Morgunblaðið - 11.04.2019, Page 52

Morgunblaðið - 11.04.2019, Page 52
52 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. APRÍL 2019 Kveðja til ást- kærs afa míns. Fyrstu dagana eftir fæðingu bjó ég í ömmu- og afahúsi í Funafoldinni. Þangað var alltaf gott að koma. Margar góðar minningar á ég um þau ömmu og afa. Sumrin í garðinum, kaffiboð, að sitja saman á eldhúsbekknum og spjalla, jólin og gamlárs- kvöldin, brasa með afa í bíl- skúrnum við að smíða sverð og skildi sem nauðsynlegt var fyrir litla stráka að eiga og svo mætti lengi telja. Afi hafði gaman af því að heyra og segja sögur og vissi svo margt. Síðustu árin bjó hann á hjúkrunarheimilinu Sóltúni og ég var svo lánsamur að fá að taka þátt í að annast hann þar. Áttum margar frábærar stundir, vorum með svipaða kímnigáfu og hlógum oft saman. Þó að minnið væri farið að dvína mikið hafði hann alltaf gaman af því að fá að fylgjast með og fá fréttir af ferðalögum mínum. Mér þykir leitt að vera ekki heima til að kveðja þig hinstu kveðju en veit að þú myndir vilja að ég héldi áfram að ferðast, skoða heiminn og safna ferðasögum. Megi minningin um minn góða afa lifa Vertu bjartur logi fyrir mér. Vertu leiðarstjarna yfir mér. Vertu sléttur vegur undir mér. Vertu góður hirðir eftir mér, í dag, í nótt og að eilífu. (Heilagur Kolumba, d. 597.) Guðmundur Hrafn Baldvinsson. Í dag kveð ég afa minn, Sæv- ar Guðmundsson, með miklum söknuði. Afi hafði alltaf verið stór part- ur af lífi okkar fjölskyldu ásamt ömmu Álfheiði. Það var alltaf glatt á hjalla þegar við fórum til ömmu og afa í Funafoldina. Þar var dásamlegur garður afgirtur og ýmislegt útidót eins og í leikskóla og svo mátti bara allt! Hvort heldur það var að búa til drullukökur eða grilla Sævar Guðmundsson ✝ Sævar Guð-mundsson fæddist 9. ágúst 1940. Hann lést 1. apríl 2019. Útför Sævars fór fram 10. apríl 2019. eitthvað gott með hjálp afa á sólpall- inum. Í eftirrétt voru svo bestu pönnsur og lummur í heimi gerðar af kærleikshöndum ömmu. Af dótinu var nóg inni líka. Þar var eins og dótabúð í sambland við ævintýraland. Afi og amma lögðu mikið á sig til þess að litlir angar hefðu nóg við að vera svo að minningar mínar um móð- urforeldra mína voru ekkert nema yndislegar hamingju- stundir. Afi var alveg einstakur mað- ur. Aldrei pirraður eða ekki til í að hjálpa manni gæti hann það. Hann var alltaf til staðar ef eitt- hvað bjátaði á og jafn oft ef eitt- hvað skemmtilegt var að gerast. Við fórum stundum með þeim í Kolaportið þar sem alltaf vor- um við leyst út með nammi og dóti. Svo fórum við í ferðalög út á land og í sumarbústaði. Þar var afi óþreytandi að fræða ungviðið um náttúruna og segja sögur. Það voru góðar stundir. Ég vildi bara óska að fleiri hefðu átt svona afa eins og ég. Ég kveð þig, elsku afi minn, með trega og söknuði í hjarta og þér mun ég aldrei gleyma né þínum góðu verkum eða þínum einstaka ljúfa og hlýja persónu- leika. Farðu í Guðs friði, afi minn. Minning þín mun lifa í hjarta mér. Þinn elskandi Bjarni Sævar. Enok gekk með Guði, þá hvarf hann því að Guð tók hann (1. Mós. 5:24) Komið, göngum í ljósi Drottins (Jesaja 2:5) Ég er ljós heimsins. Sá sem fylgir mér mun ekki ganga í myrkri heldur hafa ljós lífsins (Jóhannes 8:12) En ef við göngum í ljósinu, eins og hann sjálfur er í ljósinu, þá höfum við samfélag við hvert annað (Fyrsta Jóhannesarbréf 1:7) Afi minn ég vil þakka þér fyr- ir allt sem þú hefur gert fyrir mig. Ég vil þakka þér fyrir allar minningar sem ég átti með þér og ömmu í Funafoldinni þar sem þið sáuð um okkur barnabörnin af mikilli ást, umhyggju og kær- leika. Þið vilduð allt fyrir okkur gera til að okkur liði eins og í himnaríki. Þið bökuðuð fyrir okkur, ferðuðust með okkur út á land og