Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.04.2019, Síða 29

Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.04.2019, Síða 29
út. Þannig lentu einir grimmustu kar- akterar þáttanna, mæðginin Cersei og Joffrey Lannister, ekki í efstu sæt- um stríðsglæpamanna vegna þess að þeirra brot voru framin utan víg- vallar. Verra í raunveruleikanum Stríðsglæpir sem birtast í þáttunum eru meðal annars ómannúðleg með- ferð, pyntingar, kynferðisofbeldi og að nýta börn sem hermenn. Alls skráðu sérfræðingarnir niður 103 stríðsglæpi. Tilgangurinn var ekki aðeins til gamans heldur til að vekja áhorfendur til vitundar um að standa þurfi vörð um alþjóðleg mannúðarlög og um leið að varpa ljósi í hve viðkvæmri og berskjald- aðri stöðu fólk er sem lendir í miðju vopnaðra átaka. Þannig má segja að skýrsla Rauða krossins sé ekki gagnrýni á þættina heldur nýta samtökin vinsældir þeirra til að fræða fólk um stríðsglæpi; að glæp- irnir í Game of Thrones eigi sér raunverulega samsvörun við það sem er að gerast í nútímanum. Þannig birtist grein á vefsíðu Am- nesty International um miðja viku þar sem fjallað var um ofbeldið í Game of Thrones en mannréttinda- samtökin voru með greininni að benda á hvernig raunveruleikinn væri samt enn verri í stríðum en þættirnir sýndu. Allt frá því að fyrsta þáttaröð Game of Thrones fór í loftið árið 2011 hefur verið skrifað um ofbeldið í þáttunum og má segja að skrifin hafi verið stöðug í átta ár. Hefur sitt sýnst hverjum. Sjónarhornin eru þau að í þáttunum séu óþarfa ofbeldisatriði og þótt þættirnir séu bannaðir börnum hafi ofbeldisatriði líka áhrif á fullorðna. Aðrir segja of- beldið nauðsynlegt því þættirnir fjalli um stríð og það væri ekki trú- verðugt að fjalla um stríð án þess að sýna þessa hræðilegu glæpi. Þarna hafi fólk tækifæri til að átta sig á raunveruleika stríðs, sem þrátt fyrir dreka og tilbúna veröld endirspegli hvernig stríð virki. Hvað sem þeirri deilu líður þá er forvitnilegt að skoða niðurstöður Rauða krossins og það kann að koma mörgum á óvart hverjir eru stærstu stríðsglæpamennirnir:  Ramsay Bolton er versti stríðs- glæpamaður GOT. Alls er hann ábyrgur fyrir 17 stríðsglæpum, þar á meðal pyntingum, gíslatökum og nauðgun.  Daenerys Targaryen, dreka- móðirin, er annar versti stríðsglæpa- maðurinn, ábyrg fyrir alls 15 stríðs- glæpum. Þar tengjast flestir glæpir hennar því að valda andstæðingum sínum „umframáverkum eða óþarfa þjáningu“ - og það með því að nýta dreka sína til að brenna fólk.  Roose Bolton, faðir Ramsay, er þriðji versti, ábyrgur fyrir átta stríðsglæpum, einkum tengdum pyntingum.  Jon Snow og Næturkonung- urinn deila fjórða sæti - þeirra helsta sök er að nýta börn sem hermenn. Stríðsglæpir Daenerys Targaryen snúast um að veita fólki óþarfa áverka. Faðir Ramsay Bolton, Roose Bolton, kemur fast á hæla sonarins. Næturkonungurinn er sekur um að nota barnunga hermenn. Wintour segir hertogaynjuna af Sussex hafa fært konungsfjölskylduna til nútímans. FRÆGÐ Anna Wintour, ritstjóri Vogue, segist yfir sig hrifin af því hvernig Meghan hertogaynja klæðir sig þessa dagana og segir „óléttu- stíl“ hennar óaðfinnanlegan. Einkum og þó sér í lagi að hún skuli vera á svo háum hælum, þeir virðist hreinlega hækka með hverri vikunni sem hún gengur lengur með barnið. Í viðtali við Youtube-seríur Vogue segir Wintour að hún hafi aldrei skil- ið þegar konur fari að klæða sig þannig ófrískar sem þær vilji fela sig. Ánægð með háu hælana 21.4. 