Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.04.2019, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21.4. 2019
LÍFSSTÍLL
„Ég er eigandi bæði af
Flatbökunni og Indican,“
segir Guðmundur Gunn-
laugsson sem er á hlaup-
um þegar blaðamann bar
að garði. Hann segir nóg
að gera síðan þeir opnuðu.
„Flatbakan er líka í Bæj-
arlind í Kópavogi en við
vorum einna fyrstir með
súrdeigspítsur. Svo erum
við ansi nýjungagjarnir og
erum með óhefðbundin
álegg. Mörgum finnst
skrítið að setja döðlur á
pítsur en það er ein vinsæl-
asta pítsan.“
DÖÐLU FLATBAKAN
uppáhalds pítsabotninn þinn
(hægt að kaupa súrdeig af
okkur í Bæjarlindinni)
pítsasósa
pítsaostur
pepperoni
beikon, skorið í bita
döðlur, skornar í bita
rauðlaukur, skorinn fínt
rjómaostur, eftir smekk
svartur pipar
Fyrir þá sem vilja búa til
sína eigin pítsasósu gefur
Guðmundur þessa upp-
skrift:
2 matskeiðar olía/ólífuolía
1 stór laukur, grófsaxaður
2-3 hvítlauksgeirar, fínsax-
aðir
1 teskeið grófmalaður svart-
ur pipar (má sleppa)
500 ml af vel maukuðum
tómötum (tomato passata)
Steikið lauk í olíu þar til
laukurinn er orðinn glær
og mjúkur. Bætið hvítlauk
og svörtum pipar út á
pönnuna og steikið í 2 mín.
Hægt að bæta tómat-
púrre til að þykkja. Bætið
sósum við og náið upp
suðu. Setjið svo á lágan
hita í 10 mín.
Bætið við salti og basil-
íku eftir smekk meðan sós-
an jafnar sig á lágum hita.
Til að búa til pítsuna:
Fletjið deigið út í góðan
hring. Dreifið úr pítsasós-
unni jafnt yfir. Raðið áleggi
á pítsuna. Bakið í funheit-
um ofni þar til tilbúin.
Döðlupítsan slær í gegn
Brynjar Sigurdórsson
kokkar ofan í gesti og
gangandi á Svanga Manga
en á sama bás má finna
bruggbarinn Beljanda.
„Hér er klassískur ís-
lenskur heimilismatur.
Það nenna ekki allir í
skyndibitann. Plokkfiskur
í tartalettu er alltaf vin-
sælt og eins kótilettur
þegar þær eru.“
PLOKKFISKUR Í TARTA-
LETTUM
½ laukur, smátt saxaður
50 gr smjör
½ -1 dl hveiti
500 gr kartöflur, soðnar
500 gr þorskur eða ýsa,
soðinn
ca 4 dl mjólk
rifinn ostur
salt
pipar
Sjóðið kartöflur og flysj-
ið. Sjóðið vatn í stórum
potti og bætið salti og
svörtum pipar út í þegar
suðan kemur upp. Þá er
fisknum bætt út í vatnið,
lok sett yfir og potturinn
tekinn af hellunni. Veiðið
fiskinn upp úr eftir 5-6
mínútur. Setjið smjör og
lauk í pott og látið malla
í smá stund. Saltið og
piprið. Hrærið hveiti
saman við og þynnið
með mjólk. Þegar jafn-
ingurinn er hæfilega
þykkur er fisk og kart-
öflum bætt út í og hrært
lauslega saman. Kryddið
með salti og vel af hvít-
um pipar.
Setjið í tartalettur og
stráið rifnum osti yfir.
Hitið í ofni þar til ostur-
inn er bráðinn. Berið
fram með súrum gúrk-
um.
Fyrir svanga Manga
„Við ákváðum að taka slaginn og
opna hér en vorum áður með
matarbíl hér tvö sumur. Þetta er
stórt svæði hér í kring, bæði íbúð-
arhverfi og vinnustaðir en það er
búið að vera töluvert meira að
gera en við áttum von á,“ segir
Gylfi Bergmann Heimisson sem á
og rekur Gastro Truck ásamt
konu sinni Lindu Björgu Björns-
dóttur. Á matseðlinum er aðeins
tvennt; kjúklingaborgari og sami
borgari án kjöts.
„Það var greinilega þörf á nýj-
um veitingastöðum hér í hverfinu.
Við erum með sama matseðil og á
Mathöll Granda en hér höfum við
stærra eldhús og höfum færi á að
bæta við okkur alla vega einum
rétti. Við ætlum okkur aldrei að
vera neitt flókin. Við erum búin að
fara í alls konar hringi með það en
niðurstaðan er sú að þegar við
finnum „umph-ið“, fer það inn.
Við erum enn að leita og ef það
tekur ár, þá það,“ segir hann og
bætir við að kjúklingaborgarinn sé
alltaf jafn vinsæll.
Aldrei neitt flókin
Lífrænt
RAUÐRÓFUDUFT
í hylkjum
„Árið 2015 benti kunningi minn mér á Beetroot
rauðrófuhylkin frá Natures Aid en þá hafði kólesterólið
hjá mér rokið uppúr öllu valdi. Hann sjálfur hafði góða
reynslu af þessu bætiefni í tengslum við sykursýki II sem hann glímdi við og þar sem ég var í sömu
sporum þá ákvað ég að prófa. Ég hef tekið rauðrófuhylkin inn daglega síðan, ég fann strax að þetta
gerði mér gott. Í læknisheimsókn síðar um haustið kom í ljós að kólesterólið hafði snarlækkað,
komið niður í 2. Ég var látinn minnka sykursýkislyfin um allt að helming. Ég er mjög ánægður með
rauðrófuhylkin frá Natures Aid og mæli heilshugar með þeim. Við hjónin tökum þau inn daglega,
við finnummikinn mun, finnst þau gera okkur mjög gott.“
Jóhannes Ólafsson útgerðarmaður frá Akranesi.
Rauðrófur eru mjög ríkar af
andoxunarefnum og hafa
rannsóknir sýnt að efni í
þeim hafa æðavíkkandi
áhrif. Þær hafa góð áhrif
á hjarta- og æðakerfi
líkamans, geta lækkað
blóðþrýsting, aukið
orku og úthald og bætt
almenna heilsu og líðan.
Útsölustaðir: Öll apótek, heilsuverslanir og heilsuhillur stórmarkaðanna