Morgunblaðið - 23.04.2019, Side 19
MINNINGAR 19
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. APRÍL 2019
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
GUÐRÚN JÓNSDÓTTIR,
Reykjavík,
lést á heimili sínu 13. apríl.
Útför hennar fer fram frá Fossvogskirkju 23. apríl klukkan 15.
Þeim sem vilja minnast Guðrúnar er bent á tékkareikning
0111-26-53708 í Landsbankanum.
Ragnheiður Adda Þorsteinsd Jósef Ólason
Alda Þorsteinsd
Bára Þorsteinsd
Þorsteinn Rúnar, Þorbergur Svavar, Þórður Sigurel,
Arnfríður Olga, Andrea Guðrún, Lísa María, Tristan Set,
Jónatan Axel, Júlíus Elí
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
KJARTAN BJÖRNSSON
bóndi á Hraunkoti, Aðaldal,
lést á sjúkradeild Heilbrigðisstofnunar
Norðurlands á Húsavík mánudaginn 15.
apríl
Útför hans fer fram frá Neskirkju í Aðaldal á sumardaginn fyrsta,
25. apríl, kl. 14.
Snjólaug G. Benediktsdóttir
Snjólaug G. Kjartansdóttir
Borghildur Kjartansdóttir Kristján Kristjánsson
Börkur Kjartansson Berglind Ólafsdóttr
Kolbeinn Kjartansson Tora Katinka Bergeng
Björn Kjartansson Aðalheiður Einarsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi
og langafi,
BJÖRGVIN GUÐMUNDSSON
Hlaðhömrum 2,
sem andaðist þriðjudaginn 9. apríl, verður
jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Reykjavík
á morgun, miðvikudaginn 24. apríl, klukkan 13.
Þorvaldur Björgvinsson
Guðmundur Björgvinsson
Björgvin Björgvinsson Pirjo Aaltonen
Þórir Björgvinsson Unnur Kristjánsdóttir
Rúnar Björgvinsson Elín Traustadóttir
Hilmar Björgvinsson Sjöfn Marvinsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir,
dóttir, systir og amma,
SIGRÚN KRISTÍN ÞÓRÐARDÓTTIR
lést á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á
Hvammstanga mánudaginn 8. apríl.
Útför hennar fer fram frá Hvammstanga-
kirkju föstudaginn 26. apríl klukkan 15.
Sverrir Sigurðsson
Elísa Ýr Sverrisdóttir Óskar Hallgrímsson
Þórhallur M. Sverrisson Hafdís E. Valdimarsdóttir
Halldóra Þorvarðardóttir
Jón Þórðarson
og barnabörn
Virðing,
reynsla
& þjónusta
Allan
sólarhringinn
571 8222
Svafar:
82o 3939
Hermann:
82o 3938
Ingibjörg:
82o 3937
www.kvedja.is
svafar & hermann
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma.
SIGURÞÓRA MAGNÚSDÓTTIR
Hjúkrunarfræðingur
lést á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða,
Patreksfirði föstudaginn 12. apríl.
Útförin fer fram á sumardaginn fyrsta, fimmtudaginn 25. apríl
klukkan 14. í Patreksfjarðarkirkju.
Helgi Páll Pálmason Sólveig Ásta Ísafoldardóttir
Guðný Freyja Pálmadóttir Guðbrandur Bjarnason
Skjöldur Pálmason María Ragnarsdóttir
Salóme Þorbjörg Guðmundsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
ÁSGEIR JÓNSSON
Smyrlahrauni 48,
Hafnarfirði,
lést á heimili sínu 17. apríl sl. Útför verður
auglýst síðar.
Drífa Ingimundardóttir
Þóra Birna Ásgeirsdóttir Númi Arnarson
Ingi Björn Ásgeirsson Kristín Bridde
og barnabörn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og
amma,
SIGRÚN ÓSKARSDÓTTIR
lést 16. apríl á Hrafnistu í Reykjavík.
