Morgunblaðið - 11.04.2019, Side 62

Morgunblaðið - 11.04.2019, Side 62
62 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. APRÍL 2019 GOLF Kristján Jónsson kris@mbl.is Birgir Leifur Hafþórsson, reyndasti atvinnukylfingur landsins úr GKG, ætlar að nýta keppnisrétt sinn á Áskorendamótaröð Evrópu í sumar. Skagamaðurinn segist hafa lent í álagsmeiðslum í fyrra og ætlar að velja mótin skynsamlega. „Ég er skráður í mótin frá og með maí. Miðað við síðustu ár þá gæti ég komist inn í fimmtán mót en ég reikna með að spila tíu til fimmtán mótum í mesta lagi. Í fyrra var þetta svolítið mikil törn en þá gerði ég viss mistök. Þá var ég með keppnisrétt á Evrópumótaröðinni og hefði líklega betur einbeitt mér að henni og sleppt Áskorendamótaröðinni. En ég spilaði í mótum á báðum mótaröðunum og spilaði þar af leiðandi of margar vik- ur í röð. Ég mun fara út í æfingabúð- ir í tólf daga til að koma mér í gírinn. Ég fer í fyrsta mótið þegar ég til mig vera tilbúinn í framhaldi af því,“ sagði Birgir þegar Morgunblaðið spjallaði við hann. Haustið 2017 vann Birgir mót á Áskorendamótaröðinni í Frakklandi og fékk fyrir vikið keppnisrétt á Evr- ópumótaröðinni árið eftir eða í fyrra. „Stutt er síðan ég vann mót á þessari mótaröð. Ég reyni að ná í sigur aftur og komast þannig inn á Evrópu- mótaröðina. Það væri klassi.“ Smávægileg meiðsli í fyrra Birgir Leifur glímdi við álags- meiðsli um hálft tímabilið í fyrra en segir ekki hafa verið um alvarleg meiðsli að ræða. „Ég hef verið duglegur að hugsa um líkamann í vetur. Smávægileg meiðsli voru að hrjá mig hálft tíma- bilið í fyrra líklega vegna þess að ég fór of geyst. En þannig er þetta bara stundum í íþróttunum. Stundum spil- ar maður meiddur. Þetta var ekkert alvarlegt heldur léttar tognanir. Þeg- ar maður keppir á mörgum mótum erlendis í röð með tilheyrandi ferða- lögum þá getur eitthvað gefið sig,“ sagði Birgir Leifur sem verður 43 ára gamall í maí og hefur verið at- vinnumaður í rúma tvo áratugi en kylfingar geta haldið lengur áfram en margir aðrir íþróttamenn ef lík- aminn þolir álagið. Hann grínaðist með að margir virtust undrandi á því að hann héldi útgerðinni áfram. Birgir tók því létt og vitnaði í hljómsveitina Queen: „The show must go on“ kris@mbl.is Duglegur að hugsa um lík- amann í vetur  Birgir Leifur á leið á enn eina vertíð- ina og stefnir á tíu til fimmtán mót Ljósmynd/GSÍ Reyndur Enn ein vertíðin er framundan hjá Skagamanninum. Meistaradeild karla 8-liða úrslit, fyrri leikir: Manch.Utd – Barcelona .......................... 0:1 Sjálfsmark 12. Ajax – Juventus........................................ 1:1 David Neres 46. – Cristiano Ronaldo 45. England B-deild: Norwich – Reading ................................. 2:2  Jón Daði Böðvarsson hjá Reading er frá keppni vegna meiðsla. Rotherham – Aston Villa ........................ 1:2  Birkir Bjarnason var ekki í leikmanna- hópi Aston Villa. Brentford – Ipswich................................ 2:0  Patrik Sigurður Gunnarsson var ekki í leikmannahópi Brentford. Birmingham – Sheffield United.............. 1:1 Hull – Wigan ............................................. 2:1 Millwall – QPR.......................................... 0:0 Staða efstu liða: Norwich 41 25 10 6 84:50 85 Leeds 41 24 7 10 68:42 79 Sheffield Utd 41 23 9 9 68:38 78 WBA 41 20 10 11 77:55 70 Aston Villa 41 17 15 9 75:57 66 Bristol City 40 18 11 11 54:44 65 Middlesbro 41 16 13 12 43:36 61 Derby 40 16 12 12 55:50 60 Hull 41 17 9 15 61:58 60 Sheffield Wed. 41 15 14 12 52:54 59 Nottingham F. 41 14 15 12 55:50 57 Noregur Molde – Vålerenga .................................. 4:1  Matthías Vilhjálmsson lék allan leikinn með Vålerenga. Færeyjar Bikarkeppnin, 16-liða úrslit: HB – NSÍ Runavík ................................... 2:1  Brynjar Hlöðversson lék allan leikinn með HB. Heimir Guðjónsson þjálfar liðið.  Guðjón Þórðarson þjálfar NSÍ. Mjólkurbikar karla 1. umferð: Kári – Hamar............................................ 5:1 KNATTSPYRNA HANDKNATTLEIKUR Undanúrslit kvenna, þriðji leikur: Framhús: Fram – ÍBV (2:0) ................ 