Morgunblaðið - 11.04.2019, Side 49

Morgunblaðið - 11.04.2019, Side 49
MINNINGAR 49 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. APRÍL 2019 ✝ SteingrímurSigurjón Guð- mundsson fæddist 31. júlí 1949 í Hafnarfirði. Hann lést 31. mars 2019. Foreldrar hans voru Guðmundur Bergþórsson, f. 25.6. 1922, d. 13.3. 2000, og Bjarn- þóra Ólafsdóttir, f. 21.5. 1923, d. 23.12. 2001. Þau skildu. Al- bræður Steingríms eru; dreng- ur Guðmundsson, f. 13.9. 1946, d. sama dag. Ólafur B. Guð- mundsson, f. 15.9. 1947, kvænt- ur Laufeyju Sigríði Sigmunds- dóttur. Bergþór Guðmundsson, f. 22.1. 1952, kvæntur Jiraporn Hafnarfirði og á Suðureyri við Súgandafjörð. Á Suðureyri starfaði hann við fiskvinnslu og var virkur þátttakandi í íþróttafélaginu Stefni þar sem hann starfaði mikið með ung- lingum, aðallega sem liðs- stjóri.. Seinna fluttist hann til Hafnarfjarðar og starfaði með- al annars sem dyravörður í kvikmyndahúsinu Regnbog- anum og hjá Esso sem varð síðar að N1 en hann lauk starfsævi sinni þar. Stein- grímur var félagslyndur og fylgdist vel með bæði hand- bolta og fótbolta, hann var stuðningsmaður FH. Steingrímur var mikill fjöl- skyldumaður, hann bjó til fjölda ára með systur sinni og hennar fjölskyldu og var dug- legur að rækta samband sitt við bræður sína, ættingja og vini. Útför Steingríms fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju í dag, 11. apríl 2019, klukkan 13. Yuengklang. Sam- feðra bræður Steingríms eru Stefán Guðmunds- son, f. 19.7. 1964, kvæntur Hlíf Ragnarsdóttur, og Halldór Guð- mundsson, f. 19.7. 1964, sambýlis- kona hans er Ásta Ágústsdóttir. Sam- mæðra systir Steingríms er Vilhelmína Ingi- björg Eiríksdóttir, f. 19.11. 1954, sambýlismaður hennar er Reimar Kjartansson. Uppeldis- bróðir Steingríms er Kristinn Kristinsson og er sambýliskona hans Jóhanna Sigurðardóttir. Steingrímur ólst upp bæði í Þau voru slæm tíðindin sem okkur bárust á síðasta degi marsmánaðar, Steini hafði kvatt jarðlífið langt um aldur fram. Við Maja kynntust honum vel er við bjuggum á Suðureyri við Súgandafjörð á árunum 1979 til 1987 og höfðum af honum góð kynni. Vestra og jafnvel víðar voru karlmenn gjarnan kenndir við mæður sínar og því var hann yfirleitt kallaður Steini Binnu og það leið nokkur tími þar til við vissum að hann hét Steingrímur. Fyrstu kynnin af Steina voru stuttu eftir að við settumst að á Suðureyri. Við höfðum farið á viðburð í Félagsheimilinu dag- stund eina og var þar margt um manninn. Heyrðum við álengdar menn í samræðum og einn þeirra talaði talsvert hærra en hinir. Við nán- ari athugun sáum við mann í hópi félaga sinna og lá hann ekk- ert á skoðunum sínum á því mál- efni sem til umræðu var í hópnum. Þetta var Steini. Hann gat alveg látið í sér heyra ef svo bar undir, hafði sínar skoðanir og undi ekki óréttlæti. Við áttum eftir að kynnast Steina betur, við bjuggum í sömu blokkinni, hann hjá Binnu móður sinni og Eiríki stjúpa sínum. Þau eru látin, eðalmanneskjur bæði tvö og má hið sama segja um systkini hans sem nú syrgja kæran bróður. Við minnumst Steina sem öt- uls liðsmanns í íþróttafélaginu Stefni og saman stóðum við á sviði Félagsheimilis Súgfirðinga þá er Þorlákur þreytti var á svið settur við dágóðar vinsældir árið 1979. Steini kom einnig að afleys- ingum sem sýningarmaður við kvikmyndasýningar í Félags- heimilinu og sinnti þeim starfa af kostgæfni. Eftir að við Maja fluttum frá Suðureyri hittum við Steina sjaldnar en síðar á árum, þegar hann var fluttur á höfuð- borgarsvæðið, hittum við hann stundum á bensínstöð N1 í