Morgunblaðið - 11.04.2019, Page 42

Morgunblaðið - 11.04.2019, Page 42
42 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. APRÍL 2019 Ljósmyndir Rutar og Silju Skipholti 31 • 105 Reykjavík • Sími 568 0150 Opið virka daga 10-17 • www.rut.is • Ljósmyndir Rutar og Silju Fyrir ökuskírteinið, passann, ferilskrána o.fl. Góð passamynd skiptir máli Engar tímapantanir Skjót og hröð þjónusta HURÐIR Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is • Stuttur afhendingartími • Hágæða íslensk framleiðsla • Val um fjölda lita í RAL-litakerfinu • Vindstyrktar hurðir Bílskúrs- og iðnaðarhurðir Iðnaðarhurðir Iðnaðarhurðir með gönguhurð Bílskúrshurðir Hurðir í trékarma Tvískiptar hurðir Smíðað eftir máli Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf Já, af hverju sit ég hér, gamall sjálfstæðis- jálkur, í slagtogi með örlagakommum og stríðöldum framsókn- armönnum, á baráttu- fundi um orkumál? Fundi, sem Ögmundur Jónasson, fyrrverandi þingmaður og ráð- herra, boðaði til um orkuauðlindir Íslands og hvar ráðstöfunar- vald yfir þessum dýrmætu auðlindum á að liggja. Reyndar er ég ekki ein úr mínum flokki sem sit þennan fund, mörg kunnugleg andlit má sjá í hópn- um í bland við allt hið pólitíska litróf sem skreytir þetta land. Jafnvel gam- all krataforingi lætur sig ekki vanta og virðist ekkert fyrirverða sig fyrir félagsskapinn; er meira að segja til í að leggja sitt lóð á vogarskál málefn- isins. „Öðruvísi mér áður brá“ gæti nú einhver sagt. Þetta og ýmislegt fleira fór í gegn- um huga minn þar sem ég sat í lessal gamla Landsbókasafnsins sem nú hefur verið endurskírt því flatneskju- lega nafni Safnahús, í anda nútíma krafna um hlutleysi. Þjóðmenning- arhús þótti jú svo forneskjulegt, enda fallið til að minna fólk á að þjóðin hafi eitt sinn átt sér einstaka menningu, þegar koma þarf því inn hjá þjóðinni að engin menning sé annarri fremri. Fundurinn var einmitt til að minna á að við værum þjóð sem kysi að vera það áfram án yfirþjóðlegra afskipta af óumdeildri eign, en nú liggur fyrir Alþingi þingsályktunartillaga um framsal valds yfir orkuauðlindunum sem í dag eru að 90% hluta í eigu þjóðarinnar. Ég sat fundinn vegna þess að þrátt fyrir fjálglegar yfirlýs- ingar um undanþágur og fyrirvara við samninginn, frá flokksforustu Sjálfstæðisflokksins, þá einfaldlega trúi ég ekki að fyrirvararnir haldi. Orkupakki 3 er hluti af langtíma áætlun um orkumál Evrópusam- bandsins. Allur pakkinn tekur mið af orkuþörf ESB – ekki Íslands. Og þó svo að forsvarsmenn þessara mála hér á landi skeyti ætíð við varnagl- anum „að ACER-stofnunin fái ekkert vald hér á meðan enginn sæstrengur tengir okkur við meginlandið“ þá vit- um við að sú tenging er rétt handan við hornið. Leyfisbeiðnirnar bíða í bunum. Án þessarar tengingar er pakkinn okkur óviðkomandi, því eins og staðan er í dag þá falla auðlindir þjóðarinnar utan EES-samningsins. Ef, hins vegar, við samþykkjum pakkann jafngildir það afsali valds yf- ir orkuauðlindunum, því um leið og sæstrengur er lagður (og hann verð- ur lagður), þá höfum við