Morgunblaðið - 11.04.2019, Page 68
68 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. APRÍL 2019
Gs import ehf | S. 892 6975 | www.gsimport.is
Mikið úrval
Borðbúnaður
fyrir veitingahús og hótel
Guðrún Erlingsdóttir
ge@mbl.is
„Ég hef ekki komið fram á Íslandi í
fjögur ár og ekki komið fram opin-
berlega á sólótónleikum fyrr, “ segir
Kristinn Smári Kristinsson, gítarleik-
ari, tónskáld og framleiðandi, sem
heldur tónleika á Mengi, Óðinsgötu 2,
á morgun kl. 21.
Kristinn segir Mengi fullkominn
stað til þess að flytja tónlist sína,
stærðin passi vel og umhverfið sé
skemmtilegt. „Ég hef unnið að sóló-
verkefni í tvö ár og fyrsti afrakstur
þess kom út á stafrænu formi á fyrstu
sólóplötunni minni Module, sem kom
út í nóvember,“ segir Kristinn en plat-
an var gefin út af HOUT records sem
Kristinn rekur ásamt nokkrum vinum
frá Berlín í Þýskalandi og Basel í
Sviss. Í Mengi mun Kristinn spila lög
af Module, auk nýs efnis sem hann
segir vera frekar rólega tónlist, hæga
og myndræna. Hann segir að til þess
að auka enn á upplifun tónleikagesta
verði varpað á skjá sjónlist eftir Isil
Karatas.
Kristinn hefur reglulega komið
fram með hljómsveitunum Monoglot
og Minua sem kom m.a. í tónleikaferð
til Íslands árið 2014. „Í Minua og
Monoglot spilum við mest lög og ein-
hvern spuna sem fellur helst inn í
djassflokkinn en sólóverkefnið mitt
fellur líklega frekar í tilraunakennda,
mínímalíska, ambíent og nýklassíska
flokkinn,“ segir Kristinn sem hefur á
síðustu árum gefið út átta breiðskífur
og farið í tónleikaferðir til fjölda Evr-
ópulanda og Kína.
„Það kom aldrei neitt annað til
greina en að verða tónlistarmaður.
foreldar mínir, Lilja Hjaltadóttir og
Kristinn Örn Kristinsson, eru bæði
hljóðfæraleikarar sem og systir mín
Elfa Rún, segir Kristinn sem lauk
burtfararprófi frá Tónlistarskóla
FÍH. Þaðan lá leiðin í bakkalárnám
við Tónlistarháskólann í Basel þar
sem Kristinn lagði aðaláhersluna á
djassgítar. Í beinu framhaldi af BA-
náminu fór Kristinn til Bern þar sem
hann lauk meistaranámi í rafgítarleik
og tónsmíðum.
„Ég hef búið í Berlín undanfarin
ár en er að flytja heim til Íslands
eftir átta ára útlegð og hlakka mikið
til. Það koma allir heim aftur, teng-
ingin er við landið er svo sterk. Ég á
eftir að sakna Berlínar sem er mjög
skemmtileg borg að búa í. Ég mun
halda áfram með ýmis verkefni og
samstarf sem þar er í gangi,“ segir
Kristinn sem segist í fyrstu hafa
tekið að sér öll verkefni sem hann
komst yfir en nú velji hann færri
verkefni. Hann geti þannig gefið sér
meiri tíma í hvert verkefni og skilað
því sáttari frá sér.
Róleg og myndræn tónlist
Ljósmynd/LeaSchmitt
Heima Kristinn Smári Kristinsson, er á heimleið og fagnar því með tón-
leikum í Mengi þar sem sjónlist mun spila stórt hlutverk með tónlistinni.
Kristinn Smári Kristinsson með tónleika í Mengi Afrakstur tveggja ára
sólóverkefnis Ætlaði alltaf að verða tónlistarmaður Fyrstu sólótónleikarnir
Danski kvikmyndaleikstjórinn Lars
von Trier tók nýverið við Rung-
stedlund-verðlaununum úr hendi
Margrétar Danadrottningar sem er
verndari safns um listakonuna
Karen Blixen sem til húsa er á
æskuheimili skáldkonunnar í Rung-
stedlund. Verðlaunin hlýtur Trier
fyrir æviframlag sitt á sviði kvik-
myndagerðar.
