Morgunblaðið - 11.04.2019, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 11.04.2019, Blaðsíða 50
50 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. APRÍL 2019 ✝ Erna Magnús-dóttir Espersen fæddist í Reykjavík 1952. Hún lést á Bornholm í Dan- mörku 26. mars 2019. Foreldrar henn- ar voru Magnús Magnússon, f. 1927, d. 2003, og Dóra Sína Jónsdóttir, f. 1931, d. 2003. Systkini hennar eru Þór, f. 1953, Rut, f. 1956, og Óðinn, f. 1963. Samfeðra var Gunnar Stefán, f. 1950, d. 1977. Erna ólst upp í Smáíbúða- hverfinu, gekk í Breiðagerðis- skóla og síðar Réttarholtsskóla. Hún fór til Danmerkur eftir landspróf til sumarvinnu en þar kynntist hún tilvonandi eigin- manni sínum og bjó þar alla tíð síðan. Eftirfarandi eiginmaður henn- ar er Ívar Esper- sen og eignuðust þau tvö börn, Kenny, f. 1971, og Söndru, f. 1975. Barnabörnin eru fimm. Útför hennar fór fram á Bornholm 2. apríl síðastliðinn en minningarstund verður haldin í Grafarvogskirkju í dag, 11. apríl 2019, klukkan 13. Ég var tólf ára, stóð á bryggj- unni og var að kveðja hana Ernu mína. Hún var á leiðinni út í hinn stóra heim, aðeins rétt að verða sautján. Gullfoss lá þarna í öllu sínu veldi. Bara það eitt að sigla með Gullfossi var draumi líkast. Ferðinni var heitið til Kaup- mannahafnar og þaðan til Born- holm. Erna og Hadda vinkona hennar ætluðu að vinna á strand- hóteli þetta sumar. Við vorum þarna ég, Óðinn bróðir, mamma og svo amma og afi ásamt fullt af öðru fólki sem var einnig að kveðja ástvini sína. Þar sem við stóðum og veifuðum á bryggjunni gat ekki nokkurt okkar órað fyrir því hvaða atburðarás var um það bil að hefjast. Erna átti eftir að búa á Bornholm restina af lífi sínu, setjast þar að og eignast sína fjölskyldu. Foreldrar okkar settust þar síðar að eftir siglingar sínar um heimsins höf og bjuggu þar fram á síðasta ævikvöld. Flestir ætt- ingjar okkar hafa komið til Born- holm og mörg okkar ótal sinnum. Óðinn bróðir og konan hans sett- ust þar einnig að og nú hafa tvö af börnum hans einnig bæst við. Það er ekki annað hægt að segja en að Erna og fallega eyjan hennar hafi kallað til okkar allra. Erna mín var mikil hugsjóna- manneskja og friðarsinni. Hún trúði innilega á það góða í öllum og átti auðvelt með að greina lausn frá vandamáli. Hún vildi ekkert skjall um sig og alls ekki sjúkdómavæða sig í veikindum sínum. Hún var með harðan skráp og sterk og ég er óendanlega stolt af því að hafa fengið hana sem systur. Nú er ég aftur að kveðja hana Ernu mína. Hafðu hjartans þökk fyrir samfylgdina elsku Erna mín. Rut. Nú kveðjum við yndislega konu, hana Ernu móðursystur mína. Hún var svo yndislega fal- leg að utan jafnt sem innan. Þær voru svo margar ferðirnar okkar til Bornholm þar sem Erna og fjölskylda bjuggu og alltaf jafn gaman að koma til þeirra. Þær eru svo margar minning- arnar sem tengjast Ernu frænku, til dæmis þegar við vorum þar eitt sumarið í heimsókn eins og svo oft áður, vorum við frænkurnar ég, Dóra, Hulda og Karen systir að labba heim til hennar með dúkku- vagn en á leiðinni finnum við lítinn kettling sem var mikið slasaður og hafði greinilega lent í öðrum ketti. Við auðvitað gátum ekki hugs- að okkur að skilja hann eftir einan úti í móa og settum hann í dúkku- vagninn og heim til Ernu. Það þurfti ekki að spyrja að því, auð- vitað tók Erna hann að sér og hjúkraði honum og átti hann þar gott líf. Hún átti líka