Fréttablaðið - 26.07.2019, Qupperneq 10
HJÓLREIÐAR Þegar 14 kílómetrar
voru eftir af 17. dagleið Tour de
France lenti þeim Luke Rowe frá
Wales og Tony Martin frá Þýska-
landi saman á brautinni. Rowe var
næstum keyrður út af brautinni af
Martin og var ekki sáttur. Hjólaði á
eftir honum, náði í skottið á honum
og ýtti við og lét nokkur vel valin orð
fylgja. UCI, Alþjóða hjólreiðasam-
bandinu, og forráðamönnum Tour
de France var ekki skemmt og hentu
báðum keppendum úr keppni.
Rowe talaði við blaðamenn eftir
að hann steig út úr bíl UCI og sagðist
vera niðurbrotinn enda hefði þetta
verið lítið brot. „Mér finnst þetta
ósanngjarnt. Ég var í klukkutíma
þarna inni að skoða myndbönd af
atvikinu og barðist ekkert aðeins
fyrir mig heldur líka fyrir hann. En
því miður hafði ég ekki erindi sem
erfiði,“ sagði sá velski.
Rowe hjólar fyrir Team Ineos og
leikur lykilhlutverk í því að aðstoða
Geraint Thomas í því að verja titil-
inn frá því í fyrra. Þetta er því mikið
högg fyrir ríkasta hjólreiðalið heims
en Ineos er í eigu Íslandsvinarins
Jims Ratcliffe. Liðið hét áður Team
Sky en er nú í eigu Ratcliffes sem
hefur styrkt stöðu þess sem eins af
stórveldum hjólreiðanna.
Martin var sömuleiðis niður-
brotinn og fannst refsingin heldur
hörð. „Mér finnst auðvitað hrika-
legt að skilja liðið eftir á þessum
stað. Við erum að berjast við að
koma manni á pall og mér finnst
þetta hörð refsing en það þýðir víst
ekki að deila við dómarann,“ sagði
hann en Martin hjólar fyrir Team
Jumbo-Visna.
Liðin gáfu út sameiginlega yfir-
lýsingu þar sem skoðað er að áfrýja
niðurstöðunni. „Þetta hafði ekki
áhrif á nokkurn annan keppanda og
hafði ekki áhrif á nokkurt annað lið.
Þeir hjóluðu í mark og tókust í hend-
ur á eftir. Það voru engin illindi í
þessu enda bera þeir mikla virðingu
hvor fyrir öðrum. Að keppni þeirra
skuli enda svona finnst okkur órétt-
læti,“ sagði í yfirlýsingunni.
Flestir aðrir keppendur voru sam-
mála um að refsingin væri heldur
hörð. Amund Grøndahl Jansen,
sem er samherji Martins hjá Jumbo-
Visna, sagði við fréttamenn að
þarna væru samankomnir 180 vit-
leysingar sem væru að hjóla rétt við
hver annan í hartnær þrjár vikur.
„Auðvitað gerist eitthvað á leiðinni
og í þessum hita er það eðlilegt að
bregðast við þegar eitthvað svona
gerist. Það er mannlegt að gera mis-
tök og ég tel að það sé vitleysa að
senda menn heim geri menn ein lítil
mistök,“ sagði hann. Ben King, sem
hjólar fyrir Dimension Data, tók í
sama streng sem og Roger Kluge sem
hjólar fyrir Lotto-Soudal.
Óbærilegur hiti
Þrír dagar eru eftir af þessari erf-
iðustu hjólreiðakeppni heims og
hjóluðu kapparnir fyrsta legginn af
Ölpunum í gær. Heimamaðurinn
Julian Alaphilippe hefur leitt frá átt-
unda legg og stefnir að því að verða
fyrsti heimamaðurinn til að vinna
Tour de France síðan 1985. Hann er
þó langt frá því að vera þekktastur
fyrir hraða sinn upp brattann.
