Fréttablaðið - 16.07.2019, Side 14
Fólk er kynningarblað sem býður aug-
lýsendum að kynna vörur og þjónustu
í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu
er einnig hefðbundið ritstjórnarefni.
Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Benedikt Bóas Hinriksson,
benediktboas@frettabladid.is, s. 550 5763 | Ásta Eir Árnadóttir, astaeir@frettabladid.is, s. 550 5764 | Sandra
Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Sólrún Freyja Sen, solrunfreyja@
frettabladid.is, s. 550 5765 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Kristín Þorsteinsdóttir
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@
frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 550 5653,
Krýsuvík verður þá fyrsta meðferðarheimilið á Íslandi þar sem notaðar eru óhefð-
bundnar leiðir til að ná bata,“ segir
Tolli Morthens sem er hluti af
Stríðsmönnum andans. Tolli segir
að notkun á svitahofum í vímu-
efnameðferð sé þekkt meðal fyrstu
þjóða Ameríku. „Ég þekki auðvitað
meðferðarbransann sjálfur og
búinn að velkjast í honum um ára-
bil.“ Þegar Tolli var nýorðinn edrú
um miðjan 10. áratug kynntist
hann svettinu. „Upp úr 1995 fékk
ég að kynnast þessu og upplifði
kraftinn í svettinu fyrir þá sem eru
að vinna í sjálfum sér.“ Tolli segir
að svettið sé gríðarlega kraftmikið
lyf fyrir bæði sál og líkama.
Heiðra minningu Runna
Aðdragandinn að því að Stríðs-
menn andans ákváðu að gefa
Krýsuvík sitt eigið svitahof er að
hópur þaðan kom með þeim í
svett. „Það kom þannig til að þau
í Krýsuvík komu til okkar og tóku
svett með okkur. Þeim fannst þetta
vera það sterk reynsla að þau tóku
ákvörðun um að skoða hvort það
væri hægt að setja upp svitahof í
Krýsuvík.“
Runólfur Jónsson, sem er nýlát-
inn, var góður vinur Tolla. Hann
hafði ásamt Elísabetu Bjarnar-
dóttur eiginkonu sinni notað
svettið markvisst í vímuefnameð-
ferð í Svíþjóð sem þau hjónin ráku.
Hugmynd Stríðsmanna andans
er að heiðra minningu Runólfs
með því að gefa Krýsuvík svitahof.
Svitahofið ber nafnið Runni eins
og Runólfur var ætíð kallaður.
Hér standa Tolli, Agnar Bragason, Karen Lísa Morthens og hundurinn Krummi þar sem hofið mun standa. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Það er löng hefð
fyrir því að nota
svett í vímu-
efnameðferð.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ANTON BRINK
Sólrún
Freyja Sen
solrunfreyja@frettabladid.is
Sporin tekin í svitahofum
Eins og áður sagði er svett hluti
af hefðbundinni meðferð fyrstu
þjóða Ameríku við hvers kyns
kvillum. „Fyrstu þjóða fólk notaði
svettið til heilunar og til að hjálpa
fólki að tengjast kjarnanum í
sjálfu sér. Þau nota sína menningu
í meðferðarpólitík fyrir sitt fólk.“
Sú leið er kölluð „the red way to
wellbriety“ eða rauði vegurinn að
„veldrúmennsku“ og mætti segja að
sé þeirra AA-bók. Tolli segir að þar
sé líka notast við 12-sporakerfi en
sporin eru tekin inn í svitahofum.
„Uppgjörið, uppgjöfin, tenging við
æðri mátt, vinna með sjálfskærleik
og fyrirgefninguna, þetta fer allt
fram í svettinu.“
Á meðan Krýsuvík mun væntan-
lega finna sínar áherslur og sinn
takt í svettinu þá segir Tolli að það
þurfi í rauninni ekki að bæta neinu
við svettið. „Þetta er alveg full-
komið eins og það er. Þessi aðferð
hefur verið notuð í þúsund ár eða
meira og hún virkar. Hins vegar
geta einstaka áherslur og einstök
nálgun verið mismunandi eins og
hjá Runna. Það er þeirra í Krýsu-
vík að ákveða hvernig þau ætla að
nálgast þetta.“ Af mörg hundruð
mismunandi hefðum fyrir svetti
eru flestar svipaðar en engin eins.
