Morgunblaðið - 23.04.2019, Qupperneq 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. APRÍL 2019
Þar sem óheft ímyndunarafl mætir endalausum innblæstri.
Munurinn felst í Gaggenau.
90 sm af ótal möguleikum. Yfirborð þessa spanhelluborðs hlítir engum
reglum: Kostirnir virðast ótakmarkaðir. Sérhver hlutur frá Gaggenau skarar
fram úr í hönnun, tækni og efnisnotkun og hefur gert það síðan 1683.
Teygðu á ímyndunaraflinu: gaggenau.com.
Verið einnig velkomin í heimsókn
í sýningarsal okkar, Nóatúni 4.
Þrettándu páskahátíð Hróksins
lauk á gær í afskekktasta bæ
Grænlands, Ittoqqortoormiit, um
leið og degi vináttu Íslands og
Grænlands var fagnað í bænum.
Um páskana hafa Máni Hrafns-
son og Joey Chan, liðsmenn
Hróksins, staðið fyrir fjölda við-
burða, en hátíðin var tileinkuð
minningu veiðimannsins unga
Karls Napatoq, sem fórst í Scor-
esby-sundi í mars. Napatoq-
fjölskyldan hefur ávallt verið með-
al dyggustu liðsmanna Hróksins í
bænum og er Paulus Napatoq,
bróðir Karls, einn snjallasti skák-
maður Grænlands, þrátt fyrir
blindu.
Hátíðin hófst með heimsóknum
Hróksliða í leikskóla og dvalar-
heimili aldraðra í bænum, en
þangað fóru þeir með páskaegg
og margvíslegan glaðning. Á
fimmtudag tefldi Máni Norlandair-
fjöltefli og samhliða hófst mynd-
listarsamkeppni Pennans undir
stjórn Joey. Á föstudag var komið
að páskaeggjamóti þar sem páska-
egg voru í boði fyrir alla kepp-
endur. Hinn trausti og bráð-
efnilegi skákmaður Ignatius Arqe
sigraði eftir harða baráttu, Paulus
Napatoq hreppti silfrið og Hans-
Henrik bronsið.
Í samtali við tíðindamann
Hróksins sagði Máni að hátíðin
hefði heppnast framúrskarandi
vel. „Gleði og kærleikur voru
leiðarljósin. Hér eigum við bestu
vini í heimi og við hlökkum til að
koma á næsta ári,“ sagði Máni.
„Gleði og
kærleikur“
Teflt í afskekkt-
asta bæ Grænlands
Ljósmynd/Hrafn Jökulsson
Skákhátíð Gleðin ríkti á páskahátíð
Hróksins í Ittoqqortoormiit.
Teflt Keppendur á skákhátíðinni
voru margir af yngri kynslóðinni.
Aldrei hafa eins margir sótt hátíð-
ina Aldrei fór ég suður og í ár, að
sögn Kristjáns Freys Halldórs-
sonar, rokkstjóra hátíðarinnar.
Talsmaður Vegagerðarinnar segir
um 1.800 bíla hafa lagt leið sína
vestur yfir páskana, sem er 300 bíla
aukning milli ára, að sögn Krist-
jáns. Hátíðin fór vel fram að hans
sögn og var allt með kyrrum kjör-
um hjá lögreglunni á svæðinu:
„Ég á ekki nógu sterk lýsingar-
orð í málfarsbankanum hjá mér eft-
ir þessa helgi. Ég er himinlifandi,
bæði yfir þessari aðsókn og svo er
ég svo þakklátur fyrir það að fólk
sé að skemmta sér fallega. Bragur-
inn er svo ótrúlega góður og heim-
ilislegur, lögreglan á svæðinu er
rétt eins og við viljum hafa hana,
sýnileg að rölta um og spjalla við
gesti,“ segir Kristján og bætir við
að aðsóknarmet séu slegin á ári
hverju á hátíðinni.
Margt fólk lagði leið sína vestur
eða á Norðurland og má ætla að
hluti þess hafi ætlað á skíði í Hlíðar-
fjalli en raunar voru færri þar í ár
en á undanförnum árum. Guð-
mundur Karl Jónsson, forstöðu-
maður Hlíðarfjalls á Akureyri, seg-
ir að færra hafi verið um manninn í
fjöllunum en áður, sökum vætu-
veðurs. „Veðrið hefur verið upp og
ofan, kannski voru um það bil fjög-
ur þúsund manns á skíðum í fjallinu
yfir páskana. Annars hefur allt
gengið vel og allir í páskaskapi,
nema kannski veðrið,“ segir Guð-
mundur léttur í bragði.
Ekki voru miklar annir hjá lög-
reglunni á Akureyri um páskana.
Aldrei fleiri farið á hátíðina
Ljósmynd/Ásgeir Helgi Þrastarson
Metaðsókn Aðsóknarmet er slegið á ári hverju á Aldrei fór ég suður.
Metaðsókn var á tónlistarhátíðina Aldrei fór ég suður