Fréttablaðið - 10.07.2019, Síða 4

Fréttablaðið - 10.07.2019, Síða 4
HEILBRIGÐISMÁL  Ísframleiðsla hjá ferðaþjónustubændum í Efstadal II hefur verið stöðvuð og er nú seldur aðkeyptur ís á staðnum. Eins og fram kom í yfirlýsingu frá Embætti landlæknis í gær á E. coli-sýkingin sem greinst hefur í tíu börnum upp- runa sinn á ferðaþjónustubænum Efstadal II. Staðfest hefur verið að þær bakteríur sem greinst hafa í börnunum hafa fundist í kálfum í bænum sem eru nú í sóttkví. „Þá vaknar spurning um hvernig þetta hefur borist á milli. Það voru ekki öll börnin sem smituðust að kássast í kálfunum,“ segir Þórólfur Guðna- son sóttvarnalæknir og vísar til upplýsinga frá foreldrum hinna smituðu barna. Hann segir sýna- tökur og rannsóknir hafa beinst að því hvað börnin borðuðu og öðru sem þau komu nálægt á bænum. Staðarhaldarar í Efstadal hafa gerilsneytt mjólk og framleitt sinn eigin ís sem er til sölu á staðnum. „Ísframleiðslan hefur verið stöðvuð en við höfum ekki getað staðfest eða fundið þessar bakteríur í ísnum og því ekki hægt að staðfesta að sýk- ingin hafi komið úr honum,“ segir Þórólfur. Aðspurður segir hann heldur ekki unnt að útiloka að ísinn sé smitleiðin. „Við erum náttúrulega ekki með ísinn sem börnin borðuðu, það er of langt liðið og komin önnur fram- leiðsla og ekki hægt að taka sýni úr þeim ís,“ segir Þórólfur og bætir við að smitleiðirnar kunni einnig að vera f leiri. Einhverjir hafi smitast eftir viðkomu hjá kálfunum og aðrir annars staðar. Hann segir að sýni hafi einnig verið tekin hjá starfs- mönnum í Efstadal til að kanna hvort smitið hafi borist víðar. „Niðurstaða þeirra sýna segir okkur þó ekki endilega hver smitaði hvern og erfitt að túlka niðurstöðurnar öðru vísi en að þetta sé útbreitt á staðnum.“ „Við vinnum bara algjörlega eftir tilmælum frá yfirvöldum um hvernig við eigum að snúa okkur í því og ég bendi vissulega á að spjótin beinast að sýkingum frá kálfum sem er hægt að klappa og sýnin gefa til kynna að það sé engin tenging milli matvæla og þessa smits,“ segir Sölvi Arnarson, einn eigenda og staðarhaldara í Efstadal II aðspurður um hvort ísframleiðsla hafi verið stöðvuð á bænum. Hann játar því þó þegar fyrirspurnin er ítrekuð að heimaframleiddi ísinn sé ekki til sölu á bænum að svo stöddu, heldur selji þau nú aðkeyptan ís. „Það er alveg skýrt hverjir vinna fjósastörf og hverjir vinna við mat- vælaframleiðslu. Það er bara glæpur að blanda því eitthvað saman og það er ekki verið að stunda glæpi hér í Efstadal,“ segir Sölvi aðspurður um hvort starfsfólk gangi í öll störf á bænum hvort heldur er umhirðu dýra eða þjónustustörf og matvæla- framleiðslu. Sölvi segist hins vegar líta svo á að skýringin á smitinu liggi í raun fyrir og yfirlýsing Landlæknisemb- ættisins sýni að heilbrigðisyfirvöld líti svo á að smitleiðin sé í gegnum kálfaklapp barnanna sem svo fari og borði ís. Um líðan barnanna sem veiktust segir Þórólfur að sýkingin hafi haft nokkuð alvarlegar afleiðingar hjá þremur barnanna og eitt þeirra hafi þurft kviðskimun þar sem nýru þess störfuðu ekki eðlilega. Hann segir að liðið geti tíu dagar frá því niðurgangur hefst þar til alvarleg einkenni fara að koma í ljós. Börnin þurfa því að vera áfram í eftirliti á Barnaspítalanum og koma í prufur svo hægt sé að fylgjast með þróun- inni. adalheidur@frettabladid.is Það voru ekki öll börnin sem smituð- ust að kássast í kálfunum. Þórólfur Guðnason sóttvarnarlæknir Ásetusláttuvélar á frábæru verði Gerir sláttinn auðveldari Kr. 320.000,- með VSK ÞÓR FH Akureyri: Baldursnes 8 603 Akureyri Sími 568-1555 Opnunartími: Opið alla virka daga Lokað um helgar Reykjavík: Krókháls 16 110 Reykjavík Sími 568-1500 Vefsíða og netverslun: www.thor.is LÍFEYRISMÁL Óverðtryggðir fastir vextir Lífeyrissjóðs verslunar- manna lækka nú um miðjan mánuð um tæplega eitt prósentustig og fara úr 6,12 prósent í 5,14 prósent. Verða þetta þá lægstu vextir sem í boði eru á slíku lánaformi. Þetta er í sam- ræmi við lánareglur sjóðsins sem kveða á um að miðað sé við vexti á ríkisskuldabréfum undanfarna þrjá mánuði með álagi. Ólafur Reimar Gunnarsson, stjórnar formaður LIVE , segir ánægjulegt að geta lækkað vexti. „Við erum á sömu leið og aðrir með lækkun vaxta. Stýrivaxta- lækkun Seðlabankans hefur mikið að segja um óverðtryggða vexti og nú höfum við tækifæri til að lækka. Því hefur verið haldið fram að þessi stjórn sé á móti vaxtalækkunum, svo er aldeilis ekki.