Fréttablaðið - 16.07.2019, Side 24
Hvað?
Hvenær?
Hvar?
Þriðjudagur
hvar@frettabladid.is
16. JÚLÍ 2019
Dans
Hvað? Milonga Tangófé-
lagsins
Hvenær? 20.30 - 22.30
Hvar? Iðnó, Vonar-
stræti 3
Argentínskur
tangó, gestgjafi er
Snorri Sigfús, Dj
er Elín og heldur
hún uppi stuðinu
með gullaldar tón-
list. Allir velkomnir,
engin danskunnátta
nauðsynleg og ekki þarf að
mæta með dansfélaga. Aðgangur
kr. 1.000.- Ókeypis er fyrir 30 ára
og yngri.
Fyrirlestur
Hvað? Brettaspjall
Hvenær? 17.00
Hvar? Deiglan,
Kaupvangsstræti
23
Steinar
Fjeldsted, sem
hefur verið við-
loðandi hjóla-
brettasenuna á
Íslandi síðustu
þrjátíu árin, og
rekur nú Hjólabretta-
skóla Reykjavíkur,
fræðir fólk um íþrótt-
Ina og ýmislegt sem
henni viðkemur.
Tónlist
Hvað: Kvartett Önnu Sóleyjar
Hvenær: 20.30
Hvar: Kex hostel, Skúlagötu 28
Auk söngkonunnar Önnu Sóleyjar
skipa hljómsveitina þeir Mikael
Máni Ásmundsson á gítar, Snorri
Skúlason á kontrabassa og Magn-
ús Trygvason Eliassen á trommur.
Þau spila meðal annars öll sungnu
lögin af Nancy Wilson og Cannon-
ball Adderley plötunni Save Your
Love For Me og aðra standarda í
sálrænum búningi og er aðgangur
ókeypis.Síðumúla 34 • 108 Reykjavík
Sími 696 5600 • rafsol@rafsol.is
ENDURNÝJUN
OG VIÐHALD
Löggiltur rafverktaki
Sími:
696 5600
rafsol@rafsol.is
Hér sameinast gamalt og nýtt, fortíðin og nútíðin mætast,“ segir Harpa Dís H á k o n a r d ó t t i r listakona um sýn-
ingu sem opnuð var síðasta föstudag
í Listasal Mosfellsbæjar og tileinkuð
er skáldkonunni Huldu (Unni Bene-
diktsdóttur Bjark lind,1881-1946).
Titill sýningarinnar er vísun í
gamalt ljóð eftir Huldu: „Óþreyju
barn, kom innst í lundinn; að henni
standa Harpa Dís Hákonardóttir og
Hjördís Gréta Guðmundsdóttir. Þær
eru báðar nýútskrifaðar úr mynd-
listadeild Listaháskóla Íslands
og sýningin hluti af rannsóknar-
verkefni þeirra, Farsæl, fróð og
frjáls. Þar er skyggnst inn í líf og list
Huldu skáldkonu og áhrif hennar á
íslenska menningararfleifð skoðuð.
Verkefnið hlaut styrk úr Nýsköp-
unarsjóði námsmanna.
En hvernig verður nýsköpun
til úr skrifum konu sem var uppi
á fyrri hluta síðustu aldar? „Það
er áskorun,“ viðurkennir Harpa
Dís. „Nýsköpunargildi verkefnisins
felst í því að skáldkonan Hulda er
ekkert þekkt innan okkar kynslóð-
ar. Við Hjördís Gréta könnuðumst
að minnsta kosti ekkert við hana.
Vegna fullveldishátíðarinnar í fyrra
fórum við að lesa ljóð um Ísland og
þar með duttum við inn á Hver á
sér fegra föðurland. Könnuðumst
reyndar við ljóðið en ekki höfund-
inn. Í framhaldinu ákváðum við að
kynnast Huldu. Þannig má segja að
„óþreyjan“ hafi fundið sér fótfestu
í ákveðinni endursköpun rúmum
hundrað árum síðar.“
Harpa Dís segir þær Hjördísi
Grétu hafa verið með listviðburð
1. desember í Rýmd, nemendagall-
eríi Listaháskólans, sem fólst í upp-
lestrarmaraþoni úr ljóðum Huldu.
