Morgunblaðið - 11.04.2019, Qupperneq 38
38 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. APRÍL 2019
IB ehf | Fossnes A | 800 Selfoss | ib.is
Nánari upplýsingar ib.is
Ábyrgð og þjónusta fylgir öllum nýjum bílum frá IB
Bílar á lager
Sími 4 80 80 80
2019 Chrysler Pacifica Hybrid
Limited
Glæsilegur 7 manna bíll. Einn með öllu, t.d. hita/
kæling í sætum, glerþak, leðursæti, bakkmyndavél,
Dvd spilari, Harman Kardon hljómflutningskerfi o.fl
o.fl. 3,6 L Hybrid.
VERÐ
8.490.000 m.vsk
2019 GMC 3500 Sierra SLT,
35” Litur: Summit white, svartur að innan. 6.6L
Duramax Diesel, 445 HÖ, 2019 Módel, 35 breyttur.
Vel útbúinn bíll t.d. upphitað stýri, sóllúga, BOSE
hátalarakerfi, dual alternators, upphituð og loftkæld
sæti, Z71-pakki heithúðaður pallur og kúla í palli (5th
wheel pakki) og fleira.
VERÐ
11.640.000 m.vsk
2018 RAM 3500 Laramie
Litur: Svartur (brilliant black), dökk grár að innan.
Black apperance pakki. 35” dekk. Ekinn 17.000 km.
6,7L Cummins, Aisin sjálfskipting, loftpúðafjöðrun,
heithúðaður pallur, fjarstart, 5th wheel towing pakki.
VERÐ
8.530.000 m.vsk
2018 Ford F-150 Lariat
Litur: Hvítur og brúnn / brúnn að innan. Einnig
til í Ruby red. Mojave leður sæti, bakkmyndavél,
heithúðaður pallur, sóllúga, fjarstart, 20 felgur o.fl.
3,5 L Ecoboost (V6), 10-gíra, 375 hestöfl, 470 lb-ft
of torque.
VERÐ
10.990.000 m.vsk
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Benjamin Netanyahu, forsætisráð-
herra Ísraels, er talinn líklegur til að
mynda nýja ríkisstjórn þótt lítill
munur sé á fylgi flokks hans, Likud,
og nýs bandalags miðjumanna í
þingkosningum í fyrradag.
Netanyahu hefur verið forsætis-
ráðherra í þrjú kjörtímabil í röð frá
2009 og gegndi embættinu einnig á
árunum 1996 til 1999. Myndi hann
nýja ríkisstjórn verður hann þaul-
sætnasti forsætisráðherrann í sögu
Ísraels síðar á árinu og slær met
þess fyrsta, Davids Ben-Gurions,
sem gegndi embættinu í rúm þrettán
ár. Líklegt er að Netanyahu verði
ennfremur fyrsti sitjandi forsætis-
ráðherrann til að verða ákærður fyr-
ir lögbrot.
Trúarflokkar efldust
Samkvæmt síðustu kjörtölum í
gær fékk Likud álíka mikið fylgi og
nýtt bandalag sem kennir sig við
fánaliti Ísraels, blátt og hvítt. Likud
fékk 30 þingsæti í síðustu kosningum
árið 2015 en honum var spáð 35 sæt-
um, álíka mörgum og nýja bandalag-
inu, í gær þegar eftir var að telja um
3% atkvæðanna, m.a. atkvæði her-
manna. Gert er ráð fyrir að úrslit
kosninganna liggi fyrir síðdegis í
dag.
Kjörtölurnar bentu til þess að Lik-
ud og samstarfsflokkar hans fengju
alls 65 sæti af 120 og gætu því mynd-
að nýja meirihlutastjórn. Líklegt er
því að Reuven Rivlin, forseti Ísraels,
veiti Netanyahu umboð til stjórnar-
myndunar og viðræðurnar geta stað-
ið í allt að 42 daga. Tveir flokkar
strangtrúaðra gyðinga fengu 16 sæti
samtals, þremur fleiri en í síðustu
kosningum, og búist er við að áhrif
þeirra aukist í stjórninni.
Netanyahu sagði að úrslitin væru
„glæsilegur sigur“ fyrir Likud og
samstarfsflokka hans. „Þetta verður
hægristjórn en ég verð forsætisráð-
herra allra,“ sagði hann. „Ég ætla að
verða forsætisráðherra allra borg-
ara Ísraels, hægrimanna, vinstri-
manna, gyðinga, þeirra sem eru ekki
gyðingar.“
Bláhvíta bandalagið var stofnað
fyrir kosningarnar og er undir for-
ystu fyrrverandi herforingja, Benn-
ys Gantz, sem var forseti ísraelska
herráðsins í fjögur ár frá 2011. Á
meðal annarra forystumanna banda-
lagsins eru tveir aðrir fyrrverandi
herforingjar og Yair Lapid, fyrrver-
andi fjármálaráðherra og formaður
miðflokksins Yesh Atid sem fékk ell-
efu þingsæti í síðustu kosningum.
