Fjarðarpósturinn - 19.11.2015, Side 8
8 www.fjardarposturinn.is FJARÐARPÓSTURINN | FIMMTUDAGUR 19. NÓVEMBER 2015
Jákvætt námskeið um
hjónaband og sambúð
Undanfarna mánuði hafa verið
haldin tvö námskeið um hjóna
band og sambúð undir yfirskrift
inni „Jákvætt námskeið um
hjónaband og sambúð“ á höfuð
borgarsvæðinu. Þetta er tuttug
asti veturinn sem sr. Þórhallur
Heimisson heldur þessi hjóna
námskeið en undanfarin þrjú ár
hefur hann starfað í Svíþjóð. Nú
er hann fluttur heim og nám
skeiðin þar með líka.
Að venju hefur verið góð þátt
taka á námskeiðunum og
fullsetinn bekkurinn í haust.
Sýn ir það vel hversu mikil þörf
er fyrir slík námskeið.
Markmið námskeiðanna er nú
sem fyrr að veita hjónum og
sambýlisfólki tækifæri til þess að
skoða samband sitt í nýju ljósi,
styrkja það og efla og íhuga
hvernig hægt er að taka tíma frá
fyrir hvort annað. Efnið er kynnt
með fyrirlestrum og í samtölum.
Námskeiðin eru öllum opin og
henta bæði þeim er lengi hafa
verið í sambúð eða hjónabandi,
og hinum er nýlega hafa ruglað
saman reytum.
Nú er komið að þriðja og síð
asta námskeiði haustsins. Það
verð ur haldið 7. desember í Hafn
arfirði. Skráning er þegar haf in á
thorhallur33@gmail.com.
Helgina 14. 15. nóvember var
haldið Íslandsmót Blaksambands
Íslands að Flúðum. Var þetta í
fyrsta skipti sem Haukar senda
lið í deildarkeppni í blaki og í
fyrsta skipti sem sent er blaklið
frá Hafnarfirði í keppni á vegum
Blaksambands Íslands.
Mótið um helgina var fyrsta
mótið af þrem hjá 6. deild
kvenna í blaki og náðu Haukar
frá bær um árangri, eftir þó nokkr
ar æsispennandi lotur. Þær end
uðu í 2. sæti eftir taplausan feril
alla helgina en urðu að sætta sig
við ósigur gegn vinaliði sínu og
nágrönnum úr Stjörnunni. Alls
eru 7 kvennadeildir í Íslands
mótinu í blaki og 4 karla deildir.
„Orkan og eljusemi sem
kemur úr þessum nýja vettvangi
í Hafnarfirði er vonandi ábending
um það sem koma skal í íþróttum
og félagsstarfi en deildin stefnir
að því í framtíðinni að byggja
upp mikið og gott starf fyrir
áhugasama blakara á öllum aldri
í Firðinum, segir Karólína Helga
Símonardóttir formaður blak
deildarinnar. Eru bundnar vonir
til þess að á næsta ári verði hægt
að opna vettvang fyrir karlmenn
til þess að koma og vera með.
Í dag eru 35 konur á öllum
aldri og með allskonar hæfni í
blaki. Opnað verður fyrir skrán
ingar fyrir vorönn 2016 á næstu
dögum. Hægt er að fylgjast með
því á facebooksíðu deildarinnar
„Blakdeild Hauka“. Einnig er
hægt að senda fyrirspurn á
blakhauka@gmail.com
Viltu gerast Íslandsforeldri Fjölskyldu-
hjálpar Íslands með eingreiðslu eða
mánaðarlegum greiðslum og aðstoða
okkur við að úthluta hollari matvælum
eins og fiski, ávöxtum, grænmeti, lýsi
og fl. til barnafjölskyldna sem til okkar
leita.
Íslandsforeldrar
óskast
Allar upplýsingar á heimasíðu okkar:
fjolskylduhjalp.is
Fyrsta hafnfirska liðið
í blakkeppni
Haukar taka þátt í Íslandsmóti kvenna í blaki
Lj
ós
m
.:
H
er
bo
rg
H
ul
da
S
ím
on
ar
dó
tti
r
„Sterkari stjúpfjölskyldur“
í Hafnarfirði
Stjúpfjölskyldur þ.e. fjöl
skyldur þar sem annar eða báðir
aðilar sem hana stofna eiga barn
eða börn úr fyrra sambandi eða
samböndum eru algengar hér á
landi. Þrátt fyrir marg
breytileiki þeirra benda
rannsóknir til að þær
eigi ýmislegt sameigin
legt. Algengt er að hlut
verk stjúpforeldra
vefjist fyrir fólki en í
nýrri könnun á vegum
Félags stjúpfjölskyldna
kom t.d. í ljós að 45,7%
fólks var mjög/sam
mála fullyrðingunni
„Ég er ekki viss um hvert er hlut
verk stjúpforeldris í stjúpfjöl
skyldunni“ en tæp 30% voru
mjög/ósammála henni.
Hvernig samskiptum bæði við
núverandi maka og fyrrverandi
maka eða barnsföður eða móður
er háttað skiptir miklu máli fyrir
aðlögun og líðan bæði barna og
fullorðinna í stjúpfjölskyldunni.
Algengt er að fólk átti sig ekki á
þeim verkefnum sem fylgja
stjúp fjölskyldunni en í sömu
könn un kom fram að 75,6%
fólks var mjög/sammála fullyrð
ingunni „Það er flóknara að vera
í stjúpfjölskyldu en ég átti von á“
enda kom í ljós í eldri könnun
hér á landi að 94% svarenda
töldu þörf á fræðslu og sértækri
ráðgjöf fyrir stjúpfjölskyldur.
Stjúpfjölskyldur, rétt
eins og aðrar fjöl
skyldur, hafa alla burði
til að vera góðar og
gef andi fjölskyldur.
Með því að vita hvað er
eðlilegt fyrir stjúpfjöl
skyldur í aðlögunar
ferlinu hjálpar það
þeim að takast á við
al gengar uppákomur
með uppbyggilegum
við brögðum.
„Sterkari stjúpfjölskyldur“
ókeyp is erindi og umræður
verður 26. nóvember kl. 17 til 19
í Víðistaðaskóla. Erindið er hald
ið í samstarfi við fræðsluráð
Hafn ar fjarðar. Velferðarráðu
neyt ið styrk ir erindið. Skráning
er á net fangið stjuptengsl@stjup
tengsl.is Allar frekari upplýsingar
er að finna á www.stjuptengsl.is
Leiðbeinandi er Valgerður Hall
dórsdóttur.
Höfundur er félagsráðgjafi
og formaður Félags
stjúpfjölskyldna
Valgerður
Halldórsdóttir
Hafnarfjarðarkirkja
HÁDEGISTÓNLEIKAR
Þriðjudaginn 24. nóvember kl. 12.15-12.45
©
1
51
1
H
ön
nu
na
rh
ús
ið
e
hf
.
Kaffisopi eftir tónleika
Verið hjartanlega velkomin – Aðgangur ókeypis
Eyþór Franzson Wechner
organisti Blönduóskirkju,
leikur á bæði orgel kirkjunnar
J.S. Bach (1685-1750)
Prelúdía og fúga í d-moll BWV 539
Schmücke dich, o liebe Seele BWV 654
César Franck (1822-1890)
Úr „Six Pièces pour Grand Orgue, Op. 20“:
Prière
www.facebook.com/
fjardarposturinn