Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.04.2019, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.04.2019, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14.4. 2019 F yrir tæpum áratug eignaðist bréfritari bókina Brief lives sem sagnfræðingur- inn stórtæki Paul Johnson sendi frá sér. Þar getur hann ríflega 200 samferða- manna sinna og fellir um þá palladóma. Suma hafði hann þekkt vel en aðra minna og jafnvel aðeins hitt stuttlega, en þó nóg til þess að hafa eitthvað eftir umræðuefninu. Í seinustu tilvikunum eru kynnin ekki inntak pistilsins, heldur annar fróðleikur oft hafður eftir öðrum nafngreindum samferðamönnum og svo fylgir fróðleikur af öðrum toga. Frægur þulur og sífrískur Þessar mannlýsingar og stundum glefsur eru af þess- um ástæðum misáhugaverðar. Johnson leynir því hvergi að þetta er persónulegur fróðleikur, ekki sagn- fræði. Iðulega er gengið æði nærri þeim sem nefndir eru til sögunnar og afstöðu höfundarins til þeirra ekki leynt. Við gætum flest sett saman slíka bók um sam- ferðamenn til skemmri eða lengri tíma, þó sjálfsagt ekki af sömu leikni og orðkynngi og Paul Johnson. Frásagnir Johnsons virðast m.a. lúta þeirri kröfu að þar fari bærilega þekkt fólk úr breskri eða alþjóðlegri samtímasögu. Mjög margir og kannski flestir uppfylla það skilyrði en þó ekki allir. Johnson hefur lifað lengi og farið víða og átt samleið með vinstrisinnuðum sálufélögum og síðar á öndverð- um kvarða eftir því sem hann þroskaðist. Hann um- gengst stjórnmálamenn, rithöfunda, leikara, myndlist- armenn og fjölmiðlafólk svo nokkuð sé nefnt. Johnson er sjálfur liðtækur málari og það hjálpar þessum frá- sögnum þótt myndir fylgi ekki. Lýsingarnar eru myndrænar og litríkar og þessi stálminnugi sagnfræð- ingur er slyngur textamaður án þess að tapa sér í til- gerð. Paul skrifar Margréti bréf Í frásögn af Ronald Reagan, sem Paul Johnson þykir augljóslega mikið til koma, rifjar hann upp þegar Reagan sóttist eftir að fá tilnefningu sem frambjóðandi repúblikana og heyja einvígi við Jimmy Carter um Hvíta húsið. Johnson var þá gestaprófessor vestra og heillaðist af frambjóðandanum og skrifaði Margréti Thatcher forsætisráðherra langt bréf og sagðist sann- færður um að Reagan yrði útnefndur og myndi svo vinna Carter með sannfærandi hætti. Hann mælti með því að Thatcher nálgaðist Reagan svo fljótt sem verða mætti, því það væri margt sem þau ættu sameiginlegt og þau gætu orðið mjög öflugir samherjar. „Hún svar- aði mér með bréfi: Þetta er fjarri því að vera sú mynd sem dregin er upp fyrir mig af sendiráði okkar (í Washington). Þeir fullyrða þar að Reagan eigi enga möguleika á sigri og Carter muni auðveldlega fá endurkjör. En, bætti hún við: Mér líkar það sem þú segir mér og ég mun gera það sem þú leggur til.