Morgunblaðið - 23.04.2019, Side 13

Morgunblaðið - 23.04.2019, Side 13
FRÉTTIR 13Erlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. APRÍL 2019 NÝTT – Veggklæðning Rauvisio Crystal • Mikið úrval lita og áferða • Auðvelt í uppsetningu og umgegni • Framleiðum eftir óskum hvers og eins • Hentar fyrir heimili, vinnustaði og almenningssvæði Fanntófell hefur sérhæft sig í framleiðslu á borðplötum og sólbekkjum síðan 1987. Fanntófell ehf. | Gylfaflöt 6-8 | 112 Reykjavík | Sími 587 6688 | fanntofell.isSmiðjuvegur 68, Kópavogi | S. 587 1350 | bifreidaverkstaedi.is Höfum sérhæft okkur í Toyota viðgerðum síðan 1995 Fljót, örugg og persónuleg þjónusta Allar almennar bílaviðgerðir Ágúst Ásgeirsson agas@mbl.is Ríkisstjórn Srí Lanka segir allar líkur á að þarlend múslimasamtök hafi staðið að baki hryðjuverkunum á páskadag sem kostuðu að minnsta kosti 290 mannslíf og rúmlega 500 manns líkamstjón. Hafi þau notið al- þjóðlegrar liðveislu. Engin samtök höfðu þó lýst ódæðinu á hendur sér í gærkvöldi. Nú liggur fyrir að lögregla fékk fyrir fram vitneskju um yfirvof- andi hryðjuverk en lét hjá líða að bregðast við ábendingunni. Á blaðamannafundi í höfuðborginni Colombo í gær sagði heilbrigðisráð- herrann Rajitha Senaratne að lítt þekktur hópur, National Thowheeth Jamath, væri talinn ábyrgur fyrir hinum mannskæðu ódæðisverkum. Létu þau til skarar skríða á sex stöð- um í borginni og í öllum tilvikum var um sjálfsmorðssprengingar að ræða. Samtökin komu fram á sjónarsviðið í fyrra er þau voru sökuð um skemmd- arverk á Búddastyttum. Senaratne staðfesti að lögregla hefði verið vöruð við hryðjuverkunum en hún hefði meðal annars brugðist við með því að deila vitneskjunni ekki með ríkisstjórn Ranil Wickremes- inghe forsætisráðherra. „Við teljum að þessar aðgerðir hafi notið alþjóð- legrar liðveislu, öðruvísi hefðu þær ekki verið mögulegar. Æðsta yfir- manni lögreglunnar ber að segja af sér,“ sagði ráðherrann. Varnarmála- ráðherra Srí Lanka, Maithripala Sir- isena forseti, er yfir lögreglunni og er úr öðrum flokki en Wickremesinghe forsætisráðherra. Þeir hafa átt í erf- iðri sambúð í samsteypustjórninni eftir að Sirisena forseti vék forsætis- ráðherranum úr stjórninni í október síðastliðnum, en dómstólar endur- reistu Wickremesinghe eftir 52 daga stjórnarkreppu. Aftengdu sprengju Í gær gerði lögregla óvirka sprengju sem fannst í bíl sem lagt var skammt frá einum tilræðisstaðanna sjö; við kirkju í úthverfinu Kotahena. Sama dag fann lögregla 87 hvell- hettur á stórri strætisvagnastöð í Colombo. Páskamessur sungnar Í tengslum við hryðjuverkin á sunnudag hafa 24 manns, allt heima- menn, verið handteknir. Rannsak- endur tilræðanna hafa staðfest að sjö menn hafi borið sprengjur innan- klæða og sprengt sig í loft upp við skotmörk sín. Sérfræðingur ríkis- stjórnarinnar sagði blaðamönnum að tilræðin hefðu verið samræmd. Þrjár sprengjur hefðu verið sprengdar í kirkjum og fjórar í og við hótel í borg- inni. Svo virtist sem tveir aðildar hefðu farið saman á einn staðinn, Shangri-La hótelið í Colombo. Hin hótelin tvö voru Kingsbury og Cinna- mon Grand. Fundist hefur sendibíll sem talið er að hafi flutt tilræðismennina að skot- mörkum sínum. Enn fremur voru kennsl borin á hús í útjaðri Colombo sem þeir dvöldust í fyrir ódæðin. Sprengjur tilræðismannanna sprungu er páskamessur voru sungn- ar í borgunum Negombo, Batticaloa og Colombo og við þrjú fimm stjörnu hótel í höfuðstaðnum. Meðal hinna látnu voru að minnsta kosti 40 útlend- ingar, að sögn stjórnvalda. Þar á með- al voru þrjú börn dansks viðskipta- jöfurs, Anders Holch Povlsen, sem stýrir stóru fataveldi. Var fjölskyldan í fríi á Srí Lanka. Útgöngubann var sett á í Srí Lanka frá sólarlagi til sólarupprásar en óvíst er hversu marga daga það varir. Biðja um aðstoð Ráðuneytisstjóri í varnarmála- ráðuneytinu, Hemasiri Fernando, sagði við BBC, að ábendingar leyni- þjónustunnar hefðu aldrei bent til jafn mikilla árása og áttu sér stað. Þær snerust um eitt einangrað tilræði eða tvö. „Ekkert eins og þetta,“ sagði hann. Bætti hann við að allar mikil- vægustu deildir lögreglunnar hefðu verið látin vita af ábendingunum en þær hafi ekkert aðhafst. Stjórn Srí Lanka hefur farið fram á alþjóðlega aðstoð við rannsókn til- ræðanna og tengsl tilræðismannanna við alþjóðasamtök. Brugðust ekki við aðvörunum  Yfirvöld á Srí Lanka segja allar líkur á að þarlend múslimasamtök hafi staðið að baki hryðjuverk- unum  Lítt þekkt samtök heimamanna sem talin eru hafa haft stuðning og liðveislu erlendra aðila AFP Negombo Liðsmenn öryggissveita kanna tjón í Sebastínusarkirkjunni daginn eftir hryðjuverk í henni. Colombo Lögregla og hermenn rannsaka leifar bifreiðar sem sprakk er lögregla reyndi að aftengja sprengju í henni í gær, daginn eftir sprengju- tilræði við kirkjur og lúxushótel sem kostuðu a.m.k. 290 manns lífið. Hryðjuverk » Tilræði voru framin í höf- uðstaðnum Colombo, borginni Negombo norður af af henni þar sem margir kaþólikkar búa og í Batticaloa á austurströnd landsins. Kirkjur og hótel voru skotmörk. » Meirihlut íbúa Sri Lanka (70%) eru búddistar, um 10% eru múslimar og kristnir menn um 7,5%. Hindúar eru 12,5% íbúanna. Grínistinn Volodimír Selenskí hlaut yfirgnæfandi meiri- hluta atkvæða í seinni umferð forsetakosninganna í Úkra- ínu á sunnudag. Þegar talningu atkvæða var nærri lokið var skerfur hans 73% en skerfur Petro Poroshenko fráfar- andi forseta aðeins 24%. „Ég mun aldrei valda ykkur von- brigðum,“ sagði Selenskí er hann fagnaði úrslitunum með stuðningsmönnum. Poroshenko játaði ósigur en sagðist ekki hættur í pólitík. Sagði hann hinn 41 árs gamla Selenskí of ungan og óreyndan til að standa af einhverju viti í hárinu á Rússum. agas@mbl.is Grínistinn vann stórsigur Volodimír Selenskí ÚKRAÍNA

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.