Fjarðarpósturinn - 19.11.2015, Side 7
www.fjardarposturinn.is 7FJARÐARPÓSTURINN | FIMMTUDAGUR 19. NÓVEMBER 2015
Jólamarkaður Fjölskylduhjálpar Íslands
Notað og nýtt í rúmgóðu húsnæði að Reykjavíkurvegi 66
Enn á ný hefur Fjölskylduhjálp
Íslands opnað nytjamarkað í
Hafnarfirði. Nú er markaðurinn
að Reykjavíkurvegi 66 í rúm
góðu húsnæði. Þar er Fjöl skyldu
hjálpin þegar búin að koma sér
fyrir og troðfylla húsið af alls
kyns varningi. Þar má m.a. finna
notuð ungbarnaföt frá 100 kr.,
þarna má finna mikið úrval af
jólasokkum á alla fjölskylduna
að ógleymdum jólapeysunum.
Sérstaklega stoltar eru þær af
jólasveinunum sem setja má upp
á þak á húsum og á svalahandrið
en þá er hægt að fá í tveimur
stærðum.
Það eru eingöngu sjálfboða
liðar sem vinna fyrir Fjölskyldu
hjálp Íslands og reka nytja
markaði og fatasöfnun á fimm
stöðum, á Selfoss, Kefla vík, í
Kópavogi og í Iðufelli í Reykja
vík þar sem matarúthlutun fer
fram. Er með sölunni safnað fé
til matarkaupa en árlega er
úthlutað um 30 þúsund matar
gjöfum. Í Hafnarfirði verður
veitt jólaaðstoð í formi matar,
jólapakka og fatnaðar ef fólk
þarf slíkt en Ásgerður Jóna
Flosadóttir segir hafnfirskar
fjölskyldur leita til Fjöl skyldu
hjálparinnar allt árið um kring.
Því þyki henni miður að
Hafnarfjarðarbær hefur ekki séð
sér fært að styðja við starf Fjöl
skylduhjálparinnar.
Óska eftir jólaskrauti
Fjölskylduhjálpin tekur gjarn
an við notuðu jólaskrauti og er
tekið við því á öllum nytjamörk
uðunum sem eru opnir kl. 1318
alla virka daga.F.v.: Svanhildur Guðmundsdóttir, Valdís Þórarinsdóttir, Þórunn Kolbeins Matthíasdóttir, Ásgerður
Jóna Flosadóttir og Alda Sædís Þórðardóttir með útijólasveinana sem þær selja.
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Ellert Eggertsson, fyrrv. formaður Lionssklúbbs Hafnarfjarðar,
afhenti nýja fjölþjálfann formlega 8. október. Við honum tóku
fyrir hönd Hrafnistu þau Pétur Magnússon forstjóri og Bryndís
Fanný Guðmundsdóttir sjúkraþjálfari.
Lionsfélagar gáfu fjölþjálfa
Nýtist á Hrafnistu við endurhæfingu
Lionsklúbbur Hafnarfjarðar er
dyggur stuðningsaðili endurhæf
ingardeildarinnar á Hrafnistu í
Hafnarfirði og hefur um nokk
urra ára skeið gefið deildinni
veglegar og glæsilegar gjafir. Má
í því sambandi nefna fullkominn
laser, æfingatæki í tækjasalinn
ásamt meðferðarbekk. Í vor sem
leið færðu Lionsfélagarnir end
ur hæfingardeildinni fjölþjálfa af
tegundinni Nustep T5XR ásamt
fylgihlutum sem er kærkomin
búbót við góðan tækjakost
deildarinnar og þjálfunarúrræði
fyrir breiðan hóp þjónustuþega
Hrafnistu. Í þakkarskyni var
Lionsfélögum boðið til kvöld
verðar á Hrafnistu í haust þar
sem tækið var formlega afhent.
Bryndís Fanný Guðmundsdóttir
sjúkraþjálfari á Hrafnistu segir
ómetanlegt að eiga velgjörðar
menn sem þessa og Lionsklúbbi
Hafnarfjarðar verði seint full
þakkaður sá stuðningur sem
klúbburinn hafi veitt til aukins
endurhæfingarstarfs á Hrafnistu.
Magnús Ingjaldsson félagi í Lions prófaði nýja fjölþjálfann