oft á Árbæjarsafnið sem var alltaf mjög gaman. Afi minn, ég mun alltaf muna eftir bröndurunum sem þú sagð- ir og hlóst með þínum „afalega“ hlátri. Ég mun alltaf muna eftir því þegar ég knúsaði þig og kyssti að þá kitlaði skeggið þitt mig. Ég vildi alltaf eignast eins flott skegg og þú afi minn en því miður hefur sá draumur ekki ennþá ræst. Þú gekkst svo sannarlega með Guði afi minn og amma líka. Þið eruð kærleikur í sinni hreinustu mynd og þið kennduð mér hvernig á að vera góð manneskja með því að ganga í ljósi kærleikans sem streymdi frá ykkur. Nú hefur Guð tekið þig afi minn og ég syrgi þig en ég gleðst einnig því að ég veit að nú gengur þú með Guði og Kristi í ljósinu; þú gengur með ömmu. Ég elska þig afi. Þinn elskandi Árni Þór. Elsku afi, nú er komið að kveðjustund. Minningarnar eru margar um yndislegar stundir sem ég er svo þakklát fyrir. Öll ferðalögin sem ég fór í með þér, ömmu og Jóhönnu þar sem þú þekktir hvert einasta fjall, klett og þúfu. Allar sögurnar um steinrunnin tröll og öll örnefni staðanna. Allar fjöruferðirnar þar sem þú reyndir að fá okkur til að borða þara. Allar sýning- arnar, flugvélasýningar, bílasýn- ingar o.fl. Bílasölurúntur og ís í brauð- formi var svo klassík enda geri ég það með mínum börnum í dag. Svo kynntist ég honum Jóa mínum og kynnti hann fyrir ykkur ömmu og varð ykkur strax vel til vina. Þegar við keyptum okkar fyrstu íbúð sam- an þá urðum við að búa annars staðar í einn mánuð áður en við fengum afhent og auðvitað skut- uð þið amma skjólshúsi yfir okk- ur og hunda tvo. Fyrir það verðum við ævin- lega þakklát. Jói minnist allaf með hlýju, þegar amma var sofnuð á kvöldin þá fórum þið inn í eldhús að spjalla og fá ykk- ur meðal (viskí), eitt staup fyrir svefninn og svo hlóst þú prakk- arahlátri. Hann upplifði líka að fara með þér á sjávarútvegssýn- ingu þar sem þú þekktir nánast alla karlana, sagði hann mér. Það var ofboðslega erfitt að horfa upp þig síðustu ár fjara út og að lokum varstu bara orðinn skelin af sjálfum þér en góðu og fallegu minningarnar um þig munu búa í hjörtum okkar til ei- lífðar. Umhyggju og ástúð þína okkur veittir hverja stund. Ætíð gastu öðrum gefið yl frá þinni hlýju lund. Gáfur prýddu fagurt hjarta, gleðin bjó í hreinni sál. Í orði og verki að vera sannur var þitt dýpsta hjartans mál. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Hvíl í friði, elsku afi. Þín Álfheiður og Jóhannes. Vertu, Guð faðir, faðir minn, í frelsarans Jesú nafni, hönd þín leiði mig út og inn, svo allri synd ég hafni. Höndin þín, Drottinn, hlífi mér, þá heims ég aðstoð missi, en nær sem þú mig hirtir hér, hönd þína eg glaður kyssi. Dauðans stríð af þín heilög hönd hjálpi mér vel að þreyja, meðtak þá, faðir, mína önd, mun ég svo glaður deyja. Minn Jesús, andlátsorðið þitt í mínu hjarta eg geymi, sé það og líka síðast mitt, þá sofna eg burt úr heimi. (Hallgrímur Pétursson) Við elskum þig, kæri langafi. Þór Vilberg og Unnur Ís- old. Lyndiseinkunn er fallegt orð um skapgerð eða persónuleika fólks. Þegar ég leita að orðum sem lýsa pabba mínum eru orðin traustur, heiðarlegur, vandvirk- ur og hagur, ábyrgur og fróð- leiksfús viðeigandi. Mörg önnur góð orð mætti tína til í viðleitni við að púsla saman mynd af þeim manni sem ól mig upp og átti ríkan þátt í að móta mig sem manneskju. Einlægur áhugi hans á að fræðast um sögu, náttúru, lönd og þjóðir gerði pabba að gull- námu því hann var alltaf tilbúinn að deila þekkingu sinni, þegar hennar var leitað. Hann var ekki orðmargur um allt en valdi sín orð af kostgæfni og hægt var að treysta á samræmi milli orða hans og athafna. Á yngri árum hefði hann viljað ferðast meira, fræðast og taka nokkur þúsund ljósmyndir í fjarlægum löndum, til viðbótar við