Fréttablaðið - 10.07.2019, Page 33
Kv i k my nd a hát íði n í Karlovy Vary er stór og þangað koma margir almennir áhorfendur, auk fagfólks í kvik
myndum,“ segir Yrsa Roca Fann
berg, nýkomin heim frá Tékklandi
þar sem mynd hennar, Síðasta
haustið, var heimsfrumsýnd.
Í stuttu máli fjallar myndin um
síðasta haustið sem hjónin Úlfar
Eyjólfsson og Oddný Þórðardóttir á
Krossnesi á Ströndum smala fé sínu
í réttir því þau eru að leggja búskap
inn af. Hún var tekin haustið 2016
þegar fjórir bændur af átta hættu
búskap í Árneshreppi.
Yrsa segir aðstandendur mynd
arinnar hafa fundið fyrir miklum
meðbyr í Karlovy Vary. „Það var
fullt á öllum sýningum og áhorf
endur þurftu margs að spyrja,“
segir hún. „Meðal þess sem vakti
forvitni var af hverju myndin væri
tekin á filmu en ekki með staf
rænni tækni, eins og nú er langal
gengast. Ég viður kenni að það var
pínu áskorun að taka hana á filmu,
því þá sér maður ekki hvað maður
hefur í höndunum og ekkert er hægt
að endurtaka. Svo vöknuðu spurn
ingar um landslag í íslenskum kvik
myndum, því það er oft rómant
íserað. Við gerðum það ekki, heldur
lögðum áherslu á manninn í lands
laginu en ekki öfugt. Svo velti fólk
fyrir sér af hverju fólkinu fækkaði
í Árneshreppi og hvort túrisminn
gæti ekki glætt lífið þar. Ég vil taka
það fram að þetta er ekki saga um
virkjun eða ekki virkjun. Þarna er
bara fylgst með hjónunum í Kross
nesi smala fé sínu til slátrunar en
ekkert verið að spyrja þau nærgöng
ulla spurninga. Í raun er þetta saga
bænda hvar sem er á afskekktum
stöðum. Sýningargestir höfðu líka
mikinn áhuga á Úlfari og hvort það
hefði verið erfitt fyrir mig að sann
færa hann um að ég fengi að elta
hann.“
Síðasta haustið hefur skírskotun
í sköpunarsöguna og hringrás lífs
ins sem kristallast í ljóði eftir Sjón
í upphafi myndar og tónlist Gyðu
Valtýsdóttur dýpkar, að sögn Yrsu.
„Myndin vekur upp sterkar tilfinn
ingar, fólki er ekki sagt hvað það eigi
að hugsa heldur upplifir það. Ég veit
að það er klisja að segja að hún sé
ljóðræn, en hún er það,“ segir hún.
Yrsa segir það bíða til hausts að
frumsýna myndina hér á landi,
það þýði ekkert að hugsa um það
um hásumarið. Hún segir margar
beiðnir hafa borist um að sýna hana
á hátíðum úti í heimi. Veit samt ekki
hvað gerist næst.
Yrsa er með ljósmyndasýningu
í Þjóðminjasafninu, á svoköll
uðum Vegg til 1. september. Þar
eru myndir úr Árneshreppi. „Ég fór
þangað fyrst 2011 og hef síðan farið
þangað á hverju hausti að smala,
hélt líka ljósmyndanámskeið í skól
anum meðan hann var,“ lýsir hún og
kveðst hafa verið hálfgerður heim
alningur í sveitinni.
Síðasta haustið
vekur upp sterkar
tilfinningar
Fullt var á öllum sýningum heimildar-
myndarinnar Síðasta haustið sem heims-
frumsýnd var á stórri kvikmyndahátíð
í Tékklandi 1. júlí. Áhorfendur sýndu
efninu mikinn áhuga að sögn höfundar-
ins, Yrsu Roca Fannberg.
Gunnþóra
Gunnarsdóttir
gun@frettabladid.is
Hvað?
