Fréttablaðið - 26.07.2019, Qupperneq 2
Veður
Norðaustan 3-10 m/s. Fer að rigna
í dag, fyrst austan til, en úrkomu-
minna norðanlands. Hiti 8 til 18 stig,
hlýjast á Suðurlandi. SJÁ SÍÐU 16
Druslugangan undirbúin
Druslugangan verður farin í níunda sinn næstkomandi laugardag. Gangan fer frá Hallgrímskirkju klukkan 14 og endar á Austurvelli. Undirbún-
ingur hefur staðið alla vikuna og í gærkvöld fór fram hannyrðapönk og skiltagerð á Loft hosteli þar sem einnig var hægt að kaupa varning. Aðstand-
endur göngunnar vilja færa ábyrgð kynferðisglæpa frá þolendum yfir á gerendur og færa skömmina þangað sem hún á heima. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
SAMFÉLAG „Þetta byrjaði sem verk-
efni hjá Jónu Ottesen og er svona
hennar barn. Hún byrjar með þetta
fyrir fjórum árum ásamt tveimur
öðrum og svo hefur þetta stækkað
smátt og smátt í gegnum árin,“ segir
Særós Rannveig Björnsdóttir, einn
skipuleggjenda Kátt á Klambra. En
þann 1. júní síðastliðinn lenti Jóna
í alvarlegu bílslysi þegar hún var
á leið heim úr sumarbústað með
dóttur sinni. Jóna hlaut alvarlegan
mænuskaða við slysið.
Hátíðin verður haldin í fjórða
sinn á Klambratúni á sunnudaginn
frá klukkan ellefu til fimm og búast
skipuleggjendur við miklum fjölda
gesta. „Fyrsta árið mættu á milli
tólf og fimmtán hundruð manns
á hátíðina og svo hefur fjöldi gesta
margfaldast í gegnum árin. Í fyrra
voru um 4.000 gestir,“ segir Særós.
„Við erum bjartsýn á að fá um
5-6.000 manns núna. Ef við náum
að selja 6.000 miða verður uppselt
og við erum bara mjög bjartsýn á
að það gerist,“ segir Hildur Soffía
Vignisdóttir, annar skipuleggjandi
hátíðarinnar.
Dagskrá hátíðarinnar er sniðin
að börnum og var mikið lagt upp
úr því að allir finni eitthvað við
sitt hæfi þegar dagskráin var sett
saman. „Við erum með skipti-
aðstöðu og aðstöðu þar sem er hægt
að gefa brjóst í næði. Fyrir yngstu
börnin erum við til dæmis með
kósítjöld og fyrir þau eldri hjóla-
brettasvæði og þrautabrautir. Svo
alls konar tónlistaratriði, andlits-
málun og ýmsar smiðjur þar sem
krakkarnir geta tekið þátt,“ segir
Hildur Soffía.
„Við höfum fengið mjög jákvæð
viðbrögð frá foreldrum sem tala
um að þarna loksins finni þeir stað
þar sem allir finni eitthvað við sitt
hæfi,“ bætir Hildur Soffía við.
„Það er svo margt í gangi fyrir
fullorðna á sumrin, alls konar
hátíðir úti um allt. En börn hafa
fengið lítið pláss í menningunni og
það er lítið að gera fyrir þau á sumr-
in svo þetta er svona okkar leið til
að svara því kalli,“ segir Særós.
Særós og Hildur Soffía eru sam-
mála um að líklega sé um frið-
sælustu útihátíð landsins að ræða.
Markhópurinn sé fjölskyldan og
markmiðið sé að njóta samverunn-
ar. „Það er ekki drukkinn bjór eða
annað áfengi á svæðinu og við leyf-
um ekki reykingar svo þetta er mjög
fjölskylduvænt og að okkar mati fal-
legasta hátíðin, þar sem fjölskyldan
á góðan dag saman í rólegheitunum
á afslöppuðu grænu svæði.“
Fólk er hvatt til þess að taka með
sér teppi og nýta svæðin og af þrey-
inguna sem í boði er á svæðinu.
birnadrofn@frettabladid.is
Kósítjöld fyrir yngstu
börnin á Klambratúni
Barna- og fjölskylduhátíðin Kátt á Klambra verður haldin í fjórða skipti á
Klambratúni á sunnudaginn. Skipuleggjendur hátíðarinnar eru sammála um
að hátíðin sé friðsælasta útihátíð landsins, en ekki er leyfilegt að neyta áfengis
á svæðinu. Boðið verður upp á ýmsa afþreyingu fyrir börn á öllum aldri.