“ Hóflausir búrókratar Breska utanríkisráðuneytið er mjög öflugt og fjöl- mennt en bæði Churchill og Thatcher áttu í vandræð- um með það og diplómataskarann og treystu honum alla tíð illa. Minni bógar fóru betur í taumi þess. Nú- verandi forsætisráðherra Breta er óskaeintak fyrir bú- rókrata heima fyrir og síamstvíbura þeirra í Brussel. Nýverið birti Daily Telegraph uppsláttargrein sem vakti athygli. Fyrir henni talaði „nafnlausi embættis- maðurinn“ og auðvitað vissi ritstjórn blaðsins hver þar fór og þótti augljóslega mikið til koma. Hann sagði al- gjörlega vafalaust að breska stjórnkerfið reyndi nú að eyðileggja útgönguna úr ESB: „Hvernig veit ég það? Það er vegna þess að ég starfa í sjálfu hjarta stjórn- kerfisins. Sem embættismaður get ég fullyrt við ykkur að stór hluti stjórnkerfisins í Whitehall (stjórnarráðið) vinnur skipulega gegn því að Bretum auðnist að ganga úr ESB. Ég hef hitt þúsundir opinberra starfsmanna síðustu ár og minnist aðeins 5 þeirra sem kosið höfðu með úrsögn.“ Greinin er að öðru leyti eftirtektarverð og þörf áminning. Aldrei verra en nú Vandinn er þegar háttsettur hópur embættismanna, sem eru í raun æviráðnir og lúta stjórn heimaríkra yf- irmanna úr sínum hópi, er kominn á skjön við þjóðar- viljann og er sama um það. Alþekkt er að í sínum hópi tala þessir raunverulegu valdamenn um „okkur“ og „þá sem koma og fara“ og eiga þá við stjórnmálamenn- ina sem hafa varla lært á sín ráðuneyti þegar þeir eru farnir annað. Flestir enda þeir sem léttavigtarmenn í sínum ráðuneytum og í versta falli sem sendlar þeirra sem í orði kveðnu eiga að þjónusta þá. Úr utanríkis- ráðuneytinu eru mörg nýleg dæmi. Þáverandi ríkis- stjórn kokgleypti dellubréf þar sem aðildarumsókn Jó- hönnustjórnarinnar að ESB var að sögn embættis- manna afturkölluð. Það sýnir hvað menn eru bíræfnir þegar þeir senda ráðherra sinn með slíkt bréf inn á fund ríkisstjórnar. En þeim til láns þá virtist ekki neinn læs maður vera staddur þar á fundi þegar svo mikilvægt mál var til afgreiðslu. Nú tala ráðherrar um mál dagsins eins og páfagaukar um „fyrirvara sem breyti málinu“. En í ljós kemur að átt er við hjal úr fundargerð þar sem flest er haft eftir íslensku fundarmönnunum og nafngreindur kommissar staðfestir að hann hafi verið viðstaddur hjalið. Ekki vottur af lagalegri þýðingu þar og ekki heldur pólitískri sem hald væri í og væri það síðara svo sem marklaust aukaatriði. Á sama tíma er vitað en ekki viðurkennt að ríkis- stjórnin er með leynd að hjakka á stjórnarskrá lands- ins til að gera þjóðina enn varnarlausari en ella gagn- vart breytingum á henni. Þetta er einhver furðuarfleifð frá Jóhönnustjórninni. Ætlar þetta aldrei að hætta? Hvað tryggði sögulegan árangur? Paul Johnson veltir fyrir sér hvers vegna samstarf og vinátta þeirra Reagans og Thatcher skilaði svo miklum árangri sem heimurinn allur býr enn að. Hann segir: „Í fyrsta lagi höfðu þau bæði mjög skýra sýn á tvö, þrjú grundvallaratriði stjórnmála samtímans og reyndust í þeim öllum hafa á réttu að standa og þau fylgdu þeim eftir af miklu afli og óbrigðulli staðfestu. Palli skrifar palladóma og það gera fleiri ’ Þáverandi ríkisstjórn kokgleypti dellu- bréf þar sem aðildarumsókn Jóhönnu- stjórnarinnar að ESB var að sögn embættis- manna afturkölluð. Það sýnir hvað menn eru bíræfnir þegar þeir senda ráðherra sinn með slíkt bréf inn á fund ríkisstjórnar. En þeim til láns þá virtist ekki neinn læs maður vera staddur þar á fundi þegar svo mikilvægt mál var til afgreiðslu. Nú tala ráðherrar um mál dagsins eins og páfagaukar um „fyrirvara sem breyti málinu“. Reykjavíkurbréf12.04.19

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.