það ljósmynda- safn sem fyrir var. En ábyrgðartilfinning gagn- vart stórri fjölskyldu, sem tók mest af þeim tíma sem aflögu var utan brauðstrits, leyfði ekki slíkt. Afkomendurnir njóta þess nú að búa að stóru safni slides- mynda, tekinna á uppvaxtarár- um þeirra. Þegar þeim verður varpað á tjald lifnar minning pabba við og hann verður með okkur í anda og segir sögur af stað og stund, flóru og fánu. „Einstakur“ er orð sem notað er þeg- ar lýsa á því sem er engu öðru líkt, faðmlagi eða sólarlagi, eða manni sem veitir ástúð með brosi eða vin- semd. „Einstakur“ lýsir fólki sem stjórnast af rödd síns hjarta og hefur í huga hjörtu annarra. „Einstakur“ á við þá sem eru dáðir og hverra skarð verður aldrei fyllt. „Einstakur“ er orð sem best lýsir þér. (Teri Fernandez) Ari Eyberg Sævarsson. Elsku afi. Við viljum minnast þín með þessu fallega ljóði: Snert hörpu mína, himinborna dís, svo hlusti englar guðs í Paradís. Við götu mína fann ég fjalarstúf og festi á hann streng og rauðan skúf. Úr furutré, sem fann ég út við sjó, ég fugla skar og líka úr smiðjumó. Í huganum til himins oft ég svíf og hlýt að geta sungið í þá líf. Þeir geta sumir synt á læk og tjörn, og sumir verða alltaf lítil börn. En sólin gyllir sund og bláan fjörð og sameinar með töfrum loft og jörð. Ég heyri í fjarska villtan vængjaþyt Um varpann leikur draumsins perlu- glit. Snert hörpu mína, himinborna dís, og hlustið, englar guðs í Paradís. (Davíð Stefánsson) Þín afabörn, Astrid Eyberg Aradóttir Ernir Eyberg Arason Ísabella Eyberg Aradóttir Garðar Eyberg Arason. Hversvegna er leiknum lokið? Ég leita en finn ekki svar. Ég finn hjá mér þörf til að þakka þetta sem eitt sinn var. (Starri í Garði) Á þessum degi kveðjum við atorkumikla konu, Lindu Willi- amsdóttur, sem er látin fyrir ald- ur fram í blóma lífsins. Já, lífið getur verið skrýtið sem við skilj- um ekki eins og stendur hér að ofan, en lífið heldur áfram sem betur fer og minningar halda áfram. Hennar verður minnst fyrir heiðarleika, vinalegt viðmót, kærleika og staðfestu í sínum skoðunum. Blómin gleðja var kjörorð blómabúðarinnar þar sem hún á ættir sínar að rekja, til ömmu hennar sem var Lára í Runna við Hrísateig hér í borg sem hét fullu nafni Lára Fjeld- sted Hákonardóttir og við sjó- menn áttum viðskipti við á þeim tímum þegar símasamband var oft bágborið og allur skipaflotinn sat við hlustir og sum eyrun voru ekki móttækileg fyrir fleiri frétt- um þegar samband var haft við lofskeytastöðvar eins og Reykja- víkur radíó, Vestmanneyja radíó og fleiri stöðvar í kringum landið. En Lára í Runna var frábær og við sjómenn munum vel eftir ynd- islegri konu. En dóttir Láru var sómakonan Sigrún G. Jónsdóttir og maður hennar William S. Gunnarsson sem tóku við blóma- búðinni og héldu áfram í anda móður hennar Láru þegar þau hjón stofnuðu blómabúðina Runna, Grafarvogi, enda héldu hjónin áfram að gleðja fólk og af- greiða blómasendingar til elsku- Linda Williamsdóttir ✝ Linda Willi-amsdóttir fæddist 16. júní 1965. Hún varð bráðkvödd 20. mars 2019. Útför Lindu fór fram 29. mars 2019. legra eiginkvenna sjómanna og við- skipamanna. Þá var komin önnur tækni- bylting í formi handfrjáls símabún- aðar sem hægt var að hringja úr á sjó, án þess að allir sætu við hlustir. Þá hringdi ég auðvitað í blómabúðina Runna, í símann kom fallegt rödd, ég hrökk við og hélt að ég hefði hringt í rangt númer. „Hver er þetta?“ „Ég heiti Linda og er dóttir Sigrúnar og Willa.“ „Willa?“ „Já hann er pabbi minn og heitir William.“ „Ok, þá er ég á réttum stað. Get ég fengið að tala við þau.“ „Nei, þau eru upptekin. Mamma er að afgreiða og pabbi að fara með blóm. Get ég ekki aðstoðað þig?