alltaf einn og stundum tvo hunda, alveg frá því ég man eftir mér var alltaf hund- ur hjá Ernu og jafnvel fleiri dýr. Hún var svo mikill dýravinur og náttúrubarn af guðs náð. Hún mátti aldrei neitt aumt sjá, alltaf tilbúin að hjálpa öðrum, og vann í mörg ár við að hjálpa fólki. Elsku Erna mín, ég kveð þig með söknuð í hjarta og þakka þér fyrir allar yndislegu minningarn- ar sem við eigum með þér. Kolbrún Elsa Smáradóttir. Elsku Erna, þrátt fyrir að frá- fall þitt hafi átt sér nokkurn að- draganda var samt svo sárt þegar það bar að. Það er svo stutt síðan við sátum úti á palli hjá mömmu og pabba í Grafarvoginum að spjalla og þér fannst svo skemmtilegt að fylgjast með Em- ilíu dóttur minni leika sér, enda í fyrsta skipti sem þið hittust. Ég kvaddi þig vitandi að ég ætti ekki eftir að sjá þig aftur í lifanda lífi. En minningarnar og kærleikur- inn sem við áttum varðveiti ég í hjarta mínu. Það vill nefnilega oft verða þannig þegar fólk býr hvort í sínu landinu að tilfinningaböndin verða sterkari en annars. Ég fann alltaf þessa sterku tengingu við þig, jafnvel þó við byggjum aldrei í sama landi. Ég á Íslandi og þú með fjölskyldu þinni á Bornholm. Kannski er það vegna þess að við áttum svo margt sameiginlegt, báðar fæddar í krabbamerkinu, báðar miklir náttúruunnendur, báðar með mikla sköpunargleði og svo mætti lengi halda áfram. Ég var svo lánsöm að fá að vera hjá þér í örfáar vikur einn vetur þegar ég var 19 ára og við áttum saman yndislegan tíma þar sem við fórum saman á glerskurðar- námskeið, dansleik, matarboð og heimsóknir til ömmu Dússí. Þegar skólinn minn á eyjunni fögru byrjaði mátti ég alltaf kíkja við og þú varst aldrei langt undan, hvorki í persónu né andlega. Þú varst nefnilega gædd þeim ein- staka hæfileika að geta lesið fólk eins og opna bók. Það var ómögu- legt að leyna þig nokkru og voru tilfinningaflækjur mínar fyrir þér eins og auðlesin skáldsaga. Þú vissir líka alltaf hvenær rétta stundin var fyrir knús og það er alveg merkilegt hvað knús lagar margt. Þú átt alveg sérstakan stað í hjarta mínu og ég á ævinlega eftir að sakna hlýjunnar sem fylgdi nærveru þinni. Þín systurdóttir, Karen. Með nokkrum fátæklegum orð- um kveð ég hana Ernu systur- dóttur mína, hrygg í hjarta en þakklát fyrir að hafa alla tíð feng- ið að vera hluti af lífi hennar. Minningarnar eru margar og all- ar góðar. Erna fékk margar góðar gjafir í vöggugjöf, eins og áhugann á andlegum málefnum og því að hjálpa öðrum. Hún lærði jóga, heilun og kynnti sér vel ýmsar óhefðbundnar lækningar, sjálfri sér og öðrum til hjálpar. Já Erna var með hlýjar hendur, hug og hjarta, Það fór ekki framhjá þeim sem kynntust henni. Náttúrunni unni hún og naut þess að búa með fjölskyldu sinni á fallegu eyjunni Bornholm. Hún var oft með börnum og barna- börnum í ýmsum skoðunarferð- um um eyjuna þeirra og tók þá fallegar myndir sem hún miðlaði til okkar í gegnum netheima svo við gætum sem best fylgst með lífi þeirra. Erna og Ivar hafa haft gaman af að ferðast og farið víða. Þau hafa talsvert ferðast um landið okkar. Erna hefur haldið fast í uppruna sinn, elskað landið sem hún fæddist í og hefur alltaf gert sér far um að hitta okkur nánustu ættingja sína þegar þau hafa komið til Íslands. Þegar vorið vaknaði á Borgundarhólmi að þessu sinni og gaf vetrargróðrinum nýtt líf, þá kvaddi Erna Ivar sinn og börnin þeirra sem hjá henni voru og