Skagablaðið - 22.03.1985, Síða 3
„Byijuðum af alvöni í tíu ára bekk
Yngsta og jafnframt elsta starf-
andi unglingagrúppan á Skagan-
um eru sú landsfræga Ofbirta sem
náði þeim merka áfanga á dðg-
unum að spila fyrir alþjóð í
sjónvarpinu. Strákarnir í Ofbirtu
eru aðeins 12 ára, en hafa verið
saman í hljómsveit undanfarin
tvö ár.
Eins og sæmir með þvílíka
stórgrúppu þurfti ómælda fyrir-
höfn til að ná limunum saman til
viðtals. Eftir nokkurra vikna um-
Dýrara með
Akraborg
Fargjöld Akraborgar hafa ný-
verið hækkað um 10% og er þetta
í þriðja sinn, sem fargjöldin
hækka á aðeins rúmu hálfu ári.
Far fyrir gangandi kostar nú
krónur 220 en var áður 200.
Einn tekinn
ölvaður
Einn ökumaður var tekinn um
helgina af lögreglunni, grunaður
um ölvun við akstur. Helgin var
að öðru leyti hin rólegasta að
sögn lögreglu.
sátur fengum við loks færi á þeim,
en ekki var sopið kálið því meðan
viðtalið fór fram voru þeir að
husta á Pink Floyd þannig að við
urðum að kallast á. Fer viðtalið
hér á eftir:
— Hvernig stóð eiginlega á því
að þið byrjuðuð í hljómsveit
svona ungir, aðeins 10 ára?
„Sko, við vorum eiginlega byrj-
aðir löngu fyrr. Strákar muniði
ekki þegar við vorum að spila
heima í bílskúr á málingadollur
og eldgamlan kassagítar? Þá vor-
um við bara smápollar.“ Þetta
segir Pétur Heiðar, eða Pippi, eins
og hann kallar sig.
„Já, ég man það — þið voruð
að stæla Kiss“ tekur Hrannar
undir, en það mætir háværum
mótmælum. Kiss er greinilega
alltof barnalegt fyrir þá.
„En svo byrjuðum við í alvöru
í tíuárabekk, í mars minnir mig“,
heldur Pétur áfram sögu sveitar-
innar. „Kennarinn sem kenndi
okkur þá, Flosi Einarsson (í Tí-
brá) reddaði hljóðfærum og svo-
leiðis. Grundaskóli keypti eitt-
hvað af hljóðfærum sem hann
lánar hljómsveitunum síðan,“
segir „Pippi“. „Síðan réðum við
Hrannar og byrjuðum bara.“
„Pippi“, Pétur Heiðar Þórðar-
son: „Eg syng og spila á gítar, ég
sem líka lögin og textana, Jói,
Jóhann Ágúst Sigurðsson leikur
á trommur. Við tveir byrjuðum
Ferðakynning At-
lantik í Hótelinu
Ferðaskrifstofan - Atlantik
gengst á sunnudag fyrir ferða-
kynningu fyrir alla fjölskylduna í
Hótel Akranes og hefst hún
klukkan 15.
Að sögn Sveins Guðmundsson-
ar, umboðsmanns Atlantik á
Akranesi, verður ferðakynningin
með því sniði að tilvalið er fyrir
alla fjölskylduna að skella sér á
hana. Auk þess sem sýndar verða
myndir frá hinum ýmsu stöðum,
sem skrifstofan skipuleggur ferðir
til, verður efnt til bingós.
Atlantik býður upp á mjög
fjölbreyttar ferðir, jafnt til sól-
arlanda, sem annarra landa og
sérstaklega eru Mallorcaferðir
skrifstofunnar hagstæðar. Við
verðkönnun kemur best í ljós hve
ótrúlega gott verð er á Atlantik-
ferðunum.
Þeir, sem ekki eiga þess kost að
fara á ferðakynninguna geta nálg-
ast bæklinga og allar upplýsingar
hjá umboðsmanni Atlantik á
Akranesi, Sveini Guðmundssyni,
Skólabraut 31, sími 2330.
Hljómsveitin Ofbirta.
fyrstir — við erum aðalpoppar-
arnir! Hrannar Örn Hauksson er
bassaleikarinn og Pétur Atli Lár-
usson spilar á hljómborð."
— Hvernig var í sjónvarpinu?
„Úff, við vorum svo stressaðir"
segir Hrannar. „Ógeðslegur mat-
ur þarna, jakk, einhver ömur-
legur fiskur, maður,“ segir ein-
hver af innlifun.
— Eruð þið ekki frægir núna?
Elta stelpurnar ykkur ekki?
Pétur: „Jú, jú, þær skríða eftir
okkur á hnjánum á göngunum
uppi í skóla“. Jói: „Alveg í
hrönnum maður...“
— Voðalega finnst mér skrítið
að í öllum 7 hljómsveitum bæj-
arins er ekki ein einasta stelpa.
Hvernig stendur á þessu?
„Það var stofnuð kvennahljóm-
sveit upp í Grundaskóla, en hún
hætti eftir viku“ sagði Hrannar.
„Stelpurnar gefast svo fljótt upp.“
Pétur Atli: „Þær þora líka ekki að
byrja, þær eru ekki nógu kaldar."
—SEÞ
■AKRANES — BORGARNES — VESTURLAND-
NYTSAMAR FERMINGARGJAFIR
Skoðið í sýningarglugga verzlunarinnar
Biblíur
Sálmabækur
Passíusálmar
Orðabækur
Atlasar
Handbækur
Gestabækur
Myndaalbúm
Pennasett
Lingaphone
Kassettutöskur
Shap reiknitölvur
Ritvélar frá Facit
Brother, Olympia
HEIMILISTOLVUR:
BBC
Commodore 64
Sharp MZ 700
Acorn Electron
Amstrad
Spectravideo
Sinclair Spectrum
Litsjáir frá:
Sharp — BBC — Normende
Tölvuprentarar
Tölvuborð og stólar
Forrit og tölvubækur
Sendum í póstkröfu
úrvali
Hljómtækjasamtæður
frá TECHNICS og
PANASONIC
Utvegum skrautritun og
gyllingu á bækur og
servíettur
Mikið úrval af
fermingarkortum, servíettum
og gjafapappír
BOKASKEMMAN
Stekkjarholti 8-10 — Sími: 2840
B A R B RÓ
Höfum opið alla daga vikunnar frá kl. 11-21.
Bjóðum m.a.: Hina sívinsælu kjúklingabita, pizzur, vorrúllur (kína-rúllur), djúpsteiktan fisk í Orly-deigi,
skötuselur og ýsa og franskar kartöflur heitt kakó, nýbakaðar vöfflur, ásamt kaffi, kleinum,
pönnukökum og samlokum. Seljum út mat, tilvalið að taka með heim, góðar pakkningar.
Erum með gott úrval af konfekti — tilvalið til tækifærisgjafa.
ÞIÐ ERUÐ ÁVALLT VELKOMIN í
BARBRÓ
Skólabraut 37, sími 2241
3