Hafnarfirði þar sem hann starf- aði um skeið. Við hittumst einnig á Sælu- helginni á Suðureyri þar sem Steini var hrókur alls fagnaðar í góðra vina hópi. Okkur Maju þótti ávallt vænt um Steina, það var ekkert illt til í honum, hann var góður og gegnheill og vinur vina sinna. Minningin um hann er góð og hún lifir. Við vottum eftirlifandi systkinum Steina sem og öðrum aðstandendum okkar innilegustu samúð, þeirra missir er mikill. Sveinbjörn og María. Elsku frændi minn. Það er svo sárt að missa þig eftir öll þessi ár sem þú bjóst með okkur mömmu. Það voru yndislegir tímar og ég á ekkert nema góðar minn- ingar um þig. Þótt ég væri oft að suða í þér hlustaðir þú alltaf á mig og gafst þér tíma til að sinna mér, ég var mjög heppin að eiga þig sem frænda. Ástarþakkir fyrir allar góðu stundirnar, ég á eftir að sakna þín svo mikið. Ég veit að þér líð- ur vel núna hjá ömmu og afa. Hvíldu í ást og friði. Þín frænka, Eyrún. Með örfáum orðum langar mig að kveðja kæran frænda minn og vin, Steingrím Sigurjón Guðmundsson. Hann var fæddur 31. júlí 1949 á Vesturbraut 4 í Hafnarfirði. „Steini“, eins og hann var allt- af kallaður, var sonur Bjarnþóru Ólafsdóttur og Guðmundar Bergþórssonar en þau hjónin áttu saman þrjá drengi, þá Ólaf, Steina og Bergþór, en þau skildu. Bjarnþóra giftist síðan föður- bróður mínum Eiríki Sigurðs- syni. Saman eignuðust þau Vil- helmínu Ingibjörgu, eða Ingu Villu, eins og hún er alltaf kölluð, 19. nóvember 1954. Steini kallaði mig nánast aldr- ei skírnarnafni heldur ávarpaði mig sem „frænku“, það þótti mér vænt um. Hann kom frá kær- leiksríku heimili, gleði og skop- skyn hans sýndi það svo vel alla tíð. Það var alltaf hlegið á heimili Eissa og Binnu og átti Steini ekki síst þátt í því en hann og Eissi áttu einstaklega gott skap saman. Steini var sú manngerð sem öllum líkaði vel við. Hann var hreinskiptinn, algóður og engin tilviljum hve vinmargur hann var. Steini kynntist mörgum í gegnum íþróttahreyfinguna en þar starfaði hann lengi og var öt- ull í starfi fyrir íþróttafélagið Stefni á Suðureyri enda heyrðist alltaf lang hæst í Steina á öllum leikjum þar sem hann hvatti áfram sitt lið, hvort heldur var í fótboltanum eða frjálsum íþrótt- um. Steini var svo auðvitað í öllum hugsanlegum félagsskap á Suðureyri eins og í Lions-hreyf- ingunni. Steini gegndi einnig trúnaðarstörfum í Fiskiðjunni Freyju og var hann í raun alltaf maður fólksins. Steini var formaður íþrótta- félagsins Stefnis í tvo heila ára- tugi. Hann var mikill keppnis- maður og honum var ætíð mikið í mun að Íþróttafélagið Stefnir ynni héraðsmótið á Núpi sem var stærsti íþróttaviðburður árs- ins í frjálsum í Vestur-Ísa- fjarðarsýslu. Steini var í senn húmoristi, kappsamur og úrræðagóður og átti það til, ef hann sá fyrir að það vantaði örfá stig upp á að vinna héraðsmótið, þá smalaði hann Súgfirðingum úr áhorfendabrekkunni til að keppa í einhverri grein til að ná inn þeim stigum sem upp á vant- aði til að vinna mótið. Þetta gerði Steini svo Súgfirðingar kæmust örugglega með bikarinn heim. Það tókst alltaf hjá Steina. Steini fluttist frá Suðureyri til Hafnarfjarðar árið 1993 eftir að hafa búið fyrir vestan í meira en 30 ár. Hann fylgdist vel með íþrótt- um og var dyggur FH-ingur enda kominn aftur í heimabæinn sinn. Það var alltaf gaman að hitta Steina, því hann var ávallt glaður, gerði gaman og stríddi helst örlítið, en gekk samt aldrei of langt né særði nokkurn. Gáfur prýddu fagurt hjarta, gleðin bjó í hreinni sál. Í orði og verki að vera sannur var þitt dýpsta hjartans mál. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Steini og Inga Villa voru mjög samrýnd systkini og hafa ávallt staðið þétt saman. Fráfall Steina er því mikill missir fyrir Ingu Villu og dóttur hennar Eyrúnu. Megi algóður Guð styrkja þær, Begga og Óla og alla fjölskyld- una við fráfall Steina frænda sem fór allt of snemma. Kveðja frá Steingerði frænku. Steini okkar var hrókur alls fagnaðar. Hann var einstaklega frændrækinn og hafði mikla ánægju af því að heimsækja vini og ættmenni út um borg og bý og jafnvel út fyrir landsteinana þegar hann heimsótti bræður sína. Honum þótti almennt afskap- lega vænt um fólk en þó sér- staklega um bræður sína og systur. Ekkert þótti honum skemmtilegra en að stríða bræðrum sínum og ekki var verra ef mágkonurnar tóku þátt í því, þá tók Steini bókstaflega bakföll af hlátri. Fyrir nokkuð mörgum árum tókum við upp á því að halda bræðralagshitting. Steini hafði lengi gengið undir viðurnefninu „blaðamaðurinn hjá DV“ þar sem hann bar fréttir á milli bræðranna og annarra ætt- menna. Skilnaður, barneignir, framhjáhald og drykkjusögur bar hann á milli og var þá ekkert verið að hengja sig í smáatriði, eins og hvort fótur væri fyrir sögunni eður ei. Á þessum bræðralagskvöldum, þar sem Inga Villa systir var auðvitað ein af bræðrunum, var margt brall- að sem ekki endilega er allt hæft á prenti en verður lengi minnst. Eitt skemmtilegt kemur þó upp í hugann en það er að við gáfum út dagblaðið DV í fullri stærð, einblöðung reyndar. Þar voru sagðar skröksögur af bræðrunum og mikið hlegið og þótti blaðamanninum okkar þetta alveg óendanlega fyndið. Við krýndum líka bræðurna með skrautrituðum borðum og fékk Steini borða er á stóð „Eftirsótt- asti piparsveinninn“ og þó mikið hafi verið hlegið þá erum við viss um að Steini hafi staðið fyllilega undir því. Þó að hann hafi ekki eignast konu og börn hefði eng- inn verið svikinn af eiginleikum hans enda góðmenni alveg í gegn. Eitt fyrsta verkefni nefndar bræðralagshittingsins var að kaupa svokölluð buff sem höfuð- föt. Valin voru ljótustu buffin í bænum og sett sem skylda að mæta með þau á höfðinu í hvert sinn sem bræður hittust. Viður- lögin við að gleyma buffi heima var að splæsa Tópasskotum á línuna. Þetta þótti Steina alveg brilljant enda gleymdi hann aldrei buffinu og hló óstjórnlega þegar Stefáni varð á að gleyma sínu. Nú þegar við kveðjum hann Steina okkar með miklum trega og söknuði munum við láta buff- ið hans fylgja honum og taka út okkar viðurlög að mæta ekki með buffið í hinstu kveðju og sendum hann í Sumarlandið með Tópasskot svo hann geti slegið um sig og haft gaman svona eins og hann vildi hafa það. Elsku Steini okkar, við þökk- um þér samfylgdina og vináttuna og látum nefndarstörfin fyrir næsta hitting í þínar hendur. Sjáumst hress í Sumarlandinu. Þinn bróðir og „uppáhalds mágkona“ Stefán og Hlíf. Steingrímur Sigur- jón Guðmundsson Veistu ef þú vin átt þann er þú vel trúir og vilt þú af honum gott geta. Geði skaltu við þann blanda og gjöfum skipta, fara að finna oft. (Úr Hávamálum) Þegar okkur barst sú sorgar- fregn að Bjössi vinur okkar hefði kvatt þennan heim sló þögn á marga því enda þótt við vissum flest að hverju stefndi þá var allt- af vonin til staðar, vonin eftir kraftaverki sem því miður varð ekki raunin. Hann hafði barist hetjulega við hinn illa vágest í nokkur ár en undir það síðasta sá hann og skildi að hverju stefndi og sætti sig við hið óumflýjanlega af stakri ró og æðruleysi sem ein- mitt einkenndi þennan góða dreng alla tíð. Hann talaði oft um að nú færi að