Fjarðarpósturinn - 19.11.2015, Qupperneq 6
6 www.fjardarposturinn.is FJARÐARPÓSTURINN | FIMMTUDAGUR 19. NÓVEMBER 2015
Dansaðu vindur
Jólatónleikar Kvennakórs Hafnarfjarðar
Kvennakór Hafnarfjarðar
held ur jólatónleika í Víðistaða
kirkju 3. desember n.k. sem bera
yfirskriftina Dansaðu vindur.
Fjölskyldumeðlimir syngja
með kórnum
Gesta söngvarar á þessum tón
leik um verða nokkur börn og
ung menni sem öll eiga það sam
eiginlegt að tengjast kórkonum
fjölskylduböndum og munu þau
vafalaust ljá tónleikunum
skemmti legan svip.
20 ára og nýir kjólar
Á þessu ári eru liðin tuttugu ár
frá stofnun Kvennakórs Hafnar
fjarðar og var þess minnst á
margvíslegan hátt á árinu. Ber
þar hæst tvenna glæsilega
af mæl is tónleika sem haldnir
voru s.l. vor til þess að fagna
þessum tímamótum. Í tilefni af
afmælinu lét kórinn einnig hanna
og sauma nýja kórkjóla sem
vígðir voru á afmælistón
leikunum.
Nú á aðventunni er hins vegar
komið að hefðbundnum jólatón
leikum kórsins en hjá mörgum er
það orðinn ómissandi þáttur í
undirbúningi jólanna að taka frá
stund á aðventunni og hlusta á
fallega tónlist sem færir okkur
andblæ jólanna. Dagskrá tón
leikanna í Víðistaðakirkju verður
fjölbreytt en þar mun Kvennakór
Hafnarfjarðar flytja hefðbundin
jólalög, kirkjulega tónlist og
helgikvæði í bland við nútíma
lega jólasöngva.
Stjórnandi Kvennakórs Hafn
ar fjarðar er Erna Guðmundsdóttir.
Píanóleikur er í höndum Antoníu
Hevesi og flautuleikari er
Kristrún Helga Björnsdóttir.
KYNNINGARTILBOÐ Á
TANNHREINSUNUM
Við höfum fest kaup á nýju tannhreinsitæki
og af því tilefni bjóðum við
10% afslátt af vinnu við allar tannhreinsanir
á hundum og köttum til 11. desember
Dýralæknamiðstöðin Hafnarfirði
Lækjargötu 34b
Tímapantanir í síma 544-4544
Verið velkomin!
Jólamarkaður
Fjölskylduhjálpar Íslands
er að Reykjavíkurvegi 66 Hafnarfirði
Allir velkomnir!
Komið og gerið góð kaup
og styrkið gott málefni
í leiðinni.
Jólatónleikar 3. desember
Jólatónleikarnir hefjast kl. 20
og eru miðar seldir hjá kór
konum og við innganginn. Frítt
er fyrir börn 12 ára og yngri en
miðinn kostar 2.500 kr. Tón
leikagestum verður boðið að
þiggja kaffi og konfekt í lok tón
leika. Hægt er að fylgjast með
starfi Kvennakórsins á Face book
og á kvennakorinn.org
„Í gagnrýni vegna lokunar
starfsstöðvar við Hlíðarbraut er
oft talað um að verið sé að loka
leikskólanum Kató. Sá leikskóli
var lagður niður árið 2011 og
jafnframt ákveðið að leikskólinn
Smáralundur fengi húsnæðið
sem viðbótarstarfsstöð og ræki
þar tvær deildir með um 36 börn
um. Hefur leikskólinn síðan
verið rekinn þannig undir nafn
inu Brekkuhvammur. Í vetur eru
24 börn í starfsstöðinni.
Haustið 2016 þarf pláss fyrir
1.680 leikskólabörn í Hafnarfirði
ef miðað er við óbreyttan inn
töku aldur, þ.e. að öll börn sem
verða 18 mánaða í septem ber
kom ist inn á leikskóla í haust,
sem er nýtt hjá Hafnarfjarðarbæ,
auk 40 yngri barna sem uppfylla
forgangsskilyrði. Eftir opnun
leikskólans Bjarkavalla, lokun
starfsstöðva við Kaldársel, Hlíð
ar braut og lausar stofur við
Hraunvallaskóla sem hafa færst
til grunnskólans verður rými fyr
ir 1.732 börn í leikskólum bæjar
ins. 40 bætast síðan við í lok árs
þegar Bjarkavellir verða full bún
ir. Alls eru því 52 umfram pláss
strax í haust.
Verði starfsstöðin við Hlíðar
braut starfrækt áfram kostar það
um 13,2 m.kr. miðað við heilt ár
auk launakostnaðar 29 m.kr. sem
þýðir 43 m.kr. á ársgrundvelli. Er
þá viðhaldskostnaður húss, tækja
og lóðar ekki meðtalinn. Ef
mæta ætti þessum kostnaði með
hækkun dvalargjalda sem eru
alls um 405 m.kr. á ári þarf að
hækka þau um 11%.
Þær tölur sem formaður bæjar
og fræðsluráðs nefndi í sjón
varps viðtali 6. nóvember sl.
varð andi viðbótarkostnað eru því
síst of háar.“
Fréttatilkynning frá Hafnarfjarðarbæ:
Lokun starfstöðvar
við Hlíðarbraut
Hafnarfjarðarbær óskar eftir að taka á leigu
nokkrar íbúðir í sveitarfélaginu.
Nánari upplýsingar gefur Þjónustuver Hafnar
fjarðarbæjar í síma 5855500 eða á netfangið
hafnarfjordur@hafnarfjordur.is. Óskað er eftir að
upplýsingar um íbúðir berist fyrir 1. desember
Fjölskylduþjónusta Hafnarfjarðarbæjar
ÍBÚÐIR ÓSKAST
TIL LEIGU