Fréttablaðið - 26.07.2019, Page 4

Fréttablaðið - 26.07.2019, Page 4
Fáðu fréttablað dagsins í tölvupósti kl. 3.00 á morgnana. Skráðu þig á póstlista blaðsins á www.frettabladid.is#nyskraning Það kostar ekkert. Vertu fyrst/ur að lesa blaðið Við höfum fengið fjölda mála þar sem lántakendur smálána hafa greitt margfalt meira til baka en þeim ber lögum samkvæmt, jafnvel sem nemur mörgum hundruðum þúsunda. Brynhildur Pétursdóttir, framkvæmda- stjóri Neytenda- samtakanna *Aftonbladet, Svíþjóð 2019 Bólukrem ársins! Aleria sigrast á bólum og stuðlar að heilbrigðri húð. Einstök efnasamsetning sem virkar. Fæst í apótekum www.florealis.is 1 Elís a bet tek ur Meg han og Harr y fram fyr ir Katr ín u og Vil hjálm 2 „Mér finnst bara kjánalegt að fólk hagi sér svona“ 3 „Þótt Mogginn segi það – þá er það ekki satt“ 4 Fer ófögrum orðum um Svein Andra 5 „Leiðin legt að þetta hafi farið fyrir brjóstið á svona mörgum“ NEYTENDUR „Ég hef fundað með Umboðsmanni skuldara nokkrum sinnum. Ég ber mikla virðingu fyrir starfi Ástu og hennar fólks sem gerir allt sem þau geta til að hjálpa fólki í skuldavanda,“ segir Ondřej Šmakal, forstjóri Kredia Group. Árið 2018 voru 59 prósent þeirra sem óskuðu eftir aðstoð umboðs­ manns skuldara með smálán. Ondřej segir að fundirnir hafi skipt máli. „Gögn frá US eru mjög mikil­ vægt framlag í okkar áhættumat og ákvarðanir okkar um hverjum skal lána. Til dæmis þá komum við í veg fyrir að viðskiptavinur sem leitað hefur til US fái lán hjá okkur,“ segir Ondrej. „Við lánum ekki til einstaklinga undir tvítugu og við höfum tekið upp herta skilmála fyrir viðskipta­ vini á aldrinum 20 til 25 ára. Að því sögðu þá myndi það hjálpa mjög ef skráningar US yrðu aðgengilegar fjármálafyrirtækjum. Ég hef rekist á nokkur dæmi þess að viðskiptavinur leiti til US, fari í greiðsluaðlögun en taki svo önnur lán í millitíðinni. Slík skrá myndi hjálpa mjög til að koma í veg fyrir slíkt.“ Neytendasamtökin hafa gagn­ rýnt smálánafyrirtækin og Almenna innheimtu ehf., innheimtufyrirtæki þeirra á Íslandi, harðlega að undan­ förnu og hvatt lántaka til að hætta að greiða af lánum yfir lánskostnaði. „Við höfum fengið fjölda mála þar sem lántakendur smálána hafa greitt margfalt meira til baka en þeim ber lögum samkvæmt, jafnvel sem nemur mörgum hundruðum þúsunda,“ segir Brynhildur Péturs­ dóttir, framkvæmdastjóri sam­ takanna. Gísli Kr. Björnsson, lögmaður og eigandi Almennrar innheimtu ehf., segir að lánunum hafi verið breytt að kröfu innheimtufyrirtækisins. „Í maí síðastliðnum tilkynnti Almenn innheimta okkur að þeir myndu hætta að starfa með okkur ef við breyttum ekki viðskiptamód­ elinu okkar á Íslandi og við gerðum það. Við gerum ekki ráð fyrir öðru en að við getum haldið áfram samstarfi okkar við Almenna innheimtu,“ segir Ondrej. Vörumerkin fimm eru í eigu eCom­ merce 2020, sem er í eigu Kredia Group. Ondřej segir enga starfsemi á Íslandi. „Kredia Group eða dóttur­ fyrirtæki þess hafa enga starfsemi á Íslandi. Engir starfsmenn, engin skrif­ stofa. Auðvitað getur þetta breyst í framtíðinni. Ef það gerist þá munum við tilkynna það.“ Ondrej segir að lykilstarfsemin fari fram í Tékklandi. „Heimilisföng­ in í Kaupmannahöfn, Lundúnum og Prag sem blaðamenn heimsóttu eru skráð húsfesti okkar fyrirtækja. Ég heimsæki þessar skrifstofur oft. Flest af okkar starfsfólki vinnur hvaðan sem það vill. Við lifum í staf­ rænum heimi,“ segir Ondřej. „Kredia Group samanstendur af 20 sérfræðingum á sviði fjármála, áhættumats og markaðsmála. Hóp­ urinn starfar í Tékklandi, Bretlandi og Danmörku. Annarri þjónustu er úthýst.“ Fram til þessa hefur verið á óljóst hver í eigi í raun smálánafyrirtækin, Ondřej segir það ekkert leyndar­ mál. „Kredia Group skipti nýverið um eigendur. Michal Mensik, sem átti fyrirtækið, ákvað að hætta og ég ákvað að kaupa það. Við höfum möguleika á því að bjóða viðskipta­ vinum okkar á Norðurlöndunum upp á áhugverðar vörur á sviði fjár­ málatækni, að sjálfsögðu fylgjum við lögum um neytendavernd á hverjum stað fyrir sig.