glatað tæki- færinu til að gera okkar eigin samn- inga á eigin forsendum. Þá hefur valdið yfir auðlindinni, hvort sem er löggjafar-, ríkis eða dómsvald, verið flutt til ESB og við sitj- um eftir sem hrávöru- framleiðandi, svo geðs- legt sem það nú er. Engin rök, sem haldið geta vatni, liggja fyrir um nauðsyn þess að samþykkja þessi mál sem nú eru til umræðu á Alþingi. Loforð um stór- lega bættan hag neyt- enda byggjast á arð- greiðslum í sjóði sem ráðamenn geta ausið úr að geðþótta – og kallast sjóðasukk. Neytandinn, í það minnsta hinn íslenski, borgar bara hærra verð fyrir sitt rafmagn sem jafnvel fæst þá skammtað. Loforð um þriggja fasa rafmagn á hvert byggt ból og „orku- öryggi“ hljómar eins og páskaegg til forstjóra Góu. Ríkt land sem býr yfir gullnámu eins og Landsvirkjun þarf ekki á slíkri ölmusu að halda. Þeir sem vilja virkja hverja sprænu þurfa hins vegar á hinu yfirþjóðlega valdi að halda til að fá framkvæmdaleyfin sem fást með því að skrúbba græna litinn af umhverfissinnum. Allir sem á annað borð hafa fylgst með sam- skiptum þjóða við ESB gera sér grein fyrir að fyrirvarar halda ekki. Við stöndum núna frammi fyrir glötuðum fyrirvörum varðandi landbúnaðar- málin rétt eins og bresku sjómenn- irnir sem trúðu á fyrirvara varðandi fiskveiðirétt sinn. Og Brexit-deilan, sem nú tröllríður heimsfréttunum, snýr að stærstum hluta um vantrú á fyrirvörum. Það ríkir vantrú á loforð stjórn- málamanna allra flokka. Þessi vantrú speglast í þeirri gríðarmiklu mætingu á fundinn sem haldinn var þann 6. apríl í Þjóðmenningarhúsinu. Sam- kvæmt glæru, sem brugðið var upp á fundinum um niðurstöðu ársgamallar skoðanakönnunar Gallup, þá eru 80,5% almennings á Íslandi á móti því að afsala sér valdi yfir orkumálum þjóðarinnar, þ.e. horft til allra flokka. Og til að bæta um betur þá eru 88,8% stuðningsmanna ríkisstjórnarinnar, sem ætlar að þröngva þessu máli í gegn, á móti þessu afsali. Það liggur því beinast við að spyrja – í umboði hvers starfar ríkisstjórn Íslands? Og í framhaldinu – í umboði hvers var þetta mál sett á dagskrá? Gjáin milli þings og þjóðar getur tæpast orðið dýpri. Af hverju ég? Eftir Ragnhildi Kolka Ragnhildur Kolka » Þegar 80,5% almenn- ings á Íslandi eru andsnúin afsali valds yf- ir orkumálum þjóðar- innar, má spyrja – í um- boði hvers var þetta mál sett á dagskrá? Höfundur er lífeindafræðingur. rjk9@simnet.is Lítið áberandi frétt bar fyrir augu í dag- blöðunum fyrir skemmstu, þar sem greint var frá sam- þykktum nýafstaðins kirkjuþings í Rvík. Þar var samþykkt samein- ing prestakalla bæði á Vestfjörðum og Aust- urlandi. Samt er svo að skilja, að prestum eigi ekki að fækka og þeir eigi áfram að þjóna sínum gömlu prestaköllum. Kirkjurnar verða líka áfram á sínum stað og þeim þarf að þjóna og eins að hirða. Í hverju verð- ur þá sparnaðurinn fólginn? Er ekki hægt að auka samstarf presta án þess að sameina? En svo kemur rús- ínan í pylsuendanum. Saurbæjar- prestakall í Hvalfjarðarsveit á að leggja niður. Það er nú svo. Í mínum huga og líklega fjölmargra lands- manna