„Við tvær skiptumst á að lesa upp og
áheyrendur komu og fóru því þetta
var opið hús. Við kynntumst Huldu
með þessum hætti og komumst
að því þá hvað hún hefur skrifað
of boðslega mikið. Við lásum upp
í fjóra klukkutíma og náðum ekki
að ljúka við fyrstu ljóðabókina
hennar.“
Þær stöllur létu ekki við svo búið
standa heldur fóru í pílagrímsferð
norður í Þingeyjarsýslur á slóðir
skáldkonunnar. „Það var mikilvægt
fyrir okkur að fara norður, þangað
sem hún var uppalin og bjó lengst af.
Hún er fædd og uppalin á Auðnum
í Laxárdal í Suður-Þingeyjarsýslu
og bjó á Húsavík en f lutti svo til
Reykjavíkur á efri árum. Á Auðnum
hefur Huldu verið reistur minnis-
varði og þar er líka Huldulundur,
Lítum á sýninguna sem samtal okkar við Huldu
Listakonur tvær, þær Harpa Dís Hákonardóttir og Hjördís Gréta Guðmundsdóttir minnast skáldkonunnar
Huldu á sinn hátt á sýningunni Óþreyju barn, komst inn í lundinn, sem stendur yfir í Listasal Mosfellsbæjar.
Harpa Dís og Hjördís Gréta lásu upp í fjóra klukkutíma og náðu ekki að ljúka við fyrstu ljóðabókina hennar Huldu. MYND / ALEX FÄLTING
„Við reynum að
koma Huldu inn
í samtímann og
vekja athygli
á henni og fram-
lagi hennar
til íslenskrar
menningar,“
segir Harpa Dís.
FRÉTTABLAÐIÐ/
SIGTRYGGUR ARI
Hulda hlaut 1. verðlaun í ljóðasam-
keppni vegna lýðveldisstofnunar-
innar 1944. Hluti af ljóðinu er hið
þekkta Hver á sér fegra föðurland.
trjálundur sem lækur liðast um.
Út frá heimsókn í hann kviknaði
hugmyndin að sýningunni. Hulda
fjallar svo mikið um náttúruna í
verkum sínum og lækurinn kemur
víða við sögu. Við endurgerum
þetta umhverfi svolítið á sýning-
unni með ljósmyndum, vídeói og
skúlptúrum og lítum á sýninguna
sem samtal okkar við Huldu. Bjóð-
um svo sýningargestum að stíga inn
í hugarheim samtals okkar.“
Meðal þess sem þær Harpa Dís
og Hjördís Gréta gerðu fyrir norðan
var að tína sprek úr læknum hennar
Huldu og gera síðan skúlptúra út frá
þeim, Harpa Dís segir þá vera nokk-
urs konar minningu um eitthvað
sem þær tóku með sér. „Á sýning-
unni er líka textaverk. Við fengum
til liðs við okkur Jónu Kristjönu
Hólmgeirsdóttur, íslenskufræðing
og skáld, og hún skrifar hugleið-
ingu um Huldu. Þannig vildum við
tengja skáldkonu dagsins í dag og
skáldkonu fyrri tíma.“
Hulda var skáldanafn Unnar
Benediktsdóttur Bjarklind og
Harpa Dís segir það koma fram í rit-
inu Úr minningablöðum af hverju
hún kaus að yrkja og skrifa undir
dulnefni. „Hún lýsir því hvernig fólk
brást við þegar það komst að því að
hún væri að yrkja og hún skamm-
aðist sín mikið. Það var ekki svo
þekkt á þeim tíma að konur væru að
skrifa, hvað þá að það efni væri birt
svo hún vildi vera bara huldukona.“
Sýningin stendur til 9. ágúst. Opið er
frá 12 til 18 virka daga og 12 til 16 á
laugardögum. Gott hjólastólaaðgengi
er að salnum. Aðgangur ókeypis og allir
velkomnir.
Steinar
Fjeldsted.
1 6 . J Ú L Í 2 0 1 9 Þ R I Ð J U D A G U R16 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
MENNING
1
6
-0
7
-2
0
1
9
0
5
:0
1
F
B
0
3
2
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
6
D
-D
3
6
C
2
3
6
D
-D
2
3
0
2
3
6
D
-D
0
F
4
2
3
6
D
-C
F
B
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
3
2
s
_
1
5
_
7
_
2
0
1
9
C
M
Y
K