Fréttablaðið - 10.07.2019, Blaðsíða 12
Þeir höfðu strax
áhuga á að láta gott
af sér leiða og höfðu sam-
band við mig og vildu gera
eitthvað sniðugt í kringum
leikinn sem við tókum að
sjálfsögðu fagnandi. Það
verður mikið húllumhæ
bæði innan vallar
og utan.
Davíð Smári La-
mude, þjálfari
1 0 . J Ú L Í 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R12 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SPORT
FÓTBOLTI Knattspyrnufélag Vestur-
bæjar, KV, er með 25 stig og Kór-
drengir tveimur stigum minna í
þriðju deildinni í fótbolta en liðin
spila í kvöld. Þó liðin muni vafalítið
berjast innanvallar hafa þau ákveðið
að leggjast á eitt og leikmenn, þjálf-
arar og jafnvel þeir sem koma til með
að starfa á leiknum munu borga sig
inn en það kostar þúsund krónur
inn. Mun allur ágóði leiksins renna í
styrktarsjóði þriggja Íslendinga sem
féllu frá fyrir skömmu eftir baráttu
við krabbamein. Kórdrengir gerðu
boli í júní sem var hluti af styrktar-
söfnun fyrir #fyrirfanney málefnið.
Metnaður þeirra við að láta gott af
sér leiða kemur víða fram. Davíð
Smári Lamude, þjálfari Kórdrengja,
segir að KV hafi átt hugmyndina og
það hafi verið auðvelt að segja já við
þessari bón.
„KV vildu leggja sitt af mörkum í
þessari söfnun og hugmyndin kemur
frá þeim. Lífið snýst um meira en
bara fótbolta en ef það er hægt að
blanda þessu tvennu saman, að láta
gott af sér leiða og sparka í fótbolta,
þá er það jákvætt,“ segir hann. Fót-
boltamenn hafa ekki verið mjög dug-
legir að láta gott af sér leiða miðað
við aðrar íþróttagreinar hver svo
sem ástæðan er en Kórdrengir bera
nafn með rentu.
„Við höfum verið í styrktarsöfnun
#fyrirFanney í rúma tvo mánuði sem
hefur gengið vel. Hún lést því miður
fyrir skömmu en þetta er gert fyrir
börnin hennar og KV lagði inn á
styrktarreikning okkar fyrir Fann-
eyju. Þeir höfðu strax áhuga á að
láta gott af sér leiða og höfðu sam-
band við mig og vildu gera eitthvað
sniðugt í kringum leikinn sem við
tókum að sjálfsögðu fagnandi. Það
verður mikið húllumhæ bæði innan
vallar og utan.“
Davíð segir að í hópi Kórdrengja
ríki mikil tilhlökkun vegna leiks-
ins í kvöld. Allir séu heilir og klárir
í takkaskóna. „Þetta verkefni okkar
er ekki þannig að það sé verið að
tjalda til einnar nætur. Við sem
stöndum að liðinu viljum gera
alvöru fótboltalið og höfum mikinn
metnað til þess. Það vilja allir vera
með, hvort sem það eru leikmenn
eða styrktaraðilar. Við fáum góða
mætingu á völlinn og þetta hefur
risið hratt.
Það er allt eða ekkert hjá okkur og
stundum erum við sem stöndum að
liðinu of peppaðir en ég held að við
höfum gert þetta nokkuð vel. Þó að
við séum nýir í þessu og ég sé að stíga
mín fyrstu skref í þjálfun, nýbúinn
Borga sig glaðir inn á sinn eigin leik
Eitt af ævintýrum íslenska boltans þetta sumarið er framganga Kórdrengjanna í þriðju deildinni. Liðið er í öðru sæti og spilar í
kvöld lokaleikinn í fyrri umferðinni gegn toppliði KV. Leikmenn liðanna ætla að borga sig inn á leikinn til styrktar góðu málefni.
Skipt jafnt milli málefna
Þeir sem komast ekki á völl-
inn en vilja styrkja málefnin
geta lagt inn reikning KV með
skýringunni: KV-Kórdrengir, og
verður upphæðum skipt jafnt á
milli málefna.
Kt. 580906 1330
Rk. 0101-26-061330
Þeir fáu bolir sem eftir eru verða
seldir á leiknum í kvöld.
#FyrirFanney styrktarreikningur
Kórdrengjanna er:
Kt. 5104191030
Rk. 0133-15-200223
FÓTBOLTI Daniel Sturridge, fyrr-
verandi leikmaður Liverpool, er
tilbúinn að gera hvað sem er til að
fá hundinn sinn, Lucci, aftur.