“ – ab Fundir með Umboðsmanni skuldara skiptu miklu máli Ondřej Šmakal, forstjóri Kredia Group, segir að hann virði íslensk lög. Forstjóri Kredia Group hefur fundað marg- sinnis með Umboðs- manni skuldara. Í fyrra var meira en helmingur þeirra, sem óskuðu eftir aðstoð, með smálán. FRAKKLAND Franska tískuhúsið Sonia Rykiel heyrir nú sögunni til. Þetta varð ljóst eftir að leit að nýjum eigendum bar ekki árangur. Fyrir­ tækið verður nú tekið til gjaldþrota­ skipta en reksturinn hafði gengið illa undanfarin ár. Verslunum í New York og London var lokað í apríl síðastliðnum. Sonia Rykiel stofnaði tískuhúsið í París árið 1968 og var yfirhönnuður þess til 1995 þegar dóttir hennar tók við. Sonia var oft kölluð drottning prjónaf líkurinnar en hönnun hennar er talin einkenna þann anda sem ríkti í París á 7. áratug síðustu aldar. Leikkonan Audrey Hep­ burn gerði meðal annars röndótta prjónapeysu Soniu heimsfræga. Sonia lést fyrir þremur árum, 86 ára að aldri. Hún hafði þá glímt við Parkinson um árabil. – sar Sonia Rykiel gjaldþrota Sonia Rykiel. REYKJAVÍK Ótrú leg sprenging hefur orðið í komu gesta í Fjöl skyldu­ og hús dýra garðinn á fyrstu sex mán­ uðum ársins og þá hafa ívið f leiri lagt leið sína í sund laugar Reykja­ víkur borgar. Þetta kemur fram í til kynningu frá ÍTR. Gestum Fjölskyldu­ og húsdýra­ garðsins fjölgaði um 32 þúsund á fyrri helmingi ársins miðað við sama tíma í fyrra. Þá hafa 40 þúsund f leiri gestir mætt í sund­ laugarnar miðað við í fyrra. Gesta­ fjöldinn í laugarnar er 1.173.000 og í Fjöl skyldu garðinn 100.600 fyrstu sex mánuðina. Frétta blaðið hefur áður greint frá því að í nú í maí var met að sókn í Fjölskyldu­ og húsdýragarðinn en þá heim sóttu 26 þúsund manns dýrin og leik tækin. Var það tölu­ verð fjölgun gesta miðað við árið áður en maí mánuður 2018 var sá versti í sögu garðsins þegar gestir voru einungis 13 þúsund. Í maí 2019 komu 26.000 f leiri gestir í sund en árið 2018 og 14.000 f leiri í júní mánuði 2019 en 2018. Í Fjöl skyldu garðinum voru gestir 14.000 f leiri í júní mánuði saman­ borið við 2018. Ekki eru til gögn yfir fjölda gesta á Yl ströndinni í Naut hóls vík en í til kynningunni kemur fram að að­ sókn þar hafi verið gífur lega góð í sumar, bæði hjá þeim sem sækja Yl ströndina heim sem og hjá þeim sem stunda sjósund. – oæg Gestir Fjölskyldu- og húsdýragarðsins rúmlega 100 þúsund fyrri hluta ársins Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn nýtur vinsælda. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK VIÐSKIPTI Afkoma Landsbankans var jákvæð um 11,1 milljarð króna eftir skatta á fyrri helmingi ársins 2019 samanborið við 11,6 milljarða króna hagnað á sama tímabili árið 2018. Arðsemi eigin fjár á tímabil­ inu var 9,1 prósent á ársgrundvelli, samanborið við 9,9 prósent á sama tímabili 2018. „Uppgjör Landsbankans fyrir fyrri hluta ársins er gott. Tekjur bankans voru hærri og kostnaður lægri en gert var ráð fyrir og ljóst að grunnreksturinn er traustur og skilar góðri arðsemi. Aðhald í rekstri bankans á stóran þátt í að rekstrarkostnaður bankans stendur í stað á milli tímabila,“ er haft eftir Lilju Björk Einarsdóttur, banka­ stjóra Landsbankans, í tilkynningu frá bankanum. Einnig er haft eftir Lilju Björk að skilvirkni hafi aukist með hagnýt­ ingu á stafrænni tækni og nýjungar í þjónustu fengið góðar viðtökur hjá viðskiptavinum. Kostnaðar­ hlutfall bankans hafi verið rúmlega 40 prósent sem sé lægra en á sama tíma í fyrra og lægra en markmið bankans. Eigið fé Landsbankans var 240,6 milljarðar króna í lok júní og eigin­ fjárhlutfallið var 23,7 prósent. – tfh Landsbankinn skilaði níu prósenta arðsemi Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri Landsbankans. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR 2 6 . J Ú L Í 2 0 1 9 F Ö S T U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 2 6 -0 7 -2 0 1 9 0 5 :1 0 F B 0 5 6 s _ P 0 5 3 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 7 9 -C 7 7 0 2 3 7 9 -C 6 3 4 2 3 7 9 -C 4 F 8 2 3 7 9 -C 3 B C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 5 6 s _ 2 5 _ 7 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.