Það er svo margt í
gangi fyrir full-
orðna á sumrin, alls konar
hátíðir út um allt. En börn
hafa fengið lítið pláss í
menningunni.
Særós Rannveig
Björnsdóttir, einn
skipuleggjenda
Kátt á Klambra
Skipuleggjendur hátíðarinnar á Klambratúni í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Sparaðu allt að 50-70%!
info@fedaszdental.huHafðu samband:
+ 36 70 942 9573 www.tannlaeknathjonusta.is
Fyrir
Eftir
Tannlækningar í Ungverjalandi
LÖGREGLUMÁL Rannsóknarlög-
reglan á Suðurnesjum rannsakar
ekki hvarf Mateusz Tynski sem
sást síðast í febrúar. Þetta staðfestir
Jóhannes Jensson, yfirmaður rann-
sóknardeildar. Eina athugunin sem
virðist hafa farið fram er að Mateusz
hafi farið úr landi.
Lögreglan hefur því ekki rann-
sakað hvort Mateusz hafi sagt upp
í vinnu sinni, selt bifreið sína eða
skilið eftir aðrar eigur sínar þegar
hann fór af landi brott. Eins og fram
kom í samtali við bróður Mateusz
var hann í stöðugu sambandi við
fjölskyldu sína þau fjögur ár sem
hann var hér á landi. – khg
Rannsakar ekki
hvarf Mateusz
Mateusz Tynski. MYND/ITAKA
SAMKEPPNISMÁL Félag atvinnurek-
enda (FA) hefur sent Samkeppnis-
eftirlitinu (SE) erindi þar sem farið
er fram á rannsókn á háttsemi
afurðastöðva sem að mati félagsins
hefur leitt til fyrirsjáanlegs skorts á
lambahryggjum í verslunum.
Í erindi FA er bent á að umrædd-
an skort megi rekja til stórtæks
útf lutnings á verði sem sé mun
lægra en íslenskum verslunum
standi til boða. FA vill að SE skoði
hvort afurðastöðvar hafi gerst
brotlegar við samkeppnislög með
samstilltum aðgerðum og hvort
umræddar vörur hafi verið undir-
verðlagðar í útflutningi til að skapa
skort innanlands.
Eins og greint var frá fyrr í vik-
unni hefur atvinnuvegaráðuneytið
brugðist við með því að gefa út
tímabundinn innf lutningskvóta.
FA telur ástæðu til að SE sendi
stjórnvöldum tilmæli um breytta
stjórnsýsluframkvæmd í tilvikum
sem þessum. Brugðist hafi verið allt
of seint við þrátt fyrir augljós teikn
á lofti um yfirvofandi skort. – sar
SE skoði hvort
afurðastöðvar
hafi brotið lög
Lambahryggi og hryggsneiðar gæti
skort á næstunni. FRÉTTAVILHELM
Lagður hefur verið til
tímabundinn innflutnings-
kvóti á lambahryggjum og
hryggsneiðum. Frá 29. júlí
til 30. ágúst verði 30 pró-
senta verðtollur felldur
niður og magntollur lækk-
aður úr 382 krónum í 172.
2 6 . J Ú L Í 2 0 1 9 F Ö S T U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
6
-0
7
-2
0
1
9
0
5
:1
0
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
7
9
-B
3
B
0
2
3
7
9
-B
2
7
4
2
3
7
9
-B
1
3
8
2
3
7
9
-A
F
F
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
5
6
s
_
2
5
_
7
_
2
0
1
9
C
M
Y
K