Morgunblaðið - 11.04.2019, Qupperneq 67
MENNING 67
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. APRÍL 2019
VIÐTAL
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Ég er djúpt snortinn yfir því að
hljóta þessi mikilvægu verðlaun fyrir
Bach-plötuna mína og þykir vænt um
hversu góðar viðtökur hún hefur
hlotið hjá almenningi. Á sama tíma
finnst mér þetta líka svolítið óraun-
verulegt, enda er ferlið búið að vera
svo langt frá því ég fór að hugsa um
þessa plötu,“ segir Víkingur Heiðar
Ólafsson sem í London í gærkvöldi
veitti viðtöku tvennum verðlaunum á
vegum tónlistartímaritsins BBC,
BBC Music Magazine Awards 2019,
fyrir hljómplötu sína með verkum
eftir Johann Sebastian Bach sem út
kom hjá Deutsche Grammophon síð-
asta haust og hefur hlotið mikið lof
gagnrýnenda. Þetta var 14. árið í röð
sem verðlaunin eru veitt.
Víkingur hlaut annars vegar verð-
laun fyrir hljóðfæraleiksplötu ársins
þar sem dómnefnd tímaritsins valdi
tilnefndar plötur en almenningur
valdi vinningshafann í netkosningu.
Hins vegar hlaut Víkingur aðal-
verðlaun kvöldsins, sem er plata árs-
ins þvert á flokka, en valið á vinn-
ingshafanum var þar í höndum
dómnefndar á vegum tónlistar-
tímaritsins BBC. Tilnefnt var í sjö
flokkum og aðeins komu til greina
plötur sem fengið höfðu fimm
stjörnu dóma hjá tímaritinu.
Hvílir á herðum
píanórisa fyrri tíma
Í tilefni verðlaunanna hafði Oliver
Condy, ritstjóri tónlistartímaritsins
BBC, þetta um plötu Víkings að
segja: „Þeir sem halda að þeir hafi
heyrt allt sem vert er að heyra af
plötum með píanótónlist Bach þurfa
að endurmeta stöðuna. Vinnings-
plata Víkings frá Deutsche Grammo-
phon hvílir á herðum píanórisa fyrri
tíma og lyftir flutningi á verkum
Bachs á æðra og stórkostlegra stig.
Þetta er tónlistarsköpun sem hrópar
á að hlustað sé á hana.“
Hljómplata Víkings var valin plata
desembermánaðar hjá tímaritinu
sem birti af því tilefni dóm um hana.
Þar skrifaði gagnrýnandinn Michael
Church að Víkingur opnaði fyrir nýja
möguleika í tónlist tónskáldsins
merka. „Ég bjóst við að platan yrði
góð, en hversu góð hún var kom mér
samt á óvart,“ skrifaði Church. Í til-
efni verðlaunanna verður Víkingur
Heiðar á forsíðu apríltölublaðs tón-
listartímaritsins BBC og birt við
hann viðtal í tímaritinu.
Berskjaldaður sem listamaður
Að sögn Víkings þykir honum sér-
staklega vænt um að hljóta viður-
kenningu fyrir Bach-plötuna í ljósi
þess hversu lengi hann gekk með
hana í maganum. „Mig var búið að
langa til að gera Bach-plötuna í tíu ár
og því búinn að hugsa um hana lengi.
Það er alltaf ákveðin áhætta fólgin í
því að spila og hljóðrita Bach, því
manni eru allir vegir færir túlkunar-
lega séð. Maður verður að gera sinn
eigin Bach og hann getur verið mjög
ólíkur því sem fólk hefur fyrirfram
gefnar hugmyndir um. Mér fannst
ég því mjög berskjaldaður sem lista-
maður á þessari plötu og þá er auð-
vitað magnað að fá svona viðurkenn-
ingu. Ég hefði aldrei þorað að láta
mig dreyma um að vinna fyrir plötu
ársins þvert á alla flokka,“ segir Vík-
ingur og bætir við að fyrirfram hafi
hann aðeins leyft sér að vona að að
minnsta kosti helmingur þeirra
dóma sem um plötuna væru skrifaðir
væri á jákvæðum nótum.
