Fjarðarpósturinn - 19.11.2015, Side 2
2 www.fjardarposturinn.is FJARÐARPÓSTURINN | FIMMTUDAGUR 19. NÓVEMBER 2015
Nú er kominn sá tími sem
börnin hlakka svo mikið til. Það
eru jólin. Þá fagna fjölskyldur og
halda jólin hátíðleg, hver með
sínu sniði. En fyrir marga eru
jólin erfiður tími og ekki alltaf
hægt að gera sér mikinn daga
mun. Þegar allir fagna geta aðrir orðið útundan og
verið einmana um jólin. Það er sennilega erfiðara að
hafa lítið á milli handanna í dag en á árum áður.
Samfélagið gerir miklar kröfur og væntingar fólks eru
miklu meiri en áður. Því svíður þegar barna fjölskyldur
eru í vanda að gleðja börn sín á jólum.
Í umræðum um hörmungar í heiminum og
mikilvæga aðstoð okkar við bágstadda í öðrum
löndum megum við ekki gleyma náunga okkar, þeim
sem er í umhverfi okkar en þarfnast hjálpar. Það er
svo erfitt að gleyma þeim sem næst okkur eru enda
samskipti fólks í íbúðarhverfum oft ekki mikil.
Hjálparsamtök leggja fólki lið um jólin og eru allir
hvattir til að leggja þeim lið með þeim hætti sem þeir
geta. Og lítum okkur nær.
Ef fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarbæjar gengur eftir
telur bæjarstjóri að fljótlega geti menn hætt að tala um
fjárhagsvanda og áhersla verði lögð á að bæta þjón
ustu. Þó allt of oft hafi fjárhagsáætlanir ekki staðist og
síst til lengri tíma þá er kominn tími til að fyllast
bjartsýni. Hafnarfjörður er ríkt sveitarfélag. Bæjar
stæðið er eitt það fallegasta á landinu með skjólgott
hraunið, langa sögu og stórkostlegt uppland.
Atvinnulíf er með blóma og eflaust átta sig fáir á því
hversu gríðarlega mörg atvinnufyrirtæki eru í Hafnar
firði. Þau eru af öllum stærðum, lítil og framsækin í
bland við gríðarlega öflug fyrirtæki. Á þetta höfum
við allt of lítið lagt áherslu á. Matsölustöðum fjölgar
jafnt og þétt og jafnvel hótelflóran stækkar. Helst hafa
verslanir átt undir högg að sækja og þar þurfa
Hafnfirðingar að horfa í eigin barm og spyrja sig
hvers vegna!
Jákvæð umræða í bland við uppbyggilega gagnrýni
er nauðsynleg og þar þurfa stjórnmálamenn að ganga
á undan með góðu fordæmi. Flestar óánægjuraddir
verða til vegna lélegra upplýsinga. Oft þarf að taka
erfiðar ákvarðanir þegar spara þarf skattfé almenn
ings. Þá er mikilvægt að þær ákvarðanir séu kynntar
vel og tímanlega og á þann máta að allir skilji.
Ef bæjaryfirvöld horfa fram til bjartari tíma í
fjármálum gera bæjarbúar kröfur til bjartari umræðu í
bæjarstjórn. Það þarf tvo til þegar deilt er.
Guðni Gíslason ritstjóri.
leiðarinn
Útgefandi: Keilir ehf.
kt. 480307-0380
Ritstjóri: Guðni Gíslason
Vinnsla: Hönnunarhúsið ehf. Áb.maður: Steingrímur Guðjónsson.
Ritstjórn: 565 4513, 896 4613, ritstjorn@fjardarposturinn.is
Auglýsingar: 565 3066, auglysingar@fjardarposturinn.is
Prentun: Steinmark ehf. • Dreifing: Íslandspóstur
ISSN 1670-4169 Vefútgáfa: ISSN 1670-4193
www.fjardarposturinn.is
www.facebook.com/fjardarposturinn
Fjarðarpósturinn, Bæjarhrauni 2, 220 Hafnarfirði
www.uth.is -uth@uth.is Stapahrauni 5, Hfj. - Sími 565-9775
Frímann
s: 897 2468
Hálfdán
s: 898-5765
Ólöf
s: 898 3075
ÚTFARARÞJÓNUSTA
HAFNAFJARÐAR
FRÍMANN & HÁLFDÁN
ÚTFARARÞJÓNUSTA
35 ár
Stolt að þjóna ykkur
Útfararskreytingar
kransar, altarisvendir,
kistuskreytingar,
hjörtu
Bæjarhrauni 26
Opið til kl. 21 öll kvöld
Símar 555 0202 og 555 3848
www.blomabudin.is
Sunnudagur 22. nóvember
Sunnudagaskóli kl. 11
Gospelguðsþjónusta kl. 20
Sérstakir gestir:
Emil Hreiðar Björnsson og Íris Lind Verudóttir.
Prestur: Sr. Ragnar Gunnarsson
www.astjarnarkirkja.is
Víðistaðakirkja
Föstudagur 20. nóvember
Kirkjubrall kl. 17
Kirkjubrall fyrir alla, konur og karla,
ömmur og afa, mömmur og pabba og
allskonar krakka.
Í kirkjubrallinu búum við til alvöru jólakort
með kærleikskveðjum til vina og ættingja.
Súpa og brauð eftir kortagerðina.
Hlökkum til að sjá ykkur!
Sunnudagur 22. nóvember
Messa kl. 11
Gaflarakórinn syngur undir stjórn
Kristjönu Þórdísar Ásgeirsdóttur.
Organisti: Helga Þórdís Guðmundsdóttir
Prestur: Sr. Hulda Hrönn M. Helgadóttir.
Sunnudagskólinn kl. 11
Fjölbreytt dagskrá, fjörug lög,
falleg orð og NebbiNú!
María og Bryndís leiða stundina
Kaffi, djús og kex að guðsþjónustunum loknum.
Kyrrðarstundir
alla miðvikudaga kl. 12
súpa og brauð í safnaðarheimilinu á eftir.
www.vidistadakirkja.is
Sunnudagur 22. nóvember
Messa og
sunnudagaskóli kl. 11
MÁNUDAGUR 23. NÓVEMBER:
10-12 ára starf kl. 16.30-18
ÞRIÐJUDAGUR 24. NÓVEMBER:
Orgeltónleikar kl. 12.15
MIÐVIKUDAGUR 25. NÓVEMBER:
Morgunmessa kl. 8.15
FIMMTUDAGUR 26. NÓVEMBER
Foreldramorgunn kl. 10-12
www.hafnarfjardarkirkja.is
Sunnudagurinn 22. nóvember
Sunnudagaskóli kl. 11
Hljómsveit kirkjunnar leiðir sönginn.
Sjá nánar á www.frikirkja.is
og á Facebook
Skammdegi
Það var drungalegt um að líta í miðbænum um kl. 17
sl. föstudag. Enn var slökkt á götuljósunum og jólaljósin
eru ekki komin upp til að veita birtu í skammdeginu.
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n