styttast í að hann hitti hana Íu sína, eins og eig- inkona hans var ætíð kölluð. Bjössi var vel hagmæltur og kastaði oft fram vísum. Þessi, Áramót 2018-2019, sýnir glöggt að hverju stefndi: Lít yfir ár þá liðið er lít ég þar fáa gleðistund. Hvað nærir það næsta í skauti sér Björn Jóhannsson ✝ Björn Jóhanns-son fæddist 19. maí 1943. Hann lést 23. mars 2019. Útför hans hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. sé ég í hilli ánægju- fund? Ég kynntist Bjössa er við sett- umst saman níu ára gamlir á skóla- bekk í níu ára G í Laugarnesskóla, báðir nýir í bekkn- um og því settir saman við borð sem við héldum út barnaskólann. Þetta var skemmtilegur tími, góður bekkur og frábær kennari, Auður Eiríksdóttir, sem Bjössi talaði oft um og vitnaði í. Síðan skildi leiðir í nokkur ár, ég fór í Gaggó Vest en hann í Lindar- götuskólann en traustur vin- skapur hélst ávallt og brölluðum við oft mikið saman á þessum ár- um og ekki síður á framhalds- skólaárunum. Hann varð snemma hrifinn af körfubolta og fór að fara með mér á æfingar í KR sem honum fannst skrítið, enda uppalinn Valsari af Háteigsveginum. Hann var þó aldrei mikið fyrir keppnir enda fór hann snemma að taka þátt í félagsstörfum fyrir deildina og var formaður hennar í nokkur ár, m.a. árið 1973-74 er við unnum tvær bikarkeppnir, Reykjavíkurmót og Íslandsmót! Þá fórum við Bjössi saman í handbolta með Þrótti eitt ár og líkaði vel. Á framhaldsskólaár- um okkar vorum við báðir til sjós nokkur sumur á millilandaskip- um og líkaði vel. Jóhann pabbi hans var þá skipstjóri hjá Eim- skipafélagi Reykjavíkur og var Bjössi háseti bæði á Öskju og Kötlu. Á efri árum hellti hann sér í golfið og eignaðist þar marga góða vini, er ég ekki í nokkrum vafa um að keppnisskap hans hafi verið eins mikið þar og á öðrum sviðum. Þótt áhugi hans fyrir að mæta á leiki hafi dvínað hin síðari ár var hann mikill KR-ingur og hélt góðu sam- bandi við okkur öll. Spilaði „po- ol“ við Jón Otta, Helga og Haf- stein og var að þeirra sögn yfir- burðamaður í þessum hópi, fór með okkur í utanlandsferðir og siglingar og mætti vel í þorra- blótin. Vertu sæll góði vinur og takk fyrir trausta vináttu öll þessi ár. Dætrum hans, uppeldis- dætrum og syni ásamt fjöl- skyldum þeirra sendum við innilegar samúðarkveðjur og vitum að minning hans mun lifa um ókomin ár. Fyrir hönd KR-félaga og bekkjarsystkina úr 12 ára G í Laugarnesskóla, Einar Gunnar Bollason. Farinn er góður drengur, Bjössi eins og hann var alltaf kallaður. Þeir Garðar heitinn Hall- dórsson og Bjössi voru félagar sem höfðu spilað saman golf í mörg ár, svo mörg ár að þeir uppnefndu sig Dr. Hook og Mr. Slice sem vísaði til mismunandi sveiflutækni þeirra. Við kynntumst þeim fyrir um tíu árum í svokölluðu vetr- argolfi á Thorsvelli við Korp- úlfsstaði. Þeir voru óstöðvandi þótt það gengi oft á með éljum eða láréttri rigningu; alltaf var spilað og skapið í góðu lagi. Garðar dó fyrir rúmu ári en Bjössi var áfram með okkur, alltaf hress í bragði þótt hann næði ekki að sveifla kylfu síð- ustu mánuðina. Hann fylgdist með afrekum okkar hvort sem þau voru meiri eða minni, en bjartsýnin var ávallt í fyrir- rúmi. Lýsandi dæmi var ef upphafshöggið hjá okkur var ekki alveg eins og til stóð, þá komu alltaf hvatningarorð frá honum: „Það er annað höggið sem gildir!