„Það er oft þannig með Bach að
hann skiptir fólki í fylkingar. Viðtök-
urnar hafa hins vegar verið mun ljúf-
ari en ég þorði að vona,“ segir Vík-
ingur og rifjar upp að fyrsti
dómurinn hafi þó ekki slegið tóninn
fyrir það sem á eftir kom. „Fyrsti
dómurinn birtist í litlum
miðli í Þýskalandi og
var neikvæður. Síðan
hef ég ekki séð neina
neikvæða dóma,“ segir
Víkingur og tekur fram
að það sé reyndar gott
þegar skiptar skoðanir
séu um listaverk.
Spurður hvort hann
sé þegar farinn að leggja drög að
næstu plötu á vegum Deutsche
Grammophon svarar Víkingur því
játandi. „Ég er að fara að taka hana
upp seinna í sumar. Mér finnst hún á
mjög skemmtilegan hátt tengja sam-
an þær tvær plötur sem ég er nú
þegar búinn að gera hjá Deutsche
Grammophon,“ segir Víkingur og
vísar þar í plöturnar með tónlist eftir
annars vegar Bach og hins vegar
Philip Glass. „Músíkin á nýju plöt-
unni verður reyndar úr allt öðrum
áttum. Þetta er tveggja tónskálda
plata, hugsuð sem samtal tveggja
stórkostlegra listamanna frá ólíkum
tímum, en aldir skilja þá að,“ segir
Víkingur og tekur fram að hann geti
að svo stöddu því miður ekki upplýst
hvaða tónskáld um sé að ræða. „Ég
er búinn að eyða mörgum mánuðum í
að hugsa um þessa plötu, velja sam-
an verk og velta fyrir mér hvernig
hún hentar sem spilunarlisti, enda er
það þannig sem við hlustum mest-
megnis á tónlist í dag.“
Vil halda mínum hljómi
Inntur eftir því hvort á nýju plöt-
unni verði nýjar útsetningar og/eða
tilbrigði líkt og finna mátti á fyrri
plötum hans tveimur svarar Vík-
ingur því játandi. „Ég er að vinna í
því núna, sem er ótrúlega skemmti-
legt. Ég er á Íslandi í stuttu barn-
eignarleyfi, en við Halla Oddný
[Magnúsdóttir] eignuðumst strák
fyrir viku. Á milli þess sem ég skipti
um bleyjur og skýst í stuttar ferðir
til útlanda er ég að undirbúa plötuna,
sem er í sjálfu sér eins og með-
ganga,“ segir Víkingur og tekur
fram að hann sé að læra mikið af
nýrri tónlist fyrir væntanlega plötu.
Aðspurður segist Víkingur halda í
þá hefð að taka plötur sínar upp hér-
lendis. „Ég vil halda mínum hljómi,
en það er nánast enginn annar í
klassíska bransanum að taka upp í
Norðurljósum. Bæði ég og upp-
tökuteymi mitt erum búin að læra
mjög vel á hljómburðinn í þessu
rými, sem er einstakur, og auk þess
þekki ég flygilinn inn og út,“ segir
Víkingur, en hann valdi hljóðfærið
fyrir Hörpu á sínum tíma þegar tón-
listarhúsið var vígt. „Upptökur fyrir
plötu fela í sér svo
marga ófyrirsjáanlega
hluti að það er ótrúlega
gott að geta verið heima
á Íslandi og tekið hana
upp hér.“
Sem fyrr verður upp-
tökustjóri hans Christ-
opher Tarnow sem til-
nefndur var til Íslensku
tónlistarverðlaunanna 2018 sem upp-
tökustjóri ársins fyrir Bach-plötuna.
„Christopher, sem er jafngamall
mér, er ótrúlega fær upptökustjóri.
Við vinnum í raun eins og dúó. Þótt
auðvitað geti verið gott að skipta um
samstarfsfólk til að prófa nýja hluti
finnst mér við Christopher enn eiga
svo margt inni. Hann er Þjóðverji og
vinnur mjög agað og skipulega, en
hefur á sama tíma smekk fyrir ein-
hverju villtu. Við virkum því mjög vel
saman, því ég er ekki eins skipulagð-
ur,“ segir Víkingur kíminn.
