Fréttablaðið


Fréttablaðið - 16.07.2019, Qupperneq 24

Fréttablaðið - 16.07.2019, Qupperneq 24
Hvað? Hvenær? Hvar? Þriðjudagur hvar@frettabladid.is 16. JÚLÍ 2019 Dans Hvað? Milonga Tangófé- lagsins Hvenær? 20.30 - 22.30 Hvar? Iðnó, Vonar- stræti 3 Argentínskur tangó, gestgjafi er Snorri Sigfús, Dj er Elín og heldur hún uppi stuðinu með gullaldar tón- list. Allir velkomnir, engin danskunnátta nauðsynleg og ekki þarf að mæta með dansfélaga. Aðgangur kr. 1.000.- Ókeypis er fyrir 30 ára og yngri. Fyrirlestur Hvað? Brettaspjall Hvenær? 17.00 Hvar? Deiglan, Kaupvangsstræti 23 Steinar Fjeldsted, sem hefur verið við- loðandi hjóla- brettasenuna á Íslandi síðustu þrjátíu árin, og rekur nú Hjólabretta- skóla Reykjavíkur, fræðir fólk um íþrótt- Ina og ýmislegt sem henni viðkemur. Tónlist Hvað: Kvartett Önnu Sóleyjar Hvenær: 20.30 Hvar: Kex hostel, Skúlagötu 28 Auk söngkonunnar Önnu Sóleyjar skipa hljómsveitina þeir Mikael Máni Ásmundsson á gítar, Snorri Skúlason á kontrabassa og Magn- ús Trygvason Eliassen á trommur. Þau spila meðal annars öll sungnu lögin af Nancy Wilson og Cannon- ball Adderley plötunni Save Your Love For Me og aðra standarda í sálrænum búningi og er aðgangur ókeypis.Síðumúla 34 • 108 Reykjavík Sími 696 5600 • rafsol@rafsol.is ENDURNÝJUN OG VIÐHALD Löggiltur rafverktaki Sími: 696 5600 rafsol@rafsol.is Hér sameinast gamalt og nýtt, fortíðin og nútíðin mætast,“ segir Harpa Dís H á k o n a r d ó t t i r listakona um sýn- ingu sem opnuð var síðasta föstudag í Listasal Mosfellsbæjar og tileinkuð er skáldkonunni Huldu (Unni Bene- diktsdóttur Bjark lind,1881-1946). Titill sýningarinnar er vísun í gamalt ljóð eftir Huldu: „Óþreyju barn, kom innst í lundinn; að henni standa Harpa Dís Hákonardóttir og Hjördís Gréta Guðmundsdóttir. Þær eru báðar nýútskrifaðar úr mynd- listadeild Listaháskóla Íslands og sýningin hluti af rannsóknar- verkefni þeirra, Farsæl, fróð og frjáls. Þar er skyggnst inn í líf og list Huldu skáldkonu og áhrif hennar á íslenska menningararfleifð skoðuð. Verkefnið hlaut styrk úr Nýsköp- unarsjóði námsmanna. En hvernig verður nýsköpun til úr skrifum konu sem var uppi á fyrri hluta síðustu aldar? „Það er áskorun,“ viðurkennir Harpa Dís. „Nýsköpunargildi verkefnisins felst í því að skáldkonan Hulda er ekkert þekkt innan okkar kynslóð- ar. Við Hjördís Gréta könnuðumst að minnsta kosti ekkert við hana. Vegna fullveldishátíðarinnar í fyrra fórum við að lesa ljóð um Ísland og þar með duttum við inn á Hver á sér fegra föðurland. Könnuðumst reyndar við ljóðið en ekki höfund- inn. Í framhaldinu ákváðum við að kynnast Huldu. Þannig má segja að „óþreyjan“ hafi fundið sér fótfestu í ákveðinni endursköpun rúmum hundrað árum síðar.“ Harpa Dís segir þær Hjördísi Grétu hafa verið með listviðburð 1. desember í Rýmd, nemendagall- eríi Listaháskólans, sem fólst í upp- lestrarmaraþoni úr ljóðum Huldu. „Við tvær skiptumst á að lesa upp og áheyrendur komu og fóru því þetta var opið hús. Við kynntumst Huldu með þessum hætti og komumst að því þá hvað hún hefur skrifað of boðslega mikið. Við lásum upp í fjóra klukkutíma og náðum ekki að ljúka við fyrstu ljóðabókina hennar.