18.30 Origo-höllin: Valur – Haukar (2:0)........... 20 KÖRFUKNATTLEIKUR Undanúrslit kvenna, þriðji leikur: Origo-höllin: Valur – KR (2:0) .................. 18 KNATTSPYRNA Bikarkeppni KSÍ, Mjólkurbikarinn: Fylkisvöllur: Elliði – Álafoss .................... 19 Kórinn, úti: Ýmir – Afríka ........................ 19 Varmárvöllur: Afturelding – Léttir......... 19 Hertz-völlurinn: ÍR – SR.......................... 19 Framvöllur: Fram – GG............................ 19 Vivaldi-völlur: Grótta – Álftanes.............. 19 Í KVÖLD! MASTERS Kristján Jónsson kris@mbl.is Tiger Woods er bjartsýnn fyrir Mast- ersmótið sem hefst á Augusta Nation- al í Georgíuríki í Bandaríkjunum í dag. Masters er fyrsta risamótið af fjórum í golfinu hjá körlunum á ári hverju og er frábrugðið hinum þrem- ur að því leyti að það fer ávallt fram á sama vellinum. Tiger hefur fjórum sinnum sigrað á mótinu og veit því hvað þarf til. Eftir sigur hans á Tour Championship, lokamóti PGA-móta- raðarinnar, síðasta haust má líta svo á að Tiger sé aftur kominn í hóp þeirra sem geta unnið risamót. Fari svo að Tiger eigi möguleika þegar mótið er hálfnað er hann til alls líklegur enda mikil verðmæti í því fal- in að gjörþekkja Augusta-völlinn. Svipað má segja um Phil Mickelson sem unnið hefur þrívegis. Finni Mickelson taktinn getur hann unnið en Mickelson verður 49 ára í júní og yrði þá elsti maðurinn til að vinna risa- mót í golfi. Ekki eru þessar kempur þó líkleg- astar til að vinna mótið. Mesta press- an er á Rory McIlroy en frá árinu 2015 er Masters eina risamótið sem honum hefur ekki tekist að vinna. Þar af leiðandi er ekki leyndarmál að sigur á Masters er forgangsmál hjá Norður- Íranum. Slíku geta fylgt bæði kostir og gallar. McIlroy er einkar líklegur í þetta skiptið því hann hefur leikið mjög vel á árinu og sigraði á The Pla- yers Championship. McIlroy sagði á blaðamannafundi á Augusta að hann hefði unnið skipulega í andlega þætt- inum og væri að mörgu leyti betur á sig kominn, andlega og líkamlega, en oft áður. „Maður þarf ekki endilega að búa með munkunum í Nepal til að vinna í andlega þættinum,“ sagði McIlroy léttur á fundinum. Morgunblaðið spáir því að McIlroy muni nú takast ætlunarverkið. Hann hefur oft leikið vel á Augusta og um þessar mundir er hann snjallasti kylf- ingur heims. Yrði hann aðeins sjötti kylfingurinn til að ná því að vinna öll fjögur mótin eftir að Masters kom til sögunnar og sá sjöundi ef við teljum Bobby Jones með, annan af hönnuð- um Augusta-vallarins. Stærsta spurningin er hvort McIlroy komist yfir sálfræðiþröskuld- inn. Hann kastaði frá sér sigri á mótinu árið 2011 og í fyrra var hann í síðasta ráshópi en náði sér ekki á strik. McIlroy er hins vegar að leika miklu betur en á sama tíma í fyrra. Einnig má segja að Justin Rose, efsti kylfingur heimslistans, þurfi að komast yfir sálfræðiþröskuldinn á Masters. Væntanlega situr verulega í honum að hafa ekki náð í græna jakk- ann árið 2017 þegar hann tapaði fyrir Sergio Garcia í bráðabana. Hefur Rose tvívegis orðið annar.  Morgunblaðið spáir N-Íranum sigri AFP Snjallir Rory McIlroy og Dustin Johnson á æfingahring í gær. Kemst McIlroy yfir sálfræði- þröskuldinn? ÍSLANDSMÓTIÐ íPepsí Max-deild karla og kvenna í knattspyrnu sumarið 2019 PÖNTUN AUGLÝSINGA: Fyrir miðvikudaginn 17. apríl. NÁNARI UPPLÝSINGAR: Katrín Theódórsdóttir kata@mbl.is | Sími: 569 1105 –– Meira fyrir lesendur 26. apríl gefurMorgunblaðið út glæsilegt sérblað um SÉRBLAÐ Þýski körfuknattleiksmaðurinn Dirk Nowitzki til- kynnti eftir sigur sinna manna í Dallas gegn Phoenix í fyrrinótt að hann hefði ákveðið að leggja skóna á hill- una eftir tímabilið. Nowitzki, sem er 40 ára gamall, er að spila sína 21. leiktíð í NBA-deildinni og hefur hann leikið allan sinn feril með Dallas. Hann er sjötti á listan- um yfir stigahæstu leikmenn deildarinnar frá upphafi og er á leiðinni í úrslitakeppnina með Dallas í 15. sinn. Dirk Nowitzki hættir í vor

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.