Ekki er hægt að sleppa Víkingi án
þess að forvitnast um hvort þau
Halla séu búin að velja nafn á soninn
nýfædda og hvernig breyttar að-
stæður og nýtt hlutverk leggist í
hann. „Hann hefur ekki enn fengið
nafn, enda viljum við kynnast honum
áður en við veljum nafn. Hann er
mikill karakter og virkar nánast líkt
og hálfs árs barn,“ segir Víkingur og
bendir á að sonurinn hafi verið mjög
stór við fæðingu.
Excel-skjalið
virkar ekki lengur
„Halla var sett 22. mars, en hann
kom ekki í heiminn fyrr en 3. apríl,“
segir Víkingur og tekur fram að ólíkt
tónleikahaldi sem skipulagt sé nokk-
ur ár fram í tímann sé ekki hægt að
skipuleggja allt nákvæmlega þegar
komi að börnum. „Til að vera við-
staddur fæðinguna aflýsti ég alls
kyns spennandi tónleikum, meðal
annars tónleikum með Útvarps-
hljómsveitinni í París. Sonurinn
minnti mig hins vegar rækilega á að
hann stjórnar ferðinni. Það var pínu
gott á mig, því ég er orðinn svo van-
ur því að geta skipulagt mig langt
fram í tímann en Excel-skjalið virk-
ar ekki lengur,“ segir Víkingur, sem
á næstunni lætur sér nægja að
skreppa í örstuttar ferðir til útlanda
til að spila staka tónleika, enda vill
hann vera sem mest heima hjá fjöl-
skyldunni.
Endurnýjuð ást
Handan við hornið er næsta
Reykjavík Midsummer Music-
tónlistarhátíð undir listrænni stjórn
Víkings sem haldin verður í Hörpu
dagana 20.-23. júní. „Þetta verður
umfangsmesta og glæsilegasta há-
tíðin til þessa,“ segir Víkingur og
tekur fram að hann hafi endurheimt
ákveðinn þrótt eftir að hann hætti
sem listrænn stjórnandi tónlistar-
hátíðarinnar Vinterfest í Svíþjóð
sem hann stýrði frá árinu 2015. „Ég
sagði upp því ég gat ekki gert þetta
allt. Sú breyting endurnýjaði ást
mína á hátíðinni í Reykjavík sem
haldin er annað hvert ár. Ég er mjög
spenntur fyrir komandi hátíð, en
meðal gesta hennar er frægasta
píanódúó heims,“ segir Víkingur og
vísar þar til dúós með frönsku systr-
unum Katiu og Marielle Labèque.
„Auk þess eru að koma til Íslands
í fyrsta sinn alls kyns heimsfrægir
listamenn,“ segir Víkingur, en meðal
þeirra sem eru væntanleg eru arm-
enski fiðluleikarinn Anahit Kurtik-
yan, austurríski barítónsöngvarinn
Florian Boesch, rússneski fiðlu-
virtúósinn Ilya Gringolts, sænski
sellóleikarinn Jakob Koranyi, þýski
sellóleikarinn Leonard Elschen-
broich og breski klarinettuleikarinn
Mark Simpson, sem verður staðar-
tónskáld hátíðarinnar í ár.
Morgunblaðið/Eggert
Margverðlaunaður Víkingur Heiðar Ólafsson kom fram á Íslensku tónlistarverðlaununum í seinasta mánuði. Þar
var hann verðlaunaður fyrir Bach-plötu sína og sem tónlistarflytjandi ársins í flokki sígildrar og samtímatónlistar.
„Ég er djúpt snortinn“
Víkingur Heiðar Ólafsson hlaut í gærkvöldi tvenn verðlaun tónlistartímaritsins BBC fyrir Bach-
plötu sína Upptökur á næstu plötu hans hefjast í sumar Samtal tveggja tónskálda yfir aldirnar
Eikjuvogur 29 - 104 Rvk.
s: 781-5100
Opið: Mán-fim: 12-18
fös: 12-16