Fréttablaðið - 26.07.2019, Side 10

Fréttablaðið - 26.07.2019, Side 10
HJÓLREIÐAR Þegar 14 kílómetrar voru eftir af 17. dagleið Tour de France lenti þeim Luke Rowe frá Wales og Tony Martin frá Þýska- landi saman á brautinni. Rowe var næstum keyrður út af brautinni af Martin og var ekki sáttur. Hjólaði á eftir honum, náði í skottið á honum og ýtti við og lét nokkur vel valin orð fylgja. UCI, Alþjóða hjólreiðasam- bandinu, og forráðamönnum Tour de France var ekki skemmt og hentu báðum keppendum úr keppni. Rowe talaði við blaðamenn eftir að hann steig út úr bíl UCI og sagðist vera niðurbrotinn enda hefði þetta verið lítið brot. „Mér finnst þetta ósanngjarnt. Ég var í klukkutíma þarna inni að skoða myndbönd af atvikinu og barðist ekkert aðeins fyrir mig heldur líka fyrir hann. En því miður hafði ég ekki erindi sem erfiði,“ sagði sá velski. Rowe hjólar fyrir Team Ineos og leikur lykilhlutverk í því að aðstoða Geraint Thomas í því að verja titil- inn frá því í fyrra. Þetta er því mikið högg fyrir ríkasta hjólreiðalið heims en Ineos er í eigu Íslandsvinarins Jims Ratcliffe. Liðið hét áður Team Sky en er nú í eigu Ratcliffes sem hefur styrkt stöðu þess sem eins af stórveldum hjólreiðanna. Martin var sömuleiðis niður- brotinn og fannst refsingin heldur hörð. „Mér finnst auðvitað hrika- legt að skilja liðið eftir á þessum stað. Við erum að berjast við  að koma manni á pall og mér finnst þetta hörð refsing en það þýðir víst ekki að deila við dómarann,“ sagði hann en Martin hjólar fyrir Team Jumbo-Visna. Liðin gáfu út sameiginlega yfir- lýsingu þar sem skoðað er að áfrýja niðurstöðunni. „Þetta hafði ekki áhrif á nokkurn annan keppanda og hafði ekki áhrif á nokkurt annað lið. Þeir hjóluðu í mark og tókust í hend- ur á eftir. Það voru engin illindi í þessu enda bera þeir mikla virðingu hvor fyrir öðrum. Að keppni þeirra skuli enda svona finnst okkur órétt- læti,“ sagði í yfirlýsingunni. Flestir aðrir keppendur voru sam- mála um að refsingin væri heldur hörð. Amund Grøndahl Jansen, sem er samherji Martins hjá Jumbo- Visna, sagði við fréttamenn að þarna væru samankomnir 180 vit- leysingar sem væru að hjóla rétt við hver annan í hartnær þrjár vikur. „Auðvitað gerist eitthvað á leiðinni og í þessum hita er það eðlilegt að bregðast við þegar eitthvað svona gerist. Það er mannlegt að gera mis- tök og ég tel að það sé vitleysa að senda menn heim geri menn ein lítil mistök,“ sagði hann. Ben King, sem hjólar fyrir Dimension Data, tók í sama streng sem og Roger Kluge sem hjólar fyrir Lotto-Soudal. Óbærilegur hiti Þrír dagar eru eftir af þessari erf- iðustu hjólreiðakeppni heims og hjóluðu kapparnir fyrsta legginn af Ölpunum í gær. Heimamaðurinn Julian Alaphilippe hefur leitt frá átt- unda legg og stefnir að því að verða fyrsti heimamaðurinn til að vinna Tour de France síðan 1985. Hann er þó langt frá því að vera þekktastur fyrir hraða sinn upp brattann. Hitinn hefur gert hjólreiða- mönnum er f itt f yrir og hafa sumir brugðið á það ráð að hjóla í ísvestum. Á miðvikudag var keppt á tiltölulega auðveldu yfirborði en hitinn fór hæst í 39 stig og malbikið minnti helst á steikarpönnu. Jasper Styven tísti að