Morgunblaðið - 23.04.2019, Side 10

Morgunblaðið - 23.04.2019, Side 10
DUXIANA Reykjavik | Ármuli 10 | Reykjavik | +354 5 68 99 50 | www.duxiana.is GÆÐI OG ÞÆGINDI SÍÐAN 1926 DUX 6006 - SVÆÐISMEÐFERÐ Í örfáum einföldum skrefum geturðu sett upp rúmið þitt til að mæta þörfum þínum. GÆÐI – ÞEKKING – ÞJÓNUSTA Njóttu þess að hvílast í hreinum rúmfötum Við þvoum og pressum rúmfötin - þú finnur muninn! Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Nauðsynlegt er að opna fleiri gátt- ir inn í landið en Keflavíkur- flugvöll, en í slíku felst að umferð ferðamanna um landið dreifist betur og álag verður jafnara. Af þeirri ástæðu er hugsanlegt að ferðaþjónustufólk úti á landi þurfi að taka sölumál meira í sínar hendur, því núverandi áherslur í markaðsstarfi ráða því að stærst- ur hluti erlendra túrista í Íslands- heimsóknum fer aðeins um Suður- land, Vesturland og höfuðborgar- svæðið. Þetta segir Jóhannes Geir Sigurgeirsson, ferðaþjónustu- bóndi á Öngulsstöðum í Eyjafjarð- arsveit og fyrrverandi alþing- ismaður. Hefðir og menning Það var árið 1996 sem stofnað var til ferðaþjónustu á Önguls- stöðum af Jóhannesi Geir og fjöl- skyldu og hefur reksturinn lengst af verið í höndum stórfjölskyld- unnar þar á bæ. Um árabil sinnti Jóhannes öðrum verkefnum en ár- ið 2012 tóku þau Ragnheiður Ólafsdóttir kona hans við keflinu að nýju eftir fimm ára útleigu. Ár- ið 2013 komu Guðný dóttir Jó- hannesar og Karl Jónsson maður hennar inn í reksturinn. Eins og víða í sveitum lands- ins eru gamlar endurgerðar bygg- ingar nýttar undir starfsemina, en á Öngulsstöðum eru alls 20 her- bergi og hægt að hýsa allt að 50 næturgesti. Í seinni tíð hefur vægi veitingasölu í starfseminni svo verið aukið og þar er lambakjötið í öndvegi; læri og kótelettur. Af því skýrist nafn staðarins: Lamb Inn. „Við finnum vel frá gestum okkar að fólk vill sjá annað Ísland en það sem er þéttsetnast í dag. Einnig kynnast menningu og matarhefðum þjóðarinnar og í því tel ég felast mikil tækifæri. Þau þurfum við hins vegar að rækta og sinna, sem aftur helst í hendur við aðra hagsmuni atvinnugreinar- innar. Þar er mikilvægast að fjölga gáttunum inn í landið; það er að hingað verði skipulagt milli- landaflug árið um kring með tíð- um ferðum. Þetta er aðeins komið á legg með starfsemi bresku ferðaskrifstofunnar Super Break en á hennar vegum var haldið uppi reglubundnu flugi í allan vetur, sem gekk vel,“ segir Jó- hannes Geir, sem vill að byggt verði á þessari góðu reynslu. Innviðir eru til staðar Í uppbyggingu í ferðamálum á Íslandi telur Jóhannes ágætt að horfa til Króatíu og aðstæðna þar. Árið 2017 hafi komið 17,4 millj- ónir ferðamanna til Króatíu og hafði fjölgað um 60% frá 2007. Á sama ári komu 2,2 milljónir ferða- manna til Íslands og hafði fjölgað um 350% á einum áratug. Í báðum tilfellum er ferðafólk margfaldur íbúafjöldi landanna, en stóri munurinn milli landanna er þegar kemur að flugi til landsins. Meðan Ísland beinir öllu flugi um einn flugvöll nota Króatar fimm al- þjóðlega flugvelli til að taka á móti sínum gestum. „Ég velti því fyrir mér hvort sú stefna að beina nánast öllu flugi um einn flugvöll, það er einn völl- ur og ein leið, sé beinlínis skaðleg íslenskum hagsmunum,“ segir Jó- hannes Geir. „Að minnsta kosti tel ég að nú sé að opnast skilningur á því að koma upp reglulegu flugi á fleiri áfangastaði, það er Akureyri sem er viðurkenndur varaflug- völlur fyrir Keflavík. Hér nyrðra eru líka allir þeir innviðir sam- félagsins sem þarf fyrir – og til að byggja upp nýja flugstöð hafa heimafyrirtæki hér tryggt fjár- magn. Framtíðarmúsíkin í þessu getur hins vegar verið að byggður verði nýr og stór flugvöllur fyrir norðan, til dæmis í Aðaldal. Næstu 10-15 er þó ekki um annað að ræða en Akureyri og Egils- staði.