Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.04.2019, Blaðsíða 32
SUNNUDAGUR 14. APRÍL 2019
FAXAFENI 5
Reykjavík
588 8477
DALSBRAUT 1
Akureyri
588 1100
SKEIÐI 1
Ísafirði
456 4566
AFSLÁTTUR
25%
PÁSKATILBOÐ!
Opera
E I T T L Í F
N JÓTUM ÞES S
SERTA OPERA HEILSURÚM
ÓTRÚLEGT
VERÐ 160
S TÆRS T I DÝNU-
FRAMLE IÐAND I
VERALDAR
Aukahlutur á mynd: gafl
SERTA OPERA dýna með
COMFORT botni og fótum
STÆRÐ FULLT VERÐ PÁSKATILBOÐ
160 X 200 174.960 KR. 131.220 KR.
� Sjö laga heilsu- og
hægindalag. Laserskorið
Conforma Foam tryggir
réttan stuðning við
neðra mjóbak og axla-
svæði.
� Vandað fimmsvæða
skipt pokagormakerfi.
Minni hreyfing, betri
aðlögun.
� Steyptar kantstyrkingar.
� Slitsterkt og mjúkt
bómullaráklæði sem
andar vel.
„Þegar himinbirtan tekur að lýsa upp auðlindir jarðar og nátt-
úru og fuglarnir leika undir með kvaki og krunki er tími
„Fuglatónleika“ á næstu grösum sem verða nú haldnir í
fimmta sinn,“ segir í kynningu vegna Fuglatónleika Valgeirs
Guðjónssonar í Listasafni Árnesinga í Hveragerði 18. apríl kl.
16 og í Eyrarbakkakirkju 20. apríl kl. 15.
Tónskáldið myndar þar tón- og textabrú
frá Eyrarbakka til Hveragerðis þar sem
ljóðskáldið Jóhannes úr Kötlum hafði bú-
setu. Fuglatónleikarnir eru tileinkaðir nátt-
úrunni, auðlind hennar og skilningi á hlut-
deild okkar mannfólksins í verndun hennar
og eru fyrir fjölskyldur, börn á öllum aldri
og leik- og grunnskólahópa.
Uppsprettan að baki tónleikanna er allur
sá fjöldi laga sem Valgeir hefur samið við
ljóð Jóhannesar úr Kötlum. Segja má að lag Valgeirs „Vorið
kemur“ úr kvæðabálkinum Vikivaki í ljóðasafni Jóhannesar sé
þeirra þekktast. Ljóð Jóhannesar spanna vítt svið hvað efn-
istök og boðskap varðar, en náttúran var skáldinu afar hug-
leikin. „Innlifun í skilyrði og tilfinningar dýra hafa ótvíræð já-
kvæð áhrif á mótun samkenndar í þroskaferli barna á „öllum
aldri “ og eflir ábyrgðarkenndina,“ segir í kynningu.
Valgeir hefur gefið út þrjár hljómplötur með lögum sínum
við ljóð Jóhannesar; Fugl dagsins, Fuglar tímans, og Fugla-
kantata. Við hvern texta í textahefti síðastnefndu plötunnar er
að finna ljósmyndir af þeim fuglum sem sungið er um. Á tón-
leikunum er vísað til myndanna, sem teknar eru af Þorgils
Sigurðssyni lækni á Akureyri, til að áheyrendur átti sig betur
á útliti þeirra og sérkennum.
Ásta Kristrún Ragnarsdóttir verður með stuttar kynningar
af og til sem varpa ljósi á sérkenni og lífsmáta nokkurra fugla.
Eru fuglar líka fólk?
Valgeir Guðjónsson og Ásta Kristrún Ragnarsdóttir
gefa fuglunum sérstakan gaum á þessum tíma árs.
Fuglatónleikar Valgeirs Guðjónssonar verða haldnir á skírdag og laugardag
í Hveragerði og á Eyrarbakka. Innblástur er sóttur til Jóhannesar úr Kötlum.
Jóhannes úr
Kötlum
„Síðdegis í gær var opnað hér í
Reykjavík, nýtt stórglæsilegt
veitingahús, sem hlotið hefur
hið alþjóðlega heiti: Lido. Fjöldi
gesta var viðstaddur opnunina.“
Með þessum orðum hófst
frétt í Morgunblaðinu fyrir um
sextíu árum, 14. febrúar 1959.
Í fréttinni kom fram að það
væri samdóma álit gestanna að
þetta væri glæsilegasta veitinga-
hús bæjarins og opnun þess var
jafnað við þau tímamót er Hótel
Borg tók til starfa.
„Eigendur veitingahússins, frú
Ingibjörg og Þorvaldur Guð-
mundsson forstjóri, buðu fjölda
gesta til síðdegisdrykkju í gær-
dag í hinum fallega veitingasal í
Lido, en hann er svo stór og
rúmgóður, að þar geta matast
samtímis 450 manns. Er veit-
ingasalurinn á efri hæð hins nýja
verzlunarhúss Austurvers,“ stóð
enn fremur.
Til stóð að Lido yrði opið öll
kvöld frá kl. 7 til 11.30, nema
þegar húsið væri leigt félaga-
samtökum, „og mun hafa á boð-
stólum fjölbreytta rétti „a la
carte“, auk matseðils kvölds-
ins“.
GAMLA FRÉTTIN
Veitinga-
húsið Lido
opnað
Séð inn yfir hinn stóra veitingasal í Lido. Vínstúkan sést því miður ekki á
myndinni. Skarphéðinn Jóhannsson arkitekt lagði á ráðin um útlit salarins.
Ljósmynd/P. Thomsen
ÞRÍFARAR VIKUNNAR
Dara Khosrowshahi
framkvæmdastjóri Uber
Benedikt Bóas Hinriksson
blaðamaður
James Roday
sjónvarpsleikari