„Kjarninn er samt alltaf sá sami.
Ekkert svett er rétt eða röng leið,
ekki frekar en með hugleiðsluað-
ferðir. Hið eina sem þarf er að vita
af hverju maður stundar svettið.“
Tolli segist upplifa mikla
umbreytingartíma í samfélaginu
og sérstaklega varðandi nálgun
á fíknisjúkdóma. „Í dag erum við
að nálgast fíknisjúkdóma á miklu
heildrænni hátt. Við drögum ekki
lengur bara hringinn í kringum
neyslu og afleiðingar hennar,
heldur tökum við alla manneskj-
una fyrir og jafnvel gott betur. Við
erum að skoða fjölskyldukerfin og
umhverfið til dæmis. Svettið held-
ur utan um þetta allt. Það byggir til
dæmis á tengingu við forfeðurna,
virðingu og sátt við þá, sem tengist
svo fjölskyldugerðinni.“
Gera góða hluti að athöfn
Tolli segir að þó svettið hafi skilað
árangri fyrir sig og marga vini sína
sem tól til að halda góðum bata
á fíknisjúkdómi, sé það ekki eitt
og sér nóg. „En sem hluti af sökkli
undir breyttum lífsstíl og nýjum
markmiðum þá er það gríðarlega
áhrifamikið.“ Það er ekki síður
mikilvægt að sögn Tolla fyrir þá
sem eru að stíga úr neyslu, að geta
tilheyrt hópnum sem myndast í
svitahofum. Allir fá sitt hlutverk og
samþykki hópsins í svettinu.
Í svitahofum Stríðsmanna
andans er lögð áhersla á bæði and-
leg málefni en líka á sálræna með-
ferð. „Krafturinn í svettinu felst í
því að það fer handan orðs og huga.
Það fer miklu dýpra en samtal. Við
vinnum markvisst í okkur sjálfum
í svettinu. Svettið er ekki bara
áhugamál, þetta er ein af undir-
stöðum lífsstíls. Þegar þú færð eitt-
hvað jákvætt inn í lífið, þá er sagt
að maður eigi að gera úr því athöfn.
Það er alltaf talað um að endurtaka
það því þannig virka góðir hlutir.
Endurtekningin vinnur svo mikið
með heila og huga. Regluverkið
í lífi okkar kemur allt frá endur-
tekningunni.“
Í dag erum við að
nálgast fíknisjúk-
dóma á miklu heild-
rænni hátt. Við drögum
ekki lengur bara hring-
inn í kringum neyslu og
afleiðingar hennar,
heldur tökum við alla
manneskjuna fyrir og
jafnvel gott betur.
Tolli Morthens
Svitahofið mun standa við lítið,
fallegt vatn í sveitinni þar sem
meðferðarstofnunin er. Unnið
hefur verið að byggingu hofsins
í 6-7 vikur og samkvæmt Tolla er
verið að vanda sig. „Þetta verður
mikið mannvirki svo það standist
veður og vinda landsins. Það þýðir
ekkert að henda upp einnota tjaldi,
hofið verður að vera búið góðum
og sterkum efnum.“
LAXDAL
SUMARSALAN
Skipholti 29b • Sími 551 4422 • www.laxdal.is
skoðið laxdal.is
t
S Í G I L D K Á P U B Ú Ð
NÚ ENN MEIRI
AFSLÁTTUR
40%-70%
GÆÐAFATNAÐUR
SEM ENDIST,
VELKOMIN
LAXDAL ER Í LEIÐINNI
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 6 . J Ú L Í 2 0 1 9 Þ R I ÐJ U DAG U R
1
6
-0
7
-2
0
1
9
0
5
:0
1
F
B
0
3
2
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
6
D
-E
7
2
C
2
3
6
D
-E
5
F
0
2
3
6
D
-E
4
B
4
2
3
6
D
-E
3
7
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
3
2
s
_
1
5
_
7
_
2
0
1
9
C
M
Y
K