lagði af stað í sína hinstu ferð til hins ei- lífa sumarlands. Hún var í mörg ár búin að berj- ast við illvígan sjúkdóm þó hún hafi ekki haft hátt um það, en þeg- ar hún vissi hver myndi sigra í baráttunni, þá ákvað hún með sinni einstöku stillingu, jákvæð- um huga og æðruleysi, að njóta frekar lífsins með sínu fólki á meðan hún ætti þess kost, í stað þess að fara í fleiri meðferðir. Síðastliðið haust hefur hana grunað að kveðjustund nálgaðist því þau hjónin ákváðu þá að koma í örfárra daga heimsókn til Ís- lands. Þar sem Íslandsheimsókn- ir þeirra höfðu alltaf verið að sumri til þá grunaði okkur að ástæðan fyrir heimsókninni væri sú að hún vildi geta kvatt okkur hérna heima á meðan hún væri ferðafær og sú tilgáta reyndist rétt. Það var þó Ernu líkt að láta heimsóknina ekki verða neina sorgarstund. Við Edda móður- systur Ernu, Rut systir Ernu og makar okkar áttum alveg dásam- lega samveru með þeim Ernu og Ivari í gamaldags hitting við eld- húsborðið – Við rifjuðum upp margar gamlar, góðar og skemmtilegar minningar og það var mikið hlegið. Þegar við kvöddumst, sagði Erna aðspurð um heilsuna, að það yrði ekki við neitt ráðið, hún vildi ekki fleiri meðferðir heldur njóta bara og svo brosti hún sínu hlýja og fallega brosi, eins og hún hefði sagt mér að hún ætlaði að skreppa til tannlæknis. Já, Það var einstakt æðruleysið sem hún Erna mín bjó yfir – Þannig lifði hún og þannig dó hún og þannig minnumst við hennar. Ég þakka Ernu minni sam- fylgdina og tryggðina öll árin og ég á eftir að sakna samskiptanna okkar bæði í raunheimum og á netinu þar sem hún setti alltaf eitthvað uppbyggilegt og gott efni inn. Ivari, og fjölskyldum þeirra á Bornholm og systkinum Ernu og fjölskyldum votta ég mína dýpstu samúð. Guð blessi ykkur öll. Ragna Kristín Jónsdóttir (Didda). Elskuleg frænka mín er látin eftir hetjulega baráttu við krabbamein. Ég á yndislegar minningar um hana Ernu mína, hún var alltaf svo yfirveguð, róleg og hjartahlý. Ég var unglingur þegar hún fæddist og fannst spennandi sem nýorðin móðursystir að fá að keyra hana í vagninum. Svo stækkaði þessi fallega stúlka og hélt á vit ævintýranna í sumar- vinnu á Bornholm. Eyjan og ung- ur piltur heilluðu hana svo mjög að hún settist þar að og undi hag sínum vel með Ívari og börnunum tveim. Við Jón heimsóttum þau nokkrum sinnum út á þessa fal- legu eyju og nutum samverunnar með þeim. Erna hafði afar sterka réttlætiskennd og sinnti ýmsum störfum í þágu fólks sem minna mátti sín í þjóðfélaginu. Hún hafði eitthvert andlegt næmi sem fékk mann til að líða vel í návist henn- ar. Síðastliðið haust komu Erna og Ívar til Íslands til að kveðja landið hennar og ættingjana. Hún vissi þá að hún kæmi ekki aftur til okkar. Þessi stund sem við áttum með henni þá var bæði sorgar- og gleðistund. Við vorum glöð yfir að hún skyldi leggja á sig þessa ferð, sárveik og sorgmædd yfir því sem við vissum að var í vændum. Við gætum rifjað upp ótal fal- legar minningar sem við geymum í hjörtum okkar með sárum sökn- uði. Við sendum Ívari, börnum og systkinum Ernu innilegar samúð- arkveðjur með broti úr ljóði eftir Jóhannes úr Kötlum: Vor sál er svo rík af trausti og trú, að trauðla mun bregðast huggun sú, þó ævin sem elding þrjóti, guðs eilífð blasir oss móti. Vort hjarta er svo ríkt af hreinni ást, að hugir í gegnum dauðann sjást. – Vér hverfum og höldum víðar, en hittumst þó aftur – síðar. Edda Björg og Jón Ingi. Erna Magnús- dóttir Espersen 3. apríl er fæð- ingardagur móður minnar, Hlífar Guð- jónsdóttur, hún hefði orðið 96 ára. Alltaf ung í anda, jákvæð, brosmild og hress. Hún hafði alla þá bestu kosti sem nokkur manneskja getur óskað sér. Hún var mikill dýravinur, hún var mannvinur, börn elskaði hún og þau hana. Þolinmæði átt hún ómælda, aldrei vammir eða skammir. Hún var einstaklega falleg mann- eskja. Mamma var sporlétt og ólöt, það hélt henni ungri. Ég sakna mömmu minnar mikið og þó er ég orðin rígfull- orðin. Mamma hafði sérstakar hend- ur, sem struku mér oft um vang- ann og héldu í hendur mínar. Hún og tengdamóðir mín voru Hlíf Guðjónsdóttir ✝ Hlíf Guðjóns-dóttir fæddist 3. apríl 1923. Hún lést 21. nóvember 2018. Útför Hlífar fór fram 4. desember 2018. með strákana mína meðan ég lauk námi, ef þær hefðu ekki fórnað sér í þetta, hefði lífið orðið öðruvísi. Mamma var mjög vel ritfær, las mikið og var fróð um margt. Heimilið var stórt og mikill gestagangur, en hún tók þátt í verk- unum úti og inni. Gerði eins og margar konur urðu að gera, sauma á okkur öll og prjóna. Hún var mjög félagslynd og hafði alltaf gaman af að hitta fólk. Fólkið í Tónar og trix, eldri- borgarakór Þorlákshafnar, fólkið í dagvistun í Þorlákshöfn og fólk- ið allt í kringum hana. Ekki skal gleyma Húsvagnafélaginu. Takk fyrir, þið öll, sem voruð Hlíf móð- ur minni góð. Mamma var svo dugleg að halda sambandi við systkinabörn sín, svo og annað frændfólk. Elsku mamma mín. Ég þakka þér fyrir að þú varst mamma mín. Við söknum þín öll. Allt er breytt. Þín Pálína. Látin er kær vin- kona, besta vinkona móður okkar hún Erla, en þær voru vinkonur frá ung- lingsárunum. Djúp og varanleg vinátta varði alla tíð á milli þeirra allt til andláts móður okkar árið 2007. Margs er að minnast, sér- staklega frá fyrri tíð þegar sam- gangur var meiri og þær bjuggu nær hvor annarri í Vesturbæn- um. Síðar flutti Erla í „sveitina“, þ.e. í Breiðholtið sem þá þótti ansi langt frá Vesturbænum. Erla var einstök og heilsteyptur persónuleiki, átti til ótrúlega elju, þrautseigju og ekki síst þolin- mæði, sem kom sér vel, meðal annars í öllum þeim veikindum sem hún hefur átt við að stríða í gegnum tíðina. Hún var móður okkar ætíð stoð og stytta og aldr- ei bar skugga á vináttu þeirra þótt þær væru eins ólíkar og dag- ur og nótt. Þær spjölluðu saman nánast hvern einasta dag og Erla gaf henni ávallt tíma þrátt fyrir mikið annríki en Erla stóð fyrir stóru heimili lengst af á Lamba- stekk. Þær áttu sameiginleg áhuga- mál og ber þar hæst tónlist, sem þær báðar unnu mjög, en Erla kenndi á píanó á árum áður. Þær höfðu báðar unun af fallegum gróðri og hafði Erla græna fing- ur, bæði við rækt inniblóma og garðrækt, og bar heimilið þess fagurt vitni. Ekki er hægt að tala um Erlu án þess að nefna Steina, þau voru einstaklega samhent hjón og um- hyggja þeirra og ást þannig að eftir var tekið. Steini lést í janúar sl. og einhvern veginn vissi Erla Hermína Þorsteinsdóttir ✝ Erla HermínaÞorsteinsdóttir fæddist 31. ágúst 1929. Hún lést 26. mars 2019. Útför Erlu fór fram 5. apríl 2019. maður að ekki yrði langt á milli þeirra hjóna eins og komið hefur á daginn. Það var mjög gott að koma til þeirra og ávallt tekið hlýlega á móti okkur. Við viljum þakka kær- um vinum fyrir þá alúð og umhyggju sem þau hafa ávallt sýnt okkur og þá sérstaklega móður