Fréttablaðið - 16.07.2019, Blaðsíða 8
Frá degi til dags
Halldór
ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Einar Þór Sverrisson FORSTJÓRI: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir ÚTGEFANDI: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is
RITSTJÓRAR: Davíð Stefánsson david@frettabladid.is, Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is, MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ.IS: Sunna Karen Sigurþórsdóttir sunnak@frettabladid.is.
Fréttablaðið kemur út í 85.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum
án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is
MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Fram undan
er uppbrot af
völdum
tæknibreyt-
inga sem
mun reyna
verulega á
samfélag
okkar. Hér er
tækifæri til
að taka
forystu og
vera ger-
endur í nýrri
byltingu
– almenningi
til góða.
Fyrir stóran
hluta hreyfi-
hamlaðs
fólks er lokuð
göngugata
hindrun á
aðgengi og
þýðir að þeir
sem eiga
erfitt með
gang forðast
þær einfald-
lega.
Davíð
Stefánsson
david@frettabladid.is
www.hókuspókus.is
Verslun og vefverslun
Laugavegi 69 S. 551-7955
Grímur og skraut
Helíum frá 2990
Það hlýtur að teljast sérstakt að tillaga sem hafnað er af hörku í borgarstjórn er stuttu síðar komin í lög. Á borgarstjórnarfundi 16. október, 2018 lagði
Flokkur fólksins fram tillögu um að heimila akstur bif-
reiða með stæðiskorti fyrir hreyfihamlaða um göngu-
götur í miðborg Reykjavíkur og að bifreiðum með
slíkt stæðiskort verði heimilt að leggja á bílastæðum á
göngugötum borgarinnar. Tillögunni var illa tekið af
meirihlutanum í borgarstjórn og einkenndust viðbrögð
af neikvæðni og útúrsnúningum. Einkum fulltrúar
frá Samfylkingunni og Viðreisn kepptust við að draga
umræðuna niður á lágt plan.
Mannréttindamál
Sjálfsagt er að takast á um þetta mál sem önnur með
heiðarlegum hætti. En nú þarf ekki að takast á um þetta
mál lengur. Löggjafinn hefur haft vit fyrir meirihluta
borgarstjórnar enda hér um mannréttindamál að
ræða. Á það skal minnt að á vefsíðu Reykjavíkurborgar
stendur skýrt og skorinort: „Óheimilt er að mismuna
fólki vegna fötlunar. Allir eiga rétt á virkri þátttöku í
reykvísku borgarsamfélagi og fatlaðir skulu eiga jafnan
aðgang að þjónustu og ófatlaðir.“ Þetta ætlaði meirihlut-
inn í borgarstjórn einfaldlega að hunsa en hefur engu
að síður til skrauts á vefsíðu borgarinnar. Horfa skal til
þess að meirihlutinn hefur samþykkt án samráðs við
hagsmunasamtök hreyfihamlaðra sem og rekstraraðila
að fjölga göngugötum og hafa ákveðið að gera vinsæl-
ustu götur miðbæjarins að göngugötum varanlega.
Eins skemmtilegar og göngugötur geta verið þá eiga
margir sem eru hreyfihamlaðir ekki auðvelt aðgengi að
þeim. Það er ekki nema lítill hluti hreyfihamlaðs fólks
sem notast við hjólastól eða göngugrind og getur því
nýtt sér göngugötur (svo framarlega sem bílastæði eru
nálægt). Fyrir stóran hluta hreyfihamlaðs fólks er lokuð
göngugata hindrun á aðgengi og þýðir að þeir sem eiga
erfitt með gang forðast þær einfaldlega. Það yrði varla á
bætandi því að nú þegar er mikill fólks- og fyrirtækja-
flótti af þessu svæði.
Hafnað í borginni,
samþykkt á Alþingi
Kolbrún
Baldursdóttir,
borgarfulltrúi
Flokks fólksins.
Flestir hafa heyrt af þeim breytingum sem eru í vændum með fjórðu iðnbyltingunni svo-kölluðu. Í fyrri iðnbyltingum voru það tíma-mótabreytingar í tækni sem umturnuðu sam-félögum. Gufuvél, rafmagn, sprengihreyfill, tölva og gervigreind ollu uppbroti hagkerfa
og samfélaga. Okkur lærðist hagnýting betri framleiðslu
og meiri afkasta fyrir bætt lífskjör.
Fjórða iðnbyltingin sem er fram undan byggir á sjálf-
virknivæðingu og beitingu reikniaðgerða gervigreindar
á stafræn gögn. Vélar munu sjálfar læra að auka getu sína
til að leysa verkefni. Breytingar verða hraðar og gera það
mögulegt að leysa verkefni sem áður þótti óhugsandi
að leiða til lykta með sjálfvirkum hætti. Þetta er beiting
sjálfvirkra farartækja, notkun gríðargagna, þrívíddar-
prentanir, notkun háþróaðra vélmenna og þjarka,
hagnýting nanótækni og sköpun nýrra hráefna. – Allt
mun þetta hafa gríðarleg áhrif á tilveru okkar, iðnað,
framleiðslu, frítíma, nám og samskipti.
