Morgunblaðið - 23.04.2019, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 23.04.2019, Blaðsíða 11
DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. APRÍL 2019 FALLEG OG VÖNDUÐ LEIKFÖNG úr náttúrulegum efnivið, tré og silki ERUM FLUTT ! á Nýbýlaveg 8 – Portið Nýbýlavegi 8 – Portið, sími 847 1660, www.bambus.is, bambus@bambus.is bambus.is bambus.is • Opið mánudaga og fimmtudaga frá kl. 10-14 Áþinni eigin heimasíðu umheilsufar þitt www.heilsu-vera.is getur þú lesið um margt sem tengist heilsufari. Þar er til dæmis farið yfir áhættuna af því að hafa háan blóðþrýsting. Hér eru upplýsingar sem eru mikilvægar og hægt er að lesa um þar. Háþrýstingur er oftast einkennalaus Blóðið rennur í æðum okkar og er ætlað að vera þar til að flytja nær- ingarefni eins og til dæmis súrefni milli staða. Til þess að það gangi vel og eðlilega þarf að vera eðlilegt sam- spil á milli magns vökva og efna í æðum, hreyfanleika æðakerfis og hraða hjartsláttar. Ef blóðþrýsting- urinn er of hár eykur það líkur á að æðakerfið gefi sig og afleiðingin verður sjúkdómur í til dæmis hjarta, heila, augum og nýrum. Ef blóð- þrýstingur er mjög hár til langs tíma getur það minnkað lífslíkur verulega og skert þar að auki lífsgæðin til dæmis með heilablæðingu. Það er al- veg ljóst að ef þrýstingur inni í æð- um er mikill getur æðin eða rörið gefi sig eða smám saman skemmst með tilheyrandi áföllum. Margir aðrir þættir geta veikt æðakerfið og dæmi um það eru reykingar, ættlægur veikleiki og há blóðfita. Verst er síðan ef margir áhættuþættir hjarta og æðasjúk- dóma eru til staðar í einum og sama einstaklingi. Það er því ein gagnleg- asta aðgerð sem hægt er að gera til að fyrirbyggja sjúkdóma er að mæla blóðþrýstinginn og bregðast við óeðlilegum niðurstöðum. Gildin eru mismunandi Tvær tölur eru notaðar til að skýra blóðþrýsting, til dæmis 140/ 90. Hærri talan segir til um þrýst- inginn í slagæðunum þegar hjartað dregst saman og mikið blóð er í æð- unum og þar af leiðandi hár þrýst- ingur en lægri talan er þrýstingur- inn í slagæðunum þegar hjartað er í slökun og lítið blóð í æðum líkamans. Eðlilegur á blóðþrýstingur fólks í efra gildi að vera 119 eða lægri og í neðra gildi 79 og þaðan af minni. Hækkaður blóðþrýstingur í efra gildi er 120-139 og 80-89 í því lægri. Þegar um háþrýsting er að ræða eru efri gildi 140 eða hærri og í neðra gildi 90 eða meira. Þessi gildi eru þó mismunandi og ekki alveg óumdeild og ekki óeðli- legt að hafa viðmiðunargildi eftir því hvaða aðrir áhættuþættir hrjá fólk. Dæmi er að ef það er sterk ættar- saga um kransæðasjúkdóm, til dæmis faðir reykti ekki og fékk kransæðastíflu 36 ára og kólester- ólið hefur alltaf verið hátt hjá þér er rétt að gera kröfur um að þrýstingur sé í lægri kantinum. Þá er til dæmis við þessa ættarsögu afar óheppilegt að reykja eins og gefur að skilja. Þú getur mælt þrýstinginn heima en blóðþrýstingsmæla má kaupa í apótekum og heilsuvörubúðum.  Sestu niður og hvíldu þig í 5 mín- útur áður en mæling hefst.  Gættu þess að það séu í það minnsta 30 mínútur liðnar frá síð- ustu máltíð, æfingu, baði, reykingum eða áfengisneyslu.  Fylgdu leiðbeiningum mælisins um staðsetningu mælisins á hend- inni og mældu.  Skráðu mælinguna.  Mældu síðan blóðþrýstinginn reglulega, ávallt á sama tíma dags.  Skráðu hjá þér mælingarnar þín- ar og komdu með þær í næstu heim- sókn á heilsugæsluna. Hvað er til ráða? Hvað get ég gert ef þrýstingurinn er hár? Þú getur haft áhrif á blóð- þrýstinginn þinn með því að:  Létta þig - ef þú ert í yfirvigt. Það er erfitt að dæla blóði út í líkama sem er mjög stór. Sýnt hefur verið fram á gagnsemi þess ef líkams- þyngdarstuðull er hærri en 30. (þyngd/hæð í öðru veldi).  