2019 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29 BÓKSALA 10.-16. APRÍL Listinn er tekinn saman af Eymundsson 1 Barist í BarcelonaGunnar Helgason 2 GullbúriðCamilla Läckberg 3 Ísköld augnablikViveca Sten 4 KastaníumaðurinnSören Sveistrup 5 BíóráðgátanMartin Widmark 6 Húðflúrarinn í AuschwitzHeather Morris 7 LasarusLars Kepler 8 Íslenskar þjóðsögur – úrval 9 Stóri maðurinnPhoebe Locke 10 Dans við dreka – Game of Thrones, bók 5 George R. R. Martin 1 Barist í BarcelonaGunnar Helgason 2 BíóráðgátanMartin Widmark 3 Nýr heimurSverrir Björnsson 4 MatthildurRoald Dahl 5 Emma öfugsnúnaGunilla Wolde 6 Hvar er Depill?Eric Hill 7 Bók um tré Piotr Socha /Wojciech Grajkowski 8 Risasyrpa – sögur úr Andabæ Walt Disney 9 Harry Potter og viskusteinninn J.K. Rowling 10 Eyjan hans afaBenji Davies Allar bækur Barnabækur Frelsun heimsins, safn sextán greina og fyrir- lestra eftir Kristínu Marju Baldursdóttur, er nýkomið út en JPV gefur út. Í skrifunum fjallar rithöfundurinn meðal annars um sköpun, tungumál, þjóðlíf og konur fyrr og nú. Grein- arnar eru frá ýmsum tímum og skrifaðar af margvíslegum tilefnum. Vonum það besta eftir Carolinu Setterwall hefur slegið í gegn um víða veröld en Benedikt bókaútgáfa gef- ur út. Sagan segir frá ungri konu sem fær það á heilann að hún beri ábyrgð á dauða eigin- manns síns. Í bókinni kafar Setterwall ofan í ástina, hverdagslífið og hvernig skelfilegt áfall litar tilveruna. Þetta er fyrsta skáldsaga hinnar sænsku Setterwall en hún verður gestur Bók- mennahátíðar í lok apríl. Halla Kjartansdóttir þýddi. ÁHUGAVERÐAR BÆKUR Florida er nýtt smásagnasafn eftir Lauren Groff sem gefur nýja sýn á þann merkilega og marglaga stað Flórída og varpar ljósi á líf fólks sem er ekki alltaf svo sýni- legt. Ég mæli líka með fyrri bók Groff, Fates and Furies, sem er mögnuð bók um hjónaband. You Think It, I’ll Say It, er nýtt smásagnasafn eftir Curtis Sittenfeld um fólk í mið- vesturríkjum Bandaríkjanna sem á yfirborðinu er afar venjulegt og lifir venjulegu lífi en lesandinn fær að líta undir yfirborðið og sjá hvað er raun- verulega í gangi. Sittenfeld er frábær húmoristi og kann að koma auga allt þetta hvers- dagslega sem verður samt svo stórt. An American Marriage er ný skáldsaga eftir Tayari Jones sem segir af Celestial og Roy, svörtu milli- stéttarfólki frá Atl- anta sem á framtíð- ina fyrir sér. Þegar þau eru nýgift fer Roy í fangelsi fyrir glæp sem hann framdi ekki. Bókin gefur djúpa innsýn í líf og stöðu svartra Banda- ríkjamanna og betri skilning á margþættum áhrifum þess kyn- þáttamisréttis sem því miður ríkir enn í Bandaríkjunum. BIRNA ANNA ER AÐ LESA Undir yfirborðinu Birna Anna Björnsdóttir er rithöf- undur.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.