Bæjarblaðið - 07.05.1981, Blaðsíða 10
BundiO slitlag á
Akranesveg
Þeir sem aka um Akranesveg
(þjóðveg nr. 51) hafa ekki kom-
ist hjá því að veita eftirtekt
ömurlegu ástandi hans undan-
farin ár. Hver holan af annarri
tekur við um leið og malbikaða
kaflanum sleppir. hetta á sér
sínar eðlilegu skýringar, gamali
malarvegur þolir ekki slíka um-
ferð, sem er um veginn.
í fyrra var síðan hafist handa
við róttækar breytingar og til
stóð að leggja slitlag á hluta
vegarins. Þetta verkefni var
hins vegar sett svo aftarlega á
verkefnalista Vegagerðarinnar
að dæmið gekk ekki upp það
árið.
En hvað verður gert í sumar?
Ekki er gott að segja um það á
tímum samdráttar í ríkisútgjöld-
um. Bæjarstjórn Akraness legg-
ur mikla áherslu á að unnið
verði við veginn af krafti. Fyrir
skömmu sendi Magnús Odds-
son bæjarstjóri, Vegagerð ríkis-
ins og þingmönnum Vesturlands
bréf til áréttingar þessu máli.
Bréfið var svohljóðandi:
„í tilefni þess, að vegaáætlun
verður til umfjöllunar nú á næst-
unni, vil ég leita eftir stuðningi
við framkvæmdir á Akranesvegi.
Ég óska eftir að fé verði veitt
til vegarins á þessu ári, svo
hægt verði að leggja bundið slit-
lag á 8 km. kafla, sem langt er
komið að undirbyggja og að lok-
ið verði við undirbyggingu þess
hluta vegarins, sem eftir verður
svo hægt verði að Ijúka lagn-
ingu bundins slitlags á hann á
næsta ári.
Samkvæmt áætlun síðasta árs
og að fengnu viðbótarfé frá
Byggðasjóði, var gert ráð fyrir
að leggja bundið slitlag á 4 km.
kafla. Verki seinkaði svo, að
fresta varð þessari framkvæmd
og olli það miklum vonbrigðum
hér á Akranesi. Fjármagn var
hins vegar notað til að undir-
byggja fyrrnefndan 8 km. kafla.
Umferð um Akranesveg er
mjög mikil. Hann er tenging
hinna 5170 íbúa kaupstaðarins
við þjóðvegakerfið. Öll umferð
milli Járnblendiverksmiðjunnar
og Akraness fer um veginn.
Einnig allir þungaflutningar til
Byggöasafniö í Görðum
Byggðasafnið í Görðum verður
opið reglulega frá 18. maí næst-
komandi til 31. ágúst. Opið verð-
ur alla daga frá kl. 11-12 f.h. og
2-5 e.h., en á öðrum tíma eftir
nánara samkomulagi við safn-
vörð. Fram til 18. maí verður
safnið opið eins og verið hefur
í vetur kl. 2-4 e.h. virka daga.
(Fréttati IkynningJ
Til sölu
3 herbergja íbúð á 1. hæð í fjölbýlishúsi við
Skarðsbraut. Þvottahús í íbúðinni.
Upplýsingar hjá Birgi í Heiðarskóla
sími 2111.
og frá Sementsverksmiðju ríkis-
ins, sem fara fram á landi. Á
það bæði við um hráefnis- og
sementsflutninga. M/S Akraborg
flytur um 60.000 bíla árlega og
verulegur hluti þeirra fer um
veginn. Hann er úmferðarþyngsti
vegur í Borgarfjarðarhéraði.
Ég vil minna á, að þegar er
lokið undirbyggingu og lagningu
bundins slitlags á vegi til fjöl-
margra þéttbýliskjarna með mun
færri íbúa en Akranes. T.d. var
lokið við Grindavíkurveg 1973,
Sandgerðisveg 1974, Garðaveg
1976, Vogaveg 1977. Sama sum-
ar og byrjað var á lagningu
bundins slitlags á Akranesveg,
var einnig byrjað á Stokkseyrar-
og Eyrarbakkavegi. (Far búa
tæplega 1.100 íbúar alls). Hald-
ið var áfram með lagningu á
hann sumarið 1979 og einnig s.l.
sumar og lagningu þá lokið að
vegamótum. Við Akranesveg var
hins vegar hvorki unnið að Iagn-
ingu bundins slitlags sumarið
1979 né sumarið 1980.
Ég beini því þeirri eindregnu
ósk minni til þingmanna kjör-
dæmisins og Vegagerðar ríkis-
ins, að lokið verði lagningu
bundins slitlags á fyrrnefnda 8
km. á þessu ári og að lokið
verði við undirbyggingu á þeim
kafla, sem eftir verður, svo
hægt verði að Ijúka lagningu
bundins slitlags á Akranesveg á
næsta ári.“
Svo mörg voru þau orð. Von-
andi er að ráðamenn geri sér
grein fyrir nauðsyn þess að
koma Akranesvegi í ökufært
ástand. Eins og fram kom í bréfi
bæjarstjóra er þetta umferðar-
þyngsti vegur í Borgarfirði og
óhætt er að fullyrða að umferð
um hans eykst stöðugt. Pá er
gott fyrir ráðamenn að hafa í
huga, að óvíða á landinu hefur
íbúum fjölgað eins ört á skömm-
um tíma og á Akranesi.
Húsbyggjendur
Mikið úrval af vegg- og loftplötum
Nýkomnar spónaplötur í öllum þykktum
Eigum til vélaunnið gluggaefni
Glerull - steinull - einangrunarplast
Miðstöðvarofnar, margar gerðir
Tökum á móti pöntunum á einangrunargleri
frá Samverki hf.
Trésmiðjan Akur hf.
Akursbraut 11, — S.: 2006 og 2066
AKRANESKAUPSTAÐUR
Óskiiamunir
Mikið magn óskilamuna er í íþróttahúsinu.
Úr, handklæði, skartgripir, úlpur o.m.fl.
Vinsamlegast gætið að eignum ykkar.
Foreldrar! íþróttaiðkendur! Kannið hvort
þið eigið eitthvað af eignum í íþróttahúsinu.
Forstöðumaður.
10