Hitinn hefur gert hjólreiða-
mönnum er f itt f yrir og hafa
sumir brugðið á það ráð að hjóla í
ísvestum. Á miðvikudag var keppt
á tiltölulega auðveldu yfirborði en
hitinn fór hæst í 39 stig og malbikið
minnti helst á steikarpönnu. Jasper
Styven tísti að hann hefði ekki haft
orku til að klára legginn en hann
var í góðri stöðu skömmu fyrir
lokaátökin. „Þetta getur ekki verið
heilsusamlegt. Þegar hitinn verður
svona of boðslegur þarf kannski
að grípa eitthvað í taumana,“ sagði
Steven Kruijswijk. Vissulega er hit-
inn minni uppi í Ölpunum en þegar
lagt var af stað í gær var hitinn 10
gráðum hærri en venjulega.
Aðeins 45 mínútum áður en
keppnin hófst í gær birtist lyfja-
eftirlitið frá UCI og tók lið Jumbo-
Visna í lyfjapróf en hjólreiðar hafa
verið litaðar af svörtum sauðum í
gegnum tíðina. Steven Kruijswijk,
Laurens De Plus og George Bennett
fóru í blóðprufu til að athuga hvort
maðkur væri í mysunni. Svo reynd-
ist ekki vera og voru þeir félagar
mættir á ráslínuna þegar hjólað
var af stað. De Plus spaugaði á rás-
línunni með að hann fagnaði lyfja-
eftirlitinu. „Ég er enn með plástur-
inn og þetta er smá óþægilegt en
við viljum að íþróttin sé hrein og
ég vildi frekar gera þetta en hjóla á
móti mönnum sem ég vissi að væru
að taka inn eitthvað ólöglegt. Þeir
birtast óvænt sem er gott, því ég vil
ekki hjóla gegn fólki sem er að taka
inn eitthvað ólöglegt.“
Alls eru hjólaðir 3.480 kílómetrar
í þessari keppni en hún endar á
sunnudag á Champs-Élysées. Í gær
voru hjólaðir 208 kílómetrar frá
Embrun til Valloire. Nairo Quint-
ana frá Kólumbíu kom fyrstur
í mark en heimamaðurinn Ala-
philippe kom 23. í mark en heldur
hinni frægu gulu treyju sem fremsti
maður hjólar í.
benediktboas@frettabladid.is
Við suðumark innan vallar sem utan
Tour de France hefur nú hafið klifur sitt upp Alpana. Til að gera hlutina enn verri er hitabylgja að ganga yfir landið svo hjólað
var upp í móti í 30 stiga hita. Keppnin hefur ekki verið tíðindalaus og tveir hafa verið reknir heim fyrir slagsmál í brautinni.
Team Ineos á fullri ferð í upphafi Tour de France. Þeir eru nú einum manni
færri eftir að Luke Rowe var sendur heim.
Matteo Trentin frá Ítalíu kemur í mark eftir 200 km hjólreiðar á þriðjudag. Julian Alaphilippe stefnir á að verða fyrsti Frakkinn til að vinna síðan 1985.
Það er ekkert grín að hjóla upp Alpana, hvað þá þegar hitinn er orðinn svo mikill að flestum þykir nóg um. MYNDIR/NORDICPHOTOS/GETTY
Úrslit 18 leggir
n Nairo Quintana (Movistar)
n Romain Bardet (Ag2R La
Mondiale)
n Alexey Lutsenko (Astana)
n Lennard Kamna (Team
Sunweb)
n Damiano Caruso (Team
Bahrain Merida)
n Tiesj Benoot (Lotto Soudal)
n Michael Woods (EF Education
First)
n Egan Bernal (Team Ineos)
n Serge Pauwels (CCC Team)
n Steven Kruijswijk (Team
Jumbo Visma)
Staðan:
n Julian Alaphilippe (Deceun-
inck Quick Step) at 75h 18’49”
n Egan Bernal (Team Ineos) 1:30
á eftir
n Geraint Thomas (Team Ineos)
1:35 á eftir
n Steven Kruijswijk (Team
Jumbo Visma) 1:47 á eftir
n Thibaut Pinot (Groupama-
FDJ) 1:50 á eftir
2 6 . J Ú L Í 2 0 1 9 F Ö S T U D A G U R10 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SPORT
2
6
-0
7
-2
0
1
9
0
5
:1
0
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
7
9
-E
A
0
0
2
3
7
9
-E
8
C
4
2
3
7
9
-E
7
8
8
2
3
7
9
-E
6
4
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
0
5
6
s
_
2
5
_
7
_
2
0
1
9
C
M
Y
K