okkar. Minn- ing um góða vini lifir. Sofðu, hvíldu sætt og rótt, sumarblóm og vor þig dreymi! Gefi þér nú góða nótt guð, sem meiri’ er öllu’ í heimi. (G. Guðm.) Við sendum Söru Berthu, Siggu Dóru, Sigga, Lilju og fjöl- skyldum innilegar samúðar- kveðjur. Elín og Halla Einarsdætur. Mig langar að minnast hennar Erlu, okkar elskulegu Sinawik- systur sem fallin er nú frá, hún skilur eftir ljúfar og fallegar minningar frá fjölda samveru- stunda í Sinawikhópnum. Hún starfaði fyrir félagið okkar af heilum hug, bæði í stjórn og nefndum. Ég minnist þess að hún hringdi í mig að hausti fyrir um 20 árum og var þá að taka við sem formaður Sinawik, það vantaði varaformann, og bað hún mig að koma inn í stjórnina með sér og auðvitað sagði ég já. Það var bæði ljúft og skemmtilegt að starfa með henni Erlu. Þau fara með stuttu millibili hjónin Þorsteinn og Erla, og sendi ég börnum þeirra, tengdabörnum og öðrum aðstandendum innilegar samúð- arkveðjur. Fyrir hönd Sinawik í Reykja- vík, Anna Sigríður Jensen formaður. Minningar eru undarlegt fyrirbæri og hefur skilgrein- ing orðsins breyst mikið í mínum bók- um síðustu ár. Við fyrstu hugsun eru þær einhverskonar aðlöguð, ýkt hugmynd um einhvern at- burð, samansafn tilfinninga úr fortíðinni sem við mögulega mun- um eftir en mögulega ekki. Þann- ig upplifi ég það og ég held að þú hafir gert það líka, að minnsta kosti síðustu ár. Minningar mínar hafa alltaf verið stopular, sérstaklega þegar ég var barn, og ég man hvað ég fylltist öfundsýki út í fólk sem virtist muna liggur við hvert smá- atriði frá eigin fæðingu, svona eins og þetta væri keppni í að muna. Með árunum og þroskan- um, sérstaklega eftir að ég varð móðir sjálf, hef ég þó byrjað að skilja og skynja betur að minn- ingar snúast miklu frekar um ein- hvers konar tengingar bæði við sjálfan sig og aðra. Í seinni tíð hafa minningar mínar orðið fast- mótaðri og haldast lengur en þær gerðu. Mögulega hefur þetta eitt- hvað að gera með það að þegar maður byrjar að búa til framleng- ingar af sjálfum sér myndast ut- an um mann hjúpur tilfinninga, Gunnlaug Björk Þorláksdóttir ✝ GunnlaugBjörk Þorláks- dóttir fæddist 28. febrúar 1936. Hún lést 17. mars 2019. Útför hennar fór fram 4. apríl 2019. skilyrðislaus ást, sem gerir það að verkum að minning- arnar loða lengur við. Og það var eitt- hvað sem þú áttir nóg af, stóran hóp afkomenda, dún- mjúkan og þykkan hjúp tilfinninga um- hverfis þig, sem varði þig fyrir áhrif- um sjúkdómsins til enda. Ég hef hugsað mikið um þetta, þetta ótrúlega minni þrátt fyrir allt saman, og minningarnar þínar og samböndin við fólkið þitt, þú gleymdir engum. Ég sé það núna morgunljóst hvers vegna. Elsku amma mín, ég man þig svo vel og sambandið okkar var einstakt, hversu mörgum stund- um ég eyddi hjá þér í Sólheimum, þar sem við spjölluðum og knús- uðumst og grúskuðum í dótinu heima hjá þér. Að sitja með þér uppi í rúmi að máta skartgripina þína og heyra sögurnar á bak við þá. Að gramsa í kompunni hjá þér – ég man ennþá lyktina. Að fara í gegnum ilmvötnin þín. Að baka með þér pönnukökur hverja helgi þegar við pabbi bjuggum hjá þér. Það eru margar myndir sem koma upp og foss tilfinninga dynur yfir mann. Mest af öllu mun ég þó alltaf muna eftir kímn- inni, hjartanu og nebbakossinum. Ég elska þig alltaf, ömmu- gullið mitt. Þín Anna Kristín.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.