Morgunblaðið - 11.04.2019, Síða 36
36 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. APRÍL 2019
VIÐTAL
Veronika Stein.Magnúsdóttir
veronika@mbl.is
Skák undirbýr nemendur fyrir lífsins
þrautir og er jafngild almennri
menntun að sögn armenska stór-
meistarans og föður skákkennsl-
unnar í Armeníu, Smbats Lputians.
Hann hefur, fyrir hönd skákkennslu-
nefndar FIDE, lýst yfir áhuga á því
að styðja við skákkennslu í grunn-
skólum á Íslandi.
Smbat var í forsvari fyrir innleið-
ingu skákar í menntakerfi Armeníu,
þar sem skák hefur verið skyldufag í
grunnskólum frá árinu 2011. Fjögur
ár tók að koma á fót skákkennslu í
hverjum einasta skóla í borgum, bæj-
um og afskekktum sveitum Armeníu
en á Íslandi gæti ferlið tekið styttri
tíma vegna smæðar þjóðarinnar að
sögn Smbats. Nú vinnur hann að því
að miðla reynslu Armena af verkefn-
inu og talar fyrir því að skák verði
innleidd í menntakerfi allra ríkja.
„Stundum spyr ég fyrrverandi at-
vinnuskákmenn hvort skákkunnátta
þeirra hjálpi þeim í vinnunni og allir
svara því játandi. Skákmenn nálgast
verkefnin nefnilega með aðeins öðr-
um hætti en aðrir,“ sagði Smbat í
samtali við Morgunblaðið á meðan
umferð í Reykjavíkurskákmótinu
stóð yfir í Hörpu.
Ávinningur skákkunnáttu er mjög
mikill og skilar sér inn í samfélagið
með jákvæðum afleiðingum að sögn
Smbats en í því samhengi nefnir
hann fyrst af öllu sanngirni og rétt-
sýni.
Ábyrgð á mistökum
„Börn sem tefla frá unga aldri læra
mjög snemma að vinna eða tapa á
sanngjarnan hátt. Þau taka ábyrgð á
mistökum sínum og geta ekki kennt
neinum öðrum um að tapa. Þá þurfa
þau að horfast í augu við að þau
gerðu mistök og þurfa að standa sig
betur í framtíðinni. Alls staðar í sam-
félaginu er mikilvægt að fólk taki
ábyrgð á mistökum sínum,“ segir
Smbat og bætir við að skák sé mikil-
vægur undirbúningur fyrir þátttöku í
samfélaginu.
Í öðru lagi nefnir hann að ef börn
byrja ung að tefla læri þau fljótt að
leysa vandamál og taka ákvarðanir á
sjálfstæðan hátt.
„Skák snýst um að leysa vandamál
og hver leikur er ákvörðun. Í skák
þurfa börn að leysa vandamál sín á
sjálfstæðan hátt og taka eigin
ákvarðanir og foreldrar eru ekki á
staðnum til að segja þeim til,“ segir
Smbat og leggur áherslu á að það sé
góður undirbúningur fyrir lífið sjálft.
Í þriðja lagi þurfi skákmenn að
greina aðstæður og rýna í stöðuna
eftir hvern einasta leik. Þeir þurfi að
finna rétta leið í skák og í lífinu sjálfu
en einnig breytist staðan eftir hvern
leik sem leikinn er á borðinu. Það
reyni á aðlögunarhæfni, sem er fjórði
ávinningur skákkennslu sem Smbat
nefnir. Skák krefst gríðarlegrar ein-
beitingar og jafnframt sköpunargáfu,
skjótrar hugsunar og þolinmæði, að
sögn Smbats.
„Hvers vegna ganga börn í skóla,
hvað er menntun? Öll þessi atriði og
allur þessi ávinningur af skák telst til
alvörumenntunar,“ segir Smbat.
Stemmi stigu við
snjalltækjanotkun
Með tilkomu snjalltækja stendur
menntakerfið frammi fyrir nýjum
áskorunum að sögn Smbats. Stjórn-
völd víða um heim standi frammi fyr-
ir sameiginlegu vandamáli; einbeit-
ingarskorti nemenda vegna snjall-
tækja.
Smbat sótti ráðstefnu í London á
dögunum þar sem menntamála-
ráðherrar frá 120 löndum komu sam-
an en þar var rætt um nýjar áskor-
anir í menntakerfinu vegna þessa.
„Nú er það risavandamál í skólum
að börnin einbeita sér ekki. Á meðan
staðan á skákborðinu er sífellt að
breytast krefst skákin þess að iðk-
endur einbeiti sér. Þegar við teflum
má ekkert áreiti vera – það má ekk-
ert trufla einbeitinguna,“ segir
Smbat að endingu.
Skák eigi heima í menntakerfinu
Alþjóðaskáksambandið vill styðja við skákkennslu í skólum á Íslandi Smbat Lputian, formaður
nefndar FIDE um skákkennslumál, segir að skák geri börn sanngjarnari, réttsýnni og þolinmóðari
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Skákkennsla Stórmeistarinn og faðir skákkennslunnar í Armeníu, Smbat Lputian, segir að skák undirbúi
einstaklinginn fyrir áskoranir lífsins. Í heimalandi hans, Armeníu, hefur skák verið skyldufag frá árinu 2011.