“ Þær stöllur létu ekki við svo búið standa heldur fóru í pílagrímsferð norður í Þingeyjarsýslur á slóðir skáldkonunnar. „Það var mikilvægt fyrir okkur að fara norður, þangað sem hún var uppalin og bjó lengst af. Hún er fædd og uppalin á Auðnum í Laxárdal í Suður-Þingeyjarsýslu og bjó á Húsavík en f lutti svo til Reykjavíkur á efri árum. Á Auðnum hefur Huldu verið reistur minnis- varði og þar er líka Huldulundur, Lítum á sýninguna sem samtal okkar við Huldu Listakonur tvær, þær Harpa Dís Hákonardóttir og Hjördís Gréta Guðmundsdóttir minnast skáldkonunnar Huldu á sinn hátt á sýningunni Óþreyju barn, komst inn í lundinn, sem stendur yfir í Listasal Mosfellsbæjar. Harpa Dís og Hjördís Gréta lásu upp í fjóra klukkutíma og náðu ekki að ljúka við fyrstu ljóðabókina hennar Huldu. MYND / ALEX FÄLTING „Við reynum að koma Huldu inn í samtímann og vekja athygli á henni og fram- lagi hennar til íslenskrar menningar,“ segir Harpa Dís. FRÉTTABLAÐIÐ/ SIGTRYGGUR ARI Hulda hlaut 1. verðlaun í ljóðasam- keppni vegna lýðveldisstofnunar- innar 1944. Hluti af ljóðinu er hið þekkta Hver á sér fegra föðurland. trjálundur sem lækur liðast um. Út frá heimsókn í hann kviknaði hugmyndin að sýningunni. Hulda fjallar svo mikið um náttúruna í verkum sínum og lækurinn kemur víða við sögu. Við endurgerum þetta umhverfi svolítið á sýning- unni með ljósmyndum, vídeói og skúlptúrum og lítum á sýninguna sem samtal okkar við Huldu. Bjóð- um svo sýningargestum að stíga inn í hugarheim samtals okkar.“ Meðal þess sem þær Harpa Dís og Hjördís Gréta gerðu fyrir norðan var að tína sprek úr læknum hennar Huldu og gera síðan skúlptúra út frá þeim, Harpa Dís segir þá vera nokk- urs konar minningu um eitthvað sem þær tóku með sér. „Á sýning- unni er líka textaverk. Við fengum til liðs við okkur Jónu Kristjönu Hólmgeirsdóttur, íslenskufræðing og skáld, og hún skrifar hugleið- ingu um Huldu. Þannig vildum við tengja skáldkonu dagsins í dag og skáldkonu fyrri tíma.“ Hulda var skáldanafn Unnar Benediktsdóttur Bjarklind og Harpa Dís segir það koma fram í rit- inu Úr minningablöðum af hverju hún kaus að yrkja og skrifa undir dulnefni. „Hún lýsir því hvernig fólk brást við þegar það komst að því að hún væri að yrkja og hún skamm- aðist sín mikið. Það var ekki svo þekkt á þeim tíma að konur væru að skrifa, hvað þá að það efni væri birt svo hún vildi vera bara huldukona.“ Sýningin stendur til 9. ágúst. Opið er frá 12 til 18 virka daga og 12 til 16 á laugardögum. Gott hjólastólaaðgengi er að salnum. Aðgangur ókeypis og allir velkomnir. Steinar Fjeldsted. 1 6 . J Ú L Í 2 0 1 9 Þ R I Ð J U D A G U R16 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð MENNING 1 6 -0 7 -2 0 1 9 0 5 :0 1 F B 0 3 2 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 3 6 D -D 3 6 C 2 3 6 D -D 2 3 0 2 3 6 D -D 0 F 4 2 3 6 D -C F B 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 0 3 2 s _ 1 5 _ 7 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.