“ Ólíkt mörgum öðrum lífeyris- sjóðum er lágur þröskuldur til að fá lán. „Lántakandi þarf bara að hafa borgað í sjóðinn, þetta er mjög opið hjá okkur hvað það varðar.“ – ab Lægstu vextir á landinu DÓMSMÁL Karlmaður var á mánu- dag dæmdur í tveggja ára skil- orðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Vestfjarða fyrir að hafa nauðgað meðvitundarlausum kunningja sínum og hringt í vinkonu hans á Skype á meðan og sýnt henni verkn- aðinn. Einnig var hann dæmdur fyrir að hafa nokkrum mánuðum síðar slegið annan mann í andlitið og viðkomandi hlaut opið sár. Fyrra atvikið átti sér stað árið 2016 á þáverandi heimili ákærða. Hann bar fyrir sig minnisleysi en játaði að hafa átt samskipti við brotaþola og sent þær myndir sem lágu frammi í gögnum málsins. Þá mundi hann óljóst eftir að hafa talað við einhvern á Skype. Ljóst er að báðir mennirnir voru í mikilli neyslu á þessum tíma en ákærði varð edrú árið 2017 og greindi frá breytingum sem orðið hafa á högum hans frá því atvikin áttu sér stað í skýrslu fyrir dómi. Maðurinn neitaði sök í báðum málum en var gert að greiða mann- inum sem hann nauðgaði eina millj- ón króna og þolanda líkamsárásar- innar 200 þúsund krónur. – ókp Sýndi nauðgun á Skype-spjalli DÓMSMÁL Héraðsdómur féllst ekki á að um beinan ásetning til mann- dráps hafi verið að ræða í íkveikju- málinu á Selfossi. Ákæruvaldið krafðist átján ára dóms yfir Vig- fúsi Ólafssyni vegna íkveikjunnar í október. Maður og kona á sextugs- aldri á efri hæð hússins létust vegna reykeitrunar. Vigfús var hins vegar dæmdur í fimm ára fangelsi fyrir manndráp af gáleysi. Í dómi kemur fram að Vigfús hafi glímt við sjálfsvígshugsanir. Ekki væri loku fyrir það skotið að hann haf i einvörðungu viljað skaða sjálfan sig. Dómurinn telur sannað að Vigfúsi hafi láðst að aðvara hin látnu. Vörn hans var sú að hann hafi gleymt að þau væru í húsinu. Auk Vigfúsar var kona ákærð fyrir að láta þau sem létust ekki vita af brunanum eða reyna að afstýra honum. Hún var sýknuð. Fyrir dómi sagði hún að konan sem lést hafi vitað að Vigfús hefði fært eld að pappakössum og að hún hefði látið manninn vita en um seinan. – dfb Ekki tókst að sanna beinan ásetning Við dómsuppkvaðningu í Héraðsdómi Suðurlands. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Ólafur Reimar Gunnarsson, stjórnarfor- maður LIVE. Börnin snertu ekki öll kálfana Ekki liggur fyrir hvernig börn smituðust af E. coli í Efstadal II. Nokkur barnanna sem sýktust komu ekki nálægt kálfum. Ísframleiðslan hefur verið stöðvuð á bænum að svo stöddu og sýni tekin hjá starfsfólki. E.colí smit hafa greinst í 10 börnum og haft alvarlegar afleiðingar í þremur tilvikum. FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR SVEINSSON HÚSBRUNI Eldur kom upp í íbúð við Eggertsgötu í Reykjavík á sjötta tímanum í gær. Ein manneskja var í íbúðinni þegar eldurinn kom upp og var hún flutt á sjúkrahús til skoðunar. Að sögn Ara Jóhannesar Haukssonar hjá Slökkviliðinu á höf- uðborgarsvæðinu var hún í nokk- urn tíma í íbúðinni eftir að eldurinn kom upp en náði að komast út áður en slökkviliðið kom. Eldsupptökin eru óljós en mikill hiti var í íbúðinni þegar slökkvilið kom að. Um er að ræða íbúð á fyrstu hæð í fjölbýlishúsi. Það voru nágrann- ar sem tilkynntu um eldinn þegar þeir sáu svartan reyk koma út um gluggana. Allt tiltækt lið Slökkviliðsins var kallað út og allir íbúar beðnir að yfirgefa húsið. Slökkviliðinu tókst að ráða niðurlögum eldsins á örfá- um mínútum en íbúðin er töluvert skemmd. Eldurinn barst ekki í aðrar íbúðir hússins en reykur komst inn í einhverjar íbúðir og olli skemmd- um. Rannsókn lögreglu á eldsupp- tökum hefst í dag. – khg Eldur í íbúð á fyrstu hæð á stúdentagörðunum Slökkvistarfi lauk klukkan hálf átta í gærkvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI 1 0 . J Ú L Í 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 1 0 -0 7 -2 0 1 9 0 5 :1 1 F B 0 4 0 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 6 5 -C C 3 0 2 3 6 5 -C A F 4 2 3 6 5 -C 9 B 8 2 3 6 5 -C 8 7 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 4 0 s _ 9 _ 7 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.