Brotist var inn í sumarhús
Sturridge í Los Angeles þar sem
kappinn er í fríi og ýmsu stolið, þar
á meðal hinum krúttlega Lucci sem
er af Pomeranian-kyni.
Sturridge birti myndband af
sjálfum sér í húsinu þar sem sést
brotin glerhurð og er augljóst að
framherjinn er í miklu uppnámi.
„Ég borga hvað sem er fyrir að fá
hann aftur. Hver gerir svona? Brýst
inn í hús og stelur hundi. Mér er
fúlasta alvara. Ég geri hvað sem er
til að fá hundinn minn aftur,“ segir
hann meðal annars.
Býður fimm milljóna króna verðlaunafé fyrir Lucci
Mér er
fúlasta
alvara. Ég geri
hvað sem er til
að fá hundinn
minn aftur.
Daniel Sturridge
Lucci er af Pomeranian-
kyni og er eins og sjá má
ákaflega krúttlegur.
Kórdrengirnir á æfingu í gærkvöldi í Safamýri þar sem félagið spilar einnig sína heimaleiki. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
að fá UEFA-réttindi frá KSÍ, tel ég að
leikmenn og aðrir geti verið sáttir.
Það vill enginn fara frá okkur og þeir
sem ætluðu að stoppa stutt á sínum
tíma eru hér enn. Við reynum að
hafa góða umgjörð fyrir leikmenn
og vöndum okkur þar.
Líkamlegt atgervi leikmanna er
mjög gott. Við erum ekki bara að
taka þátt heldur erum við í þessu til
að vinna. Leikmenn smitast af okkar
metnaði og leikmenn sem áður voru
of þungir eru komnir með maga-
vöðva og eru óhræddir við að sýna
þá,“ segir hann léttur. Fyrir tímabilið
fékk liðið Kjartan Guðbrandsson til
að koma tvisvar til þrisvar í viku og
æfa liðið vel fyrir komandi átök. Það
er enginn afsláttur gefinn og allir
mæta á allar æfingar.
„Það er enginn sem er að hringja
og afboða sig. Við erum með sterka
leikmenn og þeir eru enn með
ástríðu fyrir fótbolta og eru ekki
komnir hingað til að leika sér.“
Í hópi Kórdrengjanna eru margir
leikmenn sem eiga leiki í efstu
deild og Íslandsmeistaratitil eins
og markvörðurinn Ingvar Þór Kale.
„Við erum með gott lið og mér finnst
vera stígandi í okkar leik. Við erum
með langtímaplan fyrir klúbbinn en
fyrsta markmiðið er alltaf að komast
upp úr þriðju deildinni sem er ekkert
sjálfgefið.“
benediktboas@frettabladid.is
Lucci er að sjálfsögðu með sinn
eigin Insta gram-reikning sem
nokkur þúsund manns fylgja,
enda einn krúttlegasti hundur
í eigu knattspyrnumanns. Þar
sjást þeir félagar á ferð og f lugi um
allan heim og einnig þar sem hann
brosir í myndavélina.
Sturridge birti svo annað mynd-
band þar sem hann lofar 30 þús-
und pundum, um fimm milljónum
króna, í verðlaunafé fyrir hundinn.
Hann segist í kjölfarið ætla að selja
sumarhúsið sitt.
Lögreglunni í Los Angeles barst
tilkynningin um hálf tvö um
nóttina en Sturridge og félagar
hans höfðu farið út um kvöldið að
skemmta sér. Þegar hann kom til
baka var allt á tjá og tundri í sum-
arhúsinu hans, töskur horfnar af
efri hæðinni og hundurinn sömu-
leiðis.Lögreglan segir að þrír menn
séu grunaðir um innbrotið en sam-
kvæmt fjölmiðlum vestanhafs í
gær sjást mennirnir á vappi fyrir
utan húsið hans Sturridge á sama
tíma og innbrotið átti sér stað.
Þjófarnir snertu ekki á úrasafni
Sturridge sem er metið á yfir 300
þúsund pund.
Lucci var ekki fundinn þegar
Fréttablaðið fór í prentun en leik-
maðurinn kvaddi Liverpool eftir
sigurinn í Meistaradeildinni og
óvíst er hvert næsta lið hans verður.
Eitt er víst að hann þráir ekkert heit-
ar en að hafa Lucci sér við hlið. – bb
1
0
-0
7
-2
0
1
9
0
5
:1
1
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
6
5
-C
2
5
0
2
3
6
5
-C
1
1
4
2
3
6
5
-B
F
D
8
2
3
6
5
-B
E
9
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
4
0
s
_
9
_
7
_
2
0
1
9
C
M
Y
K