Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.04.2019, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.04.2019, Blaðsíða 2
Í FÓKUS 2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21.4. 2019 Langar þig í ný gleraugu! Smáralind – Sími 517 0317 – www.plusminus.is PLUSMINUS | OPTIC Það fyrsta sem Marilyn Monroe leikkona tók eftir þegar hún hitti Arthur Miller rithöfund, voru gleraugun! Þau tíðindi urðu nú í aðdraganda páskanna að stóra krossgátan sem allajafna er að finna í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins var nákvæmlegasú sama tvær vikur í röð, 7. og 14. apríl. Ég vildi að ég gæti haldið því fram að þetta hefði gerst fyrir þær sakir að gátan væri óvenju snúin og að leysendum veitti ekki af tveimur helgum til að ráða fram úr henni. Svo er ekki. Hér er einfaldlega um mannleg mistök að ræða og á því biðst ég auð- mjúklega velvirðingar fyrir hönd blaðsins. Ég skil vonbrigði og eftir atvikum reiði leysenda vel; það er heilög stund hjá mörgum að setjast niður með kaffið og krossgátuna á laugardags- morgni. Setja jafnvel Bowie á fón- inn. „Hvur rækallinn! Þessa hef ég séð áður.“ Það hlýtur að vera ömur- leg tilfinning; rétt eins og fyrir mig ætlaði ég að hlamma mér niður í sóf- ann í dag og horfa á Arsenal glíma við Crystal Palace í ensku knatt- spyrnunni en fengi Watford gegn Arsenal í staðinn; leik sem háður var í síðustu umferð og úrslitin löngu kunn. Til allrar hamingju var smærri krossgátan, sú sem veitt eru verð- laun fyrir, rétt í síðasta blaði og von- andi hafa lesendur fundið einhverja huggun í því. Sjálfur hef ég mikið dálæti á þeirri krossgátu, þó ég gæti örugglega ekki leyst hana, jafnvel þótt sjálft lífið væri í húfi. Mér er á hinn bóginn stundum treyst til að draga í krossgátunni og fara yfir lausn sigurvegarans. Það er með skemmtilegri verkum sem manni eru falin enda hljómar lausnin á köflum eins og póstmódernískt ljóð með alþýðuívafi þegar hún er lesin. Svo er með miklum ólíkindum hvað fólk nær að hafa þetta rétt; það heyrir til undantekninga ef draga þarf tvisvar. Hann er svo sem ekki fjölmennur hópurinn sem sendir lausnir inn en merkilega stöðugur þó. Fjöldi umslaga í krossgátuhólfinu hér í Hádegis- móum er alltaf svo til sá sami. Þetta eru traustir áskrifendur að blaðinu og það er leiðinlegt að hafa svikið þá með þeim hætti sem lýst er hér að framan. Vonandi gerist það ekki aftur. En vilji svo óheppilega til munið þá að það eru ekki síst mistökin sem gera okkur að mönnum. Gleðilega páska! Svo bregðast kross(gátu)tré ... Pistill Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is ’Það hlýtur að veraömurleg tilfinning;rétt eins og fyrir mig ætl-aði ég að hlamma mér niður í sófann í dag og horfa á Arsenal glíma við Crystal Palace í ensku knattspyrnunni en fengi Watford gegn Arsenal í staðinn; leik sem háður var í síðustu umferð. Fanney Úlfarsdóttir Já, ég myndi velja með salt- karamellu frá Nóa Síríus. SPURNING DAGSINS Borðar þú páskaegg? Emil Björn Kárason Já. Ég held ég myndi velja Nóa Síríus. Rakel Ósk Kristínardóttir Já ég geri það. Mér finnst rís- páskaeggið best. Sveinn Guðlaugsson Já. Helst Nóa Síríus. Ritstjóri Davíð Oddsson Ritstjóri og framkvæmdastjóri Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri Karl Blöndal Umsjón Eyrún Magnúsdóttir, eyrun@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Útgáfufélag Árvakur hf., Reykjavík. Hvernig leggst páskahelgin í þig? „Bara virkilega vel. Þetta er í fyrsta sinn sem við spilum á Aldrei fór ég suður.“ Hvað heldurðu að verði skemmti- legast? „Ég er mest spenntur fyrir því að fara á Fjöru- húsið að borða. Ég veit ekki hvort ég er spenntari fyrir því að borða þarna eða spila. Það er svona bæði. Það er svo góður matur þarna.“ Hvaða atriði viltu sjálfur ekki missa af? „Ég held það sé Svala, ég er svolítið spenntur fyrir að sjá hana með hljómsveit. Líka Auðn, er svolítið til í það líka að fá smá metal, það er alltaf gott.“ Hvað má ekki gleyma að taka með? „Klárlega má ekki gleyma páskegginu. Páskaeggin eru samt mest fyrir krakkana, ég tek alla fjölskylduna með, ég fæ kannski einn bita. Ég er mikið fyrir páskana almennt, þetta verður bara næs.“ Morgunblaðið/Eggert DAVÍÐ BERNDSEN SITUR FYRIR SVÖRUM Ekki gleyma páskaegginu Forsíðumyndina tók Ásdís Ásgeirsdóttir Tónlistarhátíðin Aldrei fór ég suður fer fram 19. til 20. apríl og er þetta í 14. sinn sem hátíðin er haldin, sú fyrsta fór fram 2006. Þá bíður gesta fjölbreytt dagskrá að þessu sinni og stíga á svið meðal annars Svala, Mammút, Todmobile og ekki síst hljómsveitin Berndsen. Davíð Berndsen er einn þriggja manna í hljómsveit- inni Berndsen sem samanstendur af honum sjálfum auk Sveinbjarnar Hermigervils Thoroddsen og Hrafnkels Gauta Sigurðarsonar. Drengirnir gáfu út þriðju breið- skífu sína, Alter Ego, í fyrra.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.