Fréttablaðið - 26.07.2019, Side 1

Fréttablaðið - 26.07.2019, Side 1
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —1 7 2 . T Ö L U B L A Ð 1 9 . Á R G A N G U R F Ö S T U D A G U R 2 6 . J Ú L Í 2 0 1 9 GRILLJÓN ástæður til að grilla NEYTENDUR Forstjóri Kredia Group heitir því að dagar smálána á allt að 3.000 prósenta vöxtum séu liðnir, að minnsta kosti á þeirra vegum. Ondřej Šmakal, forstjóri Kredia Group, segir að frá því í maí síðastliðnum hafi vextir Hrað­ peninga, Múla, 1919, Smálána og Kredia lækkað niður í 53,75 pró­ sent, sem er það hæsta sem lög leyfa. „Ef þú tekur 20 þúsund króna lán hjá okkur þá þarftu að borga 20.719 krónur ef þú borgar innan mánaðar. Við berum virðingu fyrir hámarksgjöldum á Íslandi,“ segir Ondřej. Gísli Kr. Björnsson, lögmaður og stjórnandi Almennrar innheimtu, sem sér um að innheimta fyrir smálánafyrirtækin á Íslandi, segir að hætt sé að innheimta lán sem eru með yfir 53,75 prósent vöxt­ um. „Það eru engin eldri lán í inn­ heimtu,“ segir Gísli. „Það var að kröfu Almennrar innheimtu að þessum lánum var breytt og við höfum útvegað allar sundurliðanir sem við höfum getað og verið beðin um.“ Öllum lánum hafi verið breytt þannig að þau fari ekki yfir hámark árlegs hlutfallskostnaðar. „Ef það er einhver með eldri kröfu í innheimtu þá óska ég eftir að viðkomandi leiti til okkar. Við viljum aðeins innheimta kröfur sem eru í samræmi við íslensk lög.“ Brynhildur Pétursdóttir, fram­ kvæmdastjóri Neytendasamtak­ anna, segir það jákvætt að smá­ lánin heyri sögunni til. „Ef það er raunverulega svo að Almenn innheimta er loksins að hætta innheimtu á ólögmætu smá­ lánunum þá auðvitað fögnum við því, enda tími til kominn, og við væntum þess að ólögmætar kröfur verði látnar niður falla,“ segir Bryn­ hildur. Meira en helmingur þeirra sem leituðu til Umboðsmanns skuldara í fyrra höfðu tekið smálán. – ab / sjá síðu 4 Smálán heyra nú sögunni til Forstjóri Kredia Group, sem á smálánafyrirtækin 1909, Múla og fleiri, segist bera virðingu fyrir íslensk- um lögum. Aðeins verði lánað fyrir hæstu löglegu vexti. Innheimtu lána á hærri vöxtum hafi verið hætt. Það var að kröfu Almennrar inn- heimtu að þessum lánum var breytt og við höfum útvegað allar sundurliðanir sem við höfum getað og verið beðin um. Gísli Kr. Björnsson, stjórnandi Almennrar innheimtu Laugardalurinn verður fullur af lífi og fjöri næstu daga en keppni á hinu árlega Rey Cup fótboltamóti Þróttar hófst í gær. Að þessu sinni taka um 1.350 stelpur og strákar á aldrinum 13-16 þátt í mótinu. Mótið mun standa fram á sunnudag en auk fótboltans er boðið upp á fjölbreytta dagskrá sem inniheldur meðal annars ball og grillveislu. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Fleiri myndir frá Rey Cup er að finna á +Plússíðu Fréttablaðsins. Fréttablaðið +Plús er í Frétta- blaðs-appinu og PDF-útgáfu á Fréttablaðið.is.+PLÚS ÍÞRÓTTIR Keppendur í Tour de France hjólreiðakeppninni fara ekki varhluta af hitabylgjunni sem geisar í Frakklandi. Þeir hafa nú hafið klifur sitt upp í Alpana í um 30 stiga hita. Hitinn fór eitthvað illa í Wales­ verjann Luke Rowe og Þjóðverjann Tony Martin en þeim hefur verið vísað úr keppninni eftir slags­ m á l í b r a u t ­ inni. Heima­ m a ð u r i n n J u l i a n A l a ­ philippe heldur f o r y s t u n n i e n keppninni lýkur í París á sunnudag­ inn. – bbh / sjá síðu 10 Hiti og slagsmál í Tour de France 2 6 -0 7 -2 0 1 9 0 5 :1 0 F B 0 5 6 s _ P 0 5 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 5 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 3 7 9 -A E C 0 2 3 7 9 -A D 8 4 2 3 7 9 -A C 4 8 2 3 7 9 -A B 0 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 5 6 s _ 2 5 _ 7 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.