Morgunblaðið - 11.04.2019, Page 74

Morgunblaðið - 11.04.2019, Page 74
74 ÚTVARP | SJÓNVARP MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. APRÍL 2019 Handfæravörur Öflug þjónusta og gott vöruúrval Hafðu samband og kynntu þér vöruúrvalið og þjónustuna Það er fátt betra en að kveikja á Netflix á kvöldin eftir vinnuna og amstur dagsins. Þar má finna endalaust efni af ýmsum toga. Heimildamyndir hafa vakið athygli mína undanfarið og byrjaði ég á bresku heimilda- þáttunum um hvarf Madeleine McCann. Eins og öll heims- byggðin man hvarf hún sporlaust úr íbúð á sumar- leyfisstað í Portúgal í maí árið 2007. Þættirnir eru átta en undirrituð hætti að horfa eftir tvo og hálf- an. Málið er svo sorglegt allt saman að maður dettur niður í þunglyndi við áhorfið. Því eitt er víst; endirinn er ekki góður. Ég kveikti því á öðrum heimildaþætti, í þetta sinn um svikarann og skúrkinn John Meehan, öðru nafni Dirty John. Búið er að gera leikna þætti eftir þessari sönnu sögu sem eru aldeilis safaríkir. Því var ekki úr vegi að horfa síðan á þennan heimildaþátt, sem í raun bætir litlu við leiknu þættina. Nema þá til að sýna enn betur hversu klikkaður þessi maður var; siðblindur, ill- kvittinn, undirförull og hreinlega vondur. Meehan þessi lét lífið og ekki er hægt að segja að nokkur muni sakna hans. Og þótt maður óski engum dauða er samt vel hægt að segja að þessi heimildaþáttur endi nokkuð vel. Ljósvakinn Ásdís Ásgeirsdóttir Góður endir og afar slæmur Horfin Ekkert hefur spurst til Madeleine. AFP RÚV 13.00 Útsvar 2013-2014 14.10 Stríðsárin á Íslandi 15.20 Popppunktur 2011 16.20 Landinn 2010-2011 16.50 Í garðinum með Gurrý 17.20 Leitin að stórlaxinum 17.50 Táknmálsfréttir 18.00 KrakkaRÚV 18.01 Strandverðirnir 18.11 Fótboltastrákurinn Jamie 18.39 Bestu vinir 18.44 Bílskúrsbras 18.50 Krakkafréttir 19.00 Fréttir 19.25 Íþróttir 19.30 Veður 19.35 Kastljós 19.50 Menningin 20.00 Nörd í Reykjavík 20.30 Price og Blomsterberg 21.00 Ljúfsár lygi. Bannað börnum. 22.00 Tíufréttir 22.15 Veður 22.20 Glæpahneigð. Bannað börnum. 23.05 Löwander-fjölskyldan 00.05 Löwander-fjölskyldan Sjónvarp Símans 08.00 Dr. Phil 08.45 The Tonight Show Starring Jimmy Fallon 09.30 The Late Late Show with James Corden 10.15 Síminn + Spotify 12.00 Everybody Loves Raymond 12.20 The King of Queens 12.40 How I Met Your Mother 13.05 Dr. Phil 13.45 Younger 14.10 The Voice US 16.00 Malcolm in the Middle 16.20 Everybody Loves Raymond 16.45 The King of Queens 17.05 How I Met Your Mother 17.30 Dr. Phil 18.15 The Tonight Show Starring Jimmy Fallon 19.00 The Late Late Show with James Corden 19.45 The Kids Are Alright 20.10 Með Loga 21.10 9-1-1 21.55 The Resident 22.40 How to Get Away with Murder 23.25 The Tonight Show Starring Jimmy Fallon 00.10 The Late Late Show with James Corden Stöð 2 Hringbraut Omega N4 Rás 1 92,4  93,5 07.00 The Simpsons 07.25 Friends 07.45 Gilmore Girls 08.30 Ellen 09.15 Bold and the Beautiful 09.35 Anger Management 10.00 Wrecked 10.25 Satt eða logið 11.10 Ísskápastríð 11.45 Lögreglan 12.15 Heimsókn 12.35 Nágrannar 13.00 The Zen Diaries of Garry Shand 15.25 Two and a Half Men 15.50 Seinfeld 16.15 Stelpurnar 16.40 Mom 17.00 Bold and the Beautiful 17.20 Nágrannar 17.45 Ellen 18.30 Fréttir Stöðvar 2 18.55 Ísland í dag 19.10 Sportpakkinn 19.20 Veður 19.25 The Big Bang Theory 19.45 Splitting Up Together 20.10 NCIS 20.55 Whiskey Cavalier 21.40 The Blacklist 22.25 Magnum P.I 23.10 Real Time With Bill Maher 00.10 Thirteen 01.05 Manhunt 20.00 Mannamál 20.30 Suðurnesja-magasín Víkurfrétta 21.00 21 – Fréttaþáttur á fimmtudegi endurt. allan sólarhr. 16.30 Gegnumbrot 17.30 Tónlist 18.30 Joel Osteen 19.00 Joseph Prince-New Creation Church 19.30 Joyce Meyer 20.00 Í ljósinu 21.00 Omega 22.00 Á göngu með Jesú 23.00 Kall arnarins 23.30 David Cho 24.00 Joyce Meyer 19.00 Eitt og annað 19.30 Þegar 20.00 Að Austan 20.30 Landsbyggðir endurt. allan sólarhr. 06.45 Morgunbæn og orð dagsins. 06.50 Morgunvaktin. 07.00 Fréttir. 07.30 Fréttayfirlit. 08.00 Morgunfréttir. 08.30 Fréttayfirlit. 09.00 Fréttir. 09.05 Segðu mér. 09.45 Morgunleikfimi. 10.00 Fréttir. 