Morgunblaðið - 11.04.2019, Síða 58
Hulda Bjarnadóttir
hulda@k100.is
Jóhann Gísli Jóhannsson, sölu- og
markaðsstjóri, sagði í viðtali hjá
Loga og Huldu í síðdegisþætti K100
að þessi tegund ferðamáta væri í
miklum vexti.
Sjö til tíu milljóna króna ferðir
Á næsta ári er áætlað að fara í um
20 ferðir með viðskiptavini á vegum
Loftleiða og samstarfsaðila. Far-
þega sem eru tilbúnir að greiða háar
fjárhæðir fyrir lúxusþjónustu í há-
loftunum. Ferðamátinn er þægileg-
ur enda eru vélarnar innréttaðar
með fyrsta klassa sætum, sem hægt
er að halla í 180° og þannig hægt að
leggjast út af. Þjónustan um borð er
fyrsta flokks og hráefnið fyrsta
flokks og greitt samkvæmt því, en
hver ferð kostar á bilinu sjö til tólf
milljónir króna.
Mikil aukning í
lúxusferðalögum
Loftleiða Icelandic er hluti af Ice-
landair group og eru þeir með 10-12
vélar í leigu víðsvegar um heiminn.
Nú er ein vél með VIP útfærslu en
verða tvær frá og með haustinu.
Fyrsta heimsferðin var farin árið
2004 og hafa áhafnir félagsins nú
þegar farið í um 40 álíka ferðir. Jó-
hann segir vöruna hafa verið í mikill
þróun á þessum tíma og í dag sinni
11-12 manna áhöfn þessum ferðum
hverju sinni. Notaðar eru sér-
útbúnar Boeing 757 flugvélar sem
alla jafna taka 180-200 farþega, en
hafa verið innréttaðar með 50-80
sætum í þessi verkefni. Til stendur
að bæta auka vél við á næsta ári að,
sögn Jóhanns. „Orðspor okkar er
fínt í þessari þjónustu og við erum
mjög ánægð með að skapa tekjur er-
lendis með þessum hætti,“ segir
hann.
Áhöfnin vinnur
í anda innfæddra
Það eru Icelandair áhafnir sem
sinna þessum verkefnum og geta
starfsmenn sótt um að komast í slíka
ævintýraferð. Eðli málsins sam-
kvæmt eru þessar ævintýra-
vinnuferðir mjög vinsælar. Jóhann
segir lagt upp með að senda áhöfn
þar sem helmingurinn er vanur en
hinn helmingurinn nýr í þessari teg-
und ferða. Þannig nái þau að þjálfa
nýja hverju sinni. Hann segir
ferðast víða á skömmum tíma, með
viðeigandi keyrslu og álagi. Áhöfnin
nær þó að fara frá borði og þannig
náði áhöfn FI-1901 að skoða sig um í
Japan, Kína og Indland í þessari
ferð. Þau brjóta gjarnan upp hvers-
dagsleikann með því að klæða sig í
búninga í anda innfæddra og er
einnig horft til áfangastaðanna við
val á mat og drykk.
Tveggja til þriggja vikna ferðir
Flestar ferðirnar eru seldar gegn-
um ferðaskrifstofur sem sérhæfa sig
í sölu VIP ferða og eru flestir far-
þegarnir að koma frá Bandaríkj-
unum, Þýskalandi og Ástralíu sem
stendur. Hver ferð tekur 14-21 dag
og er þá flogið innan ákveðinnar
heimsálfu eða í kringum heiminn,
með viðkomu í fjórum til sjö borg-
um. Og þá stoppa í þrjá daga á
hverjum áfangastað. Ferðirnar hefj-
ast ýmist í Miami, Los Angeles,
Seattle, Hamborg eða Sydney og er
markmiðið ávallt að finna nýja og
framandi staði. Þannig hefur til
dæmis verið farið til Kúbu, Perú,
Páskaeyja, Samóa, Fiji eyja, Papúa
Nýju Gíneu, Vietnams, Kína,
Kambodíu, Mongólíu, Indlands, Afr-
íku, Stan-landa, Rússlands, Ástralíu
og í einni var til að mynda farið til
Suðurskautslandsins, segir Jóhann
Gísli.
Drauma
vinnuferðir
„Þetta er með því skemmtilegra sem ég
hef gert um ævina,“ segir Guðmundur
Gíslason flugmaður í flugi FI-1901
Indversk stemning Hluti áhafnarinnar áður en lagt var af stað frá Jaipur.
Gömul hof Í Nara í Japan gafst tækifæri til að skoða eldgömul hof.
Í Hamborg Áhöfnin áður en lagt var
af stað í ævintýraferðina um Asíu. Allt klárt Flugmennirnir Einar og Guðmundur að undirbúa brottför frá Indlandi.
Kína Áhöfnin slök við West Lake vatnið í Hangzhou í Kína.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. APRÍL 2019
VÍKURVAGNAR EHF.
Víkurvagnar ehf. | Hyrjarhöfða 8 | 110 Reykjavík
Sími 577 1090 | vikurvagnar.is | sala@vikurvagnar.is
Setjum undir á staðnum
Dráttarbeisli
undir flestar tegundir bíla