Velja fituminni fæðu og meira af grænmeti og ávöxtum.  Minnka saltneyslu. Þetta er afar mikilvægur þáttur.  Hreyfa þig 30 mín á dag, flesta daga. Hreyfing bætir andlega og lík- amlega heilsu.  Minnka áfengisdrykkju (ef þú drekkur meira en 2 glös á dag).  Gott ráð er að fá sér blóðþrýst- ingsmæli til að fylgjast með blóð- þrýstingnum heima. Ef þú fylgist reglulega með eigin blóðþrýstingi gengur betur að hafa áhrif á hann til lækkunar. Hafðu eftirfarandi í huga Hafðu samband fljótlega við heilsugæsluna ef reglulegar blóð- þrýstingsmælingar þínar eru yfir 140/90.  Hafðu samband strax við heilsu- gæsluna ef blóðþrýstingsmælingar þínar eru í kringum 180/120. Sama skaltu gera ef blóðþrýstingsmæl- ingar þínar eru yfir 140/90 og þú finnur fyrir eftirfarandi einkennum, en þau eru merki um að æðakerfið hafi með einhverjum hætti gefið sig og því mikilvægt að grípa inn í og bregðast við strax  Sjóntruflanir  Höfuðverkur á morgnana  Ógleði, uppköst  Sljóleiki eða skert meðvitund  Erfiðleikar með tal  Erfiðleikar með öndun  Verkir í brjósti eða brjóstbaki.  Brúnt eða blóðugt þvag  Munum að góð heilsa er gulli betri og að fylgjast með blóðþrýstingi er einföld og góð leið til að fyrirbyggja heilsuvanda. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Útivera Hreyfing og hófleg áreynsla er góð fyrir hjartað og alla heilsu. Gagnlegt að mæla blóðþrýstinginn Heilsuráð Óskar Reykdalsson, heilsugæslulæknir og forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins Unnið í samstarfi við Heilsugæslu höfuðborgarsvæðsins Umskipti verða á Íslandi og um- hverfið fær nýjan svip á Stóra plokkdaginn sem er næstkomandi sunnudag, 28. apríl. Í fyrra var blokkað á Íslandi á Degi jarðar, 22. apríl, og þá gerðust góðir hlutir. Vænst er að hið sama verði nú þeg- ar sjónum verður beint að svæðum sem liggja að Reykjanesbraut, Vesturlandsvegi og Suðurlandsvegi. Hvað Reykjanessvæðið varðar verð- ur því skipt upp í nokkur svæði, og hópar blokkara leggja upp frá Fitj- um í Njarðvík, úr Vogum á Vatns- leysuströnd og frá N1 við Lækjar- götu í Hafnarfirði. Fleiri svæði verða undir, í Reykja- vík til dæmis Grafarvogur og Grafar- holt, og það fólk sem þar hyggst taka til hendi á að mæta á bíla- stæðið hjá Húsasmiðjunni kl. 10. Hægt er að slást í hópinn hvenær sem er, en vaktir verða kl. 10-12, 12- 14 og 14-16. „Plokk á Íslandi leitar að aðilum sem eru tilbúnir í hópstjórn og að því að koma að skipulagi og utan- umhaldi. Öllum er velkomið að vera með og mæta í hluta eða í allan daginn. Þetta er skipulagði hluti dagsins en svo má fólk plokka auð- vitað þar sem því sýnist og öll sveitarfélög. Vinnustaðir og hags- munaaðilar gætu einnig nýtt daginn til vitundarvakningar,“ segir í frétta- tilkynningu. Umskipti á Íslandi verða á plokkdeginum 28. apríl Morgunblaðið/Árni Sæberg Hreinsað Plokkið komst á dagskrá í fyrra og er þess vænst að margir taki til hendi í ár, því umhverfismál eru mikilvæg. Dagur til vitundarvakningar í umhverfismálum Á fæðingardegi Halldórs Laxness, sem er í dag, 23. apríl, verður kl. 16.30 opnuð sýn- ing í Lands- bókasafni Íslands í tilefni aldar- afmælis Barns náttúrunnar, fyrstu skáldsögu Halldórs. Sýn- ingin ber heitið Að vera kjur eða fara burt? og er samstarfsverkefni Lands- bókasafns Íslands Háskólabóka- safns, Gljúfrasteins, Reykjavíkur Bókmenntaborgar UNESCO og For- lagsins. Í sýningarskrá eru greinar fræði- og listafólk þar sem fjallað er um skáldið og æsku þess og nálgast höf- undarnir mál hver frá sinni hlið. Afmælisdagur Laxness Sýning um Nóbelskáldið Halldór Kiljan Laxness

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.