“ Jú ekkert mál, blómvönd á ákveðinn stað og þvílíkt fallegur að hann sló í gegn. Með þessum orðum upphófst okkar vinátta í kringum það þegar mig vantaði aðstoð í blómabúiðinni. Ekki vantaði brosið og vináttu hennar þegar maður kom með gjöf og bað hana að pakka inn, auðvitað kom ekkert til greina nema glær pappír og auðvitað slaufa við. Linda var ákveðin og var með allt sitt á hreinu, þótt það væri ekki áberandi. Síðustu orð hennar til mín voru hlý og fal- legt: „Jói, ég fylgist með póstun- um þínum. Til hamingju með heiðrunina á sjómannadaginn.“ Ég náði að segja takk og nú er þessi glæsilega og góðhjartaða kona búin að hefja sig til flugs og aldrei að vita nema að við öll sjáumst í kaffi og tökum þráðinn upp á ný. Blessuð sé minning þín um aldir alda. Samúðarkveðjur til foreldra, Sigrúnar G. Jónsdóttur og Williams S. Gunnarssonar og fjölskyldu sem eiga um sárt að binda. Guð blessi ykkur öll, og veri með ykkur. Jóhann Páll Símonarson. Litla gatan okk- ar var nefnd „Hamingjusamasta gata“ á Íslandi á baksíðu Morgunblaðsins fyrir örfáum árum og var þar vitnað til þess að konurnar í götunni fóru reglulega í skemmtilegt innlit hver til annarrar. Og svo árlega götugrillið, sem enginn vildi missa af. Ef eitthvað var að veðri daginn sem götugrillið skyldi haldið buðu Kristján og Sæunn gjarn- an afnot af garðinum sínum. En nú hefur hún Sæja kvatt okkur langt um aldur fram – og gatan okkar verður aldrei söm á eftir. Sæunn og Kristján hafa um áraraðir verið burðarstólpar í götulífinu og miklar fyrirmynd- ir. Til dæmis um jólaleytið var Sæunn alltaf fyrst til að skreyta stofugluggann; alveg sérstak- lega fallega og smekklega. Það var merki til okkar hinna að nú þyrfti að fara að huga að því að fara í geymsluna og ná í jóla- skrautið. Garðurinn hennar og Kristjáns er líka alltaf fallegur, enda Kristján alltaf að – og snyrtir líka staði í götunni sem Kristjana Sæunn Ólafsdóttir ✝ Kristjana Sæ-unn Ólafsdóttir fæddist 12. febrúar 1944. Hún lést 16. mars 2019. Útför Sæunnar fór fram 27. mars 2019. aðrir ættu með réttu að gera. Sem sagt mjög sýnilegir íbúar í götunni – og alltaf brosandi þeg- ar maður átti leið framhjá þessum ástsælu hjónum. Þau Sæunn og Kristján voru líka lífsglöð og eitt sinn, í okkar skemmti- legu kvöldinnlitum, nefndi Sæunn að það væri gam- an ef við hjón í götunni færum saman út að dansa. Rætt var að það gæti veri erfitt því engir dansstaðir væru til lengur en þá kom í ljós að Sæunn var búin að finna stað í Kópavogi. Við vor- um því með það á bak við eyrað að prófa þetta einhvern tímann. En nú er það orðið of seint; við getum ekki farið með Sæunni út að dansa. Veikindi hennar komu okkur öllum á óvart og áfallið var mikið þegar við heyrðum hversu alvarleg þau voru. Samt héldu allir í vonina um að hún myndi sigra – en svo fór sem fór. Fallega, brosandi andlitið hennar Sæunnar mun ekki sjást meir í götunni okkar og missir allra er mikill. Mestur þó Krist- jáns og allra annarra í fjöl- skyldunni. Við vottum ástvinum Sæunnar okkar innilegustu samúð. Bryndís og Valdimar, Sævargörðum 22. Við önnumst alla þætti undirbúnings og fram- kvæmd útfarar ásamt vinnu við dánarbússkiptin. Við þjónum með virðingu og umhyggju að leiðarljósi og af faglegum metnaði. Við erum til staðar þegar þú þarft á okkur að halda Lára Árnadóttir, umsjón útfara Útfararþjónusta & lögfræðiþjónusta Vesturhlíð 9, Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is Með kærleik og virðingu Útfararstofa Kirkjugarðanna Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsam- lega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðs- lógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felli- glugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/ sendagrein Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.