Morgunblaðið - 11.04.2019, Page 69
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. APRÍL 2019
Jørn Lier Horst kann þá listað skrifa glæpasögur ogEldraunin er bæði vel upp-byggð og spennandi. Hún
fjallar ekki aðeins um
afbrot og lausnir
heldur er frásögnin
einnig áminning um
að yfirvöld fara ekki
alltaf rétt að og
brjóta jafnvel á sak-
lausum einstakling-
um, sem geta enga
vörn sér veitt.
Sagan gerist eink-
um í Stavern og Lar-
vík, skammt fyrir
sunnan Ósló í Noregi,
en teygir anga sína
víðar. Mannshvarf
fyrir nokkrum mán-
uðum er enn óupplýst
en ný vísbending vekur vonir.
Hún þyrlar líka upp ryki, sem
virtist hafa sest, og framhaldið
vekur ekki ánægju allra.
William Wisting, lögregluforingi
og helsta sögupersónan, er dæmi
þess að sjaldan fellur eplið langt
frá eikinni. Jørn Lier Horst starf-
aði lengi sem rannsóknarlög-
reglumaður, hefur yfirgripsmikla
þekkingu á lögreglumálum og
kemur henni á framfæri í gegnum
William Wisting. Það eykur vissu-
lega trúverðugleika sögunnar en
öllu má ofgera og staðreyndirnar
geta stundum orðið of ríkjandi.
Meðalvegurinn í þessu er vandrat-
aður, en vissulega eru upplýsing-
arnar um starfsaðferðir lögregl-
unnar fræðandi.
Blaðamaðurinn Line Wisting,
ófrísk dóttir lögregluforingjans, er
einnig í viðamiklu hlutverki. Hún
er nýflutt frá Ósló til Stavern, þar
sem hún ólst upp, og býr í húsi
þar sem ýmislegt hefur áður
gerst. Hún kynnist Sofie Lund,
einstæðri móður eins árs dóttur.
Þær eru líka nýfluttar í bæinn, í
hús sem Sofie erfði
eftir afa sinn, mann
sem hafði ekki allt of
gott orð á sér og
fannst látinn í húsinu.
Eftir að hafa fundið
falin gögn í húsi Sofie
verða stöllurnar
óvænt hluti atburða-
rásarinnar og blaða-
maðurinn kemur aftur
upp í Line, sem hafði
annars hugsað sér að
hætta í fréttamennsk-
unni. Vissulega þekkt
í bransanum.
Persónusköpunin er
góð og lýsingarnar
skerpa á hugsuninni um fólkið.
Jørn Lier Horst fléttar líka vel
saman venjulegt og það sem kalla
má eðlilegt líferni og tengsl þess
við glæpi sem það ber enga
ábyrgð á. Það greinir saklausa frá
sekum og þótt yfirvöld hafi komist
að niðurstöðu er William Wisting
ekki fyrir það að dæma á líkum
heldur vill hann velta við öllum
steinum til þess að sannleikurinn
komi í ljós og lætur engan eiga
neitt inni hjá sér. Þannig eiga
sýslumenn að vera.
Morgunblaðið/Ómar
Flétta Horst fléttar vel saman venjulegt og það sem kalla má eðlilegt líferni
og tengsl þess við glæpi, sem það ber enga ábyrgð á.
Glæpasaga
Eldraunin bbbbn
Eftir Jørn Lier Horst. Ingunn Snædal
þýddi. Kilja. 415 bls. Bjartur 2019.
STEINÞÓR
GUÐBJARTSSON
BÆKUR
Slegið á fingurna
á yfirvaldinu
Nú finnur
þú það sem
þú leitar að
á FINNA.is
IÐNAÐARMENN VERSLANIR
VEITINGAR VERKSTÆÐI
BÓKHALDSÞJÓNUSTA OG FLEIRA
HLUTHAFAFUNDUR
ORIGOHF.
Fimmtudaginn 2. maí 2019 kl. 16.00
í ráðstefnusal félagsins að Borgartúni 37
1 Tillaga stjórnar um að breyta grein 5.1 samþykkta félagsins þannig
að stjórn verði framvegis skipuð 5mönnumog 2 varamönnum
2 Kosning stjórnar
3 Tillögur frá hluthöfum, ef einhverjar
4 Önnurmál
RÉTTURHLUTHAFA TIL AÐ FÁMÁL SETT
ÁDAGSKRÁHLUTHAFAFUNDAROGKOSNING
Hver hluthafi á rétt á því að fá ákveðinmál tekin tilmeðferðar á hluthafafundi
ef hanngerir umþað skriflega eða rafræna kröfu til félagsstjórnarmeð
nægilegum fyrirvara til að unnt sé að takamál tilmeðferðar á fundinum.
Þannig skulu óskir hluthafa liggja fyrir eigi síðar en 10dögum fyrir fundinn, þ.e.
fyrir kl. 16.00mánudaginn 22. apríl 2019.Nánari upplýsingar umþátttöku og
atkvæðagreiðslu er að finna á heimasíðu félagsins.
Á hluthafafundum fylgir eitt atkvæði hverri einni krónu í hlutafé. Eigin bréf
félagsins njóta ekki atkvæðisréttar. Fundargögn verða afhent á fundarstað.
Hluthafar semekki eiga kost á að sækja fundinn geta veitt öðrum skriflegt
umboðeða greitt atkvæði skriflega. Þeimhluthöfum semhyggjast nýta sér
annanhvorn þessara kosta er bent á að kynna sér á heimasíðu félagsins hvernig
þeir skuli bera sig að. Þar er að finna leiðbeiningar um skráninguog form skjala
oghvernig þeim skuli skilað til félagsins.
AÐRARUPPLÝSINGAR
Boðaðer til hluthafafundarins vegna athugasemdar fyrirtækjaskrár ríkisskatt-
stjóra umaðhlutföllin í stjórn og varastjórn, semkjörnar voru á aðalfundi
félagsins þann 7.mars sl., eru ekki í heild sem jöfnust, sbr. 63. gr. hlutafélagalaga.
Endanleg dagskrá svo ogöll skjöl sem lögð verða fyrir hluthafafundinn, þ.m.t.
allar tillögur, verða hluthöfum tiltæk á heimasíðu félagsins ogmunu jafnframt
liggja frammi á skrifstofu félagsins. Hluthöfumer bent á að skv. 63. gr. a.
hlutafélagalaga skal tilkynna skriflega,minnst fimmdögum fyrir hluthafafund,
um framboð til stjórnar. Tilkynnt verður um framboð til stjórnar eigi síðar en
tveimur dögum fyrir hluthafafundinn. Þeim semgefa vilja kost á sér í stjórn
félagsins er bent á að tilkynna það skriflega til tilnefningarnefndar félagsins eigi
síðar en kl. 16 þann 17. apríl nk. á netfangið tilnefningarnefnd@origo.is. Tillögur
tilnefningarnefndar verða tilkynntar þann 24. apríl nk.
Reykjavík, 10. apríl 2019,
stjórnOrigo hf.
Allar nánari upplýsingar umhluthafafundinn
er að finna á heimasíðu félagsins, origo.is