Fréttablaðið - 10.07.2019, Blaðsíða 20
Icebreaker ullarvörurnar eru gæðaflíkur frá Nýja-Sjálandi. „Það sem gerir þessar vörur
sérstakar er að í grunninn eru
þetta einu ullarvörurnar sem
stinga ekki og draga ekki í sig lykt,“
segir Leifur Dam Leifsson, annar
eigenda GG Sport. „Tilfinningin er
eins og þetta sé bómull frekar en
ull, fólk hefur ekki kynnst þessu
áður.“
Ekki bara fyrir útiveruna
Að sögn Leifs er Icebreaker
leiðandi á markaðnum. „Nýsjá-
lenska ullin er Merino ull en er
eins og þelull, sem er mikið fínni
heldur en Merino ull. Því fínni
sem þræðirnir eru því minni líkur
eru á að það séu faldar bakteríur
í ullinni. Hefðbundin Merino ull
er frekar gróf, en ekki þessi. Þess
vegna stingur hún ekki.“
Verslunin hefur boðið upp á Ice-
breaker vörurnar í mörg ár. Merkið
er vel þekkt í útivistarheiminum
en vinsældirnar eru að aukast til
muna. „Fólk er byrjað að klæðast
þessu dagsdaglega, bæði ungir sem
aldnir. Þetta er orðinn hversdags-
fatnaður í dag þar sem fólk er í
þessu í vinnunni, heima hjá sér og
svo auðvitað í almennri útivist.“
„Úrvalið er mikið en við erum
með allt frá sokkum, nærfötum,
leggings, stuttermabolum, lang-
ermabolum og peysum í húfur,
vettlinga og buff,“ segir Leifur. „Á
hverju einasta ári reynum við að
auka úrvalið og bæta við okkur.
Vinsældirnar eru alltaf að aukast.
Það eru margir sem halda það að
þeir sem kaupa Merino ull séu
einungis veiðifólk og útivistarfólk,
en sú hugsun er að breytast. Þetta
er að færast meira yfir í hversdags-
leikann.“
Sama hvernig viðrar
Snædís Bergmann hefur notað
Icebreaker vörurnar í nokkur ár
og er gríðarlega ánægð með þær.
„Ég er mjög viðkvæm fyrir ull og
mig klæjar alltaf rosalega undan
henni. Ég var þess vegna ótrúlega
ánægð að finna loksins hið full-
komna föðurland fyrir mig. Þetta
er mýksta ull sem ég hef komist
í snertingu við og sú eina sem
stingur mig ekki,“ segir Snædís.
„Ég uppgötvaði líka að ullin er
ekki einungis ætluð til að nota í
kulda heldur er hún líka æðisleg í
hlýju veðri. Hún heldur á manni
hita í kulda en einangrar mann
á sama tíma frá hita þegar það
er hlýtt úti. Ég á það til að svitna
frekar mikið sem er mjög leiðin-
legt vandamál en þegar ég er í
Icebreakar ullinni svitna ég nánast
ekki neitt. Það skemmir heldur
ekki fyrir hvað ullin er falleg og
hægt að fá hana í mörgum flottum
litum,“ útskýrir Snædís.
Icebreaker býður einnig upp
á ullarvörur fyrir börn. „Það er
stór plús fyrir okkur því þetta
stingur ekki, sem er þægilegt fyrir
börnin,“ segir Leifur. Það er hægt
að nota fötin allan ársins hring,
ullin hentar vel bæði á sumrin og
veturna. „Viðbrögðin eru frábær,
fólk er gríðarlega ánægt með
þessar vörur frá okkur.“
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Benedikt Bóas Hinriksson,
benediktboas@frettabladid.is, s. 550 5763 | Ásta Eir Árnadóttir, astaeir@frettabladid.is, s. 550 5764
| Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Sólrún Freyja Sen,
solrunfreyja@frettabladid.is, s. 550 5765 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Kristín Þorsteinsdóttir
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli
Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@
frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is,
s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 550 5653,
Nýsjálenska
ullin er einstak-
lega mjúk og
fín.
Síðermabolirnir hafa verið vinsælasta varan á undanförnum árum.
Eitt af einkennum sokkanna er hvað þeir eru gríðarlega mjúkir.
Framhald af forsíðu ➛
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 0 . J Ú L Í 2 0 1 9 M I ÐV I KU DAG U R
1
0
-0
7
-2
0
1
9
0
5
:1
1
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
6
5
-D
1
2
0
2
3
6
5
-C
F
E
4
2
3
6
5
-C
E
A
8
2
3
6
5
-C
D
6
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
4
0
s
_
9
_
7
_
2
0
1
9
C
M
Y
K