Ágúst Óskar Sigurðsson Anna María Úlfarsdóttir
Anna Þórdís Sigurðardóttir Rainer Lischetzki
Edda Björk Sigurðardóttir Jón Ármann Guðjónsson
og barnabörn
Sálm. 6.3
biblian.is
Líkna mér, Drottinn,
því að ég er
magnþrota,
lækna mig, Drottinn,
því að bein mín
tærast af ótta.
✝ Guðrún Jóns-dóttir fæddist í
Bolungarvík 6.
október 1931. Hún
lést á heimili sínu
13. apríl 2019.
Guðrún átti þrjú
uppeldissystkini,
þau Ólaf, Helgu og
Guðrúnu Vetur-
liðabörn. Þau eru
öll látin.
Fyrrverandi
sambýlismaður Guðrúnar var
Þorsteinn Pálsson. Hann lést
5.5. 2008. Dætur þeirra eru
Ragnheiður Adda Þorsteins-
dóttir, f. 12.10. 1957, maki Jós-
ef Ólafsson, f. 18.11. 1961.
Fyrri sambýlismenn Ragnheið-
ar eru Stefán Þorbergsson,
saman eiga þau tvíburana Þor-
stein Rúnar og Þorberg Svav-
ar, f. 6.2. 1978, og Arnfinnur
Jón Guðmundsson, f. 18.4.
1953, saman eiga þau a) Þórð
Sigurel Arnfinnsson, f. 28.1.
1982, maki Halldóra Halldórs-
dóttir, f. 8.12. 1986. Börn
þeirra eru Jónatan Axel
Þórðarson, f. 21.4. 2010, og
Júlíus Elí Þórðarson, f. 23.1.
2012. b) Arnfríður Olga Arn-
finnsdóttir, f. 13.6.
1987, búsett í Þórs-
höfn í Færeyjum.
Sonur hennar er
Tristan Set Mýrá,
f. 24.6. 2008. Faðir
hans er Jan Mýrá,
f. 7.11. 1986 í Fær-
eyjum. c) Andrea
Guðrún Arnfinns-
dóttir, f. 11.12.
1990. Andrea er
búsett í Oyndafirði
í Færeyjum. Yngsta dóttir
Ragnheiðar er Lísa María
Jósefsdóttir, f. 05.02.2001. Auk
Ragnheiðar áttu Guðrún og
Þorsteinn tvíburadæturnar
Öldu og Báru Þorsteinsdætur,
f. 1.12. 1958. Eiginmaður Guð-
rúnar til 30 ára var Þórður
Sigurel Kristjánsson, f. 29.10.
1933. Hann lést 1.7. 1988.
Guðrún starfaði meðal ann-
ars sem dagmóðir á heimili
sínu í miðbæ Reykjavíkur, og
sá þar um hópinn allan af
börnum. Á seinni árum vann
hún við heimilishjálp hjá
Reykjavíkurborg.
Útför Guðrúnar fer fram frá
Fossvogskirkju í dag, 23. apríl
2019, klukkan 15.
Elsku mamma.
Þú fórst allt of fljótt frá
okkur. Við hefðum viljað hafa
þig hjá okkur aðeins lengur.
Þú varst mikill dýravinur, elsk-
aði kisur og hunda og voru það
því ófáar kisurnar sem þú áttir
gegnum árin.
Alltaf var það jafn ánægju-
legt að koma til þín á Lindar-
götuna og hlusta á harmóníku-
tónlist með þér yfir kaffibolla
og hlusta á sögurnar úr sveit-
inni. Þú varst mikil slysa-
varnakona ásamt Dodda mann-
inum þínum, enda var hann
björgunarsveitarmaður í
Björgunarsveitinni Ingólfi,
sem síðar varð Björgunarsveit-
in Ársæll. Sjálf varst þú mjög
virk í kvennadeildinni í björg-
unarsveitinni. Þú og Jobbi
tengdasonur þinn voruð miklir
mátar og saman gátuð þið
hlustað á Elvis og harmóníku-
tónlist sem þið bæði höfðu svo
gaman af.
