Morgunblaðið - 23.04.2019, Qupperneq 27
ÍBV sló bikarmeistarana
úr leik
Stemmningin var rafmögnuð í
Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja og
studdi fólkið í Eyjum ótrúlega vel
við bakið á leikmönnum ÍBV. Að
auki tókst áhorfendum Eyjamanna
að gera lífið leitt fyrir sóknarmenn
FH-inga sem komust lítt áleiðis
gegn ógnarsterkri vörn heima-
manna, þá sérstaklega í fyrri hálf-
leik.
Staðan var 19:12 í hálfleik en
FH-ingar leiddu í upphafi leiks,
fyrstu fimm mínúturnar. Eftir það
tóku leikmenn ÍBV frumkvæðið og
héldu því allt til loka leiksins.
Áframhald var á góðu gengi
Gabríels Martinez sem lék frábær-
lega í þessu einvígi, hann skoraði
úr öllum sínum 10 skotum í einvíg-
inu og stóð vörnina vel. Sigur-
bergur Sveinsson átti síðan frá-
bæran leik en hann gerði átta mörk
úr ellefu skotum, þar að auki skap-
aði hann sjö færi fyrir félaga sína.
Sigurbergur kom inn af bekknum
en hann hefur byrjað síðustu leiki
þar og komið inn af miklum krafti.
Björn Viðar Björnsson átti aftur
flottan leik í marki Eyjamanna og
varði 12 skot, þá léku varnarjaxlar
Eyjamanna Magnús Stefánsson og
Róbert Sigurðarson virkilega vel.
Hjá FH-ingum léku þó nokkrir
leikmenn vel sóknarlega en það
var aðallega varnarlega sem FH-
ingar spiluðu virkilega illa. Einar
Rafn Eiðsson fór mikinn í leiknum
en hann skoraði fimm mörk og átti
fimm stoðsendingar, þó tapaði
hann fimm sinnum boltanum í
sókninni. Jóhann Birgir Ingvars-
son skoraði mörg mörk fyrir utan
með stórkostlegum skotum, sem
markverðir Eyjamanna réðu ekk-
ert við. Úr hægra horninu fengu
FH-ingar 8 skot en einungis eitt
mark.
Eyjamenn mun sterkara liðið í
einvíginu og komnir verðskuldað í
undanúrslitin þar sem þeir mæta
annað hvort deildarmeisturum
Hauka en Stjörnunni.
„Ég er himinlifandi með frammi-
stöðu liðsins, bæði í vörn og sókn.
Þeir skoruðu fljótt á okkur þrjú
mörk og hélt ég að þetta yrði erfitt
varnarlega, en það má segja að
þeir hafi læst varnarlega. Róbert
er búinn að vera frábær fyrir miðri
vörninni, hann stjórnar þessu með
Magga, sama get ég sagt um alla
aðra. Það fara nánast allir í vörn og
taka þátt í varnarleiknum, það er
gott því þá getum við hvílt menn.
Sóknarlega stjórnum við leiknum
mjög vel, héldum okkar skipulagi
og það skilaði sér mjög vel, það eru
10 leikmenn sem skora,“ sagði Er-
lingur Richardsson, þjálfari ÍBV,
við Morgunblaðið eftir leikinn.
ÍR gaf Selfossi alvöruleik
Selfyssingar eru komnir áfram í
undanúrslit eftir hádramatískan
sigur gegn ÍR í öðrum leik liðanna í
Austurbergi í gær en leiknum lauk
með 29:28-sigri Selfyssinga. Fyrsta
leik liðanna á Selfossi lauk einnig
með eins marks sigri Selfyssinga,
27:26, og Selfoss fer því áfram eftir
hörkurimmu gegn spræku liði ÍR.
Selfoss skoraði fyrsta mark leiks-
ins en eftir það tóku ÍR-ingar öll
völd á vellinum. Þeir náðu mest
fimm marka forskoti í fyrri hálfleik
en voru klaufar á lokamínútum hálf-
leiksins þegar sem þeir köstuðu
boltanum frá sér í tvígang og Sel-
foss refsaði. Munurinn á liðunum
var tvö mörk og Selfyssingar byrj-
uðu seinni hálfleikinn á því að jafna
metin í 21:21. ÍR-ingar gáfust ekki
upp og leiddu með einu marki þegar
fimm mínútur voru til leiksoka,
26:25. Þegar þrjár mínútur voru
eftir af leiknum kom Haukur Þrast-
arson Selfossi yfir í fyrsta sinn í
leiknum. Kristján Orri Jóhannsson
átti skot í stöng frá eigin vítateig
þegar þrjár sekúndur voru til leiks-
loka en boltinn fór í stöngina og út
og Selfoss fagnaði dramatískum
sigri.
