Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.04.2019, Blaðsíða 28
missa ekki af bifreið leikkonunnar en
markmið þeirra var að komast að því
hvar hún og börn hennar hefðu aðset-
ur.
Í yfirlýsingu sem Johansson sendi
frá sér í vikunni segir hún:
„Papparassar teygja sig sífellt
lengra til að hrella og áreita það fólk
sem þeir vilja ná myndum af. Jafnvel
eftir sorglegt lát Díönu prinsessu var
lögunum aldrei breytt, til að vernda
fólk fyrir lögleysu passarassa.“ Vill
hún jafnframt að papparassar verði
skilgreindir sem glæpsamlegir elti-
hrellar í lögum.
Fékk nálgunarbann
Örlög Díönu prinsessu eru eitt
sorglegasta og þekktasta dæmið um
áreitni papparassa en margt
Scarlett Johansson varar við þvíað eltingarleikir hinna svoköll-uðu papparassa; ljósmyndara
sem elta fræga fólkið á röndum til að
ná myndum af því og einkalífi þess,
muni leiða af sér fleiri dauðsföll svip-
uð því og þegar Díana prinsessa lést í
bílslysi 1997.
Leikkonan sagði frá því í vikunni
hvernig hún var elt í gegnum Los
Angeles af ljósmyndurum sem settu
annað fólk; ökumenn og gangandi
vegfarendur, í hættu. Sjálf var hún þá
nýkomin úr upptökum á Jimmy
Kimmel Live! sjónvarpsþættinum og
hafði nýyfirgefið tökustað í bifreið
sinni þegar hópur ljósmyndara hóf
eftirför, á alls fimm bifreiðum.
Virtu þeir rauð umferðarljós og
umferðarreglur að vettugi til að
frægðarmennið hefur lent í ágangi
þeirra og fundist nóg um.
Þótt papparassar geti sér sjaldnast
frægð sem einstaklingar eru þess þó
dæmi. Ron Galella, sem hefur verið
nefndur guðfaðir papparassanna öðl-
aðist heimsfrægð vegna eltingarleiks
síns við Jackie Kennedy Onassis og
þá sérstaklega eftir að hún varð
ekkja.
Stefndi hún ljósmyndaranum fyrir
dóm, meðal annars fyrir að leggja
börn hennar í lífshættu og voru þau
látin vitna. Á móti stefndi ljósmynd-
arinn forsetafrúnni fyrrverandi fyrir
að láta leyniþjónustu Bandaríkjanna
eyðileggja myndavél og filmur hans
eftir að hann hafði myndað hana og
börn hennar í Central Park í kringum
1970.
Galella eltist við forsetafrúna með
myndavélina alveg þangað til hún
fékk nálgunarbann á hann og varð
hann þá að gefa upp eltingarleik sinn
við hana fyrir lífstíð.
Galella átti þó í góðu sambandi við
annað frægðarfólk og var til dæmis í
sérstöku eftirlæti hjá Elizabeth
Bráðir papparassanna
Papparassi er þetta kallað á íslensku, papparazzi víðast hvar annars
staðar en orðið er úr mynd Fellini, La Dolce Vita. Þar leikur Walter
Santesso fréttaljósmyndara sem ber nafnið Paparazzo en nafnið bjó
Fellini til úr öðru ítölsku orði sem táknar hljóð sem er truflandi og
pirrandi, svipað og í suðandi moskítóflugu.
Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is
Jackie Kennedy
Onassis varð fyrir
meira ónæði af ljós-
myndurum sem sátu
fyrir henni eftir að
hún varð ekkja.
Ljósmyndarar í
fimm bifreið-
um, með
skyggðum rúð-
um, eltu Scar-
lett Johansson.
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14.4. 2019
LESBÓK
FRÆGÐ Claudia Schiffer segir tískuhönnuðinn Karl
Lagerfeld hafa kennt sér mikilvægi þess að vera hún
sjálf. Hin 48 ára gamla þýska fyrirsæta líkti Lagerfeld,
sem lést fyrr á þessu ári, við Andy Warhol – báðir hafi
skilið hversu mikilvægt samband frægðarmenningar-
innar og auglýsingabransans er.
Í viðtali við breska Vogue ræðir Schiffer jafnframt
fyrirsætuferil sinn, hún velji þau fáu fyrirsætuverkefni
sem hún taki að sér í dag af kostgæfni og sakni ekki 10.
áratugarins þegar hún var á hápunkti ferilsins.
„Ég á magnaðar minningar og ég hef alltaf tekið vel-
gengni minni af auðmýkt. Ég get valið úr verkefnum
og ég nýt þess í dag að prófa aðrar slóðir, svo sem að
hanna sjálf.“
Þakklát Lagerfeld
Claudia Schiffer á
heimsmet í að prýða-
forsíður tímarita.
AFP
SJÓNVARP Stranger Things-stjörnurnar
David Harbour, sem leikur lögreglustjórann
Jim Hopper, og Millie Bobby Brown, sem fer
með hlutverk Eleven, eru ekki aðeins feðgin
í þáttunum heldur eiga þau í ekki ósvipuðu
sambandi utan skjásins.
Þetta segir Harbour í viðtali við Yahoo!
Movies en í Stranger Things hefur hann ætt-
leitt Eleven og meðan vissulega er kært á
milli þeirra rífast þau einnig.
„Við eigum einskonar alvöru feðgina-
samband, þar sem hún er sú fullorðna og ég
er úrillur nöldurseggur, það er okkar háttur
á að þrasa,“ segir Harbour í viðtalinu.
Þrasa eins og feðgin
David Harbour
og Millie Bobby
Brown mæta á
skjáinn 4. júlí.
ÍSLANDSMÓTIÐ
íPepsí Max-deild karla og kvenna í knattspyrnu
sumarið 2019
PÖNTUN AUGLÝSINGA:
Fyrir miðvikudaginn 17. apríl.
NÁNARI UPPLÝSINGAR: Katrín Theódórsdóttir
kata@mbl.is | Sími: 569 1105
–– Meira fyrir lesendur
26. apríl gefurMorgunblaðið út glæsilegt sérblað um
SÉRBLAÐ