Hvenær?
Hvar?
Miðvikudagur
hvar@frettabladid.is
10. JÚLÍ 2019
Viðburðir
Hvað? Hádegistónleikar
Hvenær? 12.00
Hvar? Hallgrímskirkja, Skólavörðu-
holti
Kórinn Schola cantorum kemur
fram á Alþjóðlegu orgelsumri
undir stjórn Harðar Áskelssonar. Á
efnisskránni er að finna íslenskar
og erlendar kórperlur. Miðaverð er
2.700 krónur. Kórinn mun koma
fram í kirkjunni á hverjum mið
vikudegi til 28. ágúst.
Hvað? Skuggamyndir frá Býsans /
Jazz með útsýni
Hvenær? 21.00
Hvar? Múlinn Jazzklúbbur, Björtu-
loftum í Hörpu
Hljómsveitin Skuggamyndir frá
Býsans undirbýr nú ferð til Make
dóníu til að koma fram á tveimur
tónlistarhátíðum og á tónleik
unum í kvöld verða flutt lög frá
Makedóníu og Búlgaríu. Í bandinu
eru Haukur Gröndal, sem leikur
á klarínettu, Ásgeir Ásgeirsson
á strengjahljóðfæri, Þorgrímur
Jónsson á bassa og Erik Qvick á
slagverk. Björtuloft eru á 5. hæð
Hörpu. Miðaverð er 2.500 krónur
og 1.500 fyrir nemendur og eldri
borgara.
Hvað? Gyða Valtýsdóttir
Hvenær? 21.00
Hvar? Norræna húsið í Vatns-
mýrinni
Gyða Valtýsdóttir, söngkona og
sellóisti, kemur fram á sumartón
leikum Norræna hússins.
Schola Cantorum syngur kórperlur á hádegistónleikum í Hallgrímskirkju.
Einsöngslög Sigvalda Kaldalóns, tónskálds og læknis, hafa verið endurútgefin, en þau hafa
verið ófáanleg í fjölda ára. Útgáfan
er í tveimur hlutum. Númer 1 nefn
ist Svanasöngur á heiði og númer
2 Ég lít í anda liðna tíð. Samtals
geymir hún 102 sönglög úr smiðju
Kaldalóns á fjórum geisladiskum,
f lutt af tólf af fremstu einsöngv
urum þjóðarinnar.
Upptökur fóru fram í Salnum,
Tónlistarhúsi Kópavogs, á árunum
2003 og 2005. Listrænn stjórnandi
var Jónas Ingimundarson og hann
annaðist líka píanóleik við allar
hljóðritanir, sem voru í umsjá Hall
dórs Víkingssonar, Fermata hljóð
ritun. Halldór hafði einnig umsjón
með núverandi útgáfu og endur
vann upptökurnar með nýjustu
tækni. Reynir Axelsson yfirfór
ljóðatexta og enskar þýðingar.
Ingvar Víkingsson sá um grafíska
hönnun.
Sigvaldi Kaldalóns sótti sér efni
við til lagasmíða úr sígildum sjóði
Söngvasafn Sigvalda Kaldalóns endurútgefið
Svanasöngur á
heiði nefnist þessi diskur.
fjölmargra ljóðahöfunda og tókst
afar vel að túlka innihald og anda
ljóðanna, færa þau í tónrænan
búning með skáldlegri andagift og
hljóðfæri sitt að vopni.
Útgefandi diskanna er Minning
arsjóður Sigvalda Kaldalóns. – gun
Sigvaldi Kaldalóns
tónskáld og læknir.
M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð17 I ∙ I
MENNING
1 0 . J Ú L Í 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R
1
0
-0
7
-2
0
1
9
0
5
:1
1
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
6
5
-D
B
0
0
2
3
6
5
-D
9
C
4
2
3
6
5
-D
8
8
8
2
3
6
5
-D
7
4
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
4
0
s
_
9
_
7
_
2
0
1
9
C
M
Y
K