilda Icelandair nemur 629 milljónum á ári 34 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. APRÍL 2019 Flugfélagið Icelandair mun fella niður 3,6% af flugferðum sínum á tímabilinu 1. apríl – 15. júní nk. vegna kyrrsetningar Boeing 737 MAX flugvéla félagsins. Þetta sam- svarar rúmlega 100 ferðum á tíma- bilinu, samkvæmt fréttatilkynningu frá félaginu. Þá segir að flugvél- arnar sem um ræðir verði kyrr- settar til 16. júní nk. „Með þeim mótvægisaðgerðum sem gripið hef- ur verið til með því að bæta leigu- vélum við flota félagsins hefur tek- ist að takmarka áhrifin á leiðakerfið verulega. Félagið gekk frá leigu á tveimur Boeing 767 breiðþotum sem tilkynnt var um þann 1. apríl síðastliðinn. Í dag gekk félagið frá leigu á þriðju vélinni en hún er af gerðinni Boeing 757-200 og er 184 sæta. Hún verður í rekstri frá 15. maí fram í lok september 2019,“ segir í tilkynningunni. Þá kemur fram að í flestum til- fellum sé um að ræða flug til áfangastaða þar sem fleiri en eitt flug eru í boði sama dag. Sætafram- boð félagsins helst nánast óbreytt þrátt fyrir þessar ráðstafanir, sam- kvæmt tilkynningunni, þar sem not- ast verður við Boeing 767 flugvélar sem eru stærri en Boeing 737 MAX vélarnar. Af þeim sökum sé gert ráð fyrir óverulegum áhrifum á heildarfjölda fluttra farþega á tíma- bilinu. Hlutabréfin lækkuðu Elvar Ingi Möller hlutabréfa- greinandi hjá Arion banka segir í samtali við Viðskiptapúls Við- skiptaMoggans að í fréttunum felist talsverð vonbrigði þar sem vonir hafi staðið til að Icelandair gæti fyllt talsvert í það skarð sem mynd- aðist á markaðinum í kjölfar gjald- þrots WOW air. Verð hlutabréfa Icelandair lækk- aði um rúm 2,3 prósent í kauphöll Íslans í gær í kjölfar fréttanna, og stóð gengi bréfanna 9,69 krónum á hlut í lok dags í gær. tobj@mbl.is Flug Boeing 737 MAX vélar eru kyrrsettar vegna tæknilegra galla. Icelandair fellir niður 100 ferðir vegna Max  Sérfræðingur Arion segir tíð- indin vonbrigði Hulda Ragnheiður Árnadóttir, stjórnarmaður Félags kvenna í at- vinnulífinu og framkvæmdastjóri Náttúruhamfaratrygginga Íslands, staðfestir að hún muni sækjast eftir kjöri í embætti formanns félagsins á aðalfundi þess 15. maí. Rakel Sveinsdóttir, meðeigandi GFK Lindarbæjar ehf., er formaður fé- lagsins og hefur setið í eitt kjör- tímabil, en heimilt er að gegna embættinu í tvö. Stefnir því í for- mannskosningar á fundinum. Hulda Ragnheiður segist vilja nálgast starfið frá nýjum sjónar- hóli. „Þetta snýst mikið um hvernig við nálgumst verkefnin og hvernig við finnum leiðir til þess að leyfa grasrótinni að hafa meiri áhrif á stefnumótun, þetta er náttúrlega gríðarlega stórt félag,“ útskýrir hún og bendir á að 1.100-1.200 kon- ur séu í félaginu. Frambjóðandinn segir jafnframt að mikil hreyfing sé á þessum konum inn og út úr félag- inu og hún vilji sjá hvað hægt sé að gera betur til þess að fleiri endist lengur í félaginu. gso@mbl.is Kosningar í FKA  Í framboð gegn sitjandi formanni Hulda R. Árnadóttir Rakel Sveinsdóttir LAUGAVEGI 24 - REYKJAVÍK - S. 552 0800 SKIPAGÖTU 7 - AKUREYRI - S. 462 4646 11. apríl 2019 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 118.42 118.98 118.7 Sterlingspund 154.86 155.62 155.24 Kanadadalur 88.97 89.49 89.23 Dönsk króna 17.871 17.975 17.923 Norsk króna 13.874 13.956 13.915 Sænsk króna 12.803 12.879 12.841 Svissn. franki 118.41 119.07 118.74 Japanskt jen 1.0631 1.0693 1.0662 SDR 164.42 165.4 164.91 Evra 133.43 134.17 133.8 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 163.6577 Hrávöruverð Gull 1301.85 ($/únsa) Ál 1858.0 ($/tonn) LME Hráolía 71.19 ($/fatið) Brent Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á Veitingafyrirtækið Lagardère Travel Retail á Íslandi, sem á og rekur veitinga- og kaffistaði í Flug- stöð Leifs Eiríkssonar, og fyrir- tækið Central Pay, sem býður upp á leiðir til þess að taka við greiðslum frá AliPay og WeChat Pay, hafa komist að samkomulagi um notkun á greiðslu- og markaðslausnunum Alipay og WeChat Pay á veitinga- og kaffistöðum Lagardère Travel Retail. Í tilkynningu segir að með þessu komi Lagardère Travel Re- tail á Íslandi til móts við ört stækk- andi hóp kínverskra ferðamanna sem koma til landsins með viðkomu í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. WeChat Pay eru farsíma- greiðslur sem eru innbyggðar í WeChat-samfélagsmiðilinn, sem er í tilkynningunni sagður einn vin- sælasti samfélagsmiðill í heimi með yfir milljarð notenda. Alipay, sem er í fararbroddi á sínu sviði í heim- inum, er farsímagreiðsluþjónusta, sem er notuð af yfir 700 milljónum í Kína, samkvæmt tilkynningunni. Koma til móts við kínverska ferðamenn Greiðslur Nord í Leifsstöð er rekið af Lagardère Travel Retail.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.