Bæjarblaðið - 15.09.1979, Síða 3
Bœjorbtaditf
1. tbl. 1. árg. 15. september 1979.
Útgefandi: Bæjarblaðið sf., pósthólf 106, 300 Akranes ® 93-2660
Ritstjórn:
Andrés Óiafsson, Gunnlaugur Björnsson, Haraldur Bjarnason
og Sigþór Eiríksson.
Setning og prentun: Prentbær sf.
UH UTKOMU
Hvað er nú á seyði? Er ekki komið út blað hér á
Akranesi? Og það blað um bæjarmálefni. Jú, lesandi
góður, þú átt kollgátuna, því þetta sem þú heldur á
er 1. tbl. Bæjarblaðsins.
Blað þetta er hugsað sem fréttablað Akurnesinga
og er ætlunin að í því birtist greinar um ýmsa þá
atburði og málefni sem ofarlega eru á baugi hér í bæ.
Von okkar er sú, að hægt verði að gefa blaðið út
mánaðarlega og reynt verður að hafa efni þess sem
fjölbreytilegast. Fyrir utan það sem áður var nefnt,
munum við birta öðru hvoru viðtöl við menn utan úr
bæ og jafnvel spyrja fólk á förnum vegi álits á hinum
margvíslegustu málefnum. Að sjálfsögðu verður svo
lesendadálkur í blaðinu og hvetjum við fólk til að tjá
sig, annaðhvort með bréfi, sem sendist í pósthólf 106,
eða þá að hringja í síma 2660. Þá höfum við í hyggju
að hafa nokkra fasta punkta í blaðinu, svo sem íþrótt-
ir og greinar sem vinur vor Skuggi skrifar og jafnvel
eitthvað fleira.
Ákveðið hefur verið að blaðið skuli vera óháð, þ.e.
ekki málgagn einhverra ákveðinna stjórnmálaskoð-
anna, en hins vegar munum við ekki hika við að taka
afstöðu til hinna ýmsu mála eftir því sem þurfa
þykir.
Blaðið mun og verða opið þeim sem eitthvað vilja
leggja til þeirrar umfjöllunnar er fram fer á síðum
blaðsins svo og frískum pennum, sem hafa frá ein-
hverju að segja, undan einhverju að kvarta, eða jafn-
vel einhverja lofgjörð fram að færa.
Að síðustu er bara að vona að lesendum falli blaðið
vel í geð og að áframhald geti orðið á útgáfunni.
Góðar stundir.
JÓN KARL EINARSSON:
FINNLANDSFERD
BARNAKÚRS AKRANESS
Barnakór Akraness átti þess
kost að þekkjast boð um tón-
leikaferðalag til Finnlands nú í
sumar. Farið var þann 29. júlí og
komið samdægurs til Finnlands.
Strax á Helsinkiflugvelli beið
kórsins einn þeirra aðila er að
undirbúningi heimsóknarinnar
stóð. Peir aðilar, sem að þessu
stóðu eru samtök norrænna tón-
listaruppalanda N.M.P.U., en þau
samtök héldu nú í Dipoli í Espoo
sitt 12. þing, samhliða námskeið-
um og tónleikahaldi. Daginn eftir
komuna til Heisinki var þingið
sett og hófst sú athöfn með því
að Barnakór Akraness söng þrjú
íslensk lög. Ennfremur komu
fram við setningarathöfnina
Helsinki Junior Strings, sem er
tvímælalaust meðal þeirra
fremstu sinnar tegundar í heim-
inum í dag.
Á þriðja degi kórsins í Finn-
landi kom hann fram ásamt
tveim öðrum kórum á tónleikum
í Tapiola kirkjunni, sem er án
efa hið besta sönghús sem kórn-
ÍBÚÐIR ÓSKAST
TIL LEIGU
Okkur vantar nokkrar íbúðir fyrir
starfsmenn íslenska járnblendifélagsins
nú þegar eða í náinni framtíð.
Vinsamlegast hafið samband við
Egil Egilsson í síma 2644.
um hefur hlotnast að syngja í.
Enduðu þeir tónleikar með því
að kórinn söng íslenska þjóð-
sönginn. Kirkjan var fullsetin og
risu allir úr sætum. Var það
áhrifaríkt að heyra hinn smá-
vaxna og fámenna hóp fylla þetta
mikla hús og fá staðfestingu á
hrifningu áheyrenda í dynjandi
lófataki strax og síðustu tónarnir
dóu út.
Næsta dag átti kórinn fríann
og var þá farið í skoðunarferð
í að gera sjónvarpskvikmynd um
þingið.
Að morgni næsta dags var svo
haldið brott úr Helsinki og til
bæjar sem Heinola heitir, og
sungið þar á tónleikum í kirkju
þeirra ásamt fulltrúum tónlistar-
skóla Heinola. Var það fyrsti lið-
ur í árlegri menningarvöku Hein-
ola. Voru móttökur þar með því-
líkum eindæmum að hver og
einn meðlimur kórsins var leyst-
ur út með gjöfum.
Kórinn við minnismerki Sibeliusar í Helsinki.
um Helsinki og endað með því
að heimsækja Barnakór Kondula-
hverfis í Helsinki, en sá kór var
einmitt á íslandi fyrir rúmu ári
síðan og tók þá þátt í Barnakóra-
keppni norrænu útvarpsstöðv-
anna.
Daginn eftir hélt svo kórinn
sína síðari tónleika í aðal þing-
salnum en þá voru komnir menn
frá finnska sjónvarpinu og tóku
upp lagið „Á sprengisandi" eftir
Sigvalda Kaldalóns. Var það liður
Frá Heinola var svo haldið til
Nárpes vinabæjar okkar og sung-
ið þar tvívegis í kirkjunni, en
hún er meðal þeirra elstu í
heiminum.
Eftir tvo daga í Nárpes var
Finnland kvatt og haldið til Kaup-
mannahafnar, þar sem staðið var
við í tvo daga. Ekki reyndist unnt
að halda tónleika í Kaupmanna-
höfn og voru því dagarnir þar
kærkomin hvíld eftir erfiða en
skemmtilega Finnlandsferð.
3