Gantz lýsti úrslitunum sem „sögu-
legu afreki“ og sigri fyrir bláhvíta
bandalagið og sagði að aldrei áður
hefði stjórnmálaflokkur í Ísrael
fengið svo mikið fylgi svo skömmu
eftir að hann var stofnaður.
Vinstriflokkar guldu afhroð
Bláhvíta bandalagið getur þó ekki
myndað meirihlutastjórn vegna þess
að hugsanlegir samstarfsflokkar
þess á vinstrivængnum og flokkar
araba biðu mikinn ósigur. T.a.m.
fékk Verkamannaflokkurinn aðeins
sex þingsæti skv. síðustu kjörtölum,
en hann og miðflokkurinn Hatnuah
buðu fram saman í síðustu kosning-
um og fengu þá 24 sæti.
Ríkissaksóknari Ísraels hefur
sagt að hann hyggist ákæra Net-
anyahu fyrir mútuþægni, svik og
trúnaðarbrot í embætti forsætisráð-
herra. Lagalega ber Netanyahu ekki
skylda til að segja af sér verði hann
ákærður, aðeins ef hann hefur verið
dæmdur fyrir lögbrot.
Netanyahu heldur völdunum
Verður að öllum líkindum þaulsætnasti forsætisráðherrann í sögu Ísraels og fyrstur til að verða
ákærður í embættinu Likud og strangtrúarflokkar styrktu stöðu sína en vinstriflokkar töpuðu
Meretz
(vinstriflokkur)
Bláhvíta banda-
lagið (miðflokkur)
UTJ
(flokkur strang-
trúaðra gyðinga) Sameinaðir
hægrimenn
(bandalag
trúarflokka)
Shas
(strangtrúarfl.)
Verkamanna-
flokkurinn
(mið og vinstrifl.)
Kulanu
(miðflokkur)
Likud
(hægriflokkur)
Israel Beitenu
(þjóðernisflokkur)
Þingið (Knesset)
Hadash-Taal
(veraldlegur flokkur
araba)
Balad-Raam
(bandalag trúar-
flokka araba)
Þingkosningar í Ísrael
Skipting þingsæta skv. síðustu kjörtölum í gær
(97% atkvæðanna talin)
6
4
4
6
35
8
35
5
5sæti
120
4 8
AFP
Sigraði Netanyahu kveðst verða
forsætisráðherra allra Ísraela.
Stjörnufræðingar birtu í gær
fyrstu myndina, sem hefur verið
tekin af svartholi, og hún er af
risasvartholi sem er í 55 milljón
ljósára fjarlægð frá jörðinni.
Svartholið er í miðju Messier 87,
risasporvöluvetrarbrautar í miðju
Meyjarþyrpingarinnar, og er 6,5
milljörðum sinnum massameira en
sólin okkar. Svartholið er 40 millj-
arðar kílómetra í þvermál sem er
eins og sjöföld fjarlægðin á milli
sólarinnar og Plútós, að sögn Sæv-
ars Helga Bragasonar, fulltrúa Ís-
lands hjá Stjörnustöð Evrópulanda
á suðurhveli, í viðtali við mbl.is.
„Það sem við sjáum er stærra
en allt sólkerfið okkar,“ hefur
fréttavefur breska ríkisútvarpsins
eftir Heino Falcke, þýskum pró-
fessor í útvarpsstjörnufræði og
sérfræðingi í svartholum. „Þetta
er eitt þyngsta svarthol sem við
teljum að fyrirfinnist í alheim-
inum.“
Svarthol er eitt af furðum ver-
aldar, með svo mikinn þyngdar-
kraft að ekkert efni sem fellur þar
inn sleppur þaðan aftur. Myndin
var tekin með því að nota röð
samtengdra útvarpssjónauka.
Sjónaukum beint að svartholum
Ljósmynd AFP/Martin Bernetti
Suðurpólsstöðin,
Suðurskautslandinu
Chajnantor-sléttan,
Chile
Pico Veleta,
SpániMaunakea,
Havaí, Bandaríkjunum
Sierra Negra,
Mexíkó
Graham-fjall,
Arizona, Bandaríkjunum
Sjónaukar á sex stöðum í heiminum hafa verið notaðir til að taka myndir af svartholum
Stjörnustöð í Atacama-eyðimörkinni
í Chile, með 59 útvarpssjónauka,
tekur þátt í verkefninu
Fyrsta myndin af svartholi
Risasvarthol í 55 milljón ljósára fjarlægð frá jörðinni
Er með 6,5 milljörðum sinnum meiri massa en sólin
AFP
Fyrsta svartholsmyndin Umhverfis risasvartholið, sem er í miðjunni, er
skær „eldhringur“ sem myndast þegar ofurheitt gas fellur inn í það.