Fréttablaðið - 16.07.2019, Síða 10
Ég kann mjög vel
við að vera í fjöl-
þraut þar sem ég fæ að
takast á við fjölbreyttar
áskoranir.
35 ára afmælistilboð
allt að 45%
afsláttur
út Ágúst- Hjólsagarblöð
- Bandsagarblöð
- Tifsagarblöð
- Fræsitennur
- Fræsihakar
- Hefiltennur
- Dósaborar
- Þrepaborar
- Handfræsitennur
- Fræsitannahausar
- Sagarblöð fyrir plastparket
Gul Gata
AFMÆLIS
TILBOÐ
35ára
FR JÁL SAR ÍÞRÓT TIR María Rún
keppti í sex grein um á Meistaramót-
inu um nýliðna helgi en hún vann
til verðlauna í þeim öll um. Hún
nældi í tvenn gullverðlaun, þrjú
silf ur og eitt brons. María keppti í
100 metra grinda hlaupi, spjót kasti,
há stökki, lang stökki, 4x400 m boð-
hlaupi og í kúlu varpi.
Helgina fyrir Meistaramótið var
hún stödd á Madeira þar sem brons-
verðlaun voru niðurstaðan. María
Rún var ekki hátt uppi í skýjunum
þrátt fyrir þennan góða árangur
undanfarnar vikur þegar Frétta-
blaðið ræddi við hana. Hún er að
sjálfsögðu sátt við árangurinn en er
með báða fætur á jörðinni og veit að
hún getur bætt sig enn frekar.
Ísland er í annarri deild að keppa
í Evrópubikar í fjölþraut þar sem
María Rún varð í þriðja sæti en
árangurinn hefði dugað henni til
þess að lenda í fjórða sæti í fyrstu
deildinni. Svo er ein önnur deild
í viðbót sem er sú efsta þar sem
keppnin er aðeins harðari.
Kann best við mig í fjölþrautinni
„Það var auðvitað frábært að næla
í brons í Evrópubikarnum en það
eru alltaf atriði sem maður telur
að hafi geta farið betur á öllum
mótum. Kannsk i sérstak lega
þegar þú keppir í fjölþraut. Það
kom mér skemmtilega á óvart að
ná að bæta mig í grindahlaupi á
Meistaramótinu en ég hefði viljað
gera betur í langstökkinu. Þar
spilaði reyndar uppsöfnuð þreyta
frá keppninni á Evrópubikarnum
og ferðalaginu frá Madeira inn
í,“ segir María Rún í samtali við
Fréttablaðið.
„Það getur verið f lókið að setja
saman æfingaplan þegar þú vilt
bæta þig í sjö greinum þannig
að það er ekkert óeðlilegt að það
séu alltaf einhverjar greinar sem
eru lakari en aðrar. Ég er sterk í
hástökki og spjótkasti og hef svo
verið að fá mörg stig út úr grinda-
hlaupinu. Svo er það auðvitað
þannig að aukinn hraði kemur
þér að góðum notum í öllum þeim
greinum sem keppt er í í fjölþraut.
Á uppbyg g inga r t ímabilinu
reyni ég að skipta æfingunum
upp og taka þá tvær æfingar, oft-
ast lyftingar fyrripartinn og síðan
hlaup eða tækni seinnipartinn. En
á keppnistímabilinu er æfinga-
Hraðinn er lykillinn að bætingu
María Rún Gunn laugs dótt ir, fjölþrautakona úr FH, vann til flestra verðlauna á Meist ara móti Íslands í frjáls um íþrótt um sem fram fór í
Laugardalnum um síðustu helgi. Þar áður náði hún í bronsverðlaun á Evrópumótinu í fjölþraut á Madeira um þar síðustu helgi.
álagið aðeins minna. Síðan hefur
grindahlaupið og hástökkið geng-
ið best en ég tel mig geta bætt mig
mest í langstökkinu,“ segir hún um
stöðu mála hjá sér.
Langtímamarkmið
að komast á Ólympíuleika
„Ég kann mjög vel við að vera í fjöl-
þraut þar sem ég fæ að takast á við
fjölbreyttar áskoranir. Ég var þann-
ig sem barn og unglingur að mig
langaði að prófa allt og þetta hent-
ar mér vel. Mér finnst hins vegar
líka skemmtilegt að fara á mót þar
sem ég get einbeitt mér að færri
greinum eins og í Evrópukeppni
landsliða sem fram undan er. Það
sem er næst á dagskrá er aftur á
móti bikarkeppnin hér heima og
síðan er Meistaramótið í fjölþraut
um miðjan ágúst,“ segir þessi fjöl-
hæfa frjálsíþróttakona.
„Það var stefnan að toppa í formi
á þessum tíma og það er góð til-
finning að finna að það hafi tekist
í Evrópubikarnum á Madeira og
nú er verkefnið að viðhalda þessu
góða formi og ná góðri endurheimt
á milli verkefna. Langtímamark-
miðið hjá mér er svo að komast
einhvern tímann á Ólympíuleika
í fjölþraut.
Það er verið að taka í gagnið
þessa stundina nýtt stigakerfi hvað
það varðar að komast á Ólympíu-
leika þannig að ég veit ekki alveg
hvar ég stend í því á þessum tíma-
punkti. Það er hins vegar klárlega
raunhæft markmið þó það verði
klárlega erfitt,“ segir hún um fram-
haldið. hjorvaro@frettablaðið.is
1 6 . J Ú L Í 2 0 1 9 Þ R I Ð J U D A G U R10 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SPORT
María Rún telur raunhæft að tryggja sér einn daginn sæti á Ólympíuleikum.
Hástökkið gefur Maríu Rún alla jafn mörg stig í fjölþrautakeppnum.
María Rún kom sjálfri sér skemmtilega á óvart með því að bæta sig í grindahlaupi. MYND/KRISTÓFER ÞORGRÍMSSON
1
6
-0
7
-2
0
1
9
0
5
:0
1
F
B
0
3
2
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
6
D
-D
8
5
C
2
3
6
D
-D
7
2
0
2
3
6
D
-D
5
E
4
2
3
6
D
-D
4
A
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
3
2
s
_
1
5
_
7
_
2
0
1
9
C
M
Y
K