“ Fyrir þremur árum fórum við nokkrir félagar í ferð til Morgado í Portúgal og spiluð- um golf eins og við ættum lífið að leysa. Þar sáum við hvað hann Bjössi naut sín, að spila og fagna vel heppnuðum högg- um, slappa af eftir langan dag, borða góðan mat og hafa smá vín í glasi. Við gleymum heldur ekki vísunum sem birtust við ólíklegustu tækifæri. Þeim var safnað í kver sem birtist loks- ins fyrir ári. Frábær félagi er genginn, hans verður sárt saknað. Við vottum fjölskyldu hans okkar dýpstu samúð. GR-félagar: Daði Kolbeinsson, Elías Kárason, Hans Isebarn, Ingólfur Friðjónsson, Friðjón Örn Friðjónsson, Björk Snorradóttir, Ólafur Indriðason, Björn S. Vilhjálmsson. Við golffélagarnir í GR munum ávallt minnast Björns með miklum hlýhug, enda gaf hann alltaf frá sér góða nær- veru og hlýju. Skemmtilegasta golfatvik okkar tengist eflaust 9. nóvember 2013 þegar ég, Elías, Björn múrari og Bjössi okkar vorum að spila átta holur á Thorsvellinum, par 3-braut. Björn múrari sló fyrst beint ofan í, svo kom Björn okkar og sló við hliðina á flaginu. Elías sló inn á grínið og ég sem byrjandi hitti auðvitað ekki grínið. Björn pútt- aði ofan í fyrir fugl, Elías par og ég á fjórum höggum. Skorkortið leit því þannig út: 1-2-3-4 ogikið hlegið þann daginn. Við sem spilum golf vitum að það eru oft skin og skúrir í þess- ari erfiðu íþrótt, en aldrei sá ég þá félaga Garðar og Björn verða reiða úti á golfvellinum. Þeir voru alltaf afslappaðir, kurteisir og já- kvæðir í öllum sínum gjörðum. Algjör unun og heiður að hafa upplifað að spila með þeim golf og vera í návist þeirra. Nú eru báðir þessir heiðursmenn og indælu fé- lagar farnir yfir í aðra vídd, „sumarlandið góða“, og efast ég ekki um að Garðar tekur vel á móti félaga sínum. Við sem eftir erum hér á jörðinni munum ávallt sakna þeirra beggja og minnast þeirra með miklum hlýhug. Björn tilkynnti okkur golf- félögum sínum og öðrum um veikindi sín þegar þau hófust og hann tókst á við þau af ótrúlegu æðruleysi eins og honum einum var lagið og samdi vísur til að létta lund sína og annarra í kring- um sig. Mjög hagyrtur og bros- mildur karakter í alla staði. Alltaf jákvæður, vonandi allt fram í lok- in að honum tækist að yfirstíga alvarleg veikindi, en þegar læknirinn hans upplýsti hann í ár að svo færi ekki tók hann þeim sorglegu tíðindum með sinni ein- stöku ró og yfirvegun. Ég spurði hann hvort hann þyrfti hjálp frá mér og golffélögunum, en þá var hann fljótur að afþakka slíkt, því allir í fjölskyldunni hlúðu vel að honum og svo átti hann marga aðra félaga sem spiluðu vikulega með honum billjard. Allir tilbúnir að hjálpa þessum heiðursmanni. Þú skilur eftir auðlegð þá sem enginn tekið fær. Ást í hjarta, blik á brá, og brosin silfurtær. Mesta auðinn eignast sá er öllum reynist kær. (GÖ) Ég man að í marsmánuði ræddum við félagarnir um „lífið og tilveruna“, þá heyrði ég á hon- um að hann var búinn að búa sig gríðarlega vel undir það að hann myndi yfirgefa ástvini sína á þessu ári. Hann var sammála mér að ekkert væri að óttast við dauð- ann og hann sagði að í raun væri hann sáttur að fara því þá myndi hann aftur vera í návist sinnar „heittelskuðu“ og fannst mér fal- legt hversu „hrein og falleg sú ást þeirra hefur verið“. Leyfi mér að birta síðustu vísu hans frá facebooksíðu hans: Súldin vermir svörðinn hlý sálin rumskar híði í, vorsins draumar vakna á ný vonin björt nú aftur sný. Alltaf svo jákvæður og hress, þótt erfið veikindi herjuðu á hann. Það er því með miklum söknuði sem við golffélagarnir kveðjum frábæran félaga okkar. Við send- um fjölskyldu hans, ættingjum og öðrum ástvinum hans okkar hlýj- ustu samúðarkveðjur. Hvíl í friði, þú ert nú umvafinn englum, kæri félagi. Jakob Þór Haraldsson.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.