Fjarðarpósturinn - 19.11.2015, Blaðsíða 5
www.fjardarposturinn.is 5FJARÐARPÓSTURINN | FIMMTUDAGUR 19. NÓVEMBER 2015
Fregnir hafa borist af miklum
breytingum á A. Hansen bar hér
í Hafnarfirði. Klassískur og
rólegur bar mun taka hlýlega á
móti þér í hinu sívinsæla A.
Hansen húsi á Vesturgötu 4.
Nýir rekstraraðilar Alexander
Árnason og Kristín Ísabella
Karlsdóttir segjast stefna í allt
aðra átt með barinn en það sem
áður var. Með einstakri þjónustu
stefna þau á að skera sig úr og
bjóða fólki upp á umhverfi sem
ekki finnst annarstaðar í Hafnar
firði. Í stað þess að keppast við
barina í kring ákváðu þau að
leyfa húsinu, sem nú er 135 ára,
að tala sínu máli. „Húsið er
einstaklega fallegt og var reist
árið 1880. Við viljum bjóða fólki
í þægilegt umhverfi þar sem
vinir og vandamenn geta komið
saman, spjallað, spilað, hlustað á
góða tónlist og fengið sér drykk,“
segja þau Kristín Ísabella og
Alexander, nýir rekstraraðilar að
A. Hansen bar og Gamla Vín
húsinu.
„Með meiri kunnáttu fylgir
meiri ábyrgð. Við sérhæfum
okkur í gömlu klassísku kok
teilunum líkt og Grasshopper,
Brandy Alexander og Manhattan,
svo ekki sé minnst á alla kaffi
drykkina sem standa til boða.“
Opnunarkvöldið
„Við bjóðum alla velkomna að
fagna með okkur hér í Hafnarfirði
laugardaginn 21. nóvember
klukkan 21. Boðið verður upp á
léttar veitingar ásamt skemmtun
og lifandi tónlist.“
Alexander Árni og Kristín Ísabella húsráðendur á A. Hansen bar.
Þægileg tónlist á að vera í fyrirrúmi, lifandi eða leikin.
Setustofan á efri hæðinni er ávallt vinsæl.
A. Hansen bar tekur nýja stefnu
Opnunarkvöld á laugardaginn kl. 21
A. Hansen bar og Gamla Vínhúsið eru í einu af elstu húsum Hafnarfjarðar.
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
KY
N
N
IN
G
Tjarnarvöllum 11 220 Hafnarfjörður apotekhfn.is
Hagstætt verð
í heimabyggð
Sími 555 6650