Morgunblaðið - 23.04.2019, Side 32

Morgunblaðið - 23.04.2019, Side 32
emmessis.is Bókmenntahátíð er haldin í Menn- ingarhúsinu Hofi á Akureyri í dag. Höfundamót hefst kl. 11.30 þar sem rithöfundarnir Lily King og Hall- grímur Helgason lesa upp úr verk- um sínum og sitja fyrir svörum meðal gesta. Klukkan 17 ræðir síð- an Rannveig Karlsdóttir við Hall- grím og Þorgerður Agla Magnús- dóttir við King um bækur þeirra. Bókmenntahátíð haldin á Akureyri í dag ÞRIÐJUDAGUR 23. APRÍL 113. DAGUR ÁRSINS 2019 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 670 kr. Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr. PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr. KA tryggði sér Íslandsmeistara- titilinn í blaki kvenna í fyrsta sinn þegar liðið hafði betur gegn HK í oddaleik á Akureyri. KA-liðið vann allar þrjár hrinurnar og er besta blaklið landsins, en Akureyrar- liðið vann deildarmeistaratitilinn og bikarmeistaratitilinn. Á dög- unum vann karlalið KA Íslands- meistaratitilinn. »24 KA Íslandsmeistari í fyrsta sinn ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM Deildar- og bikarmeistarar Vals eru komnir í 1:0 í úrslitaeinvíginu gegn Keflavík um Íslandsmeistaratitilinn í Dominos-deild kvenna í körfu- knattleik en liðin áttust við í Origo-höllinni á Hlíðarenda í gærkvöld þar sem Valur fagnaði sigri 75:63. Annar leikur liðanna fer fram í Keflavík annað kvöld en vinna þarf þrjá leiki til að verða Ís- lands- meistari. »25 Valur tók forystu í úrslitaeinvíginu Veronika S. Magnúsdóttir veronika@mbl.is Sólheimaleikhús frumsýnir sýning- una Leitina að sumrinu á sumardag- inn fyrsta. Þar er sögð sagan af Jóni, sem þekkir ekki annað en eilíft sum- ar, þar til skrýtnar persónur ryðja sér til rúms í lífi hans og kynna hon- um vetur, vor og haust. Í fyrstu kær- ir Jón sig ekkert um þessar breyt- ingar en smám saman lærir hann að hver árstíð hefur sína kosti og galla. 61 árs „leikafmæli“ Um 20 leikarar koma að sýning- unni og heldur einn þeirra upp á 61 árs leikafmæli en hann hefur tekið þátt í starfi leikfélagsins síðan hann var unglingur. Fyrsta sýning leik- félagsins var árið 1931, en þá var leik- ritið Ásta eftir Margréti Jónsdóttur sett á svið Sólheimaleikhússins. Höfundar sýningarinnar eru leik- stjórinn Guðmundur Lúðvík Þor- valdsson, Ástþór Ágústsson og Magnús Guðmundsson og tónlistina semur Hallbjörn V. Rúnarsson, for- stöðuþroskaþjálfi á Sólheimum. Að sögn Hallbjarnar er sýningin einstök á margan hátt og tilgangurinn örlítið frábrugðinn öðrum leikfélögum, að efla þátttöku fatlaðs fólks í leiklist. „Leikritið var upphaflega skrifað fyrir þrjá leikara en því hefur verið breytt núna eftir getu og færni leik- aranna, svo allir 20 leikararnir geti komið að sýningunni. Sumir eru að leika farfugla og svo er dóttir mín til dæmis að leika blóm. Aðalatriðið er að allir sem búa hérna fá að vera með,“ segir Hallbjörn og bætir við að á árum áður hafi aðalleikararnir stundum varpað skugga á aðra en þess sé betur gætt nú, með handriti sem er sniðið að leikurunum. „Á þessari sýningu eru ungir og efnilegir leikarar að stíga sín fyrstu skref, en það er mjög mikil virkni í þessu félagi miðað við íbúafjöldann,“ segir Hallbjörn. Mjög rík hefð sé fyrir því að setja upp sýningar á Sól- heimum. Yfirleitt hafa miðar á frumsýn- ingar Sólheimaleikhúss, sem eru á hverju ári á sumardaginn fyrsta, selst upp, að sögn Hallbjarnar: „Við getum boðið upp á upplifun hér í Sól- heimum, það er alltaf menningar- veisla hér allt sumarið. Fólk stoppar ekki hérna fyrir eina sýningu og keyrir í burtu, það er nóg að gera. Það er bæði verslun með það sem við erum að framleiða og listhús,“ segir Hallbjörn. Sýningin verður frumsýnd í Sól- heimaleikhúsi á Selfossi á sum- ardaginn fyrsta og standa sýningar yfir fram til 5. maí, en þær verða sex talsins. Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu Sólheima, sol- heimar.is. Ljósmynd/Hallbjörn V. Rúnarsson Sumarið Farfuglar koma við sögu í leiksýningunni Leitin að sumrinu, sem frumsýnd verður á sumardaginn fyrsta. Leitað að sumrinu á sumardaginn fyrsta  Leiksýningin Leitin að sumrinu frumsýnd á Sólheimum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.