hefur Saurbær ákveðna sér- stöðu sem hið forna prestakall sálmaskáldsins, sr. Hallgríms Pét- urssonar. Í Saurbæ var hann prest- ur frá 1651 til starfsloka 1667. Þar átti hann líklega sín bestu ár, þar orti hann Passíusálm- ana og margt fleira af sínum besta kveðskap, andlegum og verald- legum sem þjóðin hefur varðveitt sem hinn dýr- asta arf. Að afleggja prestakall Hallgríms er svolítið eins og gefa í skyn, að minning hans skipti orðið minna máli. Nú veit ég ekki ná- kvæmlega hverjir sitja á hinu háa kirkjuþingi um þessar mundir. Vafalaust er það hið ágætasta fólk, sem vill sinna kirkju og kristni eftir bestu sannfæringu. En mikið skelfing er metnaðarleysið áberandi í þessum gjörningi kirkju- þingsins. Hefur þjóðkirkjan ekki skyldur að rækja við minningu mesta sálmaskálds þjóðarinnar og velgjörðamanns íslenskrar kristni? Oft er kvartað undan peningaleysi í kirkjunni og vafalaust með réttu. En það hefur áður þurft að byggja upp hús í Saurbæ. Sumarið 1662 brann bærinn í Saurbæ. Þá orti Hallgrímur hinn fagra sálm: Guð er minn Guð þó geisi nauð. Sóknarmenn brugðust við og reistu nýjan bæ, sem fjöl- skyldan gat flust inn í strax næsta vetur. Nú eru aðrir tímar, en erum við verr sett nú en þá, með allan auð- inn? Er hugsanlegt, að einhverjir, t.d. stofnanir eða fyrirtæki vildu styrkja byggingu nýs embættisbú- staðar á Saurbæ í minningu skálds- ins. Hefur það verið kannað? Það snýst ekki allt um peninga, kannski skortir fleira. Þjóðkirkjan ætti ekki að vera stofnun, þar sem menn sitja við skrifborðið og reikna út í pró- sentum hagkvæmni stærðarinnar og taka ákvarðanir út frá því. Kirkjan er samfélag fólks, sem trúir á Jesúm Krist, krossfestan og upprisinn, og boðar fagnaðarerindi hans ein- staklingum og þjóð til blessunar. Fá- ir hafa sýnt Krist í skýrara ljósi en sálmaskáldið í Saurbæ eða haft dýpri áhrif á kristnina í landi okkar. Fyrir það stöndum við sem þjóð í þakkarskuld. Skuldin sú verður aldrei ofgreidd. Sr. Hallgrímur Eftir Ólaf Hall- grímsson, Mælifelli »Nú veit ég ekki ná- kvæmlega hverjir sitja á hinu háa kirkju- þingi um þessar mundir. Ólafur Þ. Hallgrímsson Höf. er pastor emeritus. Það er æðioft sem ég er spurður um það hvort ég trúi því að greinaskrif mín hafi eitthvað að segja, æði- oft líka í háðstón. Ég svara því jafnan til að rödd heilbrigðs lífernis þurfi sannarlega að heyrast , enda eru þau samtök sem skrifað er fyrir með þann boðskap að lífsstíll hollra lífs- hátta sé einn dýrmætasti þáttur hamingjuríks lífs. Svo því sé enn einu sinni haldið til haga þá eru Bindindissamtökin arftaki Góð- templarareglunnar og þau eiga því sögu um farsælt umbótastarf í vel á annað hundrað ára. Góðtemplarar lyftu Grettistaki á sínum fyrstu áratugum og fram eft- ir allri tuttugustu öldinni var þetta fjöldahreyfing og margt af því fólki sem þar var í sveit framarlega í fé- lagsmálum almennt. Og enn er fólk í þessari hreyfingu sem varar við, því þess er sannarlega þörf. Ekki veldur sá er varar er oft sagt og mættu fleiri vara við þessari vá. Og af hverju ertu að skrifa