„Hann er mikill sögumaður og
líkt og Blixen málar hann myndir
þegar hann þysjar inn á það fallega
og ljóta í heiminum sem og mann-
legt eðli,“ segir í rökstuðningi dóm-
nefnar. Þar segir einnig: „Von
Trier hefur haft mikil áhrif á marg-
ar kynslóðir listamanna og líkt og
Blixen nær hann að innlima og um-
breyta listverkum annarra lista-
manna í myndum sínum.“
„Ég hef tekið eftir því að það er
bara spurning um aldur hvenær
farið er að henda í mann verðlaun-
um,“ sagði von Trier þegar hann
veitti verðlaununum viðtöku. Tók
hann fram að hann hefði ekki skrif-
að neina formlega ræðu, en vildi
nefna að það hefði haft á sig mikil
áhrif þegar hann las Jörð í Afríku.
Hlaut verðlaun
kennd við Blixen
Þakklátur Lars von Trier við athöfn á
Karen Blixen-safninu í Rungstedlund.
Þýski fiðluleikarinn Isabelle Faust kemur fram með Sin-
fóníuhljómsveit Íslands (SÍ) í Eldborg Hörpu í kvöld kl.
19.30 undir stjórn Osmos Vänskäs. Á efnisskránni eru
Fiðlukonsert í D-dúr op. 77 eftir Johannes Brahms frá
árinu 1878 og Sinfónía nr. 10 í fís-moll eftir Gustav
Mahler frá 1910. „Isabelle Faust er einn fremsti fiðlu-
leikari samtímans og mörgum er enn í fersku minni túlk-
un hennar á fiðlukonsertum Beethovens og Stravinskíjs
þegar hún var staðarlistamaður Sinfóníuhljómsveitar
Íslands 2010-11. Síðan hefur stjarna hennar risið enn
hærra í tónlistarheiminum. Hún kemur reglulega fram
með Berlínarfílharmóníunni, er staðarlistamaður Ma-
hler-kammersveitarinnar og hlaut Gramo-
phone-verðlaunin 2017 fyrir túlkun sína á konsertum
Mozarts,“ segir í tilkynningu frá hljómsveitinni.
Einn fremsti Mahler-túlkandi samtímans
Samkvæmt upplýsingum frá sveitinni kannaði Gustav
Mahler áður óþekkta heima í stórbrotnum sinfóníum sín-
um. „Honum entist aðeins aldur til að ljúka við níu slíkar,
en þegar hann lést árið 1911 skildi hann eftir sig tíundu
sinfóníuna svo að segja fullgerða. Mahler hafði aðeins
lokið við að útsetja fyrsta þáttinn fyrir hljómsveit en árið
1960 fullgerði breski tónlistarfræðingurinn Deryck
Cooke verkið og tókst frábærlega að laða fram hinn ein-
staka tón Mahlers. Tíunda sinfónían er mikilfenglegt
meistaraverk, tilfinningaþrungið og dramatískt, sem
lætur engan ósnortinn,“ segir í tilkynningu.
Í tónleikaskrá kvöldsins, sem Árni Heimir Ingólfsson,
tónlistarfræðingur og listrænn ráðgjafi SÍ, ritaði, kemur
fram að líf Mahlers hafi verið í töluverðu uppnámi um
það leyti sem hann samdi verkið. „Hann hafði nýverið
komist að því að Alma, eiginkona hans, átti í ástarsam-
bandi við arkitektinn Walter Gropius og í kjölfarið leitaði
hann ráða hjá Sigmund Freud. Í handriti 10. sinfóníunn-
ar má lesa athugasemdir sem Mahler virðist hafa ætlað
Ölmu einni og þær sýna að verkinu var ætlað að tjá ást
hans.“
Samkvæmt upplýsingum frá sveitinni er Osmo
Vänskä, heiðursstjórnandi SÍ, einn fremsti Mahler--
túlkandi samtímans. „Hljóðritanir hans á verkum meist-
arans hafa fengið frábæra dóma og nýjasti hljómdiskur
hans, með 5. sinfóníu Mahlers, var nýverið tilnefndur til
Grammy-verðlauna.“ Að vanda hefst tónleikakynning í
Hörpuhorni kl. 18 og er hún í höndum Árna Heimis. Tón-
leikarnir verða sendir út í beinni útsendingu á Rás 1.
Faust túlkar Brahms
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Vandaverk Isabelle Faust á æfingu með Sinfóníuhljómsveit Íslands, en stjórnandi tónleikanna er Osmo Vänskä.