Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.04.2019, Qupperneq 22
22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21.4. 2019
LÍFSSTÍLL
Ferskt á
Hipstur
„Við bjóðum upp á fisk og grænmet-
isrétti,“ segir Drífa Jónsdóttir en
hún á staðinn Hipstur ásamt manni
sínum Semjon Karopka.
„Allt er ferskt og gert frá grunni.
Þetta er svolítið skandínavískur
matur. Við förum ekki eftir neinum
uppskriftum hér,“ segir hún og segir
að viðtökurnar hafi verið afar góðar.
„Sumir koma tvisvar á dag.“
Úlfaldi með karamellu
„Við seljum hér snúða og kaffi.
Við erum með fjórar tegundir af
snúðum sem eru í grunninn
kanilsnúðar en erum með ýmis-
legt sem gerir þá öðruvísi og
framandi,“ segir Danival Egils-
son, annar eiganda Sætra snúða,
en hann á staðinn með föður sín-
um.
„Þetta er mjög vinsælt, heitt
bakkelsi klikkar seint. Uppá-
haldssnúðurinn minn er Úlfald-
inn. Kanilsnúður með karamellu
og pekanhnetum. Hann er rosa
góður,“ segir Danival sem segist
ekki gefa upp uppskriftina.
„Þetta er leyndó. Við pabbi þró-
uðum uppskriftina í tvö ár.“
„Við erum tveir strákar
sem opnuðum matarvagn í
Boxinu í Skeifunni í fyrra og
það vatt upp á sig á þann
hátt að þegar við sáum að
hér var laus staður fyrir ind-
verskan stað ákváðum að
halda áfram,“ segir Haukur
Hólmsteinsson, einn eig-
anda Indican.
Haukur segir þá félaga
ekki hafa kunnað mikið fyrir
sér í indverskri matreiðslu
þannig að þeir fengu við til
liðs við sig indverskan mann
sem eldar úr uppskriftabók
mömmu sinnar.
„Við eldum indverskan
mat og fórum út í þetta
verkefni blindandi. En það
sem gerir þennan stað ein-
stakan maturinn hans Ar-
jun. Hann er ótrúlegur í eld-
húsinu.“
BUTTER CHICKEN
1 matskeið olía
1 matskeið smjör
1 miðlungs laukur sneiddur í
bita
Steikið laukinn upp úr olíu
og smjöri í 3-4 mínútur eða
þar til létt gylltur/brún-
aður.
1 teskeið ferskt engifer fín-
skorið
2-3 hvítlauksgeirar fínskornir
Bætið engifer og hvítlauk
við laukinn og steikið í 30
sekúndur og hrærið vel í á
meðan til að forðast að
brenna engiferið og hvít-
laukinn.
500-700 gr. kjúklingur (bringa
eða læri) skorið í þæginlega
bita
1 dós af tómat paste
1 matskeið garam masala
1 teskeið chili powder (má
setja meira til að auka styrk-
leika)
1 teskeið fenugreek
1 teskeið broddcumin/cumin
1 teskeið salt
½ teskeið svartur pipar
Bætið kjúkling, tómat paste
og kryddum við. Eldið í 5-6
mínútur eða þar til kjúkling-
urinn er fulleldaður.
200-300 ml (eftir smekk) af
rjóma.
Bætið rjóma við og láta
malla í 8-10 mínútur og
hræra af og til.
Berið fram með hrís-
grjónum og naani.
Úr uppskriftabók mömmu
Haukur Hólmsteins-
son, Arjun Singh og
Guðmundur Gunn-
laugsson við Indican.
Wok on má finna á Smáratorgi og
í Borgartúni en hefur nú opnað í
Mathöll Höfða. Þar er borinn fram
bragðmikill asískur matur. Kokk-
arnir voru á fullu að matreiða í
wok-pönnum, enda nóg að gera.
Wok on
Síðumúla 22 | Sími 517 0404 | serefni.is
Opið: 8-18 virka daga 10-14 á laugardögum
Svansvottuð
betra fyrir umhverfið, betra fyrir þig
Easy2Clean
Mött veggmálning
sem létt er að þrífa
Þvottheldni og slitstyrkur
Easy2Clean
málningarinnar er algjör
bylting á markaðinum.
Óhreinindi og fita
skilja ekki eftir
sig ummerki og
litur og áferð
málningarinnar helst
óbreytt eftir þrif.