Selfyssingar voru langt frá sínu
besta í gær. Varnarleikur liðsins
var afar slakur, sérstaklega í fyrri
hálfleik, og þá var sóknarleikurinn
hægur og staður. Markvarslan var
engin, fyrstu 50. mínútur leiksins,
en Pawel Kiepulski hrökk í gang á
lokamínútum leiksins og hjálpaði
liðinu að sigla sigrinum heim.
Markverðir liðsins voru með sex
skot varin í heildina sem er alltof
lítið ef liðið ætlar sér að berjast um
Íslandsmeistaratitilinn.
Breiðhyltingar voru mjög öflugir
í leiknum og naga sig eflaust í
handabökin að hafa ekki náð að
knýja fram oddaleik á Selfossi.
Þeir voru betri aðilinn í leiknum,
allan tímann, og bæði sóknar- og
varnarleikur liðsins var til mikillar
fyrirmyndar. Leikmenn liðsins
voru óragir að keyra á öflugt lið
Selfyssinga og þeir uppskáru nær
alltaf. Stephen Nielsen var öflugur
í markinu og varði 10 skot, þar af
tvö vítaköst, en allar vörslur hans
komu á mjög mikilvægum augna-
blikum í leiknum.
ÍR-ingar sýndu það í einvíginu
gegn Selfyssingum að þeir eru með
hörkulið en því miður eru þeir
komnir í sumarfrí. Ef leikmanna-
hópur liðsins hefði haldist heill í
allan vetur hefðu þeir ef til vill
fengið slakari andstæðing í úr-
slitakeppninni . Að sama skapi
þurfa Selfyssingar að spýta í lófana
ef þeir ætla sér að gera eitthvað í
úrslitakeppninni því frammistaðan
í einvíginu gegn ÍR var ekki sann-
færandi. Selfyssingar þurfa að fara
mæta til leiks, ef þeir ætla sér Ís-
landsmeistaratitilinn í vor.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Óvænt Garðar Benedikt Sigurjónsson og félagar hans í liði Stjörnunnar
tóku deildarmeistarana í bakaríið í gær.
Uppstökk Haukur Þrastarson
stekkur manna hæst og skýtur
á mark ÍR-inga í Austurbergi í
gærkvöldi.
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. APRÍL 2019
Vagnhöfða 11 - 110 Reykjavík - www.ofnasmidja.is - sími 577 5177
hafðu það notalegt
vottun reynsla
ára
ábyrgð
gæði
miðstöðvarofnar
Dominos-deild kvenna
Fyrsti úrslitaleikur:
Valur – Keflavík.................................... 75:63
Staðan er 1:0 fyrir Val.
Spánn
Obradoiro – Fuenlabrada .............. 101:104
Tryggvi Snær Hlinason lék í rúma mín-
útu og lét ekkert að sér kveða.
B-deild karla:
Barcelona B – Iberojet Palma ........... 72:84
Kári Jónsson hjá Barcelona er frá
keppni vegna meiðsla.
Þýskaland
Mitteldeutscher – Alba Berlín ......... 91:102
Martin Hermannsson lék ekki með Alba
Berlín vegna meiðsla.
Alba Berlín – Mitteldeutscher ........... 92:84
Martin Hermannsson lék ekki með Alba
Berlín vegna meiðsla.
Frakkland
Lyon-Villeurbanne – Nanterre ......... 74:96
Haukur Helgi Pálsson skoraði 12 stig,
tók 3 fráköst og gaf 3 stoðsendingar fyrir
Nanterre.
Austurríki
Vienna Timberwolves – Wels ............ 79:90
Dagur Kár Jónsson skoraði 13 stig, tók 7
fráköst og gaf 4 stoðsendingar fyrir Wels.