“ Alltaf dýr áfangastaður Eyjafjarðarsveitin er heima- völlur Jóhannesar Geirs; það er hin víðfeðma sveit í skjóli fjallanna sunnan Akureyrar. Þar er stundaður hefðbundinn land- búnaður á mörgum bæjum; en áberandi er í þessari sveit að bæ- irnir standa nokkrir í þyrpingum sem líkjast litlum þorpum. Ferða- þjónusta er starfrækt á nokkrum stöðum í sveitinni; gistiþjónusta, ferðamannafjós, kaffihús, ísgerð og fleira. „Við höfum stundum kynnt Eyjafjarðarsveit sem Akur- eyri countryside; erum sveitahlið bæjarins, en bara svo miklu meira,“ segir Jóhannes, sem hefur á undanförnum árum séð ferða- þjónustuna þroskast sem atvinnu- grein þar sem ýmsu þarf að mæta. „Fyrst eftir hrun kom upp sá misskilningur meðal fólks í ferða- þjónustu að við værum ódýrt land. Það vorum við ekki; krónan var einfaldlega mjög veik á árunum 2009 til 2013 og fyrir vikið flykkt- ust ferðamenn hingað enda var gjaldmiðill okkar þá hagstæður gagnvart erlendum myntum. Það liggur í hlutarins eðli að Ísland verður alltaf dýr áfangastaður; þar ráða flugfargjöldin, öll aðföng og að fyrir almenn þjónustustörf hér á landi eru greidd einhver hæstu laun sem þekkjast. En við þurfum samt að gæta hófs í allri verðlagningu og vafalaust fóru einhverjir yfir mörkin þegar ís- lenski gjaldmiðillinn gagnvart evru var kominn niður fyrir 120 krónur fyrir um tveimur árum. Nú hygg ég að ferðaþjónustan sé að nýju að komast á jafnvægis- punkt, sem gefur okkur tækifæri til að meta stöðuna og marka stefnuna til lengri tíma.“ Ferðafólk vill sjá annað Ísland en það sem er þéttsetnast í dag Morgunblaðið/Sigurður Bogi Ferðabóndi En við þurfum samt að gæta hófs í allri verðlagningu og vafalaust fóru einhverjir yfir mörkin, segir Jóhannes Geir í viðtalinu. Fleiri gáttir inn í landið nauðsyn 10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. APRÍL 2019  Jóhannes Geir Sigur- geirsson er fæddur árið 1950 og hefur búið á Önguls- stöðum í Eyjafjarðarsveit alla sína tíð. Hefur sinnt marg- víslegum trúnaðarstörfum í héraði, formaður KEA og stjórnar Landsvirkjunar í nokkur ár. Alþingismaður Framsóknarflokks í Norður- landskjördæmi eystra 1991- 1995. Hver er hann? Kauphöllin, Nasdaq Iceland hf., leggst gegn því að eftirlit með hegð- un á fjármálamarkaði verði fært undir Seðlabankann. Þetta kemur fram í umsögn við frumvarp til laga um Seðlabanka Íslands þar sem gert er ráð fyrir sameiningu Fjármála- eftirlitsins við Seðlabankann en að mati Kauphallarinnar er hætta á hagsmunaárekstrum ef þessi leið verður farin. „Standi hins vegar vilji ríkis- stjórnarinnar og Alþingis til þess að sameina Fjármálaeftirlitið Seðla- bankanum að fullu álítur Kauphöllin engu að síður leiðir færar sem gætu dregið umtalsvert úr líkunum á hagsmunaárekstrum og aukið vald- dreifingu. Ef full sameining verður niðurstaðan telur Kauphöllin brýnt að skerpt verði á sjálfstæði þess varaseðlabankastjóra sem mun fara með málefni fjármálaeftirlits. Til að tryggja sjálfstæði hans telur Kaup- höllin rétt að varaseðlabankastjóri fjármálaeftirlits heyri beint undir bankaráð en falli ekki undir valdsvið seðlabankastjóra þegar kemur að málefnum fjármálaeftirlits,“ segir í umsögninni. Varaseðlabankastjóri fjármála- eftirlits færi þá einungis með mál- efni þess eftirlits og leggur Kaup- höllin til að hann yrði þá formaður fjármálaeftirlitsnefndar í stað seðla- bankastjóra sem ekki hefði lengur sæti í nefndinni. omfr@mbl.is Hætta á árekstrum  Varaseðlabanka- stjóri sé sjálfstæður Morgunblaðið/Ásdís Umsögn Kauphöllin hefur sent frá sér álit á Seðlabankafrumvarpinu. Aðalfundur Félags tollvarða á Keflavíkurflugvelli gagnrýnir harðlega áform um sameiningu embættis tollstjóra við ríkisskatt- stjóra og hvetur í ályktun til að hætti verði við öll þau áform. Í ályktun segir að slík tilraunastarf- semi hafi ekki reynst vel í Dan- mörku og formaður danska tollsins hafi varað íslenska starfsbræður sína við ,,þess konar sameining- arbrölti“ á aðalfundi Tollvarða- félags Íslands fyrir fáeinum árum. Sameiningin við danska skattinn hafi tekist afar illa til. Bent er á að nefnd fjármála- og efnahagsráðherra um aukna skil- virkni í skattframkvæmd o.fl. muni væntanlega skila af sér tillögum um framtíð tollasviðs tollstjóra um eða eftir næstu mánaðamót en enginn fulltrúi Tollvarðafélagsins sé í nefndinni og ekkert samráð hafi verið haft við félagið. Mótmæla sameiningaráformum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.