Tómið er stórt sem þú skilur
eftir þig, mamma mín, og vilj-
um við kveðja þig með þessu
fallega versi:
Allar stundir okkar hér
er mér ljúft að muna
Fyllstu þakkir flyt ég þér
fyrir samveruna.
(Har. S. Mag.)
Adda, Alda Bára og
Jósef (Jobbi).
Elsku amma.
Þá er komið af kveðjustund.
Við barnabörnin eru afar hepp-
in að hafa fengið að hafa þig
hjá okkur megnið af okkar full-
orðna lífi.
Það er svo erfitt að hugsa til
að þú ert ekki hjá okkur leng-
ur, en minningarnar lifa og við
vitum að þú situr brosandi á
skýinu þínu, raulandi lag á
meðan þú gætir okkar.
Við eldri börnin munum
ævintýrin á Lindargötunni,
gómsætu rjómaterturnar,
tjarnaferðirnar og bangsa-
skírnarveislurnar. Aldrei var
langt í brosið og knúsin og allt-
af gastu hlegið að uppátækj-
unum okkar.
Þegar við urðum eldri varstu
dugleg að spá fyrir okkur í
bolla og ef spádómurinn var
ekki góður var bollinn þveginn
og prófað upp á nýtt, því alltaf
vildir þú okkur hið besta.
Ég man þegar þú vissir að
þú værir orðin langamma,
stoltið var alveg að fara með
þig og þegar Tristan, Jónatan
og Júlíus voru litlir hljópst þú
upp til handa og fóta fyrir þá.
Því allt mátti nú hjá henni
langömmu.
Alltaf var jafngaman að
spjalla við þig og gátum við
rætt heima og geima, þú með
kaffibollann og ég með kókglas-
ið mitt. Þetta fannst þér nú al-
veg ferlegt, að ég þrítug mann-
eskjan væri ekki búin að læra
að drekka kaffi, og alltaf
hlóstu.
Þú varst líka svo fyndin,
amma, og ég gleymi aldrei í
fyrra þegar að þú spurðir mig
hvernig það gengi með ástar-
málin. Þegar ég svaraði að það
gengi nú eitthvað brösuglega
varstu fljót að bæta við að þá
myndum við bara finna okkur
hlöðuball og finna mér mann og
hver vissi nema að þú myndir
næla þér í kall líka, og svona
gátum við hlegið endalaust
saman.
En nú ertu farin og þrátt
fyrir að söknuðurinn sé stór lif-
ir minning þín í hjörtum okkar
um alla ævi. Rétt eftir að þú
varst farin heyrði ég Lísu spila
lagið When I think of Angels I
think of you, og svoleiðis mun-
um við alltaf muna þig, sem
engils sem vakir yfir okkur
öllum.
Hvíl í friði, elsku amma
Rúna.
Vegna okkar barnabarnanna
þinna, Rúnars, Bergs, Dodda,
Andreu, Lísu, og barnabarna-
barnanna þinna þriggja, Trist-
ans, Jónatans og Júlíusar.
Olga
Arnfinnsdóttir.
Guðrún Jónsdóttir
Í sama mund og
vorboðinn ljúfi, ló-
an, boðaði komu
sína hér á landinu,
kvaddi hún Lóa
þetta líf, kannski táknrænt fyrir
konu sem ætíð var umvafin
birtu og kærleik, og naut þess
að vera sólarmegin í lífinu.
Það auðnast ekki öllum að
eiga jafn langan tíma og henni
var gefinn hér, og erum við að
eilífu þakklátar fyrir allar þær
góðu stundir sem við höfum átt
með Lóu og Benna. Því þar sem
Lóa var, þar var líka hann
Benni, og við litum alltaf á þau
hjón sem eitt, enda fá hjóna-
bönd jafn farsæl og löng eins og
þeirra.
Við systur erum því sammála
að hún var ein af góðu fyrir-
myndunum í okkar lífi, og eig-
um við endalausar minningar
um þessa hugljúfu, brosmildu
konu.