10.03 Veðurfregnir. 10.13 Á reki með KK. 11.00 Fréttir. 11.03 Mannlegi þátturinn. 12.00 Fréttir. 12.02 Hádegisútvarp. 12.20 Hádegisfréttir. 12.40 Veðurfregnir. 12.50 Dánarfregnir. 12.55 Samfélagið. 14.00 Fréttir. 14.03 Á tónsviðinu. 15.00 Fréttir. 15.03 Flakk. 16.00 Síðdegisfréttir. 16.05 Víðsjá. 17.00 Fréttir. 17.03 Lestin. 18.00 Spegillinn. 18.30 Útvarp Krakka RÚV. 18.50 Veðurfregnir. 18.53 Dánarfregnir. 19.00 Sinfóníukvöld: Á leið í tónleikasal. 19.27 Sinfóníutónleikar. 22.00 Fréttir. 22.05 Veðurfregnir. 22.10 Passíusálmar. 22.15 Samfélagið. 23.05 Lestin. 24.00 Fréttir. 00.05 Næturútvarp Rásar 1. 11. apríl Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 6:11 20:48 ÍSAFJÖRÐUR 6:08 21:01 SIGLUFJÖRÐUR 5:51 20:44 DJÚPIVOGUR 5:38 20:19 Veðrið kl. 12 í dag Suðaustan 8-15 íkvöld og dálítil rigning, en hægari vindur og áfram þurrt norðanlands. Hiti 3 til 9 stig, en kaldara að næturlagi. Hlýnar heldur í dag. Á föstudag Suðaustan 13-20 m/s og dálítil rigning eða súld, einkum SA-til. Hiti 7 til 12 stig. Á laugardag Sunnan og suðaustan 13-20 m/s og tals- verð rigning um landið sunnanvert, einkum síðdegis. Laumað var að mér vísu vísu eft-ir Trausta Pálsson á Sauðár- króki, sem varð hugsað til hraða nútímans og umræðunnar um nú- vitund og mikilvægi þess að vera í núinu. Sitthvað má segja um núið samt finnst mér dálítið snúið að gera því skil sem að gjarnan ég vil og grípa það – þá er það búið. Í Skagafirði hafa menn oft yfir – og syngja gjarnan, þessa vísu sem Skagfirðingurinn Stefán Vagnsson orti í samsæti sem efnt var til heið- urs Marka-Leifa, Hjörleifi Sigfús- syni. Ég veit ei hvar sú veisla lendir en vandı́ er að sitja kjur. Hér eru allir orðnir kenndir utan Hjörleifur. Magnús Halldórsson skrifaði í Boðnarmjöð á þriðjudag: „Fór til að sinna bústörfum rétt uppúr fimm, tveggja stiga hiti, logn og hálfskýjað“: Allir sem vettlingi valda, hér vepjast þó úti sé kalt, ég sé bæði túrista tjalda og tittlinga vaða um allt. Það er „allt að gerast“ bætti Indriði Aðalsteinsson á Skjaldfönn við: Í dalnum mínum grænkar brátt og grær og geislum sólar mjög á fannir slær. Hinn leiði vetur færist óðum fjær og fyrsti túristinn hann kom í gær Þannig var hljóðið í Pétri Stef- ánssyni: Vorið það læðist um veraldarból viðbúið barning og striti. Indælt er veðrið þó engin sé sól, örlítill vindur og hiti. „Ekki ég?“ spurði Guðmundur Arnfinnsson: Hann limrur var alltaf að yrkja og anda sinn með því að styrkja, það mæddi samt marga og menn gerði arga, svo helvítið helst vildu kyrkja. Káinn orti þegar hann var rukk- aður um greiðslu fyrir líftrygg- ingu: Af þessum dollar þú mátt sjá að þreyttum skrokk ei hlífi við að borga ábyrgð á einskisverðu lífi. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Núið og túristar á ferðinni  6 til 9 Ísland vaknar Ásgeir Páll, Jón Axel og Kristín Sif rífa lands- menn á fætur með gríni og glensi alla virka morgna. Sigríður Elva les traustar fréttir á hálftíma fresti. 9 til 12 Siggi Gunnars Skemmtileg tónlist og góðir gestir reka nefið inn. 12 til 16 Erna Hrönn Erna Hrönn spilar skemmtilega tónlist og spjall- ar um allt og ekkert. 16 til 18 Logi Bergmann og Hulda Bjarna Logi og Hulda fylgja hlust- endum K100 síðdegis alla virka daga með góðri tónlist, umræðum um málefni líðandi stundar og skemmtun. 18 til 22 Heiðar Austmann Betri blandan af tónlist öll virk kvöld á K100. 7 til 18 Fréttir Auðun Georg og Sig- ríður Elva flytja fréttir á heila tím- anum, alla virka daga. Lögfræðingurinn Þórdís Vals- dóttir skrifaði meistararitgerð um duldar auglýsingar á sam- félagsmiðlum og gildandi rétt í þeim málum. Á dögunum gaf Neytendastofa út ákvörðun í máli Emmsjé Gauta og Heklu en tónlistarmaðurinn er í samstarfi við Heklu og ekur um á Audi- bifreið sem hann hefur auglýst á Instagram. Í ákvörðuninni var Emmsjé Gauta bannað að aug- lýsa með slíkum hætti án þess að taka fram að um auglýsingu sé að ræða og hann lýsti yfir óánægju sinni á Facebook. Þór- dís kíkti í spjall á K100 og við- talið má nálgast á k100.is. Duldar auglýsingar á samfélagsmiðlum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.