En breytingar kalla á óvissu og vekja sumum ugg. Ný
tækni getur þýtt verulega fækkun starfa og lífsafkomu
margra er ógnað. Á hinn bóginn getur þetta þýtt sköpun
nýrri og betri starfa með meiri lífsgæðum.
Í skýrslu nefndar forsætisráðuneytisins um fjórðu
iðnbyltinguna sem kom út í febrúar er sýnt fram á
gríðarleg áhrif sjálfvirknivæðingar á íslenskan vinnu-
markað. Því er spáð að 58% starfa taki talsverðum
breytingum vegna áhrifa nýrrar tækni.
Stjórnvöld, atvinnulíf og verkalýðshreyfing þurfa að
taka höndum saman og tryggja að vinnumarkaðurinn
sé tilbúinn fyrir breytingarnar fram undan. Tryggja þarf
að fólk geti orðið sér úti um rétta færni fyrir þau verkefni
sem þarf að sinna í atvinnulífinu. Þetta mun kalla á
stórátak í endurhæfingu og endurmenntun. Það er ekki
síst mikilvægt að forysta verkalýðshreyfingarinnar
taki virkan þátt í mótun þeirrar umgjarðar sem verður
að skapa. Hvernig getum við hagnýtt þessa nýju tækni
til að auka hagsæld og velferð í samfélaginu? Hvernig
stýrum við þróuninni inn á jákvæðar brautir? Áhrifin
ráðast af nýtingu tækninnar. Í fjórðu iðnbyltingunni
felast fjölmörg tækifæri fyrir Ísland. Tæknilegir innviðir
eru hér öflugir, atvinnulífið er virkt í innleiðingu nýrrar
tækni og landsmenn eru vel nettengdir. Fámennið
hjálpar okkur að aðlagast miklum breytingum hratt.
Samhliða þessum tæknibreytingum er mikilvægt að
standa vörð um hið opna hagkerfi. Einnig er mikilvægt
að tryggja erlent samstarf í vísindum og rannsóknum og
laða til okkar þekkingu sem ekki er til staðar hér á landi.
Alþjóðlegt samstarf og frjáls viðskipti eru lyklar að því
hvernig best verður brugðist við þessum áskorunum.
Opinber stefna hefur mikil áhrif á hvernig samfélög
aðlagast og nýta sér nýja tækni. Því ber að fagna skipan
forsætisráðherra á verkefnisstjórn um aðgerðir Íslands
vegna fjórðu iðnbyltingarinnar. Verkefnisstjórninni er
ætlað að koma fram með 20 til 30 aðgerðir sem marki
fyrstu skref Íslands til móts við þær breytingar sem
fjórða iðnbyltingin hefur í för með sér.
Fram undan er uppbrot af völdum tæknibreytinga
sem mun reyna verulega á samfélag okkar. Hér er tæki-
færi til að taka forystu og vera gerendur í nýrri byltingu
– almenningi til góða.
Fjórða byltingin
Gúggla fyrst
Forvitni og fyrirspurnagleði
pírataþingmannsins Björns
Leví Gunnarssonar er annáluð.
Kappið virðist þó hafa borið
þingmanninn ofurliði þegar
hann boðaði á Facebook að
„eitt stykki fyrirspurn“ væri á
leiðinni um leið og hann ýjaði
að því, að Bjarni Benediktsson
fjármálaráðherra hefði gerst
brotlegur við siðareglur þegar
hann var kjörinn varaformaður
bankaráðs asíska innviðafjár-
festingabankans AIIB. Grunur
Björns um greiðslur og hags-
munaárekstur reyndist úr lausu
lofti gripinn og Bjarni situr
ólaunað í bankaráðinu með full-
trúum annarra 78 aðildarríkja.
Verra en tískuslys
Bjarna þóttu vangaveltur
Björns „með ólíkindum“ og sló
boðaða fyrirspurn snarlega út
af borðinu. Brynjar Níelsson,
f lokksbróðir fjármálaráðherra,
og Björn Leví taka reglulega
snerrur, ýmist á þingi eða
samfélagsmiðlum, þar sem
útgangurinn á Píratanum pirrar
Brynjar helst. Hann gat þó eðli-
lega ekki látið þetta dauðafæri
fram hjá sér fara, skaut fast á
Twitter og skildi Björn eftir
skólausan á gati: „Hvort er verra
að vera óheiðarlegur og illgjarn
þingmaður eða vera svo siðlaus
ráðherra að sitja í bankaráði
banka sem þjóðin á hlut í? Spurt
er fyrir þingf lokk Pírata sem
eru sérfræðingar í siðleysi ann-
arra.“
toti@frettabladid.is
1 6 . J Ú L Í 2 0 1 9 Þ R I Ð J U D A G U R8 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SKOÐUN
1
6
-0
7
-2
0
1
9
0
5
:0
1
F
B
0
3
2
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
6
D
-C
9
8
C
2
3
6
D
-C
8
5
0
2
3
6
D
-C
7
1
4
2
3
6
D
-C
5
D
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
3
2
s
_
1
5
_
7
_
2
0
1
9
C
M
Y
K