Við systkinin Gunna Stína,
Ella og Óli Þorsteinsbörn, sem
alin vorum upp í Þingholts-
stræti 23, vorum svo gæfusöm
að eignast leikfélaga sem öll
voru á svipuðu reki í æsku og
bjuggu þau í Þingholtsstræti 15,
þau Þóra, Hóffí og Indriði
Benediktsbörn, og hefur vinátta
okkar systranna ætíð verið
sterk og er enn í dag. Á báðum
heimilum vorum við alltaf vel-
komin og var margt brallað, og
það vantaði ekki hugmyndaflug-
ið í þennan hóp, og alltaf var
tekið á móti okkur í mat eða
kaffi af mæðrum okkar.
Lóa var menntaður kjóla-
meistari, og var alltaf til staðar
ef það vantaði flík og þar var
hún örugglega fyrirmynd fyrir
þann starfsvettvang er Ella
valdi sér.
Hún Lóa var falleg í gegn, og
hver stund í nærveru hennar
var einstök, blítt brosið sem
náði til augnanna, og dillandi
Ólöf Svava
Indriðadóttir
✝ Ólöf SvavaIndriðadóttir
fæddist 13. júní
1922. Hún lést 27.
mars 2019.
Útför hennar fór
fram 17. apríl 2019.
hláturinn, og hún
gat alltaf hlustað á
masið í okkur og
haft gaman af öll-
um okkar uppá-
tækjum og ævin-
týrum.
Lóa og Benni
bjuggu sér ein-
staka paradís á
Laugarvatni þar
sem þau dvöldu á
sumrin á meðan
heilsan leyfði. Þangað var alltaf
gaman að koma í heimsókn,
þiggja nýbakaðar pönnsur eða
vöfflur með rjóma og ganga um
landareignina með leiðsögn
Benna og skoða nýjustu fram-
kvæmdir hans og listaverk og
hlusta á skemmtilegar sögur
sem þeim fylgdu. Hann leiddi
vatn inn á landið þar sem runnu
lækir og litlir fossar, og hann
gerði sér lítið fyrir og útbjó
stóra tjörn við húsið sem hann
tileinkaði Lóu sinni og skírð var
„Lóutjörn“, þar gat hún setið
og horft á fegurð náttúrunnar,
notið sólarinnar, séð fuglana
baða sig í vatninu, hvort sem
var frá pallinum eða út um
gluggann á bústaðnum. Hvílík
gjöf, sem sýndi svo glöggt þann
kærleik sem ætíð hefur fylgt
þessum frábæru hjónum. Það
var líka frábært að vera vitni að
því þegar Lóa afhjúpaði minn-
isvarða um foreldra sína við
hellinn í Laugardal 2010, Indr-
iða og Guðrúnu sem hófu sinn
búskap kornung í helli í Laug-
ardalnum.
Lóa og Benni hafa notið ein-
stakrar umönnunar og kærleika
fjölskyldu sinnar alla tíð, og bjó
Hóffí í næsta húsi við þau
lengst af og nú síðast í Mörk-
inni.
Við systurnar viljum þakka
þér elsku Lóa fyrir þína sam-
fylgd og leiðsögn í lífinu, brosin,
kærleikann og þína frábæra
nærveru. Við vottum ykkur,
elsku Benni, Þóra, Hóffí, Indr-
iði og fjölskyldur, innilegustu
samúð og sendum einnig sam-
úðarkveðjur og hlýjar hugsanir
frá Óla bróður í Noregi.
Guðrún Kristín og
Elínborg Þorsteinsdætur.
Morgunblaðið birtir minn-
ingargreinar endurgjalds-
laust alla útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda
Morgunblaðinu greinar eru vin-
samlega beðnir að nota innsendi-
kerfi blaðsins. Smellt á Morgun-
blaðslógóið í hægra horninu efst
og viðeigandi liður, „Senda inn
minningargrein,“ valinn úr felli-
glugganum. Einnig er hægt að slá
inn slóðina www.mbl.is/sendagrein
Minningargreinar