Morgunblaðið - 11.04.2019, Side 47

Morgunblaðið - 11.04.2019, Side 47
MINNINGAR 47 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. APRÍL 2019 Með fáeinum orðum vil ég kveðja góðan samferða- mann til margra ára. Ég kynntist Guðbrandi fyrst þegar hann starfaði sem afgreiðslumaður í pakkhúsi Kaupfélags Hvammsfjarðar í Búðardal. Hann var alltaf í góðu skapi, brosmildur og þjónustulipur. Ég var honum samferða í bændaferð fyrir mörgum árum og þar kom hann okkur ferða- félögunum rækilega á óvart. Hann kunni ókjör af vísum og kvæðum og gat farið með heilu kvæðin án þess að ruglast nokk- urn tímann. Hann reyndist líka ótrúlega fróður um menn og málefni. Ferðafélögum þótti þetta hin besta skemmtun, því fæst kvæðin höfðum við heyrt áður. Á síðustu árum höfðum við Guðbrandur enn meiri sam- skipti, þegar ég starfaði sem formaður Félags eldri borgara í nokkur ár. Þá stjórnaði hann jafnan félagsvistinni hjá okkur og stóð sig þar með mestu prýði. Enn lumaði hann á kvæð- um og vísum sem hann gaukaði að okkur. Öll börn Guðbrands og Mörtu gengu í grunnskólann í Búðardal þar sem ég starfaði sem kennari og síðar skóla- stjóri. Þau eru öll myndarfólk og stóðu sig vel. Guðbrandur var hlédrægur og tranaði sér aldrei fram, góð- ur félagi og alltaf léttur í bragði og hafði gaman af spaugilegum hliðum tilverunnar. Hann setti sinn svip á samfélag okkar og Guðbrandur Þórðarson ✝ GuðbrandurÞórðarson fæddist 24. október 1933. Hann lést 27. mars 2019. Útför Guðbrands fór fram 9. apríl 2019. ég held að öllum hafi líkað vel við hann. Ég og Jóna Valgerður, systir mín, viljum þakka honum góð kynni og samstarf í Fé- lagi eldri borgara í Dalabyggð og Reykhólahreppi. Við sendum Mörtu konu hans og börn- um þeirra og fjöl- skyldunni allri innilegar samúð- arkveðjur. Minningin lifir um góðan mann. Þrúður Kristjánsdóttir. Elsku þróttmikli, einlægi, góði og eirðarlausi afi minn er farinn. Afi var röskasti og dug- legasti maður sem ég hef þekkt. Margir þekkja afa að því að kunna ekki að fiska í hálft kar. Honum fannst það þurfa að vera fullt. Það er mér í fersku minni veiðitúr frá Flatey þegar Emma mín var komin 4-5 mánuði á leið að frumburðinum okkar. Báts- ferðir eru almennt ekki auðveld- ar fyrir hana en það var gott veður og hún ákvað að harka af sér og koma með okkur og veiða í soðið. Það fiskaðist lítið. Velt- ingur fór að aukast og ógleðin fór að segja til sín. Það var nú samt þannig að afa þótti ómögulegt var að fara strax í land þegar karið var svona hálftómt. Tveim til þrem klukkutímum síðar lét afi þó til leiðast enda þrýstingur orðinn allmikill, með hálft kar og við snerum heim í Flatey. Þegar heim var komið var gengið frá fiskinum þannig að hægt væri að gera að honum morguninn eftir. Héldum við. Afi gat þó ekki hamið sig og krafturinn smitaði út frá sér svo menn fóru aftur af stað og verk- ið var búið fyrir miðnætti. Ég held að flestir eigi einhverja svona sögu af afa. Afi var nýjungagjarn og mik- ið fyrir spil og tafl. Ein minning er þegar ég var væntanlega sex til sjö ára og við fórum í Bóka- búð Braga við Hlemm því afi var að kaupa sér tölvu. Þetta var svo gott sem fyrir tíma tölva! Fyrir valinu var Amst- rad-tölva með fullt af leikjum. Í mörg ár var þetta eina tölvan í fjölskyldunni og alltaf gaman fyrir lítinn gutta að koma vestur. Við fjölskyldan, ásamt vinum og frændum, fórum vestur til að smala Haukadalsfjall mörg ár í röð og þá