Svíþjóð
Undanúrslit, fimmti leikur:
Borås – Norrköping ............................ 57:86
Jakob Örn Sigurðarson skoraði ekki fyr-
ir Borås en gaf tvær stoðsendingar.
Staðan er 3:2 fyrir Borås.
Úrslitakeppni NBA
Orlando – Toronto .............................. 85:107
Staðan er 3:1 fyrir Toronto.
Oklahoma City – Portland................. 98:111
Staðan er 3:1 fyrir Portland.
Utah – Houston ................................ 101:104
Staðan er 3:0 fyrir Houston
Detroit – Milwaukee ........................ 103:119
Staðan er 3:0 fyrir Milwaukee.
San Antonio – Denver ...................... 103:117
Staðan er jöfn 2:2
Brooklyn – Philadelphia .................. 108:112
Staðan er 3:1 fyrir Philadelphia..
KÖRFUBOLTI
HANDKNATTLEIKUR
Fyrsti úrslitaleikur kvenna:
Origo-höllin: Valur – Fram.................. 19.30
KÖRFUKNATTLEIKUR
Fyrsti úrslitaleikur karla:
DHL-höllin: KR – ÍR ........................... 19.15
BLAK
Fimmti úrslitaleikur karla:
KA-heimilið: KA – HK (2:2) ................ 19.30
Í KVÖLD!
Varmá, Olísdeild karla, 8-liða úrslit 2.
leikur mánudag 22. apríl 2019.
Gangur leiksins: 1:2, 4:4, 6:6, 6:7,
9:10, 11:13, 12:16, 14:19, 17:21, 18:23,
18:26, 21:31.
Mörk Aftureldingar: Elvar Ásgeirs-
son 7, Árni B. Eyjólfsson 4, Finnur
Ingi Stefánsson 3/2, Tumi Rún-
arsson 3/1, Einar Ingi Hrafnsson 2,
Birkir Benediktsson 2.
Varin skot: Pálmar Pétursson 5.
Utan vallar: 4 mínútur.
Mörk Vals: Róbert Aron Hostert 6,
Ýmir Örn Gíslason 5, Vignir Stefáns-
Afturelding – Valur 21:31
son 4, Alexander Örn Júlíusson 3,
Anton Rúnarsson 3/2, Sveinn Aron
Sveinsson 2, Benedikt Gunnar Ósk-
arsson 2/1, Ásgeir Vignisson 2, Þor-
gils Baldursson 1, Arnór Óskarsson
1, Orri Gíslason 1, Daníel Freyr Andr-
ésson 1.
Varin skot: Daníel Freyr Andrésson
9/1, Einar Baldvinsson 1.
Utan vallar: 10 mínútur.
Dómarar: Ramunas Mikalonis og
Þorleifur Árni Björnsson.
Áhorfendur: 897.
Valur vann 2:0.
Íþróttahúsið í Vestmannaeyjum,
Olísdeild karla, 8-liða úrslit annar
leikur mánudaginn 22. apríl 2019.
Gangur leiksins: 3:3, 7:5, 10:7, 12:8,
15:10, 19:12, 22:14, 23:16, 26:20,
30:22, 32:26, 36:28.
Mörk ÍBV: Sigurbergur Sveinsson 8,
Gabríel Martinez 6, Kristján Örn
Kristjánsson 5, Hákon Daði Styrm-
isson 5, Kári Kristján Kristjánsson
4/1, Dagur Arnarsson 3, Elliði Snær
Viðarsson 2, Fannar Þór Friðgeirsson
1, Magnús Stefánsson 1, Friðrik Hólm
Jónsson 1.
ÍBV – FH 36:28
Varin skot: Björn Viðar Björnsson
12/1, Haukur Jónsson 2.
Utan vallar: 16 mínútur.
Mörk FH: Jóhann Birgir Ingvarsson
6, Arnar Freyr Ársælsson 6, Einar
Rafn Eiðsson 5/2, Ágúst Birgisson 5,
Ásbjörn Friðriksson 5, Birgir Már
Birgisson 1.
Varin skot: Kristófer Fannar Guð-
mundsson 9, Birkir Fannar Bragason
5.
Utan vallar: 10 mínútur.
Áhorfendur: 600.
ÍBV vann einvígið 2:0