hann hefði ekki haft orku til að klára legginn en hann var í góðri stöðu skömmu fyrir lokaátökin. „Þetta getur ekki verið heilsusamlegt. Þegar hitinn verður svona of boðslegur þarf kannski að grípa eitthvað í taumana,“ sagði Steven Kruijswijk. Vissulega er hit- inn minni uppi í Ölpunum en þegar lagt var af stað í gær var hitinn 10 gráðum hærri en venjulega. Aðeins 45 mínútum áður en keppnin hófst  í gær birtist lyfja- eftirlitið frá UCI og tók lið Jumbo- Visna í lyfjapróf en hjólreiðar hafa verið litaðar af svörtum sauðum í gegnum tíðina. Steven Kruijswijk, Laurens De Plus og George Bennett fóru í blóðprufu til að athuga hvort maðkur væri í mysunni. Svo reynd- ist ekki vera og voru þeir félagar mættir á ráslínuna þegar hjólað var af stað. De Plus spaugaði á rás- línunni með að hann fagnaði lyfja- eftirlitinu. „Ég er enn með plástur- inn og þetta er smá óþægilegt en við viljum að íþróttin sé hrein og ég vildi frekar gera þetta en hjóla á móti mönnum sem ég vissi að væru að taka inn eitthvað ólöglegt. Þeir birtast óvænt sem er gott, því ég vil ekki hjóla gegn fólki sem er að taka inn eitthvað ólöglegt.“ Alls eru hjólaðir 3.480 kílómetrar í þessari keppni en hún endar á sunnudag á Champs-Élysées. Í gær voru hjólaðir 208 kílómetrar frá Embrun til Valloire. Nairo Quint- ana frá Kólumbíu kom fyrstur í mark en heimamaðurinn Ala- philippe kom 23. í mark en heldur hinni frægu gulu treyju sem fremsti maður hjólar í. benediktboas@frettabladid.is Við suðumark innan vallar sem utan Tour de France hefur nú hafið klifur sitt upp Alpana. Til að gera hlutina enn verri er hitabylgja að ganga yfir landið svo hjólað var upp í móti í 30 stiga hita. Keppnin hefur ekki verið tíðindalaus og tveir hafa verið reknir heim fyrir slagsmál í brautinni. Team Ineos á fullri ferð í upphafi Tour de France. Þeir eru nú einum manni færri eftir að Luke Rowe var sendur heim. Matteo Trentin frá Ítalíu kemur í mark eftir 200 km hjólreiðar á þriðjudag. Julian Alaphilippe stefnir á að verða fyrsti Frakkinn til að vinna síðan 1985. Það er ekkert grín að hjóla upp Alpana, hvað þá þegar hitinn er orðinn svo mikill að flestum þykir nóg um. MYNDIR/NORDICPHOTOS/GETTY Úrslit 18 leggir n Nairo Quintana (Movistar) n Romain Bardet (Ag2R La Mondiale) n Alexey Lutsenko (Astana) n Lennard Kamna (Team Sunweb) n Damiano Caruso (Team Bahrain Merida) n Tiesj Benoot (Lotto Soudal) n Michael Woods (EF Education First) n Egan Bernal (Team Ineos) n Serge Pauwels (CCC Team) n Steven Kruijswijk (Team Jumbo Visma) Staðan: n Julian Alaphilippe (Deceun- inck Quick Step) at 75h 18’49” n Egan Bernal (Team Ineos) 1:30 á eftir n Geraint Thomas (Team Ineos) 1:35 á eftir n Steven Kruijswijk (Team Jumbo Visma) 1:47 á eftir n Thibaut Pinot (Groupama- FDJ) 1:50 á eftir 2 6 . J Ú L Í 2 0 1 9 F Ö S T U D A G U R10 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SPORT 2 6 -0 7 -2 0 1 9 0 5 :1 0 F B 0 5 6 s _ P 0 5 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 7 9 -E A 0 0 2 3 7 9 -E 8 C 4 2 3 7 9 -E 7 8 8 2 3 7 9 -E 6 4 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 A F B 0 5 6 s _ 2 5 _ 7 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.