var rekið í réttina við Jörva. Þetta gátu verið langir og strembnir laugardagar. Oftast endaði svo dagurinn með heim- sókn í vídeóleiguna hjá Krist- jáni í Búðardal því enn önnur tækni sem afi var einn af þeim fyrstu að innleiða var VHS- tæki. Svo reyndum við félagarn- ir að halda okkur vakandi því ekki dugði neitt minna en a.m.k. að horfa á hverja mynd tvisvar, helst þrisvar. Ég veit til þess að hann tefldi og spilaði mikið bridds í tölv- unni, sem hefur örugglega verið gott fyrir hann enda eflaust fáir með sömu þörf fyrir útrás fyrir spilaþörfina. Ég hugsa mjög oft til afa og spilagleðinnar hans en þessi eiginleiki hefur aldeilis skilað sér niður ættartréð til okkar, svo ekki sé meira sagt. Þegar ég kláraði 10. bekkinn fór ég vestur í Búðardal. Þar fór ég í róður með Jóa frænda og Guðbrandi afa í heila viku. Veiddum grásleppu. Við keyrð- um hvern morgun frá Búðardal klukkan sjö. Alltaf var afi búinn að borða hafragrautinn og tilbú- inn að leggja í hann þegar ung- lingurinn drattaðist fram úr korteri fyrir brottför. Þetta var skemmtileg reynsla en einnig prófgráða úr skóla samvisku- semi og dugnaðar. Mér finnst ennþá magnað að hugsa til þess að þegar hann þurfti að láta af störfum á bensínstöðinni, sökum aldurs, hófst nýr ferill sem skógar- bóndi. Orkan var slík. Afi tók alltaf á móti manni með brosi. Hann talaði ekki af sér. Lét verkin tala. Það var alltaf gott að vera í kringum afa. Bjarki Elvar Stefánsson. Þegar ég var 18 ára gömul varð ég þess heiðurs aðnjótandi að eignast fósturfjölskyldu í Búðardal. Þessi fjölskylda sam- anstóð af þeim Guðbrandi og Mörtu ásamt börnum þeirra fimm. Árið 1969 bjó ég hjá fjöl- skyldunni þar sem ég vann í Búðardal og var mér tekið eins og einni af börnunum og var stundum kynnt sem fósturdótt- ir þeirra. Væntumþykjan sem ég fékk frá þeim hjónum var mér ómetanleg. Hefur væntum- þykjan haldist allar götur síðan þó svo að heimsóknunum á Sunnubrautina hafi því miður fækkað síðari ár. Guðbrandur var einlægur, hlýr, barngóður og dásamlegur maður. Fannst mér Guðbrandur oft vera eins og afi sona minna og lýsir það vel þeirri hlýju sem hann hafði að geyma í minn garð. Guð- brandur var hörkuduglegur maður og ósérhlífinn og setti fjölskylduna alltaf í fyrsta sæti og var hann mjög hreykinn af börnum sínum og barnabörn- um. Það var ósjaldan sem hann bauð mér með í ferðir út í Flat- ey en því miður varð aldrei úr því að við færum saman en hef ég nokkrum sínum farið með dætrum hans og tengdasonum. Þær voru ófáar stundirnar sem áttum við eldhúsborðið á Sunnubrautinni og ræddum allt á milli himins og jarðar og hryggir það mig mjög að vita til þess að þær stundir verða ekki fleiri. Elsku Guðbrandur, takk fyr- ir allar þær samverustundir sem við áttum saman og alla þá hlýju til mín og minnar fjöl- skyldu. Þú munt alltaf eiga stóran hlut í mínu hjarta og minningar sem ég á um þig mun ég geyma til æviloka. Elsku Marta, börn, tengda- börn og barnabörn mína inni- legustu samúðarkveðjur. Guð geymi þig, elsku Guð- brandur minn, Hulda Sigurðardóttir. Fjóla Unnur Halldórsdóttir var yndisleg mann- eskja. Hún er það enn og mun ávallt lifa í minningum mínum, systk- ina minna og fjölskyldna okkar allra. Fjóla var nánasta vinkona móður minnar, Petrínu Krist- ínar Steindórsdóttur, en hún lést í janúar á síðastliðnu ári. Alltaf hef ég þekkt Fjólu. Mamma sagði mér að þær hefðu kynnst á Þingvöllum en báðar voru þær