Skák í skólum
» Árið 2011 varð skák að
skyldufagi í grunnskólum
Armeníu í 1.-4. bekk.
» Lögin tóku gildi þegar for-
seti Armeníu, Serzh Sargsyan,
var jafnframt forseti armenska
skáksambandsins.
» Skák verður áfram skyldu-
fag í Armeníu, að sögn Smbats.
» Armenar hafa þrisvar unnið
ólympíuskákmót; 2006, 2008
og 2012.
» Íbúafjöldi Armeníu er tæpar
þrjár milljónir.
FIDE vinnur nú að undirbúningi á rafrænum kennslugagnagrunni fyrir
skákkennara á heimsvísu en áætlaður undirbúningstími hans er 4 ár.
Smbat segir mikilvægt að virkja kennara til að verða skákkennarar, í stað
þess að gera þá að skákmönnum.
Þá mun skákkennslunefnd FIDE efna til ráðstefnu í maí og fjalla þar
um skákkennslu í skólakerfinu. Smbat hefur framkvæmt ýmsar rann-
sóknir á skákkennslu í skólum þar sem ýmislegt áhugavert hefur komið
fram.
Hyggst Smbat miðla reynslu sinni í málaflokknum á ráðstefnunni, þar
sem forsetar fjölda skáksambanda og fulltrúar menntamálaráðuneyta
koma saman, en forseti Skáksambands Íslands, Gunnar Björnsson,
hyggst sækja ráðstefnuna ásamt fulltrúa menntamálaráðuneytisins.
Undirbúa rafræn kennslugögn
MIÐLA REYNSLU ARMENA Á RÁÐSTEFNU
A U G N V Í T A M Í N
Fæst í öllum helstu apótekum
www.provision.is
Viteyes augnvítamínin er nauðsynleg
augum sérstaklega þeim sem glíma
við augnþurrk eða aldursbundina
augnbotnahrörnun.
Nýtt
Nýtt
Geðhjálp og Bergið standa á morgun
fyrir málþingi þar sem fjallað verður
um geðheilbrigði ungs fólks og upp-
byggingu Bergsins, lágþröskulda-
þjónustu fyrir ungt fólk sem ætlunin
er að setja á fót á Íslandi að forskrift
Headspace í Ástralíu.
Aðalgestur málþingsins verður
Patrick McGorry, stofnandi Heads-
pace, en einnig verður fjallað um
starfsemi Headspace í Danmörku og
uppbyggingu þjónustunnar á Íslandi.
Sigurþóra Bergsdóttir, formaður
Bergsins, segir að Headspace-mód-
elið taki á sig mismunandi myndir
milli landa og samfélaga en megin-
þræðirnir séu áhersla á gott aðgengi
fyrir ungmenni að þjónustu og sú
grunnsýn, að allir eigi rétt á að hafa
einhvern sem hlustar á forsendum
ungs fólks. Lögð sé áhersla á sam-
starf milli kerfa svo hægt sé að nýta
úrræði sem til eru og aðstoða ung-
menni við að finna úrræði við hæfi.
Headspace á uppruna sinn í Ástr-
alíu og segir Sigurþóra að yfir 100
miðstöðvar þar í landi kenni sig við
Headspace. Þjónustan sem þar er
veitt sé nokkuð víðtæk; allt frá heil-
brigðisþjónustu og geðmeðferðum til
virkniúrræða, þ.e. stuðnings við nám
og starf.
Í Danmörku eru 18 Headspace-
miðstöðvar og er
aðaláherslan þar
lögð á að veita
viðtalsþjónustu.
Að sögn Sigur-
þóru eru sjálf-
boðaliðar hryggj-
arstykkið í
starfseminni þar
en verið sé að
víkka þjónustuna
út með stuðningi
danska ríkisins.
Sigurþóra segir að á Íslandi sé
gert ráð fyrir að fara einhvern milli-
veg. „Við leggjum áherslu á að við er-
um ekki með meðferðir heldur þjón-
ustu þar sem ungmenni geta fengið
ráðgjöf hjá fagfólki en einnig gerum
við ráð fyrir að fara meira út í hóp-
astarf og fræðslustarf auk náms- og
starfsráðgjafar. Okkar sérstaða er
fyrst og fremst gott aðgengi, í gegn-
um síma og vefspjall auk lítils bið-
tíma eftir viðtali. Ekki verður þörf á
tilvísunum eða greiningum. Einnig
leggjum við áherslu á gott utanum-
hald um ungmenni þótt þau fari inn í
önnur úrræði líka.“
Málþingið er haldið á Grand hóteli
og hefst kl. 8:30 með ávarpi Ásmund-
ar Einars Daðasonar félagsmálaráð-
herra.
Fjallað um lág-
þröskuldaþjónustu
Málþing um geðheilbrigði ungs fólks
Patrick
McGorry