þetta? Er þetta þá ekki fortíðin ein og engin þörf á einhverjum, sem vara við? Samt gjörum við bindind- ismenn það og höfum alltaf gjört og sækj- um mál okkar í virt- ustu vísindaniður- stöður þeirra sem gleggst vita. Og það þarf engin vísindi til, því dæmin dapurlegu eru deginum ljósari og áróður áfengisiðn- aðarins augljós svo alltof víða þar sem eins mætti halda af viðbrögðum ótrúleg- ustu manna að hér væri um hina ágætustu hollustu- drykki að ræða. Það er líka hrópað upp eða skráð feitasta letri að drykkju fylgi menning og með bjórnum hefði áfengismenning auk- ist gífurlega, gott ef ekki einhverjir skynskiptingar voru að tala um að gera bjórdaginn að almennum há- tíðisdegi svona eins og 17. júní eða 1. maí. Þvílíkur hugsanagangur vitandi um það þjóðarböl sem hvers konar áfengisneyzla skapar. Þessir vind- hanar dirfast að leika sér með þetta eins og ekkert sé nema ham- ingjan sem fylgir áfengisneyzlunni. Hafa þeir aldrei heyrt um Vog og það sem þar er sagt um þessa menningarlegu hamingju ? Og til að fyrirbyggja misskilning þá er því miður lítil menningarleg reisn yfir því blessaða fólki sem áfengið hefur á einn eða annan hátt lagt að velli eða eins og lýsing sem ég sá í blaði nýlega um hamingju fólks svohljóðandi orðrétt: „Á seinni stig- um sjúkdómsins líður fólk miklar kvalir, skömm og niðurbrot.“ Og þarna er verið að tala um fólk í fjötrum áfengisins og svo er hnykkt á því að minna á fylginautana, hvers konar vímuefni önnur sem hafa komið í kjölfar áfengisneyzl- unnar. En þetta allt nær ekki til þeirra sem setja bjórdaginn líklega ofar páskum og jólum þegar þeir ná að herleiða Alþingi með öllum þeim draugum auðhyggjunnar sem þar eru nú áferð. Og svo á að gera betur. Lang- holtskirkja hefur samkvæmt fregn- um dagsins tímabundið leyfi til vín- veitinga, og til hvers í ósköpunum? Jú, svo kórfélagar kirkjunnar geti svalað þorstanum á bjór á meðan þeir syngja sálma. Þvílík býsn segi ég nú bara, því þarna er verið að gefa öllum heilbrigðissjón- armiðum langt nef, því nú geta sumir ekki sungið sálma Guði til dýrðar öðruvísi en með bjór í belgnum eða hvað? Það er að vonum að þeim hitni í hamsi sem horft hefur upp á svo margar harmsögur tengdar áfeng- inu og ein birtingarmynd síbylj- unnar í áróðrinum er hin einstæða dýrkun á þessum eiturgjafa og þeim athöfnum þar sem bjórinn er í öndvegi hafður og auðvitað aldrei orð um þær hættur sem þarna fel- ast, sérstaklega fyrir þá ungu sem kynnu einmitt að ánetjast vegna dýrðarljómans sem ótrúlegustu menn bregða yfir bjórinn. Og rétt enn einu sinni að upplýsa að inn- leiðing bjórsins leiddi til enn meiri neyzlu áfengis, með enn meiri af- leiðingum, oft á versta veg svo sem aukningu á lifrarbólgu svo dæmi sé tekið. Það er nú öll menningin, gott fólk. Ekki veldur sá er varar Eftir Helga Seljan » Það er líka hrópað upp eða skráð feit- asta letri að drykkju fylgi menning og með bjórnum hefði áfengismenning aukist gífurlega. Helgi Seljan Höfundur er formaður fjölmiðlanefndar IOGT.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.