í vinnu og vist hjá Bíla-Steindóri og hans fjöl- skyldu sem ungar stúlkur. Upp frá þeirri tíð voru þær bestu vinkonur og aldrei bar skugga á þann vinskap. Þær stofnuðu síð- an eigin fjölskyldur og ávallt var mikill samgangur þar á milli. Við systkinin minnumst Fjólu með mikilli hlýju en þær vin- konur, mamma og hún, fylgdust náið með lífi og störfum barna sinna í gegnum árin. Fjóla var einnig helsti sálusorgari mömmu þegar eitthvað bjátaði á og alltaf tókst Fjólu að láta mömmu líta bjartari augum á Fjóla Unnur Halldórsdóttir ✝ Fjóla UnnurHalldórsdóttir fæddist 24. október 1922. Hún lést 16. mars 2019. Útförin fór fram 5. apríl 2019. vandamálin sem upp komu. Allaf var stutt í glens og gaman og Fjóla var einstaklega lagin við að koma manni í gott skap og hún var ávallt svo fynd- in og skemmtileg. Þegar ég byrjaði að eignast mín börn kom ekki ann- að til greina en að bjóða Fjólu í öll barnaafmælin og einnig man ég að hún kom með í ungbarnasund elstu dótt- ur minnar. Mamma og Fjóla samglödd- ust mér og manni mínum svo innilega þegar við eignuðumst börnin okkar þrjú að þau voru strax nefnd „englarnir hennar Rósu“. Hvað er að frétta af englunum þínum, Rósa? spurðu þær mig ávallt, mamma og Fjóla. Eftir að mamma lést í janúar 2018 var einstakt að heimsækja Fjólu. Fjóla gekk mér nánast í móðurstað, svo mikil hlýja og kærleikur geislaði af henni að hjartnæmt var að sjá svona fal- lega 95 ára konu hugsa svona fallega til manns. Höfðu þökk fyrir alla vinátt- una, ráðleggingarnar og hlýjuna gegnum áratugina, elsku Fjóla okkar. Fjölskyldunni allri sendi ég mínar innilegustu samúðar- kveðjur. Minningin um einstaka perlu lifir. Guð styrki og veri með ykkur öllum. Hún var einstök perla. Afar fágæt perla, skreytt fegurstu gimsteinum sem glitraði á og gerðu líf samferðamanna hennar innihaldsríkara og fegurra. Fáar perlur eru svo ríkulega búnar, gæddar svo mörgum af dýrmætustu gjöfum Guðs. Hún hafði ásjónu engils sem frá stafaði ilmur umhyggju og vináttu, ástar og kærleika. Hún var farvegur kærleika Guðs, kærleika sem ekki krafðist endur- gjalds. Hún var vitnisburður um bestu gjafir Guðs, trúna, vonina, kærleikann og lífið. Blessuð sé minning einstakrar perlu. (Sigurbjörn Þorkelsson) Rósa Jóhannesdóttir. Láttu nú ljósið þitt loga við rúmið mitt. Hafðu þar sess og sæti, signaði Jesús mæti. (Höf. ók.) Í dag kveðjum við elsku hjartans ömmu Fjólu í hinsta sinn. Amma var einstök og dásamleg kona, alltaf jákvæð og ekta í einu og öllu. Á hugann leita ótal minning- ar; þegar ég var í pössun hjá henni, öll afmælissímtölin, þeg- ar ég sem unglingur endurnýj- aði kynnin okkar, ferðalögin okkar saman til útlanda, þegar við hittumst í útlandinu og í seinni tíð heimsóknirnar og allt spjallið. Hún spurði mig ætíð hvenær ég ætlaði að flytja aftur til Íslands og vildi alltaf vita ná- kvæmlega hvenær ég kæmi aft- ur þegar að kveðjustund kom. Amma fylgdist mjög vel með öllum sínum afkomendum og mundi alla afmælisdaga og aldr- ei kom maður að tómum kof- unum hjá henni varðandi fréttir af skyldfólkinu. Ég verð ævinlega þakklát fyrir að hafa haft tækifæri til að koma til landsins og eiga með henni hennar síðustu stundir og vera til staðar þegar hún sofn- aði svefninum langa í faðmi fjöl- skyldu og ástvina. Við fjölskyldan, ég, Jón Páll, Halldór og Sigríður, viljum þakka ömmu Fjólu allt á liðnum árum með eftirfarandi ljóði eftir Ingibjörgu Sigurðardóttur: Amma kær, ert horfin okkur hér, en hlýjar bjartar minningar streyma um hjörtu þau er heitast unnu þér, og hafa mest að þakka, muna og geyma. Þú varst amma yndisleg og góð, og allt hið besta gafst þú hverju sinni, þinn trausti faðmur okkur opinn stóð, og ungar sálir vafðir elsku þinni. Þú gættir okkar, glöð við undum hjá, þær góðu stundir blessun, amma kæra. Nú hinstu kveðju hjörtu okkar tjá í hljóðri sorg og ástarþakkir færa. Hvíl í friði, elsku hjartans amma Fjóla. Björk, Jón Páll, Halldór og Sigríður. Elskuleg dóttir okkar, systir, mágkona og föðursystir, BJÖRG ARADÓTTIR rafmagnsverkfræðingur og tölvunarfræðingur, andaðist á krabbameinsdeild Landspítalans föstudaginn 5. apríl. Útförin fer fram frá Kópavogskirkju föstudaginn 12. apríl klukkan 15. Díana Þ. Kristjánsdóttir Ari G. Þórðarson Þórður Arason Elínborg G. Sigurjónsdóttir Kristján M. Arason Andrea J. Mohr-Arason Ari, Sigurjón, Bjarmi, Benjamín, Elías og Helgi Ástkær eiginkona mín, móðir okkar og amma, SÆDÍS VIGFÚSDÓTTIR, sjúkraliði, Strikinu 2, Garðabæ, lést í faðmi fjölskyldu sinnar á Landspítalanum við Hringbraut sunnudaginn 7. apríl. Útför hennar fer fram frá Vídalínskirkju í Garðabæ mánudaginn 15. apríl klukkan 15. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir. Sveinn Frímannsson Sveinn Lárus Sveinsson Dagbjört Ó. Njarðardóttir Breki Sæberg Rökkvi Sævaldur Vigdís Ó. Häsler Sveinsdóttir Gerald Häsler Alice Emilía Kamilla Marín Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, STEINGRÍMUR GÍSLASON frá Torfastöðum, lést aðfaranótt mánudagsins 8. apríl á hjúkrunarheimilinu Ljósheimum Selfossi. Útförin fer fram frá Selfosskirkju þriðjudaginn 16. apríl klukkan 13. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á Krabbameinsfélagið eða Vinafélag Ljósheima: 0152-26-60860, kt. 690216-0860. Árný V. Steingrímsdóttir Friðgeir Jónsson Jensína Sæunn Steingrd. Ægir Stefán Hilmarsson Aðalh. Jóna Steingrímsdóttir Björn Magnússon Gísli Steingrímsson Ragnheiður Sigmarsdóttir Sigurður Þór Steingrímsson Guðbjörg Bergsveinsdóttir Birgir Árdal Steingrímsson Margrét Jónsdóttir Bergur Geir Guðmundsson Sigrún Óskarsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Hugheilar þakkir til allra þeirra sem sýnt hafa okkur samúð og vináttu við andlát og útför eiginkonu minnar, móður, stjúpmóður, tengdamóður og ömmu, SIGRÍÐAR MARÍU JÓNSDÓTTUR. Einnig færum við öllum þeim sem önnuðust Sigríði í veikindum hennar á kvennadeild Landspítalans þakkir fyrir þeirra góðverk, umönnun og hjúkrun. Ennfremur þökkum við þeim fjölmörgu sem sýndu Sigríði og fjölskyldunni stuðning og umhyggju með hlýhug sínum og fyrirbænum. Árni Andersen Pétur Már Ólafsson Nína Sif Pétursdóttir Karvel Halldór Árnason Linda Sóley Halldórsdóttir Margrét Árnadóttir Eyþór Árnason Ása Óðinsdóttir og barnabörn Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát elsku mömmu okkar, tengdamömmu, ömmu og langömmu, MARÍU GUÐVARÐARDÓTTUR, sem lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni 11. mars og var jarðsungin föstudaginn 22. mars. Sérstakar þakkir fær starfsfólk á deild 2B á hjúkrunarheimilinu Sóltúni fyrir faglega umönnun. Magnea Gísladóttir Egill Heiðar Gíslason Guðfinna G. Whittingham Roger Whittingham Guðvarður Gíslason Marinó Óskar Gíslason Agnes S. Eiríksdóttir Róbert H. Sigurjónsson Helga J. Andrésdóttir ömmubörn og langömmubörn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.